Morgunblaðið - 20.11.1998, Blaðsíða 40
40 FÖSTUDAGUR 20. NÓVEMBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
Vel að verki staðið
* HESTAR________________
ÍM v n <11> a n (1 s s p ó 1 n r
LANDSMÓT HESTAMANNA
Myndbandsspólur með efni frá landsmóti hesta-
manna á Melgerðismelum 1998. Framleiðandi Saga
film og uppl ókustjórar Bjarni Þór Sigurðsson og
Erna Kettler. Dreifing hjá Hestamanninum
ALDREI fyrr hefur verið eins veglega staðið að
útgáfu rayndbanda af vettvangi landsmóta sem
nú. Hvorki fleiri né færri en fimm spólur hafa
verið gefnar út hver með sínu móti og sú sjötta
væntanleg. Fyrst er að nefna spólu sem hefur
að geyma þverskurð af því helsta sem gat að líta
á mótinu. Þá er sérstök spóla með gæðingum
þar sem getur að líta öll þau 20 hross sem náðu í
fullnaðardóm í hvorum flokki, yngri flokkarnir
eru á sér spólu og kynbótahrossum er skipt á
tvær spólur, stóðhestar á annarri og hryssur á
hinni. A sjöttu spólunni verða svo ræktunarhóp-
ar og töltkeppnin.
Með þessum hætti era landsmótinu að sjálf-
sögðu gerð afar góð skil og má fullyrða að aldrei
fyrr hafi eins vel verið að verki staðið. Aldrei
fyrr hefur heldur verið eins mikið lagt í sjón-
varpsupptökur á nokkru hestamóti á Islandi.
Sýnt var beint frá mótinu og unnu sextán
manns við upptökur á mótinu. Sem dæmi má
nefna að fjórar fastar upptökuvélar vora stað-
fttar niðri við jörð inni á aðalhringvellinum á
elgerðismelum iýrir utan aðrar vélar á svæð-
inu. Það verður þó að segjast eins og er að þess-
ar fóstu vélar gerðu h'tið gagn því sjónarhornið
sem þær virtust taka er ekki það sjónarhorn
sem hestamenn vilja sjá þegar þeir horfa á
myndir af glæstum gæðingum. Auðvitað er
sjálfsagt að skjóta inn einu og einu slíku skoti.
En hvað um það, þarna var greinilega ferðinni
fólk sem lagði mikið undir og vildi gera vel.
Annað atriði sem vert er að minnast á er sýn-
ing fets í fullnaðardómum gæðinga. Þá er í tíma
og ótíma verið að sýna fætur hrossanna, höfuðið
á þeim og andlit knapans í nærmynd. Látum
vera með andlit knapana, það er gaman að sjá
einbeitingu, hvernig sumir knapanna era jafnvel
í hrókasamræðum eða öllu heldur eintali við
hestinn til að halda einbeitingu hans eða róa þá
niður. Fótum og höfði hests í nærmynd í sýn-
ingu hafa hestamenn lítinn eða engan áhuga á.
Þeir vilja sjá hestinn í heild sinni, hvort hann
nær framfótarspori með afturfæti, sjá og heyra
hvort takturinn sé réttur og svo framvegis.
Enginn þulur er með gæðingaspólunni en
hinsvegar er notað að hluta tal þeirra Samúels
Arnar Erlingssonar og Guðmundar Birkis Þor-
kelssonar og svo að hluta orð stjórnanda keppn-
innar Sigrúnar Sigurðardóttur. Kemur þetta
ágætlega út að því undanskildu að Guðmundur
Birkir sem þama á að vera í hlutverki sérfræð-
ingsins þekkir hvorki knapa né hest í alltof
mörgum tilvikum. Annars kemur ágætlega út
að hafa enga þuli þar sem myndefni skýrir sig
nokkuð sjúlft eins og gert var á spólunni frá
stóphestastöðinni í vor.
Á öðram spólum er Júlíus Brjánsson þulur og
kemst hann prýðilega frá sínu en þó má að finna
að því að rómur og framsetning hans er óþarf-
lega mikið í þá veru eins og hann sé að lesa sögu
fyrir börn í Stundinni okkar.
Myndbandsspólur frá hestasýningum ásamt
hægspólunartækni hafa stuðlað að miklum
framfóram í mati manna á einstökum atriðum
hæfileika. Landsmótsspólurnar nú hafa skapað
mikla umræðu bæði meðal hinna fjölmörgu
brekkudómara og alvöru dómara. Hross hafa
ýmist fallið eða risið í þessari nákvæmu endur-
skoðun. Þessi umræða hefur jákvæðan tilgang
að því leyti að mönnum lærist betur að skynja
atriði sem geta verið flókin eins og til dæmis
kýrstökk þegar hratt er riðið. Myndbandatækn-
in olli straumhvörfum í greiningu þess og ætla
má að flestir og vonandi allir gæðingadómarar
hafi gott vald á greiningu kýrstökks.
