Morgunblaðið - 03.12.1998, Side 28

Morgunblaðið - 03.12.1998, Side 28
28 FIMMTUDAGUR 3. DESEMBER 1998 ERLENT MORGUNBLAÐIÐ Stofnandi KGB endur- reistur? Moskvu. Reuters. MEIRIHLUTI kommúnista í Dúmunni, neðri deild rússneska þingsins, samþykkti í gær að taka til umræðu hvort endurreisa skuli styttuna af Felix Dzerzhinsky, stofnanda sovésku öryggislög- reglunnar. Var henni steypt af stalli sínum 1991. Dzerzhinsky, sem kaliaður var Járn-Felix, stofnaði leynilögreglu bolsévika, síðar KGB. Var það meginverkefni hennar að hand- taka og pynta raunveruiega eða ímyndaða andstæðinga kommún- ista og reka fangabúðir þar sem milljónir manna Iétu Iífið. Styttan af Dzerzhinsky stóð fyrir framan aðalstöðvar KGB en eftir misheppnað valdarán harð- Reuters JÁRN-Felix, stofnandi sovésku öryggislögreglunnar, kominn af stalli sfnum í ágúst 1991. Nú vilja kommúnistar koma honum upp aftur. línukommúnista 1991 var hún brotin niður. Fylgdust fjölmiðlar vel með þeim atburði og þótti hann táknrænn fyrir endalok Sov- étríkjanna og alræðisvald komm- únista í 70 ár. Járn-Felix gegn „glæpum“ Níkolaj Kharítonov, leiðtogi bændaflokksins, samstarfsflokks kommúnista, sagði í Dúmunni í gær, að endurreisa ætti styttuna af Dzerzhinsky sem „tákn fyrir baráttuna gegn glæpum og spill- ingu“. Var síðan samþykkt með 246 atkvæðum gegn 50 að taka málið á dagskrá. I Rússlandi er mikil umræða um glæpafárið í landinu og eink- um eftir morðið á hinum frjáls- lynda þingmanni, Galínu St- arovojtovu, í síðasta mánuði. Kommúnistar vilja, að sett verði neyðarlög en fijálslyndir menn eru því andvígir og saka komm- únista um að notfæra sér dauða eindregins lýðræðissinna til fram- dráttar andlýðræðislegri stefnu. Umfang rannsóknarinnar á máli Bills Clintons aukið Washington. Reuters. DÓMSMÁLANEFND fulltrúa- deildar Bandaríkjaþings samþykkti í fyrradag að auka umfang rann- sóknarinnai', sem leitt gæti til ákæru á hendur Bill Clinton forseta til embættismissis, og taka fyrir ásakanir um að hann hafi brotið lög um fjáröflun stjórnmálaflokka í kosningabaráttunni árið 1996. Dómsmálanefndin samþykkti með 20 atkvæðum gegn 15 að yfir- heyra Louis Freeh, yfirmann bandarísku alríkislögreglunnar FBI, og Charles LaBelIa, fyrrver- andi saksóknara, og óska eftir því að fá skriflegar greinargerðir þeirra þar sem þeir lögðu til að dómsmálaráðuneytið skipaði óháð- an lögmann til að rannsaka fjáröfl- un forsetans. Nefndarmennirnir greiddu atkvæði eftir flokkslínum. Nefndin krafðist þess einnig að Kenneth Starr, er stjórnaði fjög- urra ára rannsókn á málum Clint- ons, afhenti henni öll gögn sín um þátt Johns Huangs í fjáröflun demókrata. Huang safnaði megn- inu af þeim vafasömu fjái’framlög- um, sem demókratar þáðu í kosn- ingabaráttunni og skiluðu síðar. Nefndin sögð í „gíslingn öfgamanna“ Demókratar mótmæltu sam- þykkt nefndarinnar og lýstu henni sem örvæntingarfullri tih'aun af hálfu repúblikana til að blása lífi í rannsóknina. „Þetta er síðasta neyðarúrræði hóps manna sem eru staðráðnir í að svipta forsetann embættinu," sagði demókratinn og fulltrúadeildarþingmaðurinn Barn- ey Frank. Talsmaður Clintons sagði að samþykktin sýndi að nefndin væri „í gíslingu öfgamanna". Demókrat- ar sögðu að rannsóknin væri ger- samlega