Morgunblaðið - 20.11.1998, Qupperneq 42

Morgunblaðið - 20.11.1998, Qupperneq 42
4Q FÖSTUDAGUR 20. NÓVEMBER 1998 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ RÚMAR BÁRÐUR OLAFSSON + Rúnar Bárður Ólafsson fædd- ist í Njarðvík 15. mars 1962. Hann Iést að slysförum 14. nóvember s.l.. Foreldrar hans eru Guðlaug Bárðar- dóttir, f. í Njarðvík 12. janúar 1943 og Ólafur Þorgils Guð- mundsson málara- meistari f. í Sand- “'gerði 24. júlí 1939. Systkini eru Við- ar Ólafsson slökkvi- liðsmaður, f. 31. ágúst 1966, kvæntur Róbertu B. Maloney, f. 9. ágúst 1963, dóttir þeirra Anita Eva og börn Róbertu frá fyrra hjónabandi Oskar og Auður. Sveinbjörg Sigríður hjúkrunarfræðing- ur, f. 10 mars 1972, unnusti hennar er Kjartan Ingvars- son, f. 22. júlí 1970 sonur hennar er Ólafur Elí. Utför Rúnars Bárðar fer fram frá Ytri-Njarðvíkur- kirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 14. Elsku Rúnar okkar, það að þú sért dáinn er okkur óskiljanlegt, ég og mamma í helgarferð út í Amer- íku þegar við fáum þessar sorgar- fréttir að þú værir látinn af slysför- um. Það er svo margt sem kemur upp í huga okkar og svo margt sem okkur langar að segja. Við þökkum fyrir allar góðu stundirnar sem við áttum saman, betri bróður gátum við ekki átt. Þú sem varst svo góð- aSi og notalegt að vera í návist þinni. En minningin um þig verður aldrei frá okkur tekin. Hvað við vorum stolt af að eiga svo hug- myndríkan og handlaginn bróðir, allt lék í höndum þér og það sem þú tókst þér fyrir hendur var gert af svo mikilli natni og samvisku- semi. Söknuður okkar er svo mikill, þú svo tryggur og yndi okkar allra. Gaman var þegar þú passsaðir okkur þegar við vorum ung, þá var Vg.ypt heilt Blokksúkkulaði og búið til piparmyntunammi, vakið fram- eftir og við sváfum öll í sama her- bergi. Minningamar eru margar, við í hjólhýsinu, í sumarbústaðnum að spila á spil, í krikket og heima hjá þér því öll höfum við búið hjá þér tímabundið. Avallt var pláss fyrir okkur og þér fannst sjálfsagt að umturna þínu eigin heimili svo við gætum verið hjá þér. Ahugamál þín voru mörg og þú varst svo ánægður og ljómaðir þegar þú til- kynntir okkur að þú væri að láta draum þinn rætast að læra köfun. En slysin gera ekki boð á undan sér, þeir einir sem átt hafa mikið, geta misst mikið. v'Við systkinin kveðjum þig kæri bróðir með söknuði og megi góði guð styrkja fjölskyldur okkar og foreldra. Sveina og Viðar. Vegir Drottins eru órannsakan- legir, það er oft erfitt að að trúa staðreyndum lífsins, sérstaklega er erfitt að trúa því að ungur maður í blóma lífsins sé skyndilega horfinn frá okkur. Maður finnur til smæðar sinnar og vanmættis. Þvflíkt reið- arslag reið yfir fjölskyldu okkar einu sinni enn þegar við fréttum að Rúnar frændi okkar væri dáinn. -Farinn er góður drengur, óvænt- úr og miskunnarlaus er dauðinn. Stutt er síðan að við hittum hann og var hannn hress í bragði og var farinn að læra köfun. En hann ætl- aði einmitt að nýta sér köfunina til að taka myndir neðansjávar. Rún- ar hafði mörg merkileg áhugamál, hann hafði mikinn áhuga á flugvél- um, t.d. smíðaði hann flugvélamód- el og á hann eitt merkilegasta flug- vélaljósmyndasafn á Islandi og þótt viðar væri leitað. Þessar myndir hafði hann tekið þegar flugvélar höfðu viðkomu