Morgunblaðið - 03.12.1998, Síða 55

Morgunblaðið - 03.12.1998, Síða 55
MORGUNBLAÐIÐ AÐSENDAR GREINAR FIMMTUDAGUR 3. DESEMBER 1998 5-5. Utskriftir heimilismanna Kópavogshælis ÁRIÐ 1995 var gerð- ur samningur milli fé- lagsmálaráðuneytis og heilbrigðisráðuneytis um útskriftir 37 heimil- ismanna Kópavogshæl- is, þannig að heilbrigð- isráðuneytið lét stöðu- heimildir fylgja hverj- um heimilismanni er útskrifaðist á sambýli, en félagsmálaráðuneyti sæi um að kaupa eða byggja húsnæðið. Nú er þessum áfanga að ljúka og er því hér með skorað á ráðherrana að hefjast handa um að gera nýja áætlun með frekari útskriftir. Pað er skylda heilbrigðisráðheira jafnt sem félagsmálaráðherra að koma á samstarfsnefnd til að vinna að þessu máli. Það er ófyrirgefanlegt að þessir fötluðu einstaklingar séu vistaðir á sjúkrastofnun og verði þannig af allri þeirri þjónustu sem aðrir fatl- aðir fá. Þeir fá engar örorkubætur, liðveislu eða niðurgreiddan ferðakostnað, og svo er engin réttindagæsla þeim til vamar. Allt húsnæði Kópavogshæl- is er byggt upp af sjóð- um fatlaðra og er því sjálfgefíð að heilbrigð- isráðuneytið kaupi hús- næðið og þeir peningar fari í að byggja sambýli fyrir þetta fólk. Þegar Sólborg í Eyjafirði var lögð niður og húsnæðið notað fyrir Háskólann, keypti menntamála- ráðuneytið húsin og fór kaupverðið í Framkvæmdasjóð fatl- aðra er fjármagnaði kaup á sambýl- um fyrir heimilismenn Sólborgar. Það er ekki hægt að láta foreldra og ættingja biða endalaust í þessari óvissu um hvað verður um skjól- stæðing þeima í náinni framtíð. Á fulltrúafundi Þroskahjálpar var samþykkt svohljóðandi ályktun. Birgir Guðmundsson Fulltrúafundur Landssamtakanna Þroskahjálpar haldinn að Flúðum 13.-15. nóvember 1998 skorar á heilbrigðisráðherra og félagsmála- ráðhema að standa við loforð sem gefín hafa verið íbúum Kópavogs- hælis um nýja búsetu og tryggja þeim þannig sömu grundvallar- mannréttindi og öðrum. Kópavogs- hæli hefur verið byggt upp fyrir fólkið sem þar býr. Framkvæmdir hafa verið fjármagnaðar með fjár- veitingum til málefna fatlaðra. Því er eðlilegt að ríkisspítalar kaupi Eg skora á félagsmála- ráðherra, segir Birgir Guðmundsson, að gera eitthvað í réttindamál- um heimilismanna Kópavogshælis. eignir á Kópavogshæli. Rekstrarfé til þjónustu er þegar fyrir hendi og þarf að fylgja. Að lokum vil ég skora á félags- málaráðherra að gera eitthvað í réttindamálum heimilismanna Kópavogshælis. Bendi ég honum á þau erindi er við höfum komið með til hans þrívegis en ekkert verið gert. Höfundur er fomiaður Foreldra- og vinafélags Kópavogshælis. Réttarbætur fyrir öryrkja STJÓRNVÖLD hafa bent á að ekki sé langt að bíða leiðrétt- ingar í kjaramálum öryrkja. Um næstu áramót hækka lífeyr- isgreiðslur um heil 3%, eða um 1.860 kr. á mánuði. Mismunurinn á milli hugmynda ör- yrkja um hækkun líf- eyris annars vegar og aðgerða stjórnvalda hins vegar er mínus 42%. Fólk í láglauna- störfum á íslandi þekkir af biturri reynslu hversu erfitt er að ná endum saman. Á síðustu 5 árum hafa lágmarkslaun í landinu hækkað um 52% og launavísitalan um 30%. Á sama tíma hefur örorku- lífeyrir og tekjutrygging aðeins hækkað um 17%. Við þau kröppu kjör sem láglaunafólki eru búin, skapast fátækt, sem eykur á vanlíð- an fólks og vekur upp sjúkdóma sem kosta samfélagið oft fjárútlát. Öryrkjar