komin úr böndunum og Dick Gephard, leiðtogi þeirra í full- trúadeildinni, skoraði á leiðtoga repúblikana að grípa í taumana. „Eg óttast að rannsóknin stefni í glundroða," sagði Gephard og kvað ástæðuna þá að valdatómarúm hefði skapast í repúblikanaflokkn- um á mjög viðkvæmu stigi rann- sóknarinnar eftir afsögn Newts Gingrich, forseta fulltrúadeildar- innar, en eftirmaður hans, Bob Li- vingston, tekur ekki við embættinu fyrr en í janúar. „Það virðist enginn vera við stjórn. Enginn virðist taka í taumana," sagði Gephard. Nokki'ir repúblikanar tóku undir þetta sjónarmið og töldu að hvorki Gingrich né Livingston vildi taka af skarið. Bandamaður Livingstons í þingflokki repúblikana sagði hann líta svo á að hann tæki ekki við leið- togahlutverkinu fyrr en í janúar og vildi því halda að sér höndum í mál- inu. Bandamaður Gingrich kvaðst hins vegar telja að það ætti að vera „fyrsta stórvirki nýja forsetans að leiða rannsóknina til lykta“. Dregst rannsóknin á langinn? Henry Hyde, formaður dóms- málanefndarinnar, sagði ekkert hæft í því að rannsóknin væri komin úr böndunum og kvaðst standa við loforð sín um að henni lyki fyrir árs- lok. Hann sagði að í greinargerðun- um, sem nefndin óskaði eftir, kynnu að koma fram vísbendingar um að Clinton hefði gerst sekur um lög- brot og nefndinni bæri skylda til að rannsaka málið til hlítar. Nokkrir repúblikanar viður- kenndu þó að rannsóknin gæti dregist á langinn ef eitthvað nýtt kæmi fram í gögnunum um fjáröfl- un demókrata. Atkvæðagreiðslu fulltrúadeildarinnar um hugsanlega ákæru á hendur forsetanum til embættismissis kynni að verða frestað þar til í janúar eða þar til nýtt þing kemur saman. Norma Holloway Johnson um- dæmisdómari þarf að taka afstöðu til þess hvort nefndin fái greinar- gerðirnar í hendur og Hyde kvaðst viss um að hún féllist á það. Gert hefur verið ráð fyrir að dómsmálanefndin gi-eiði atkvæði um allt að þrjú ákæruatriði í máli Clintons í lok næstu viku. Talið er öruggt að nefndin samþykki að minnsta kosti eitt ákæi-uatriðið, meinsæri. Þingmenn segja hins vegar að of snemmt sé að segja til um hvort öll fulltrúadeildin sam- þykki að ákæra forsetann fyrir meinsæri og telja að atkvæða- greiðsla hennar verði mjög tvísýn. Lögspekingar og meinsæris- menn yfirheyrðir Repúblikanar í dómsmálanefnd- inni yfirheyrðu í fyrradag nokkra lögspekinga um afleiðingar mein- særis og einnig tvær konur, sem Þátttaka í happdrætti Krabbameinsfélagsins er stuðningur við mikilvægt forvarnarstarf HJeittU' $£u*ftiífut - metff ...................."1 11 .....—— •—■■■■■■■■■■ - hafa verið dæmdar í fangelsi fyrir að bera ljúgvitni um kynlíf sitt. „Guði sé lof að ég get nú loksins viðurkennt sekt mína,“ sagði önnur kvennanna, Sam Parson, fyrrver- andi þjálfari kvennaliðs Suður-Kar- ólínuháskóla í körfuknattleik. Par- son vær dæmd í fjögurra mánaða fangelsi árið 1984 fyrir að bera ljúgvitni þegar hún neitaði því að hafa sótt bar lesbía. Hún hafði höfðað mál gegn tímaritinu Sports Illustrated, sem skýrði frá því að hún hefði átt í ástarsambandi við lesbíu í háskólanum. Hin konan, geðlæknirinn Barbara Battalino, var dæmd fyrir að bera Ijúgvitni um kynferðislegt samband sitt við fyrrverandi hennann, sem leitaði til hennar vegna geðrænna