Hið neikvæða við þessa umræðu getur verið
að þessi tækni flettir ofan af ótal göllum sem
tekst að fela á líðandi stund. Að þessu leyti get-
ur umræðan orðið neikvæð og má stundum
heyra menn ganga svo langt að vera búnir að af-
greiða hin ágætustu hross niður í miðlungs
draslur sem ekki eiga heima í sýningum. Menn
verða að gæta þess að verða ekki ofurseldir
tækninni og neikvæðinu. Hrossin verða að fá að
njóta sannmælis og sú útgeislun og áhrif sem
sýning hrossanna skapar á líðandi stund verður
alltaf grandvöllur þeirra einkunna sem hrossið.
Hitt geta menn notað sér til fróðleiks og von-
andi skemmtunar.
Þessar fimm spólur frá landsmótinu eru sjálf-
sagt eins og aðrar spólur yfirfullar af einhverj-
um smágöllum sem finna má með einhverskon-
ar lúsaleit. Ekki hirði ég um að reyna að finna
þær. Það að þær veita fróðleik og skemmtun og
endurlífga góða daga á Melgerðismelum er að-
alatriðið og standa þær svo sannarlega undir
góðum væntingum.
Valdimar Kristinsson
Morgunblaðið/V aldimar Kristinsson
HOPREIÐIN á landsmótinu sló eftirminnilega í gegn og má telja líklegt, að eftirleiðis fari allar hópreiðar á stórmótum fram á laugardagskvöldum
eins og gert var á Melgerðismelum.
A Nettölti
Ljón, skrölt-
ormar og arabar
með tölti
MJÖG fróðlegar umræður eru
oft á ýmsum listum sem hægt er
að tengjast á Netinu og fjalla um
íslenska hesta. Á bandariskum
lista koma fram ólíkar áherslur í
hestamennskunni og ólíkar að-
stæður, t.d. hvað beri að gera ef
þú ert að ríða út og mætir
skröltormi, fjallaljóni eða bimi.
S&yldi engan undra að Banda-
ríkjamenn leggi áherslu á gott
geðslag og taugastyrk þegar
þeir ætla að kaupa sér íslenskan
hest. En listarnir em kjörinn
vettvangur til að fylgjast með
straumum og stefnum í útlönd-
um
Hægt er að nálgast ýmiss kon-
ar spjalllista á www.online.com.
Meðal annars er listi sem íjallar
um íslenska hesta og heitir hann
icelandichorse. Þar fer fram um-
ræða um allt milli himins og
jarðar sem tengist íslenska hest-
inum. Á öðrum lista, iceryder,
spjalla þeir seman sem eiga ís-
lenska hesta og leggja stund á
náttúrulega reiðmennsku
(natural horsemanship).
Flestir sem eru inni á icland-
ichorse-listanum eru bandarískir
*i þar er einnig að finna Islend-
ga, Breta, Þjóðveija og eflaust
fleiri. Umræðuefnin em marg-
vísleg eins og áður segir og er
þar að fínna frásagnir af bjöm-
um, fjallaljónum og skröltorm-
um auk ýmissa annarra vanda-
mála og gleðilegra tiðinda.
Skröltormur drap
íslenskan hest
Saga Helgu af örlögum Loft-
fara er áhrifamikil. Hún segir
frá því þegar hún var í útreiðar-
túr fyrir nokkmm ámm á hest-
inum Loftfara. Skröltormur, ný-
skriðinn úr híði, réðst á hann og
hálftíma síðar Iá hesturinn dauð-
ur. Af viðbrögðum annarra virð-
ist það vera mjög óvenjulegt að
skröltormar drepi svo stóra
skepnu, en þessi var nývaknaður
af dvala og fullur af eitri.
Hryssa
í menningaráfalli
Mikil umræða hefur einnig
farið fram um hryssu sem kona
nokkur í Bretlandi keypti frá fs-
landi í sumar. Þegar hryssan
kom til Bretlands gat hún ekki
séð neitt líkt með hryssunni og
þeirri sem hún hafði valið á Is-
landi nema litinn. Allt fas henn-
ar og ganghæfíleikar virtust
gerbreytt. Hún segist ekki hafa
neinar sannanir fyrir því að
þetta sé ekki sama hrossið og
viti ekki hvemig hún á að snúa
sér í málinu.
