Morgunblaðið - 03.12.1998, Síða 12

Morgunblaðið - 03.12.1998, Síða 12
12 FIMMTUDAGUR 3. DESEMBER 1998 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR * Frumvarp um Háskóla Islands er að verða tilbúið Ráðherra skipar 2 menn í háskólaráð Þróun gasolíverðs Frá okt. 1997 til nóv. 1998 Krónur/lítrinn J'F'M'A m'j'j 'á's'o'n' Þróun bensínverðs1997 og 1998 82 c 80 c I 78 ‘S = 76 -o £ 74 Meðalverð hálfs mánaðar 'j Verð frá dæiu, með þjónustu 1 Verð á íslandi 1 M M i i 1 cSSO / OLIS / SKcLJUNGUR ! | u ■ W44J i éJ- ; /J ; ; ■ M Hækkun bensingjalds | í \ J ! j 14 í i ! | i _ i 4 1997 1998 \ .1 1 i 4 í i i i i í 1 , i 1 i i JFMAMJJASONDJFMAMJJASON 4 * . ‘w1 n=n 199711998: i.. i _ I.l_i .1.1.1.1.i . I I I .1 I ""’l.I.I.f.t.I.I‘">"t.t.t.I.I.f.t.t.t.I.I.f"V"f.t.I.I' JFMAMJJ ASONDJFMAMJJ ASON LIU ósátt við verðlækkun olíufélaganna Vaxandi gremju gætir í röðum útgerðarmanna FÉLAG íslenskra biíreiðaeigenda telur að lækkun á verði bensíns og dísilolíu hafi verið heldur minni en vænst hafi verið. Félagið bendir á stóran hlut ríkisins í verðmyndun eldsneytis sem takmarki möguleika til lækkunar á útsöluverði bensíns. Landssamband íslenskra útvegs- manna er ósátt við að útgerðar- menn greiði um fimm krónum meira að meðaltali fyrir hvem lítra af gasolíu en samkeppnisaðilar i ná- grannalöndunum. kiorm um olíuinnflutning á veg- um LIU eru enn til umræðu og seg- ir Sveinn Hjörtur Hjartarson, hag- fræðingur samtakanna, að vaxandi gremju gæti í röðum útgerðar- manna með það að olíuverðslækk- anir á heimsmarkaði skili sér ekki í lægra verði til útgerðarinnar hér á landi en raun ber vitni. Sveinn Hjörtur segir að lækkunin nú sé ekki í samræmi við það sem hafi verið að gerast á olíumarkaðn- um almennt. „I fyrsta lagi er sam- bærilegt verð á gasolíu til skipa í nágrannalöndunum 7-8 kr. en hefur lengst af verið um 13 kr. hérlendis án virðisaukaskatts. Gasolían hefur lækkað um 45% á rúmu einu ári meðan lækkun hér innanlands á sama tíma á skipagasolíu er 23% og minna á venjulegri gasolíu. Pessar tölur tala gleggst um það hvað þessi lækkun sem hefur orðið á olíu er- lendis skilar sér seint og illa hingað heim,“ segir Sveinn Hjörtur. Hann segir að í byrjun vikunnar hafi verð á gasolíu til skipa í ná- grannalöndunum verið 7 kr. lítrinn en eftir lækkun væri verðið 12 kr. á Islandi. Hann segir að flutnings- kostnaður skýri ekki þennan mikla verðmun. Verðið í Færeyjum hafi t.a.m. verið mun lægra en hér hafi þekkst, eða á bilinu 7-8 kr. „Okkur vantar alveg skýringuna á því hvernig sé hægt að bjóða oli- una á svo miklu lægra verði í ná- grannalöndunum en hér. Engum opinberum gjöldum er til að dreifa öðrum en flutningsjöfnunargjaldi," segir Sveinn Hjörtur og bætir við að gjaldið hleypi verðinu hugsan- lega upp um eina krónu á hvern lítra. Hann sagði að erlendis fengju skip olíu á því verði sem skráð væri á alþjóðlegum olíumarkaði í Rotter- dam. „Fyrir útgerðina er þetta mjög bagalegt því afiahlutur sjó- manna er tengdur olíuverðsbreyt- ingum á alþjóðlegum markaði í Rotterdam. Verði lækkun þar fá sjómenn strax verðbreytinguna í sinn vasa en útgerðin verður að bíða eftir verðlækkun innanlands. Lækkun af því tagi til útgerðarinn- ar hefur ekki átt sér stað í að minnsta kosti tvo mánuði.“ Útgerðin notar um 260 milljónir iítra af gasolíu á ári og nemur olíu- kostnaður hennar á bilinu 3-4 millj- örðum kr. að því gefnu að meðal- verð sé um 13 kr. á ári. Útgerðin sparaði sér 1,3 milljarða kr. á árs- grundvelli ef olíuverðið væri hið sama hérlendis og í nágrannalönd- unum, eða um 7 kr. lítrinn. 