Morgunblaðið - 20.11.1998, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
FÖSTUDAGUR 20. NÓVEMBER 1998 2 7
ÞÓRUNN Sigþórsdóttir söngkona (t.v.) ræðir við konsúl Islands í
Stuttgart, Emiliu Hartmann.
Reykjavíkur-
myndir Asgeirs
Smára í Þýskalandi
SÝNING á verkum Ásgeirs
Smára Einarssonar listmálara
var nýverið opnuð í ráðhúsi
Abstatt í Þýskalandi. Málverkin á
sýningunni eru óður til Reykja-
víkur og kvaðst Ingimundur Sig-
fússon sendiherra Islands í
Þýskalandi, sem opnaði sýning-
una, vona að þau myndu vekja
áhuga sýningargesta á nánari
kynnum við land og þjóð og auka
líkurnar á því að þeir sæktu ls-
land heim. Undir þetta tók Ás-
geir Smári og óskaði sýningar-
gestum góðrar ferðar um
Reykjavík - í gegnum verk sín.
Aðrir sem tóku til máls við
opnunina voru Rúnar Emilsson
skólastjóri tónlistarskólans í
Abstatt og Rúdiger Braun bæjar-
stjóri. Lýsti sá síðarnefndi
ánægju sinni með þau tengsl sem
myndast hafa milli Islands og
Þýskalands gegnum listina. Þá
söng Þórunn Sigþórsdóttir
sópransöngkona við undirleik
Rúnars Emilssonar og var þeim
ÁSGEIR Smári Einarsson við
eitt verkanna á sýningunni.
vel fagnað af sýningargestum
sem voru á annað hundrað tals-
ins.
Þetta er þriðja sýning Ásgeirs
Smára í Þýskalandi. Hann hefur
áður sýnt í Bocholt og Borken in
Gesher.
4,4 milljómr fynr
vafasaman van Gogh
Ziirich. Morg^unblaðið.
ÞRJÁTIU og sjö listaverk úr lista-
safni Reader’s Digest voru seld á
uppboði hjá Sotheby’s í New York á
mánudagskvöld fyrir 86 milljónir
dollara. Mynd eftir Amedeo Modigl-
iani af Jeanne Hebuterne fór á 15,1
milljón en það er metverð fyrir verk
eftir Modigliani.
Myndin „Les Chaumiéres á Au-
vers“ (Kofar með stráþaki í Auvers)
eftir Vincent van Gogh var seld fyr-
ir 4,4 milljónir dollara. Sjálfskipaðir
van Gogh sérfræðingar efast um að
myndin sé eftir hollenska meistar-
ann. Sotheby’s tekur gagnrýni
þeirra ekki alvarlega en sagði fyiúr
uppboðið að kaupandinn myndi fá
myndina endurgreidda ef það ætti
eftir að koma í ljós að van Gogh
hefði ekki málað hana.
Listaverkin voru seld af því að út-
gefendur Reader’s Digest eru í fjár-
þröng. Fyrrverandi ritstjóri tíma-
ritsins sagði að Lila Acheson
Wallace, meðstofnandi Reader’s
Digest, hefði orðið æf ef hún hefði
vitað að myndirnar yrðu boðnar upp
á uppboði. „Hún vildi að venjulegir
Bandaríkjamenn gætu notið mynd-
inna. Hún hefði sannarlega ekki
kært sig um að þær yrðu lokaðar
inni hjá einhverjum ríkisbubba."
Jóhann Maríusson sýnir
í Svarta pakkhúsinu
FÉLAG myndlistarmanna í
Reykjanesbæ opnar nýjan sýning-
arsal á Hafnargötu 2 í dag kl. 18,
með sýningu Jóhanns Maríussonar.
Þetta er fyrsta einkasýning Jó-
hanns, en hann hefur tekið þátt í
samsýningum hér heima og einnig í
Flórída.
Á þessari sýningu eru högg-
myndir, unnar í tré í bland með öðr-
um náttúruefnum, s.s. gleri, málmi,
steinum og beinum.
Jóhann er sjálfmenntaður lista-
maður en naut tilsagnar Ralf Hurst,
er Jóhann dvaldi ytra við nám.
Félagið hefur rekið sýningarsal í
húsinu í u.þ.b. ár, en Reykjanesbær
hefur nú afhent félaginu nýjan sal í
húsinu til afnota fyrir starfsemina,
sýningar- og námskeiðshald. Fé-
lagsmenn hafa sjálfir unnið að
standsetningu húsnæðisins sem
hlotið hefur nafnið Svarta pakkhús-
ið, en fyrrum var í húsinu fiskverk-
un.
Jóhann var einn af fyrstu með-
limum félagsins sem komu sér upp
vinnuaðstöðu í nýja húsnæðinu.
Þetta er sölusýning og lýkur henni
6. desember. Aðgangur er ókeypis.
Þjóðbúningar í
Listhúsi Ófeigs
SIGRÚN Jónsdóttur með búninga sína sem
tákna árstíðirnar fjórar.
SIGRÚN Jónsdóttir, kirkjulista-
kona, opnar sýningu í Listhúsi
Ófeigs, Skólavörðustíg 5, laugar-
daginn 21. nóvember kl. 16.
Það er nánast árlegur viðburður
til fjölda ára að Sigrún hafi á að-
ventunni sýningu listaverka sinna
og þá jafnan með nýja gripi handa
kirkjum. Svo er einnig nú, en að
þessu sinni verður í fyrirrúmi
þjóðbúningur sem hún gerði fyrir
1100 ára afmæli íslandsbyggðar
1974 og þróaði frekar á fimmtíu
ára afmæli lýðveldisins 1994. Hún
hefur enn bætt mynstrum við þau
sem fyrir voru og sýnir þau á
brúðum ásamt búningum til notk-
unar. Þessi búningur Sigi’únar hef-
ur unnið sér hefð í notkun. m.a.
hafa fegurðardrottningar Islands
skartað þessum búningum á er-
lendri grund.
Sigrún nam textfllist í sjö ár í Sví-
þjóð, lengst af í fremsta textfllista-
skóla Svíþjóðar, Slöjdfóreningens
skola í Gautaborg, og lauk náminu
þar með sérhæfingu í kirkjutextíl.
Fyrstu sýningu sína á Islandi hélt
hún í Bogasal Þjóðminjasafnsins
1955, og í kjölfarið hefur fylgt fjöldi
sýninga víða um land og erlendis,
þar sem hún hefur unnið til alþjóð-
legra vei’ðlauna og viðurkenningar.
Sýningin verður opin á versl-
unartíma og stendur til 9. desem-
ber.
frumsýnd i dag