hér á flug- vSllinum. Rúnar var í mótorhjóla- klúbbi og ferðaðist hann mikið með félögum sínum um landið. Þegar Rúnar var yngri starfaði hann mik- ið í KFUM og var oft í Vatnaskógi, var hann virkur þar í mörg ár. Rúnar var mjög traustur og trygg- ur drengur og mjög samviskusam- EHann lærði málaraiðn hjá fóður um og var hann kominn með meistararéttindi. Rúnar starfaði sem málari á Kefiavíkurflugvelli. Á þessari sorgai-stundu viljum við senda stutta kveðju frá ömmu Rúnu, sem er vistmaður á Garð- vangi. „Kæri Rúnar minn, ég vil þakka þér fyrir hvað þú hefur reynst mér góður og tryggur drengur og hvað þú varst duglegur að heimsækja okkur afa Bárð og mig í seinni tíð eftir að ég varð ein. Guð varðveiti minningu þína.“ Við viljum biðja guð að blessa minningu um góðan dreng. Minn- inginn um Rúnar frænda mun lifa um aldur og ævi. Fyrir hönd fjöl- skyldu okkar viljum við votta Gullu og Óla, Viðari, Sveinu og fjölskyldu þeirra okkar dýpstu samúð og biðja góðan guð að styrkja þau í sorg þeirra. Ingólfur Bárðarson og Halldóra Jóna Guðmundsdóttir Fimmtudaginn 12. nóvember síðastliðinn kom Rúnar Bárður Ólafsson í aðalstöðvar okkar í Reykjavík. Erindi hans var að sýna nokkrum drengjum í Skógamnum KFUM myndir af flugvélum og mótorhjólum og segja þeim frá þessum áhugamálum sínum. Hann var glaður og reifur og gladdist yf- ir því að geta enn á ný lagt eitthvað af mörkum til félagsstarfs KFUM. Aðeins tveimur dögum síðar barst okkur svo hin hörmulega frétt að Rúnar hefði látist við köf- un. Rúnar tók þátt í starfi KFUM í Keflavík frá unga aldri. Hann var í hópi áhugasamra drengja sem margir taka enn virkan þátt í 813141 KFUM. Rúnar var með í öllum deildum félagsins, fyrst í yngri deild og síðan í unglingadeild. Síð- ar gerðist hann sjálfur leiðtogi í yngri deild og unglingadeild. Rún- ar tók þátt í starfi KFUM af lífi og sál. Hann var ávallt boðinn og bú- inn að aðstoða og ekki síst nutu KFUM og KFUK þess þegar hann hóf að læra málaraiðn. Félagar hans minnast með þakklæti alls þess sem hann gerði þegar félögin festu kaup á gömlu bakaríi í Kefla- vík og breyttu því í félagsheimili. Á unglingsárum hóf Rúnar að taka þátt í vinnuflokkum í sumarbúðun- um í Vatnaskógi. Á þeim árum var það algengt að unglingar kæmu yf- ir helgi á sumrin og hjálpuðu til við ýmsar verklegar framkvæmdir en á þeim er aldrei skortur í Vatna- skógi. Eftir að hann hóf að læra og vinna við málun varð það hans að- alframlag til starfsins. Oft kom hann helgi eftir helgi til að mála því að ef Rúnar tók eitthvað að sér þá var staðið við það. Það má segja að í áratug hafi hann séð um og borið ábyrgð á málningarviðhaldi í Vatnaskógi. Hann átti margar ánægjustundir í Vatnaskógi og staðurinn var honum kær. Þótt Rúnar hafi ekki tekið mikinn þátt í starfi Vatnaskógar seinni árin þá býr ennþá þakklæti í hugum Skóg- armanna fyrir trúfesti hans og minningin um hann lifir. Við minn- umst Rúnars sem góðs félaga og bróður. Rúnar hafði áhuga á mörgu og þess nutum við í KFUM. Við sendum fjölskyldu hans okkar innilegustu samúðarkveðjur og biðjum þeim blessunar Guðs. F.h. KFUM og Skógarmanna KFUM, Sveinn Valdimarsson. Lífið er hverfult. Það voru sorg- arfréttir sem bárast til okkar ætt- ingjanna síðdegis síðasta laugar- dag. Rúnar Bárður hafði