50 kr. af verði bensínlítra renna í ríkissjóð Runólfur Olafsson, framkvæmda- stjóri Félags íslenskra bifreiðaeig- enda, kveðst hafa átt von á heldur meiri lækkun á verði bensíns og dísilolíu en orðið hafi en í ljósi þró- unar á heimsmarkaði megi gera ráð fyrir frekari lækkun á næstunni. Hann segir að meðalverð á 95 oktana bensíni í ágúst sl. á heims- markaði hafi verið um 7,50 kr. á lítra. Þetta verð sé nú um 6,30 kr. Fyrir hálfum mánuði hafi það veríð um 7 kr. Möguleiki til lækkunar á útsöluverði bensíns takmarkist mjög af háum sköttum sem fólgnir eru í útsöluverðinu. Hlutur olíufé- laganna í verðmynduninni sé 12-13 kr. 97% vörugjald leggst á innflutn- ingsverð hvers lítra bensíns. 50 kr. af verði hvers bensínlítra renni í ríkissjóð, þar af eru 27,55 kr. á hvern lítra í formi bensíngjalds sem er eyrnamerkt fé til vegamála. Bensíngjaldið var hækkað í júní sl. um 95 aura. Þá er ótalinn virðis- aukaskattur og flutningsjöfnunar- gjald. I fjárlögum fyrir næsta ár er gert ráð fyrir að tekjur ríkissjóðs verði tæpir 7,5 milljarðar kr. vegna vöru- gjalds af bensíni, þar af nemur bensíngjaldið tæpum 5,5 milljörðum kr. Bensínsalan nam á síðastliðnu ári 182,2 milljónum lítra. BJÖRN Bjamason menntamálaráð- herra segir að í frumvarpi um Há- skóla Islands verði gert ráð fyrir að menntamálaráðherra tilnefni tvo menn í háskólaráð. Þetta sé í sam- ræmi við almennu lögin um háskóla, sem tóku gildi um síðustu áramót. Björn segir jafnframt að háskólaráð hafi fellt eigin tillögu um gjaldtöku vegna meistara- og doktorsnáms. Asdís Magnúsdóttir, formaður Stúdentaráðs, sagði í ræðu á full- veldisdaginn að háskólaráð hefði í umsögn um drög að nýjum sérlög- um um Háskóla Islands samþykkt að fella út ákvæði um gjaldtöku vegna meistara- og doktorsnáms. Þarna væri um stefnumarkandi ákvörðun að ræða. Jafnframt hefði ráðið gert tillögu um að Hollvina- samtök HI tilnefndu fulltrúa í ráðið í stað ráðherra. Háskólaráð felldi eigin tillögu „Háskólaráð gerði til mín tillögu á sínum tíma um að það yrði tekin upp gjaldtaka vegna meistaranáms og doktorsnáms. I tillögum ráðsins var m.a. gert ráð fyrir því að nem- endur yrðu að greiða fyrir kennsl- una. Að tillögu ráðsins tókum við þetta upp í frumvarpið um Háskóla Islands. Við breyttum tillögunni reyndar aðeins og tókum út ákvæði 70 ný störf í stækkaðri flugstöð ÁÆTLAÐ er að 70-80 ný störf skapist við stækkun Flugstöðvar Leifs Eiríksson- ar. Nú eru samtals 576 stöðu- gildi við flugstöðina. Þetta kemur fram í svari utanríkis- ráðherra á Alþingi við fyrir- spurn Hjálmars Arnasonar al- þingismanns. Af þessum 576 störfum eru 303 við verslunar-, banka- og veitingastarfsemi og 229 störf vegna starfsemi Flugleiða í flugstöðinni. Breytingar sem gerðar voru á verslunarrekstri í flugstöðinni á síðasta ári leiddu til þess að störfum við verslunar-, banka- og þjón- ustustarfsemi fjölgaði um 108. um að nemendur ættu að greiða vegna kennslunnar. Máhð var síðan sent aftur til háskólaráðs og þá gerðist það að háskólaráð felldi eig- in tillögu. Það er því alrangt að menntamálaráðuneytið hafi verið upphafsaðili að þessum tillögum. Ráðuneytið mun ekki gera annað í þessu máli en háskólaráð leggur til og hefur aldrei ætlað að gera annað. Við að vísu milduðum aðeins tillög- una áður en hún var send aftur til háskólaráðs." Björn sagði að það hefði aldrei komið til sín tillaga um að Hollvina- samtök Háskóla íslands tilnefndu mann í háskólaráð. Háskólaráð hefði hins vegar vakið máls á því hvort Alþingi ætti að kjósa menn í háskólaráð. „Við munum hins vegar fara að almennu lögunum um háskóla, sem samþykkt voru á síðasta þingi og tóku gildi 1. janúar sL, þar sem gert er ráð fyrir að menntamálaráðherra tilnefni tvo menn í háskólaráð," sagði Björn. Björn sagðist hafa farið yfir þetta mál með háskólarektor eftir að há- skólaráð gerði sínar samþykktir. Honum hefði verið gerð grein fyrir afstöðu menntamálaráðuneytisins til málsins. Frumvarpið yrði fljót- lega lagt fyrir ríkisstjórnina. Landsráð- stefna nýrrar hreyfíngar VINSTIHREYFINGIN - grænt framboð boðar til ráðstefnu dagana 4.