Morgunblaðið - 03.12.1998, Síða 58
5$ FIMMTUDAGUR 3. DESEMBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
AÐSENDAR GREINAR
Yöruhús gagna
Bestu upplýsingar
um viðskiptavini,
vörutegundir, þjón-
ustu og fjármál fyrir-
tækisins eru þegar til
staðar innan fyrir-
tækisins. Vöruhús
gagna gefur mögu-
leika á að flétta sam-
an þessar upplýsing-
ar, sem geta komið
frá mörgum stöðum
og tengja þær við
upplýsingar, sem
geta komið frá utan-
aðkomandi aðilum.
Taghi
Montazeri
NIÐURSKURÐUR kostnaðar og
aukning hagnaðar er takmark hvers
fyrirtækis. I þeirri hörðu samkeppni
sem er ríkjandi í dag, koma tækifærin
upp í hendur þeirra fyrirtækja, sem
geta svai-að stöðugri kröfu mai-kaðar-
ins um breytingar. Möguleikar starfs-
manna til að meta gögn fyrirtækis
geta komið fyrirtækinu á þann stall.
Gífurlegt magn gagna sem eru til í
fyrirtækjum eru óaðgengileg í dag,
vegna þess hversu erfitt er að nálgast
þau. Notendur treysta oft á staðnaðar
ífcýrslur um gögnin, sem þeir flytja
þá yfir í þau tól, sem viðkomandi fyr-
irtæki hefur yfir að búa, til aðstoðar
við mat á gögnunum.
Öll fyrirtæki bregðast við þörfinni
fyrir verkefnistengdum upplýsingum,
vegna þess að markaðurinn er
stöðugt að breytast og samkeppni þar
með talin, viðskiptavinir eru ekki eins
trúir einstökum fyrirtækjum og líf-
tími vörutegunda á markaði er
stöðugt að styttast.
Til að ná þessum markmiðum þarf
nýtt gagnakerfi, þar sem gagnalíkan-
ið er þannig uppbyggt að það auð-
veldar notendum aðgang að gögnun-
um. Þessi nálgun er kölluð vöruhús
gagna1.
i#.Töruhús gagna geymir gögn um
viðskipti fyrirtækisins á samfelldum
og afstilltum gagnagrunni, sem veitir
yfirsýn yfir þróun fyrirtækisins og
gefur notendum þess betri og auð-
veldari aðgang að gögnum fyrirtækis-
ins.
Betra aðgengi gagna
An tillits til þess á hvaða formi
gagnagrunnur fyrirtækisins er, eða
hver högun húgbúnaðarkerfa er, þá
eru flest vinnslukerfi hönnuð og
bestuð með tilliti til vinnslu með ein-
stakar færslur. Fyrirtæki sem hafa
leyft kerfum til ákvarðanatöku að
vinna beint á vinnslugagnagrunn
fyrirtækisins, hafa fljótlega komist
að því að þessar fyrirspurnir hafa
mjög slæm áhrif á heildarafkasta-
getu kerfisins. Einnig að uppsetning
gagnanna er ekki á því formi að þau
henti fyrir þær fyrirspurnir, sem
notendur hafa áhuga á. Þessi veik-
leiki getur kostað fyrirtæki bæði
tíma og peninga.
Betri skilningur á fyrirtækinu
Núverandi samkeppnisumhverfi
fyrirtækja krefst þess að þjónusta
við viðskiptamenn fyrirtækisins sé
góð og bætt þjónusta er eitt helsta
markmið hvers fyrirtækis. Breyting-
ar til batnaðar á því sviði, koma
beint fram í auknum umsvifum fyrir-
tækisins og lægri kostnaði.
Jónsson lýsingar til
ákvarðanatöku
Vöruhús gagna gefur notendum
þess möguleika á að greina upplýs-
ingar fyrirtækisins og gefur þannig
innsýn í vinnuferli fyrirtækisins.
Þannig geta komið upp hugmyndir
um breytt og bætt skipulag innan fyr-
irtækisins, með tilliti til allrar starf-
semi þess. Innkaupastjórar og aðrir
fjármálastjórar fá mun betri heildar-
yfirsýn yfir mynstur í innkaupum og
lagerhaldi fyrirtækisins. Þannig geta
fjármálastjómendur oft uppgötvað
leiðir til hagræðingar og lægri kostn-
aðar, sem eru faldar í ranglega sam-
settum birgðum á lager.