minntu valdhafa á bág kjör sín við þingsetninguna 1. októ- ber sl. með þögn og blysum. I fram- haldi af þeirri aðgerð hafa talsmenn öryrkja m.a. komið eftirfarandi ábendingum um þörf á úrbótum á framfæri við stjórnvöld: 1. í dag er grunnlíf- eyrir aðeins um 15 þús- und kr. á mánuði og þarf hann almennt að hækka verulega. Sér- staða fatlaðra ung- menna verði virt með tilliti til skertra mögu- leika þeirra til að hasla sér völl í samfélaginu og verði grunnlífeyrir þeirra ekld lægri en 45 þúsund kr. og fylgi sú upphæð þróun vísitölu. 2. Atvinnuþátttaka er mikilvæg fyrir öryrkja, en eins og málum er nú háttað skerða atvinnu- tekjur ráðstöfunartekjur öryi-kja við 20 þúsund kr. mánaðartekjur, sem er óviðunandi. Þess vegna verði frítekjumark hækkað og það fylgi síðan launavísitölu. 3. Hætt verði að skerða eða svipta öryrkja tekjutryggingu vegna tekna maka. 4. Skattleysismörk verði hækkuð og jaðarskattar minnkaðir. 5. Hætt verði að skattleggja húsaleigubætur. Núverandi valdhafai- lýsa yfir vel- þóknun sinni á árangri ríkisstjóm- arinnar í efnahagsmálum á kjör- tímabilinu. Máli sínu til stuðnings Öryrkjar verða ekki varir við góðærið, segir — ~~~ Asta M. Eggertsdóttir, þvert á móti, kjör þeirra hafa versnað. segja þeir að nú ríki góðæri í land- inu. Öiyrkjar verða ekki varir við góðærið, þvert á móti, kjör þeirra hafa versnað. Skorað er á stjórnvöld að taka lög og reglur um kjör öryi-kja til ræki- legrar skoðunai- og leiðréttingar hið allra fyi'sta. Næsta vor eru þingkosningar og nýir valdhafar munu taka við stjóm landsins að þeim loknum. Sagt hef- ur verið að fólkið í landinu fái þá stjórn, sem það verðskuldar. Við munum svo sannarlega hlusta vel á frambjóðendur allra flokka á næstu vikum og mánuðum og veita því sér- staka athygli hvort þeir hyggjast beita sér fyrir réttarbótum í kjara- málum öryrkja og fylgja þeim til lykta. Höfundur er fyrrverandi fram- kvæmdastjóri og er íÁtakshópi öryrkja. Ásta M. Eggertsdóttir BRIÐS IIiiisjoii Arnór G. Ragnarsson Bridsfélag Kópavogs Þriggja kvölda hraðsveitakeppni félagsins lauk sl. fimmtudag. Úrslit: Valdimar Sveinsson 1.716 Vinir 1.712 Loftur Pétursson 1.666 Ekki Ragnar 1.645 í sigursveitinni spiluðu auk Valdimars: Eðvarð Hallgrímsson, Friðjón Margeirsson, Ingimundur Guðmundsson, Bemódus Krist- insson og Þorleifur Þórarinsson. Bestu skor kvöldsins náðu: Valdimar Sveinsson 574 Ekki Ragnar 567 Erla Sigurjónsdóttir 558 Sl. föstudag fóru sex sveitir frá B.K. og kepptu við Selfyssinga á Selfossi. Bidsfélag Kópavogs marði sigur. Keppt er um vegleg- an bikar, sem Kópavogsbúar hafa nú unnið fjóram sinnum, en Sel- fyssingar þrisvar. Aðventubrids. Næstu 2 fimmtu- daga, 3. og 10. des., verður spilað- ur tvímenningur, tvö sjálfstæð kvöld, þar sem veittur verður jólaglaðningur fyrir hæstu skor hvort kvöld. Að auki verða veitt verðlaun fyrir hæstu samanlagða skor úr báðum kvöldunum. 17. des. verður síðan hefðbundið jólaglögg. Bridsfélag Hafnarfjarðar Spilaðar voru tvær umferðir í sveitakeppninni mánudaginn 30. nóvember og er hún nú rúmlega hálfnuð. Staða efstu sveita er nú þannig: Sveit Drafnar Guðmundsdóttur 94 Sveit Guðmundar Magnússonar 80 Sveit Sigurjóns Harðarsonar 66 Sveit Halldórs Pórólfssonar 63 í butlernum er staðan svo þessi: Ásgeir Ásbjömss. - Dröfn Guðmundsd. 21,21 Guðm. Magnúss. - Olafur Þór Jóhannss. 