Morgunblaðið - 20.11.1998, Síða 54

Morgunblaðið - 20.11.1998, Síða 54
5g FÖSTUDAGUR 20. NÓVEMBER 1998 MORGUNBLAÐIÐ Dýraglens 5NATL HERNA KEMUFt SiE> ASTA SPURNIN6IN Hundalíf Smáfólk 600D M0RNIN6„|'M HERETOTELLVOU ABOUT THE "6REAT PUMPKINí: HEV', MA! THERE'S A FAL5E PROPHET AT THE POOR..LOHAT 5HOOLPI TELL HIM?_ Góðan dag, ég kem til að segja frá „Graskerinu mikla“... r. Heyrðu mamma! Það er kominn falskur spámaður hingað ... hvað á ég að segja honum? í alvöru? Hann er farinn ... ég held að hann hafi heyrt til þfn, mamma ... BREF TIL BLAÐSINS Kringlan 1 103 Reylqavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329 Mannlífíð kemur alltaf á óvart Frá Arngiími Arngrímssyni: ÞANN 11. nóvember birtist í blað- inu greinin Orsakir búferlaflutn- inga og fjallar um mannflóttann af landsbyggðinni. Fyrir fólk er lagð- ur listi um húshitun, barnaheimilis- pláss, íþróttaaðstöðu, samgöngur, afþreyingu. Allt gott og blessað. En eins og svo oft þegar ríldsstofn- un vinnur fyrir ríkisstofnun (könn- unin er unnin af félagsvísindadeild fyrir Samband sveitarfélaga) sting- ur í augun það sem vantar. Nefna má að fyllilega er eðlilegt að leggja spurninguna beint fyrir: Hvers vegna fluttir þú af landsbyggðinni? Það er, treysta málhæfni fólks til að tjá sig um flókið efni, þó svo töl- fræðin fjúki þar með út um glugg- ann. Auðvitað verður fyrirspyrj- andi sjálfur fyrst að svara erfiðum spuniingum: Er ég að leita svara sem hugnast yfirvöldunum, eða er ég að leita sannleikans? Taki hann síðari kostinn er engan veginn nóg að leggja fram gerilsneyddan spurningalista (Listi 1) án þess að sýna jafnhliða svör samanburðar- hóps. Niðurstöður sem fengnar eru úr slíkum samanburðarlausum lista eru satt best að segja næsta marklitlar. En hvað á þá hinn heiðarlegi fyr- irspyrjandi að gera? Jú, fyrst er að fá ferskar hugmyndir um spurn- ingar til að leggja fyrir fólk. Félag- arnir í öðrum deildum Háskólans eru ágæt uppspretta þeirra. En samt er nú mikilvægast að þora. Því vilji menn í raun og veru vita af hverju fólk flyst af landsbyggðinni verða þeir að spyrja óþgæilegra spurninga, draga það sjálfsagða í efa. Sumar af þess konar spurning- um gætu verið: Hefur bæjarstjórn eða sýslumaður beitt þig órétti, kúgun eða misneytingu? Hvað tek- ur langan tíma að fá viðtal við bæj- arstjóra? Fékkstu einhverja úr- lausn? Hefur verkalýðsfélagið sett fótinn fyrir þig? Eru fasteignagjöld þín reiknuð út á sama hátt og ann- arra? Fær lóðarumsókn þín sams konar umfjöliun og annarra? Hefur þú sama gengi að vinnu og aðrir? Ef þú nú vilt stofna fyrirtæki, gera þá nefndir, ráð og eftirlitsiðnaður bæjar og ríkis þér lífið leitt, eða hjálpa þær kannski til? Efni í doktorsritgerðir liggja hér á lausu fyrir alla þá sem vilja vinna og þora að spyrja. „Nokkur hluti fólks flytur alltaf frá höfuðborgar- svæðinu til að starfa við opinbera þjónustu og í öðrum þjónustu- og verslunarstörfum." Það skyldi þó ekki vera vegna þess að óæskileg- um heimamönnum sé haldið frá þeim störfum? Hvers vegna flutti fólk í bylgjum til Suðurnesja og Akraness frá Vestfjörðum? Vegna vinnunnar. Já, en kom eitthvað annað til? Af hverju gat fólkið ekki aukið umsvif sín í sinni heima- byggð og losnað við að skilja eftir rætur sínar og fasteignir og byrja frá grunni annars staðar? ARNGRÍMUR ARNGRÍMSSON, Baldursgötu 23, Reykjavík. Spilakassar og reynslan erlendis Frá Helga Geirssyni: GLÆPAMENN erlendis komust fljótt uppá lagið með að gera sér fjárhættuspilasýki fólks að féþúfu og berjast sín á milli upp á líf og dauða yfír fómarlömbunum. I Bandaríkjunum sáu stjórnvöld sér ekki annað fært en að gefa eftir ákveðin svæði fyrir alls konar fjár- hættuspil. Þar á fullorðið fólk, bæði spilasjúkt og heilbrigt að geta full- nægt fíkn sinni og skemmt sér. Með þessu móti töldu ráðamenn að stjómun fengist á málin og hægt væri að skattleggja ósómann, sem gæti komið upp í kostnað við lækn- ingar og löggæslu. Þessi viðleitni hefur náð takmörkuðum árangri, því spilavítin eru enn nær undan- tekningalaust í höndum glæpa- manna sem ráða öllu. Glæpamennirnir verða feitari og voldugri, svo þeir ráða oft tilnefn- ingu og kosningu stjórnmála- manna, lögreglustjóra og dómara, sem eiga síðan að þjóna hagsmun- um almennings. Eitt sem hefur tekist er að spila- vítiskössunum hefur verið komið af almannafæri, svo börn og ungling- ar eiga erfiðari aðgang að þeim. Eins hefur orðið mögulegt að fylgj- ast með að spilasjúkt fólk fari sér ekki að voða. Sem iðulega endar annars með því að það tapar pen- ingum sínum, atvinnu og ástvinum og bíður þess ekki bætur. Jafnvel fremur sjálfsmorð... Það má skrifa langt og ítarlegt mál um skaðsemi spilafíkninar. Jafnframt um miskunnarlausa peningagræðgi þeiiTa sem standa að spilavítismaskínunum sem not- aðar eru til að peningaplokka fólk. Eg hef skrifað mai'gar greinar um málefnið í gegnum árin, því ég hef reynslu af endurhæfingu hvers konar fíkla erlendis. Tilgangur þessarar greinar er þó ekki á þeim fræðilega grundvelli. Heldur er tilgangurinn að spyrja; hvernig íslenskir ráðamenn geta réttlætt peningaplokkið af „veikgeðja fólki,“ með spilavítisvél- um á almannafæri. Hvað þarf skaðinn að vera mikill svo að ráðamenn ranki við sér? Er ekki tími til kominn að allt gott fólk, þar með kirkja og stjórnvöld, taki í taumana áður en skaðinn verður meiri en komið er? HELGI GEIRSSON, Urðarbakka 30, Reykjavík. Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga- safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda biaðinu efni til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.