Arðsemi fjárfestingarinnar
Það má segja að fjárfestingar á
tæknisviðum séu áríðandi til að ná
forskoti í samkeppni, en það þarf að
staðfesta hvernig tæknin getui- nýst
til að minnka kostnað og/eða aukið
tekjur fyrirtækisins. Niðurstöður
Vöruhús gagna, segja
Taghi Montazeri og
Guðbergur Jónsson,
geymir gögn um
viðskipti fyrirtækisins
á samfelldum og
afstilltum gagnagrunni.
könnunar, sem International Data
Corporation (IDC)2 gerði, gefa mik-
ilvægar vísbendingai- um þetta. IDC
er leiðandi á sviði upplýsingagjafar,
úttekta og ráðgjafar á tæknisviðinu.
Það gerði könnun á fjárhagslegum
áhrifum vöruhúss gagna. Könnunin
náði til 62 fyrirtækja sem höfðu sett
upp vöruhús gagna hjá sér. Könnun-
in sýndi að á þremur árum var arð-
semi fjárfestingar (ROI) fyrir vöra-
hús gagna að meðaltali 401 prósent
yfir tímabilið. Yfir 90 prósent fyrir-
tækjanna sem voru með í úttektinni
sögðust hafa fengið yfir 40 prósent
arðsemi yfir tímabilið, helmingurinn
gaf upp arðsemi meira en 160 pró-
sent yfir tímabilið og fjórðungur
þeirra gaf upp arðsemi yfir 600 pró-
sent yftr tímabilið. Að meðaltali
borgaði fjárfestingin sig upp á 2,3
árum og kostnaðurinn var að meðal-
tali 2,2 milljónir bandaríkjadala.
Markaðsstaða
I könnun sem META hópurinn3
gerði kemur fram að yfir 90 prósent
af Global 2000 fyrirtækjunum hafa
hafist handa við að koma upp vöru-
húsi gagna. Vöruhús gagna er tækni,
sem er notuð í öllum helstu atvinnu-
vegum.
Af þeim fyrirtækjum sem tóku
þátt í þessari könnun höfðu 54 pró-
sent þegar komið sér upp og eru
byrjuð að nota vöruhús gagna, að
fullu eða einhverju leyti. Samkvæmt
könnuninni þá er stærstur hluti nú-
verandi vöruhúsa gagna, eða 53 pró-
sent, sem hafa færri en 50 notendur
og 66 prósent eru með minna en 10
Gb af gögnum. Samkvæmt könnun-
inni þá reiknar langstærstur hluti
fyrirtækja, eða 46 prósent, með að
fjöldi notenda verði milli 50 og 500
eftir fyrstu 12 rekstarmánuðina.
Hvar á að byrja?
Meii-ihluti fyrirtækja, sem hefui-
gengið vel að koma sér upp vöruhúsi
gagna, hefur byrjað á því að átta sig á
þörfum tilvonandi notenda vöruhúss-
ins. Þau hafa í framhaldi af því sett sér
skýr markmið.
Það er sterklega mælst til þess að
hópurinn sem hefur það verk með
höndum sé samansettur af sérfræð-
ingum á tölvusviði og tilvonandi not-
endum. Verkefnið verðm- að hafa vel
skilgreint verksvið vegna takmarkana
á fjármagni og starfrækslu þess. Upp-
setning á vöruhúsi gagna getur gefið
fyrirtæki forskot í samkeppni. Það
gefur fyrirtækjum möguleika á að
meta gögn, sem era til nú þegar innan
veggja þeirra. Gæta þarf að því að
hafa á hreinu hvemig fyrirtækið ætlar
að hagnast á vörahúsi gagna.
Búnaðurinn sem notaður er þarf að
vera nægjanlega sveigjanlegur til að
hann gefi vöruhúsinu möguleika á að
þróast og stækka með fyrirtækinu.
1 Sam Anahory, Dennis Murray, „Data
Warehousing In The Real World, A pract-
ical Guide for Building Decision Support Sy-
stems“, Addison-Wesiey, 1997.
2 Intematíonal Data Corporation, „The
Foundations of Wisdom: A study of the fin-
ancial Impact of Data Warehousing", apríl
1996.
3 META Group, Inc., „META Group Data
Warehouse Summary Report", febrúar
1996.
Höfundar eru Taghi Montazeri og
Guðbergur Jónsson, sem báðir eru
MS-nemar i tölvunarfræði við Há-
skóia íslands.
Þjdðin sam-
einast í bæn
EINN elsti, dýr-
mætasti og dýpsti
menningararfur okkar
Islendinga er bænin.