19,83 Friðþjófur Einarss. - Guðbrandur Sigurb. 19,46 Bjöm Amarson - Haukur Harðarson 17,62 Gísli Hafliðason - Jón N. Gíslason 16,83 Bridsfélag Reyðarfjarðar og Eskiljarðar Þriðjudagskvöldið 1. desember var spilaður tvímenningur með þátttöku 16 para, tvö spil milli para. Úrslit urðu þessi: MagnúsValgeirss.-MagnúsÁsgrímss. 261 Auðbergur Jónsson - Hafsteinn Larsen 242 Haukur Bjömsson - Magnús Bjamason 222 Ásgeir Metúsalemss. - Kristján Kristjánss. 216 Brids í jólapakkann Hjá Bridgesambandi íslands er mikið úrval af bridsbókum, sagn- boxum, spilabökkum og fleiru fyr- ir bridsspilara, sem tilvalið er að lauma í jólapakkann. Bókalistinn er á heimasíðunni: islandia.is/~is- bridge og hægt að panta á netinu eða í síma 587 9360 á skrifstofu- tíma kl. 13-17. Frá Sellafield til miðhálendis- ins á íslandi ENN einu sinni ber- ast fregnir um mengun frá kjamorkuvinnslu- stöðinni við Sellafield á Bretlandi. Að þessu sinni er það vegna los- unar efnisins teknisí- um-99 í hafið. Frá þess- ari umdeildu stöð er sleppt í hafið geisla- virkum úrgangi sem síðan berst með haf- straumum inn á norska firði og þaðan áfram á hafsvæði í Norður-Atl- antshafi, m.a. til Is- landsmiða. Viðbrögð Norðurlandabúa hafa verið mjög hörð vegna þessa og með sama hætti er mikið uppnám vegna máls- ins í Bretlandi. Krafan um lokun stöðvai'innar í Sellafield hefur orðið æ háværari, bæði innan Bretlands og ekki síður almennt í Evrópu. Þannig hefur málið meðal annars komið til umræðu á þingi Evrópu- ráðsins. En krafan um lokun stöðv- arinnar í Sellafield er alls ekki auð- Krafan um lokun stöðvarinnar í Sella- field er alls ekki auð- veld, segir Hjálmar Arnason, og málið er hið vandmeðfarnasta. veld og málið hið vandmeðfarnasta. Grannur þess er sú einfalda stað- reynd að efnahagslíf Bretlands og Evrópu þarf á raforku að halda - orku sem framleidd er meðal annars með kjarnorku. Sellafield Svo undarlega sem það kann að hljóma þá tengist vandamál Sellafi- eld miðhálendi íslands. Málið snýst nefnilega um undirstöðu atvinnulífs veraldar, þ.e. raforku. Efnahagslíf heimsins þarf orku til að standa undir framleiðslu, atvinnusköpun og hagsæld íbúa heimsins. Orka er hins vegar af verulega skomum skammti. Á meginlandi Evrópu er raforka framleidd að langmestu leyti með olíu, kolum eða kjarnorku. Þannig er kjarnorkan einn helsti orkugjafi Frakka. Raforkufram- leiðsla með kjarnorku er hápólitískt mál. Veldur þar ekki síst sú ógnun sem stafar af hættulegum umhverf- isslysum af hennar völdum. Flestir muna eftir Chemobyl-slysinu og þeim hörmungum sem því fylgdu. Svipuð ógn stafar af kjamorkuver- um hvar sem er, jafnt á Norðurlönd- um sem á meginlandi Evrópu. Ann- ar þáttur er úrgangurinn úr kjarn- orkuveranum. Hvað á að gera við hann? Endurvinnslustöðin í Sellafi- eld er dæmi um slíkt vandamál. Geislavirkum úrgangsefnum er dembt í hafið og berast þau með hafstraumum víða. Nágrannaríki telja sér standa ógn af þessu enda í rauninni vandamál heimsins alls. Umhverfísmál geta aldrei orðið staðbundin heldur verður að skoða þau í hnattrænu samhengi. Vatn eða kjarnorka Af þessum sökum er nú alls staðar verið að leita nýrra og vistvænna orkugjafa. Þjóðir ESB hafa sett sér það markmið að á næstu 10 áram verði hlutfall vistvænna orkugjafa í efnahagslífi þeirra orðið 12% í stað 5% í