-5. desember nk. á Hótel Sögu. „Landsráðstefnan er opin öllu áhugafólki um vinstristefnu, jafn- rétti og umhverfisvernd. Þar verður fjallað um drög að stefnuskrá, mál- efnaáherslum og lögum fyi'ir sam- tökin sem verða formlega stofnuð snemma á næsta ári,“ segir í frétta- tilkynningu. Einnig verður kosin undirbúningsstjórn. Ráðstefnan verður sett á fóstu- dag kl. 17.30. Þá verða flutt nokkur ávörp, Strengjasveit Tónskóla Sig- ursveins leikur tónlist og Anna Ki-istín Arngrímsdóttir les ljóð. Milli klukkan 13.30 og 15 á laugar- dag verður sérstök dagskrá um há- lendi Islands. Hjúkrunarforstjóri við Ríkisspítalann í Qsló um gæði í heilbrigðismálum Endurskoða þarf skipulag sjúkrahúsa Morgunblaðið/Golli INGER Margarethe Holter flutti erindi á málþingi deildar hjúkrunar- forstjóra um stjórnun og skipulag í heilbrigðisþjónustu. „AÐ MÍNU viti þarf að breyta nokkuð skipulagningu á sjúkrahús- um og hugsunarhætti heilbrigðis- stétta þannig að þær hugsi meira um að sjúklingurinn sé í fyrsta sæti, en mér finnst of mikið hafa borið á því að þær þurfí að koma að sér- þekkingu sinni án tillits til þess hvers sjúklingurinn þarfnast ná- kvæmlega," sagði Inger Margar- ethe Holter, hjúkrunarfræðingur frá Noregi, sem flutti erindi á mál- þingi deildar hjúkrunarforstjóra i Reykjavík fyrir helgina. Inger Margarethe Holter er hjúkrunarforstjóri við Ríkisspítal- ann í Osló og gegnir jafnframt starfi dósents við Oslóarháskóla. Hún tel- ur að taka verði skipulag sjúkrahúsa til endurskoðunar. „Starf á sjúkra- húsum hefur breyst mjög mikið síð- ustu áratugina og með tækninýjung- um fleygir meðferð á sjúklingum stöðugt fram. En meðan hátæknin hefur þróast má segja að skipulagið hafi gleymst og orðið algjörlega eftir því þar hefur engin framför orðið frá því röntgentæknin kom fram fyrir áratugum. Við verðum að bjóða upp á gæðaþjónustu á öllum sviðum og þar á ég við meðferð, samskipti við sjúklinga, aðstöðu heilbrigðis- stétta og nýtingu fjármuna." Inger Margarethe Holter segir líka stöðugt halda uppi kröfu um að fjármunir ríkisins sem renna til heilbrigðiskerfisins séu vel nýttir svo og öll aðstaða og heilbrigðis- stéttir verði að vera sammála um það verkefni. Hún er spurð hvort heilbrigðisstéttir í Noregi séu sam- taka í þessum efnum: Yfir landamæri stétta „Það hefur verið mikil umræða um heilbrigðiskerfið í Noregi und- anfarin misseri, meðal annars vegna nýn-ar lagasetningar um rétt sjúk- linga, um sameiningu sjúkraþúsa á Oslóarsvæðinu og fleira. Ég tel hjúkrunarfræðinga hafa verið 1 nokkurri forystu í þeim málflutningi að reyna að ná fram breytingum í skipulagi og þeir eiga að ganga á undan með góðu fordæmi. í þessum efnum er ég ekki síst að tala um stjórnunarþekkingu. Okkur vantar betri stjórnendur í heilbrigðiskerfið og þann þátt þarf til dæmis að bæta í námi lækna. Verði kennsla í stjórnun aukin á sem flestum svið- um í heilbrigðiskerfinu held ég að mikið verði fengið. Hverju öðru þarf helst að breyta í skipulaginu? „Við þurfum að starfa enn meira sem teymi en ekki einstaklingar og þá á ég við allar heilbrigðisstéttir, lækna, hjúkrunarfræðinga, iðju- þjálfa, sjúkraþjálfara og fleiri. Með- ferð og umönnun tekur í mörgum til- vikum meiri tíma en áður, hún er orðin mjög flókin og margar stéttir koma við sögu. Þá vita sjúklingar líka orðið miklu meira um sjúkdóma sína og rétt sinn og það þarf meiri tíma til að ræða margvísleg málefni við þá. Þess vegna þurfum við stund- um að teygja okkur og starfa saman yfir „landamæri“ einstakra stétta." Fást nógu margir hjúkrunar- fræðingar til starfa í dag? „Tæplega og það stendur í nokkru sambandi við hvernig að- staða hjúkrunarfræðingum er búin. Ef starfið er ekki aðlaðandi, og þá á ég við vinnutíma, aðstöðu og allt fyrirkomulag, þá horfa menn annað, en hér spila launin líka nokkra rullu. Þetta hangir saman og ef menn njóta þess í starfi sínu að geta valið um áherslur og sinnt rann- sóknum og kennslu auk meðferðar við góðar aðstæður held ég að við þurfum ekki að óttast skort.“
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.