Einstaklingar og fjöl-
skyldur hafa um aldir
lagt sig og sína í Guðs
hendur í bæn og þegið
fyrirbæn af kirkju
jpndsins meðvitað og
ómeðvitað enda flestir
landsmenn færðir
frelsaranum Jesú
Kristi í heilagri skím
og þegið þannig ómeð-
vitað og óverðskuldaða
náð Guðs og elsku sem
er ofar okkar mann-
lega skilningi. Við er-
um eins og gróðursett
á syni Guðs, frelsaranum Jesú
Kristi og tilheyrum honum í lífi og
dauða nema við höfnum honum og
viljum ekki hafa með Guðs og eilífa
lífgjöf að gera.
Skyldur þjóðfélagsins
ristið þjóðfélag, uppalendur
skírðra barna taka á sig þá ábyrgð
að kenna baminu um frelsarann
Jesú. Kenna því að virða hann og
elska og elska náungann eins og
sjálfan sig. Hið kristna þjóðfélag
tekur á sig þá ábyrgð og skyldu að
kenna börnunum bænir og að ala
þau upp í því að tala við Guð, leita
vilja hans og lifa í samfélagi við
hann.
Þegar mikið liggur við
Þegar mikið liggur við sameinast
þ^óðin gjarnan í bæn og er það vel.
Þegar sorg leggst yfir landsmenn
vegna snjóflóða eða annarra nátt-
úruhamfara eða þegar dauðsfall
mikilsmetinnar persónu er stað-
reynd, persónu sem þjóðin elskaði
og dáði. Við slíkar aðstæður sam-
einast þjóðin í sorg, í hluttekningu,
umhyggju og í bæn. Einstaklingar
toa saman til að biðja eða menn
mðja í einrúmi. Menn koma í kirkj-
ur landsins til þess að
biðja eða menn fylgjast
með í einum huga þeg-
ar aðrir koma saman til
að biðja og bænir
þeirra fylgja, meðvitað
og ómeðvitað, með orð-
um og án orða í djúpri
þögn og af lotningu.
Þetta segir sagan okk-
ur og skemmst er að
minnast snjóflóðanna
hræðilegu í Súðavík og
á Flateyri eða vegna
sorglegs fráfalls for-
setafrúarinnar okkar.
1000 ára afmæli
kristnitöku á Islandi
Þar sem nú er ekki
nema rúmlega eitt ár þar til við
fögnum 1000 ára afmæli kristnitöku
á Islandi hlýtur það að vera sjálf-
sagt og líklega sjálfgefið að þjóðin
Bænin er, segir
Sigurbjörn Þorkelsson,
einn elzti og dýrmæt-
asti menningararfur
okkar Islendinga.
sameinist í bæn, bæði með formleg-
um og óformlegum hætti, jafnt ein-
stakhngar í einrúmi sem og í hóp-
um. Einstaklingar leggi sig fram við
að læra bænavers og venji sig á að
tala við Guð í bæn með eigin orðum.
Bænir verði viðhafðar á heimilum í
upphafi og við lok hvers dags. Eins
við matarborðið eða hvenær sem
tími gefst til og henta þykir á
hverju heimili. Eg sé fyrir mér for-
svarsmenn fyrirtækja og stofnana
eða starfsmannafélög hefja hvern
vinnudag með signingu, stuttu
bænaversi og stuttri bæn þar sem
dagurinn og samskipti starfsfélaga
og viðskiptamanna þeirra eða um-
bjóðenda eru lögð fram fyrir höfund
Sigurbjörn
Þorkelsson
hfsins í bæn. Þessar stundir þurfa
ekki að taka nema tvær til þrjár
mínútur.
Það er mín skoðun og reyndar tel
ég bæði sjálfsagt og eðlilegt að hver
skóladagur hefjist með stuttri bæn í
hverri kennslustofu. Það getur
varla meitt neinn en getur skilað
sér í aukinni samstöðu, umburðar-
lyndi og kærleika.
Eg tek þó skýrt fram að að sjálf-
sögðu má ekki neyða neinn til þátt-
töku í slíku bænahaldi heldur verði
um frjálst boð að ræða og komi eng-
um á óvart.
Alþingi
sýni fordæmi
Ég tel eðlilegt í okkar kristna
þjóðfélagi að hver fundur í okkar
háa Alþingi hefjist með signingu.
Síðan fari þingmenn allir saman t.d.
með bæn Hallgríms Péturssonar,
Vertu Guðs faðir, sem allir kunna
og síðan flytji forseti þingsins stutta
frumsamda, jafnvel staðlaða bæn
fyrir störfum þingsins þann daginn.
Alþingi sýni þannig gott fordæmi og
sýni það í verki að þjóðin vilji teljast
kristin, enda eru eins og allir vita
yfir 90% þjóðarinnar skírð eða til-
heyra kristnum söfnuði.
