Morgunblaðið - 03.12.1998, Blaðsíða 80

Morgunblaðið - 03.12.1998, Blaðsíða 80
■■§0 FIMMTUDAGUR 3. DESEMBER 1998 MORGUNBLAÐIÐ FÓLK í FRÉTTUM Anne Heche og Ellen PeGeneres flytja frá Hollywood Osanngjörn og auð- mýkjandi framkoma KÆRUSTUPARIÐ Anne Heche og Ellen DeGeneres kvartaði í vikunni yfír því að yfirlýst samkynhneigð sín hefði haft slæm áhrif á kvik- myndaferilinn í Hollywood. Nú hafa þær lýst því yfir að þær ætli að hverfa á braut frá kvikmyndaborginni í Los Angeles. „Við erum hættar hjá umboðsmönnum okkar, búnar að segja upp tals- mönnum okkar, erum að selja húsið okkar og ætlum að flytja í burtu,“ sagði DeGeneres í samtali við Los Angeles Times sem birtist á þriðjudag. Hún fór áður með aðal- hlutverk í Ellen og var það fyrsti framhaldsþátturinn í Bandaríkjunum þar sem aðalpersónan var samkyn- hneigð. Hún sagði í samtalinu að ' liún og Heche, sem er í öðru af aðal- hlutverkunum í endurgerð á sígildri mynd Hitchcocks „Psycho", ætli að taka sér „að minnsta kosti árs hvíld“. Ummæli hennar fylgdu í kjölfarið á viðtali við leikkonunarnar í sunnu- dagsblaði Times þar sem þær sögðu að komið hefði verið fram við þær á ósanngjarnan og auðmýkjandi hátt af stóru kvikmyndaverunum. Nokkr- ar nýjar myndir með þeim verða frumsýndar í Bandaríkjunum á i næstunni sex mánuðum eftir að þættimir Ellen með DeGeneres voru teknir af dagskrá ABC-sjón- varpsstöðvarinnar. Þær sögðust hafa verið sniðgengnar af kvikmyndaver- um og sjónvarpsstöðvum efth- það. )vAllt sem ég óttaðist varð að veruleika," segir DeGeneres. „Ég missti framhaldsþættina. Það hefur verið ráðist að mér úr öllum áttum. Ég fór úr því að þéna ógrynni fjár á framhaldsþáttum í að þéna enga peninga.“ Heche sagði í samtali við Times: „Mér var sagt að ég fengi aldrei aft- ur vinnu.“ Heche er sem áður segir í öðru aðalhlutverkinu í Psycho sem frum- sýnd verður vestanhafs á föstudag og DeGeneres leikur í þremur væntanlegum myndum, þar á meðal „Goodbye Lover“ sem frumsýnd verður í desember og gamanmynd Ron Howards „edTV“ sem frum- sýnd verður i vor. „Ég get ekki sagt að tilboðunum rigni inn,“ segir Heche, sem sagðist hafa komist að því að „Fox vildi ekki ráða mig vegna þess að for- ráðamenn fyrirtækisins eru enn sárreiðir mér fyrir að verða ást- fangin af Ellen á sama tíma og Volcano var frumsýnt." Súkkulaði Elton John framleiðir kvikmyndir HELENA Bonham Carter mun leika í fyrstu kvik- mynd Rocket Pictures, nýstofnaðs kvikmyndafyrir- tækis Eltons Johns, og verður það í myndinni „Women Talking Dirty“. Bonham Cart- er verður í hlutverki Coru í gamanmyndinni sem fjallar um vináttu tveggja skoskra kvenna sem hjálpa hvor annarri í lífsins ólgusjó. Tökur hefjast í Edinborg í mars og verður Coky Giedroyc leik- stjóri en hún hefur áður leik- ^ stýrt „Stella Does Tricks". nýjasta efnið? ►HÉR sést súkkulaðilífstykki á gínu nokkurri í súkkulaðisýningu New York-borgar sem haldin var 27. nóvember sl. Sýningin stend- ur í fímm daga og sú fyrsta sinn- ar tegundar í Bandaríkjunum. Súkkulaðiflíkin á rætur sínar að rekja til samskonar súkkulaði- hönnunar á sýningu í París fyrr á árinu og er mann farið að gruna að súkkulað- ið sé nýjasta efnið hjá tísku- hönnuð- um í dag. ERLENDAR 90000® Sverrir Hreiðarsson vefhönnunarstjóri skrifar um geisladiskinn „Pearl Jam Live On Two legs“ og myndbandið „Single Video Theory" Frábært ár fyrir Pearl Jam- aðdáendur FLJÓTLEGA eftir að nýaf- stöðnu tónleikaferðalagi Pearl Jam lauk fór að bera á fregnum þess efnis að í íyrsta sinn væri sveitin til í meira. Annað hefur yfírleitt verið upp á teningnum og bandið hefur alla tíð yfíykeyrt sig á þessum ferðalögum. Ég var því mjög spenntur að heyra að til