látist á æfingu í köfun við bryggjuna í Gerðum í Garði, aðeins 36 ára að aldri. Þennan örlagaríka dag var komið að lokum á námskeiðinu. Rúnar Bárður hafði farið á nám- skeiðið fyrir það að það var metn- aður hans að læra köfun og takast á við það ögrandi verkefni sem köf- un er. Ég þekkti Rúnar Bárð nokkuð vel. Við Ólafur faðir hans erum systrasynir og að auki góðir vinir. Rúnar Bárður var hár maður og grannur, viðræðugóður, hreinn og beinn og það fór ekki framhjá nein- um viðmælanda hans að hugur fylgdi máli. Hann var málari að at- vinnu en hafði mörg áhugamál í frí- stundum sínum. Bar þar hæst ljós- myndun og flugmál. Hann átti mjög vandaðar myndavélar og hafði í mörg ár tekið ljósmyndir af flugvélum sem lentu hér á landi. Fjöldi myndanna skiptir þúsund- um og er merkilegt safn. Bárður var duglegur, skipulagð- ur og reglusamur ungur maður sem nýtti tíma sinn ákaflega vel. Hann átti alitaf góða bíla og síð- ustu árin átti hann einnig stórt mótorhjól sem hann notaði mikið yfir sumarið til ferðalaga. Samt var ekkert fjær Rúnari Bárði en glannaskapur og óvarkárni í nokk- urri mynd. Það var eðli hans að gera alla hluti á faglegan og örugg- an hátt. Ég hitti Rúnar Bárð síðast í lok júní á þessu ári á Hvanneyri, á niðjamóti hjónanna Unnar Sigurð- ardóttur og Þorgils Ái-nasonar á Þórshamri í Sandgerði. Við tókum tal saman og talið barst fljótt ann- ars vegar að flugsögu og mynda- safni hans og hins vegar að flugvél- um Atlanta-flugfélagsins, en hann var fullur áhuga á starfsemi Atl- anta og velvild til starfsmanna þess, sem hann þekkti vel gegnum áhugamál sín. Það er gott að minnast samvist- anna við Rúnar Bárð. Hann var góður drengur í fornri og nýrri merkingu þess orðs. Hinar góðu samvistir halda áfram að iifa í minningu, eins lengi og þeir era til sem muna. Við fráfall Rúnars Bárðar sendi ég og fjölskylda mín foreldram hans, systkinum, mágkonu og mági hlýjar samúðarkveðjur. Guð blessi minningu Rúnars Bárðar Ólafssonar. Þorgils Jónasson. Kynni okkar Rúnars Bárðar Ólafssonar hófust er hann hringdi í mig fýrir allmörgum áram og hóf máls á sameiginlegu áhugamáli okkar sem var flugsaga Islands. Samtalið varð alllangt og rætt var um Ijósmyndir af flugvélum sem við höfðum þá báðir safnað og tekið í nokkurn tíma, án þess að vita hvor af öðrum. Þetta símtal mark- aði upphafið að kynnum okkar og áttum við eftir að tala um flugvélar sem horfnar era, og merkingar á þeim sem var búið að breyta. Línu hafði verið breytt á skrokki fiug- vélar og Rúnar vissi allt um það, og ef ný merking kom í ljós á gamalli ljósmynd þá glöddumst við saman. Áldrei var komið að tómum kofun- um hjá honum varðandi merkingar flugvélá gamalla og nýrra, hann var ákaflega minnugur á smáatriði í útliti flugvéla. Eitt var það stór- virki sem Rúnars verður minnst fyrir á sviði flugsögunnar. Hann réðst í það að gera myndskreytta loftfarskrá af flugvélum frá upp- hafi flugs á íslandi, margir höfðu talað um að þetta væri bráðnauð- synlegt, en ekkert orðið úr, fyrr en Rúnar tók það upp hjá sjálfum sér að framkvæma þetta. Hann keypti þau tæki sem til þurfti og lærði á þau, og hellti sér út í verkið, árang- urinn var honum til sóma. I heimsókn til hans á síðasta ári varð ég dolfallinn er ég sá módel- safn hans. Hendur hans vora