Ekki stóð á ráðleggingum og
upp úr stendur að fólk virðist al-
mennt á þeirri skoðun að sum
hross verði fyrir svo miklu
menningaráfalli við að flytjast
frá íslandi að það taki þau
stundum heilt ár eða meira að
jafna sig. í kaupbæti fylgdu
dæmisögur um hesta sem
breyttust úr ljóta andarungan-
um í svan þegar þeir höfðu jafn-
að sig.
Arabar með tölti
eða lítill, loðinn
hestur
Flýgur fískisagan og ekki
alltaf rétt. Strax eftir síðustu
helgi kom sú frétt á listann að
búið væri að reka Kristin Huga-
son hrossaræktarráðunaut. Sú
spurning fylgdi í kjölfarið hvort
Islendingar ætluðu þá að hætta
að rækta araba með tölti og
snúa sér að litla, þétta og loðna
hestinum! Islendingar á listan-
um vom fljótir að leiðrétta
þennan misskilning með Kristin
og málið virðist úr sögunni í bili.
Þýskumælandi fólk ætti líka
að líta á lista sem er á síðu
þýsku Islandshestasamtakanna
www.ipzv.de.
Stjórn
Bændasam-
takanna ætl-
ar að finna
lausn á
deilunni
STJÓRN Bændasamtaka ís-
lands fjallaði á fundi sínum á mið-
vikudag um deilur þær sem upp
eru komnar milli Kristins Huga-
sonar hrossai-æktan-áðunautar
Bændasamtakanna og Kristins
Guðnasonar formanns Félags
hrossabænda og greint var frá í
hestaþætti á þriðjudaginn.
Ari Teitsson formaður Bænda-
samtakanna sagði í samtali við
Morgunblaðið að þar sem trúnað-
arbrestur hafi orðið á milli þess-
ai-a aðila sé ekki hægt að bjóða
hrossabændum upp á þjónustu
ráðunautarins ef þeir treysta
honum ekki og hann ekki þeim.
Hann segir að ekki liggi fyrir
hvernig stjórn Bændasamtak-
anna ætli að greiða úr þessu máli
en gengið verði í það á næstu
dögum og á fundinum hafi stjórn-
in velt vöngum yfir ýmsum
möguleikum.
Ai'i segir að þrátt fyiúr að
lausn málsins sé ekki aðkallandi
þai' sem málið snúist um fram-
kvæmd dóma á kynbótahrossum
sem ekki hefjast aftur fyrr en í
vor verði reynt að leysa málið
sem allra fyrst.
Abyrgðar-
sjóður vegna
Saga-reiðskól-
ans verði
lagður niður
Á NÝAFSTÖÐNUM aðalfundi
Félags hrossabænda var sam-
þykkt að leggja niður ábyi'gðar-
sjóð félagsins vegna Saga-reið-
skólans og greiða deildum og fé-
lagi höfuðstólinn að fullu til baka.
Á undanförnum árum hafa
verið settir á fót reiðskólar í
Þýskalandi undir merkjum
Saga-reiðskólans. Félag hrossa-
bænda varð aðili að þessu verk-
efni og stofnaði ábyi'gðarsjóð
sem geymdur hefur verið í ís-
lenskum banka. Þegar nýr skóli
hefur verið stofnaður hefur hann
getað sótt um ábyrgð frá íslandi
sem nemur í mesta lagi sölu-
verði hrossa sem keypt hafa ver-
ið af bændum hér á landi.
I ársskýrslu Félags hrossa-
bænda kemur fram að miklar
breytingar hafi átt sér stað á
rekstrarfyrirkomulagi Saga-
reiðskólanna og hefur félags-
skapnum verið breytt í hlutafé-
lag með takmarkaða ábyrgð.
Vegna þessa hafi Félag hrossa-
bænda þurft að endurskoða
þátttöku sína í verkefninu.
Stjórn Félags hrossabænda
hefur fjallað um þesssar breyt-
ingar og rætt var við fulltrúa
skólanna í september meðal
annars um að félagið drægi til
baka það fé sem það hefur lagt í
ábyrgðarsjóðinn og greiddi það
til baka til deilda félagsins út
um land. Hluti félagsins er
einnig varðveittur í banka. Ein
ábjrrgð hefur verið veitt til
skóla, en hún rennur út árið
2001 og verður þá greidd til
baka til félagsins.
Nokkur vonbrigði hafa verið
meðal hrossabænda með hversu
fá hross hafa verið keypt á veg-
um skólanna og kemur fram í
skýrslunni að ekkert hross hafi
verið keypt af þeim á síðasta
starfsári. Nú er verið að setja á
fót tvo nýja skóla og þrátt fyrir
að Félag hrossabænda leggi nið-
ur ábyrgðarsjóðinn mun enn
vera áhugi á að kaupa hross frá
Islandi til skólanna og vera í
samstarfi við félagið um að út-
vega þá.
Ásdís Haraldsdóttir