Ég geri þetta að tillögu minni og
skora á forseta Alþingis, ríkis-
stjórnina og þingmenn alla að taka
þetta sjálfsagða mál upp. Betri af-
mælisgjöf getum við ekki fært frels-
aranum sjálfum, hinum lifandi Jesú
Kristi, sem vill taka okkur að sér og
veita okkur fyrirgefningu synda
okkar og eilíft líf, frelsaranum Jesú
sem við miðum tímatal okkar við.
Ég er þess fullviss að samskipti,
umræður og störf þingsins myndu
fara í eðlilegri og jákvæðari farveg
ef þingmenn sameinuðu hugi sína í
bæn til Guðs föður almáttugs skap-
ara okkar í upphafi hvers þingfund-
ar.
Þessi sjálfsagða og mikilvæga at-
höfn mundi skila sér margfaldlega í
samskiptum og störfum þingmanna
og fólks almennt. Bænin og sá góði
hugur sem henni mundi fylgja hefði
einnig ómetanlega blessun í för með
sér fyrir þjóðina alla.
Höfundur er framkv.st. KFUM og
KUFK og höfundur bænabókarinn-
ar Vef mig vængjum þínum.
Byggðamál og
samgöngur
í þingsályktun um
stefnu í byggðamálum
fyrir árin 1998-2001,
sem nú liggur fyrir
Alþingi, er m.a. full-
yrt að ein forsenda
traustra byggða og
uppbyggingar vaxtar-
svæða séu öruggar
samgöngur. Þar er
einnig rætt um nauð-
syn þess að grípa til
aðgerða til að auð-
velda fólki í strjálbýli
atvinnusókn. Sam-
göngumál eru einnig
augljóslega mikilvæg-
ur þáttur í allri um-
ræðu um sameiningu
sveitarfélaga.
Samgöngumál Þingeyinga
Ibúar Norður-Þingeyjarsýslu
hafa mörg undanfarin ár barist
Ef þær áherslur
sem settar eru fram í
þingsályktunartillög-
unni eiga að gilda fyrir
íbúa Norður-Þingeyjar-
sýslu, telur Elsa B.
Friðfinnsdóttir, að
hraða þurfí uppbygg-
ingu Norðausturvegar
um a.m.k. fímm ár.
fyrir bættum samgöngum milli
Húsavíkur og Þórshafnar. Sam-
kvæmt núgildandi vegaáætlun er
þeim ætlað að bíða í um tíu ár til
viðbótar eftir varanlegum úrbót-
um í þeim efnum. Þó er ljóst að
íbúar svæðisins eiga allt sitt undir
góðu vegakerfi ekki síst eftir að
flug innan svæðisins og
til Akureyrar hefur
nær lagst af. Uppbygg-
ing atvinnustarfsemi
með nýtingu gufuorku
frá Þeistareykjum, sem
vinna ber að á allra
næstu árum, mun
krefjast starfsmanna af
stóru svæði. Ibúar
strjálbýlis Norður-
Þingeyjarsýslu eygja
þar möguleika til at-
vinnu, sem aftur má
ætla að sporni við
brottflutningi af svæð-
inu. Þá er gott vega-
samband forsenda ör-
yggis í heilbrigðis-
þjónustu, öryggis sem
íbúar þessa svæðis hafa ekki búið
við að undanförnu. Nú eru uppi
hugmyndir um víðtæka samein-
ingu sveitarfélaga í Þingeyjarsýsl-
um. Með slíkri sameiningu skap-
ast stórt atvinnu-, menntunar- og
heilbrigðisþjónustusvæði sem þarf
að reiða sig á góðar vegasamgöng-
ur.
Nauðsynlegar
aðgerðir
Ef þær áherslur sem settar eru
fram í áðurnefndri þingsályktunar-
tillögu eiga að gilda fyrir íbúa
Norður-Þingeyjarsýslu, má ljóst
vera að hraða þarf uppbyggingu
Norðausturvegar um a.m.k. fimm
ár. Þótt lántaka kunni að verða
nauðsynleg til að gott vegasam-
band verði komið í Þingeyjarsýslur
eigi síðar en árið 2005 má benda á
þann sparnað sem á móti kemur í
styttri framkvæmdatíma og ekki
síður á mikilvægi þessa í því að
sporna við þeim fólksflótta úr dreif-
býli sem hátt hefur borið í opin-
berri umræðu síðustu vikur.
Höfundur er lektor og settur for-
stöðumaður heilbrigðisdeildar H.A.
Elsa B.
Friðfinnsdóttir