frekar stórgerðar, en módelin bára merki fínleika og nákvæmnisvinnu sem hann hafði lagt í til að fá allt rétt, bæði merkingar og ýmsa aukahluti sem á vélunum áttu að vera. Við hittumst síðast er hann kom á gullnu mótorhjóli sínu til Akureyrar núna í sumar, og sátum við eina kvöldstund á heimili mínu og skoð- uðum nýjar og gamlar ljósmyndir af flugvélum. Eg dáðist að þessum stóra manni, að nú vai' hann kominn með nýtt áhugamál, sem var köfun. Þetta nýja áhugamál átti hug hans allan en engan óraði fyrir að það yrði honum að aldurtfla. Minningin um heiðarlegan og hjartahlýjan mann lifír, en skai'ðið er stórt við fráfall hans fyrir þá okkar sem hafa flugsöguna sem áhugamál. Ég færi foreldram hans og systkinum og fjölskyldum þeirra mínar innileg- ustu samúðarkveðjur, megi ljóssins Guð styrkja ykkur í sorg ykkar. Hörður Geirsson. Við hjá Suðurflugi voram harmi slegnir þegar fregnir bárast af þessu hörmulega slysi. Við höfum misst einn úr hópnum okkar. Rúnai' vai' tíður gestur hjá Suður- flugi til að bæta við ljósmyndum í hið gríðai'lega safn ljósmynda og heimilda um flugsögu Islands. Hann var ávallt þessi góði hlédrægi dreng- ur sem allir höfðu velþóknun á. I flugmannaherbergi hjá Suður- flugi er lítið brot þessa gífurlega safns sem var aðaláhugamál Rún- ars. Þessar myndir munu vera áfram sem minningar um Rúnar og má þar með segja að hann hafi skil- ið eftir hluta af sjálfum sér hjá okkur. Við þökkum fyrir það. Við sendum ættingjum öllum, okkar innilegustu samúðarkveðjur. Starfsfólk Suðurflugs á Keflavíkurflugvelli. Farinn er góður drengur. Rúnar hafði verið í heimsókn hjá okkur fóstudagskvöldið 13. nóvem- ber s.l. og tjáð okkur að hann ætl- aði að fara að kafa á hádegi næsta dag. Okkur var því bragðið þegar við heyrðum í kvöldfréttunum laugar- daginn 14. nóvember s.l. að ungur maður hefði drukknað við köfun, þá um daginn. Þetta kvöld var mjög létt yfir Rúnari. Köfun átti hug hans allan. Hann hafði lokið bóklega náminu, og nú ætlaði hann að takast á við verklega þáttinn af fullum krafti. Við ræddum þetta áhugamál hans fram og aftur og hann fullvissaði okkur um að ekkert væri að óttast. En dauðinn er óvæntur og mis- kunnarlaus. Rúnar var með afbrigðum trygg- lyndur og bamgóður maður. Álltaf gaf hann sér tíma til að spjalla við börnin okkar, þegar hann heimsótti okkur á Álfaskeiðið. Það var líka greinilegt að hann bar hag foreldra sinna og systkina mjög fyrir brjósti Kæra foreldrar, systkini, systk- inabörn og aðrir aðstandendur. Góður guð gefi ykkur styrk til að takast á við sorgina. Þið eigið dýr- mæta minningu um góðan og kær- leiksríkan dreng. Guð er oss hæli og styrkur, örugg hjálp í nauðum. (Sálm. 46.2.) Kæri Rúnar. Hafðu þökk fyrir tryggð þína og vináttu. Þínir vinir, Sigurður, Nanna Björk, Lára Halla, Guðjón Teitur, Hjalti Hrafn og Jóhanna Margrét. „Lát engan líta smáum augum á æsku þína, en ver fyrirmynd trú- aðra, í orði, í hegðun, í kærleika, í trú, í hreinleika." (I Tím.4:12) Undarlegt hve tíminn líður hratt. Okkur finnst sem við höfum verið í gær að starfa saman í lifandi og blómlegu stai-fi KFUM og K í Keflavík. I raun era liðin nær tutt- ugu ár. Við vorum unglingar sem söfnuðust saman um Guðs orð und- ir styrkri handleiðslu Emilíu og unnum stói'virki eiginlega án þess