dag. Rétt til upprifjunar skal minnt á að þetta sama hlutfall hér á Islandi er 67% eða meira en í nokkra öðra ríki veraldar. Til skoðunar eru ýmsar leiðir, svo sem að nýta metan- gas, vindmyllur, sjávarfóll, sólarorku og fleira. Vandinn er sá að vistvænh’ orkugjafar á borð við vatnsföll og gufuorku era mjög tak- markaðir í Evrópu. Þess vegna era augu fjárfesta í vaxandi mæli farin beinast að íslandi. ~ Við íslendingar erum svo lánssamir að ráða yfir veralegu magni af vistvænni orku, sem á sinn hátt má segja að sé að verða ein dýr- mætasta auðlind okkar. Af þessum sökum má segja að við íslending- ar stöndum nú frammi fyrir mjög 6141014 sið- fræðilegri spurningu: Viljum við leggja heiminum tO vist> væna orku eða ýta vandamálum Evrópuríkja frá okkur og eftirláta kjarnorkuverum Evrópu að fram- leiða það rafmagn sem þörf er á? Þessari spurningu er vandsvarað vegna þess að nýting fallvatna felur í sér virkjanir. I því sambandi hefur verið bent á aðra mjög verðmæta auðlind, það er hina ósnortnu víðáttu miðhálendisins. Gjaman er þessum tveimur umhverfismálum teflt fram sem andstæðum þótt ég sé ekki sammála þeirri framsetningu. Stöðugleiki og atvinna Ég harma það hversu oft umræða um umhverfis- og virkjunarmál get- ur tekið á sig yfirborðskennda mynd' þar sem upphrópanir og órökstudd- ar staðhæfingar eru látnar ganga fyrir yfirvegaðri og faglegri um- ræðu. Svo langt hefur verið gengið að fullyrt hefur verið að sökkva eigi miðhálendi Islands undir miðlunar- lón orkuvera. Auðvitað er slík full- yrðing út í hött - engan hef ég í raun setja slík áform fram nokkra sinni. Spurningin er einfaldlega sú hvort við viljum hagnýta fyrir okkur og umheiminn þær vistvænu orku- lindir sem landið á. Fyiir fjórum ár- um var hér mikið atvinnuleysi og þjóðin virtist sýna því skilning að einhverjar virkjanir væra nauðsyn- legar til þess að efla atvinnu- og efnahagslíf þjóðarinnar. Nú, þegaK, árar betur, er komið annað hljóð í strokkinn. Við skulum hins vegar vera þess minnug að efnahagslíf okkar er fallvalt og þarf ekki annað en breytingar á þorskstofni til þess að vofa atvinnuleysis knýi hér dyra að nýju. Það hlýtur að vera hags- munamál þjóðarinnar til lengri tíma litið að auka stöðugleika í efnahags- lífi þannig að íslendingar geti búið við þá hagsæld sem þeir í raun vilja. Þess vegna þarf að skoða alla mögu- leika í stöðunni. Sáttaleið Mikilvægt er að skilgreina miðhá- lendi íslands. Hverjar era nátt- úraperlur þess? Hverjir era virkjj* unai’kostir? Hvar eru hinar ólíku auðlindir? Síðan þarf að finna sátt um leiðir þar sem sjónarmið nátt- úrufegurðar og hagnýtingar geta farið saman. Þetta er i raun sú stefna sem iðnaðarráðherra hefur boðað. Við slíka umræðu verðum við að vera málefnaleg og er það trú min að slík sáttagjörð geti orðið raunveraleg. Kjarnorkuvandamál Evrópuþjóða snertii’ okkur jafnmik- ið og hófleg nytjastefna á vistvæn- um orkugjöfum hérlendis. Islenska þjóðin er umhverfisvæn í hugsun sinni - til allrar hamingju. Við viljir um draga úr mengun alheimsins og við viljum líka fá að njóta þeirra náttúi’uverðmæta sem land okkur felur í sér. Þess vegna.er svo mikil- vægt að skoða málin í víðu sam- hengi og umfram allt að ræða þau öfgalaust. Höfundur er alþingismaður. A Hjálmar Árnason
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.