Morgunblaðið - 03.12.1998, Síða 59
MORGUNBLAÐIÐ
AÐSENDAR GREINAR
FIMMTUDAGUR 3. DESEMBER 1998
Skátahreyfíngin lítur
til nýrrar aldar
Margrét Tryggvi
Tómasdóttir Felixson
ÁRIÐ 2007 verða 100 ár frá því
að Baden Powell fór með tuttugu
drengi í fyrstu skátaútileguna.
Fljótlega eftir þessa útilegu breidd-
ist skátastarf út um allan heim og á
íslandi hófst skátastarf árið 1912. í
september sl. þinguðu fulltrúar ís-
lenskra skáta og mörkuðu stefnu
fyrir starf skátahreyfingarinnar á
nýrri öld.
Ung hreyfing
á gömlum merg
Þótt skátahreyfingin eigi sér nú
orðið langa sögu hér á landi er end-
urnýjun í hreyfingunni mikil.
Meðalaldur þingfulltrúa á Skáta-
þingi 1998 var um 25 ár. í flestum
skátafélögum landsins, en þau eru
tæplega fjöi-utíu að tölu, bera for-
ingjar á aldrinum 18 til 25 ára hit-
ann og þungann af starfinu.
Skátastarf er leikur, en ekki af-
þreying. Hver er munurinn? Jú, í
skátastarfi er lögð áhersla á að ein-
staklingar spreyti sig á verkefnum
sem auka þekkingu þeirra og leiða
þá til meiri þorska. Skátastarfið
leitast við að efla það sem kallast
má lífsleikni - að takast á við lífið
og hið óvænta sem allir mæta.
Kjörorð skáta er „vertu viðbúinn"
og viðfangsefni skátastarfsins eiga
að stuðla að því að gera skáta við-
búna til að takast á við það sem að
höndum ber. Svona hefur það verið
frá upphafi og þannig vill skáta-
hreyfingin halda áfram að starfa.
En samfélagið breytist og nauð-
synlegt er að taka á nýjum við-
fangsefnum. Því ákvað skátahreyf-
ingin að marka skýrari stefnu í
nokkrum málaflokkum sem hafa
Skátastarfið leitast við
að efla það sem kallast
má lífsleikni, segja
Margrét Tómasdóttir
og Tryggvi Felixson,
að takast á við lífíð
og hið óvænta sem
allir mæta.
lengi verið henni hugleiknir og eru
vaxandi viðfangsefni í íslensku
samfélagi.
Skátastarf er
forvamastarf
Rannsóknir benda til þess að
skátahreyfingin gegni mikilvægu
hlutverki í fíkni- og
vímuefnavörnum.
Börnum og ungmenn-
um sem eru virk í
skátastarfi reiðir bet-
ur af og neyta síður
vímuefna. I ljósi vax-
andi vímuefnavanda í
samfélaginu hefur
skátahreyfingin mark-
að sér skýrari stefnu í
þessum málum sem
hafa ber að leiðarljósi í
skátastarfi. Neysla
fíkni- og vímuefna, þar
með talið tó-
baksneysla, er bönnuð
í skátaheimilum,
skátaskálum, á skáta-
mótssvæðum og í öllu
skátastarfi með börnum. Á milli 300
og 400 ungmenni sækja foringja-
námskeið hreyfingarinnar á hverju
ári og þar verður fræðsla í fíkni- og
vímuvörnum aukin.
Vaxandi vitund um
gildi náttúrunnar
Skátahreyfingin hefur frá upp-
hafi lagt rækt við að efla skilning á
náttúrunni og mikilvægi þess að
umgangast hana þannig að það
valdi sem minnstu raski á dýralífi
og gróðri. Á skátaþingi var mörkuð
skýr stefna í þessum málum. Þar
segir m.a. að skátahreyfingin styðji
aðgerðir sem stuðla að sjálfbærri
þróun og muni beita sér fyrir því
að hver skáti öðlist betri þekkingu
á náttúrunni og sambýli manna við
lífríkið. Skátahreyfingin mælir fyr-
ir því að náttúruauðlindir verði
ekki nýttar í þeim mæli að þær
tæmist, að líffræðileg fjölbreytni sé
varðveitt og miðað sé að því að
nýta sem best öll verðmæti. I vetur
er væntanleg sérstök verkefnabók
til að efla kunnáttu og vitund í
þessum málum. Næsta sumar er
von á um 5.000 skátum á Landsmót
skáta á Úlfljótsvatni og þar verður
lögð sérstök áhersla á umhverfis-
mál.
Borgaralegar skyldur
í lögum Bandalags íslenskra
skáta segir að markmið skátastarfs
sé að þroska börn og ungmenni til
að verða sjálfstæðir, virkir og
ábyrgir einstaklingar í þjóðfélaginu.
Það er skylda skáta að hjálpa öðr-
um og skerast í leikinn þegar sam-
borgarar eru í neyð. Með vaxandi
stórborgarumhverfi er enn meiri
þörf en áður á að efla vitund ungs
fólks um þessi gildi. Á foringjanám-
skeiðum er fyrirhugað að efla
fræðslu um borgaralegar skyldur
og réttindi og jafnframt á að efla
lýðræðisleg vinnubrögð í almennu
skátastarfi.
Janfréttismál eru skátum hug-
leikin og í skátastarf er tekið fullt
tillit til mismunandi trúarskoðana,
litarháttar, kyns og fjölskylduað-
stæðna. Virk þátttaka í alþjóða-
starfi, lifandi umræðum um jafn-
réttismál og fjölþætt verkefni eiga
að tryggja að þessi markmið verði
höfð að leiðarljós í öllu skátastarfi.
Skátastarf á nýrri öld
Með markvissri stefnu 1 ýmsum
þjóðþrifamálum vill Skátahreyfing-
in leggja sitt af mörkum til að und-
irbúa íslenska æsku fyrir framtíð á
nýiri öld. Gamall grunnur, ný við-
horf og viðfangsefni og starfsemi
sem stýrt er af ungu fólki fyrir ungt
fólk er traust undirstaða sem lengi
má byggja á.
Höfundar eru aðstodarskátahöfð-
ingjar ístjórn Bandalags íslenskra
skáta.
HAGKAUP
17 verslanir og þjónustuabilar
bjóða frábært vöruúrval ti(
hátíbarundirbúnings og jólagjafa.
Næg bílastæbi.
Vib bjóbum (æknavaktina veíkomna í Smáratorg
í jólapakkann!
Cardinal 85 R
Margar gerðir. Verð frá 3.950,-
Með stól. Verð frá 2.890,-
Margar stærðir. Verð frá 2.490,
**ssagké
Margar gerðir. Verð frá 1.950,-
ahu kc
Stöng og hjól. Verð frá 3.290,-
AViuifcafriilliuÉr
Fjölbreytt úrval af aukahlutum
Þetta er aðeins lítið brot af
veiðivörum frá Abu Garcia sem
fást í öllum helstu sportvöru-
verslunum landsins.
Mbu
Garcia
for life