stæði að gefa út hljómleikaplötu og það réttum sextíu dögum eftir að ferða- laginu lauk. Það hefði verið ósköp auðvelt fyr- ir Pearl Jam að taka góðan tíma í undirbúning á sinni fýrstu hljóm- leikaplötu. Þeir eiga árangursríkan feril að baki og ekki skortir þá efni- viðinn. Fyrsta plata þeirra, Ten, skaut þeim upp á stjömuhimininn í upphafí áratugarins og gerði þá að persónugerving- um Grunge tón- listarinnar með lögum eins og Blaek, Alive, Ev- en Flow og Jer- emy. Pearl Jam voru kannski ekki fyrstir, en náðu meiri vin- sældum og sölu en t.d. Nirvana og Soundgarden sem komu fram á sama tíma. Margir voru svartsýnir á að þeim tækist að fylgja Ten eftir en 1993 kom svo út önnur plata sveitarinnar og seldist hún í tæpri milljón eintaka fyrstu vikuna. Það er sölumet sem stendur enn vestan- hafs. Það var því mikill léttir þegar Li- ve On Two Legs kom í hús því þar eru Pearl Jam ekkert að gi-afa í gamla rykfallna spólusafninu heldur eru hér á ferðinni upptökur frá tón- leikaferð sumarsins. Þeirri sömu og Vedder og félagar eru svo ánægðir með að helst vildu þeir halda áfram. Svo erfitt reyndist þeim að hætta að það sást til þeirra á 350 manna stað í heimabæ þeirra, Seattle, þar sem þeir mættu óvænt og hituðu upp fyrir gömlu biýnin í Cheap Trick. Engin ein stúdíóplata fær sér- staka athygli á Live On Two Legs en lagavalið er bæði gott og fjöl- breytt. Við fyrstu hlustun er ekki að heyra nein sérstök frávik frá upp- runalegum útgáfum laganna en annað kemur þó fljótlega i ljós. T.a.m í laginu Daughter er bæði að finna nýja nálgun McCready gítar- leikara sem svipar helst til sveita- tónlistar og í lok lagsins hafa þeir svo komið fyrir versi úr Neil Young laginu Rockin’ in a free world. Með því gefa þeir í skyn að dóttirin endi í strætinu og eigi sér ekki viðreisnar von eins og upprunalegi textinn gerði ráð fyrir. Neil Young eru ann- ars gerð enn betri skil í síðasta lagi plötunnar, F*ckin’ Up. Pearl Jam hafa oft og iðulega flutt þetta lag hans á tónleikum og ferst það vel úr hendi. Gaman hefði þó verið að heyra eitthvað af því efni sem var á Mirrorball, plötunni sem Neil Young og Pearl Jam gerðu saman 1995. Um miðbik plötunnar hægja þeir aðeins ferðina með Elderly Woman Behind The Counter In A Small Town, Uiititled og MFC. Það er helst MFC sem ég set spurningar- merki við. Miklu nær hefði verið að velja einhver meiri tónleikalög af Yield, eins og In Hiding eða Faith- ful. Untitled hljómar líka kunnug- lega og gott ef þetta er ekki aukalag sem kom á Go smáskífunni um árið og heitir Alone. Talandi um Go þá er það næsta lag á plötunni og þar með hitnar í kolunum. A efth' fylgja svo Red Mosquito og Even Flow sem að mínu mati kemur best út á þessari plötu. Skömmu áður en halda átti upp í tónleikaferðina kaus trommarinn, Jack Irons, að sitja heima vegna geðhvarfasýki og því var Matt Ca- meron, fyri'verandi trommari Soundgarden og góðvinur Pearl Jam, fenginn til að berja húðirnar. Það verður að játast að hann er eins og fæddur til að vera í bandinu. Kannski er þetta bara best svona; Irons spilar inn á plöturnar en Ca- meron á tónleikum. Það er allavega ekki annað að heyra en Jeff Ament bassaleikara líki vel við Cameron því þéttleikinn einkennir þessa plötu frá því talið er í og þar til yfir lýkur. Þrátt fyrir orðróm þar að lút- andi stendur ekki til að Cameron fái fast sæti í bandinu. Off He Goes og Nothingman eru lög sem sóma sér vel aftarlega á listanum enda eru þau alls ekki af ólíkum toga. í Nothingman er Vedder upp á sitt besta og sýnir að hann er hinn eini sanni særði héri þegar að söngnum kemur enda falla textar Pearl Jam vel að þessum ein- kennandi söngstíl hans. En Vedder er fleira til lista lagt og það sannar hann í Do The Evolution. Þar er engu líkara en hann sé kominn í hlutverk sjónvarpsprests sem er al- veg að tapa vitglórunni og í lok lags- ins mætti halda að hann sé allur - en þá tekst honum að grafa eftir aukaorku og senda frá sér enn eitt „It’s evolution baybeeeeeeee!