vandamála. Báðar konurnar vitnuðu um mikilvægi þess að „leiðtogar“ segðu sannleikann og gerðu sér grein fyrir afleiðingum meinsæris. „Þar sem forsetinn er ekki konung- ur verður hann að hlíta sömu lögum og við hin,“ sagði Battalino. Nefndin yfirheyrði einnig laga- prófessora, dómara og fyrrverandi herforingja um hversu alvarlegt lögbrot það væri að bera ljúgvitni og við hvaða kringumstæður mein- særi réttlætti ákæru til embættis- missis á hendur forseta. Vitnin greindi á um hvort ákæra bæri forsetann fyrir meinsæri og tvö af vitnum repúblikana sögðust andvíg því að Clinton yrði sviptur embættinu. Þrír lagaprófessox-ar og tvö önnur vitni demókrata sögðu að ekki væri ástæða til ákæru. Verða að mæla með Schengen KJELL Magne Bondevik, for- sætisráðherra Noi-egs, segir í viðtali við Aftenposten, að rík- isstjórnin verði að mæla með því við Stórþingið, að það sam- þykki Schengen-sáttmálann. Hann sé hluti af því samkomu- lagi, sem stjómin hefði gert við aðra borgaraflokka, og því geti hún ekki aðeins lagt frumvarp- ið fram til fi'jálsrar umræðu. í Miðflokknum, einum stjórnar- flokkanna, er andstaða við Schengen-sáttmálann um eftir- litslausar ferðir fólks milli að- ildarríkja Evrópska efnahags- svæðisins og framkvæmda- stjóri flokksins, Per Olaf Lund- teigen, hefur sagt, að ríkis- stjórnin hafi skuldbundið sig til að hafna honum. Ymsir flokks- bræður hans vilja þó ekki slíta stjórnai'samstarfinu vegna þessa máls. Pólverjar læri ensku KLAUS Nauman hershöfðingi og formaður hermálanefndar NATO sagði í gær, að pólskir liðsfoi'ingjar yrðu að læra ensku. Sagði hann, að úx'eltur vopnabúnaður pólska hersins væri ekki mesta vandamálið varðandi aðlögunina að NATO, heldur lítil enskukunnátta her- manna. Rjóminn af pólska for- ingjaliðinu lauk sinni menntun fyi'ir 1989 en þá var lögð áhersla á rússnesku, sem var samskiptamálið í Varsjár- bandalaginu. Bradley með aug*un á Hvíta húsinu BILL Bradley, fyrrverandi öldungadeildai'þingmaður fyrir New Jersey, er að velta því fyr- ir sér að taka þátt í forkosning- um Demókrataflokksins vegna forsetakosninganna árið 2000. Er það haft eftir nánum vinum hans og telja sumir, að hann muni hefja baráttuna fyrir ára- mót. Hefur hann áður verið kominn á fremsta hlunn með þetta, 1988 og 1992, en hætti við í bæði skiptin. Sem keppi- nautar hans í forkosningunum hafa verið nefndir þeir Dick Gephardt frá Missouri; Bob Ken'ey frá Nebraska; John Kerry frá Massachusetts og Paul Wellstone frá Minnesota. Þá er það A1 Gore vai'aforseti, sem ennþá er langlíkegastur til að hljóta hnossið Rússneskir hermenn ákærðir? FINNSK stjórnvöld eru að velta því fyrir sér hvort rétt sé að ákæra fyrrverandi sovéska hermenn fyrir morð á óbreytt- um borgurum í síðari heims- styrjöld. Vai' það haft eftir finnskum saksóknara, Christer Lundström, í gær en málið snýst um árásir sovéskra her- manna á finnsk þorp í norðausL urhluta landsins. Drápu þeir allt að 300 manns, þar á meðal kon- ur og börn, í þessum árásum. Sagði Lundström, að hann teldi ástæðu til að krefjast framsals sumra þeirra, sem staðið hefðu fyrir morðunum, en á hinn bóg- inn væri ekki víst, að samningar milli Rússlands og Finnlands gerðu það mögulegt.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.