að vita það. Við byrjuðum í leigu- húsnæði og hittumst á föstudags- kvöldum þar sem við sungum, báð- um, sprelluðum og hugleiddum boðskap Krists. Af hugsjónum og krafti störfuðum við saman og töld- um okkur geta allt. Við öfluðum fjár til kaupa á húsnæði fyrir starf- ið. Við seldum blóm, sælgæti, jóla- kort, kökur, fermingarskeyti og gáfum út blöð ár eftir ár. Draum- urinn varð að veraleika og keypt var gamalt bakarí og það gert upp. Hafið var starf meðal barna og unglinga sem leitt var af ungling- um og orð Guðs boðað af krafti. Við trúðum á Jesú Krist sem frelsara okkar og vildum að fleiri kynntust honum. þess vegna söfnuðumst við saman, sögðum öðram frá því sem hann hafði gert fyrir okkur og sungum Guði lof og dýrð í ein- lægni. Rúnar sem hér er minnst var einn af eldri leiðtogunum og hafði nokkra sérstöðu. Hann var með þeim elstu og þarafleiðandi fljótur að fá bílpróf, lengstur og þar að auki úr Njarðvík. Við töldum að sjálfsögðu að best væri að búa í Keflavík en hann hélt uppi sterk- um vörnum fyrir bæinn sinn og hafði oft betur því þeir voru miklu betri í körfubolta á þeim árum og höfðu meira að segja umferðarljós! Við fóram oft í Vatnaskóg og þau sem yngri voru fengu stundum að sitja í hjá Rúnari. Þá stoppaði hann iðulega hjá flugvöllum og beðið var meðan hann tók myndir af flugvél- um sem hann hafði mikinn áhuga á og safnaði af þeim myndum. Hann tók mikinn þátt í starfinu og lagði ómetanlega vinnu í að gera upp gamla bakaríið enda að læra sína málaraiðn á þessum tíma. Við gönt- uðumst stundum með að hann væri fæddur í starfið þar sem hann þyrfti ekki að nota stiga. Hann tók því með umburðarlyndi enda vanur slíkum athugasemdum og hafði líka lúmskt gaman af þrætum. Hann lagði sig fram í þessu merki- lega starfi sem var að mestu leyti haldið upp af unglingum. Eftir því sem árin liðu fóram við hvert í sína áttina til náms og starfa. Sum okk- ar stofnuðu heimili með maka og börnum, aðrir héldu út í hinn stóra heim og tengslin rofnuðu. Við viss- um samt hvert um annað. Böndin sem tengdu okkur í upphafi vora sterk og best finnum við það nú þegar sá fyrsti hverfur úr þessum hópi. Rúnar er dáinn og við syrgj- um hann. Ef til vill gerði hann sér ekki grein fyrir því frekar en við hin hve mikilvægur hann var og ómetanlegur sá skerfur sem hann lagði fram til starfsins. Stundum þarf eitthvað mikið til að staldra við og líta til baka og minnast og þakka. Við þökkum fyrir að hafa átt Rúnar að félaga og vini. Við vit- um að hann lifir nú með frelsara sínum og hvílir í faðmi Guðs, í faðmi þess sem hann treysti og þjónaði í sínu lífi. Við biðjum Guð um að hugga foreldra hans, systkini og alla ást- vini. Minning hans lifir í huga okk- ar. Emilía, Linda Sjöfn og Petrína Mjöll. Elsku Rúnar. Okkar fyrstu kynni voru fyrir mörgum áram, ég var á brautarvakt að fylgjast með flugumferð um Keflavíkurflugvöll og þú varst að taka ljósmyndir af flugvélum sem áttu leið um völlinn. Við fórum að spjalla saman og þarna fann ég að þú hafðir að geyma þvílíkan fróðleik um flug- vélar að forvitni mín opnaðist upp á gátt. AJlt í einu varst þú rokinn í burtu og sagðist koma aftur. Við áttum síðan eftir að hittast oft og spjalla saman um þetta sameigin-
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.