“ öskr- ið. Og trúið mér. Ég meina þetta á jákvæðan hátt. Þegar hlustað er á Live On Two Legs er engu líkara en upptökurnar séu frá einum og sömu tónleikun- um, en svo er ekki. Lögin eru tekin upp í Detroit, Washington, Boston og á West Palm Beach svo eitthvað sé nefnt. Eins og ávallt er mikið lagt í hönnun umslags plötunnar enda er Jeff Ament, bassaleikari, grafískur hönnuður að mennt og sér um þessa hlið mála. Á umslaginu er að finna myndir af öllum vegg- spjöldunum sem notuð voru íyrir tónleikana sem og myndir af starfs- fólki Pearl Jam á þessu ferðalagi. Það er nú ekki oft sem maður sér hljómsveitir gera aðstoðarfólki sínu jafn hátt undir höfði. Pearl Jam hlýtur því nafnbótina „Tillits- samasta hljómsveit allra tíma“ og eru vel að titlinum komnir. Allt frá upphafí hefur sveitin verið mótfallin útgáfu smáskífna sem þeir segja vera óþarfa peningaplokk. Þær smáskífur sem komið hafa frá Pearl Jam innhalda því áður óútgefíð efni. Þá eru þeir líka þekktir fyrir bar- áttu sína við Tieketmaster sem hef- ur einokunaraðstoðu í miðasölu allra stærri tónleikahúsa í Banda- ríkjunum. Pearl Jam koma því ekki fram á þeim stöðum sem Ticketmaster er með umboð fyrir og segja miðaverð þeirra alltof hátt. Þá hafa þeir, líkt og hún Björk, ver- ið fastagestir á góðgerðatónleikum til styrktar frelsisbaráttu Tíbet. Nú fer að líða að lokum tónleik- anna og eitt allra besta lag Pearl Jam til þessa, Better Man, rennur rólega af stað. Salurinn lætur ekki á sér standa og syngur hástöfum með (eins og ég þegai' þetta er skrifað - samstarfsfólki mínu til ógleði). Að undanskildu Neil Young-laginu sem ég minntist á hér að framan, þá er bara eitt lag eftir og það er jafn- framt vinsælasta lag sveitarinnar frá upphafi. Black er þegar er orðið ódauðlegt popplag og með- ferðin á því hér er til háborinnar íyrirmyndar. Live On Two Legs stendur kyrfilega í báða fætur og toppar frábært ár fyrir Pearl Jam-aðdá- endur. Single Video Theory Pearl Jam sendi nýlega frá sér myndbandið Single Video Theory þar sem áhorfandinn er í hlutverki flugunnar á veggnum. Fylgst er með þegar æfingar og upptökur á Yield fóru fram i hljóðveri í Seattle. Það er fróðlegt að heyra meðlimi Pearl Jam útskýra hvernig lög þeirra verða til og hvaða aðferðum þeir beita. Mike McCready segir m.a. frá því hvernig gítarleikur hans er háður söng Eddie Vedder hverju sinni og að stundum sé ein- faldlega best að forða sér út í horn, svo æstur geti Vedder orðið. Pearl Jam hefur ekki farið var- hluta af sálarstríði því sem alþekkt er í rokksveitum eða eins og Jeff Ament, bassaleikari, kemst að orði: „Samkeppnin innan sveitarinnar er mikil. Ut úr góðu rifrildi þróast svo kannski eitthvað rosalega fallegt - ef við komumst í gegnum það.“ Leikstjóri Single Video Theoi'y er Mark Pellington sem oft er kallaður MTV-leikstjórinn vegna þess fjölda tónlistarmyndbanda er eftir hann liggja. Honum er þó líka treyst fyrir stærri verkefnum því í janúar á að frumsýna mynd hans Arlington Road þar sem stórleikararnir Tim Robbins og Jeff Bridges fara með aðalhlutverkin. Framleiðandi er svo enginn annar en Cameron Crowe sem leikstýrði Jerry McGuire og Singles (sem meðlimir Pearl Jam léku einmitt í). Viva La Vinyl Að lokum er ekki úr vegi að minna Netverja á Viva La Vinyl III, beina útsendingu til heiðurs Pearl Jam, 11. desember nk. Sent verður út í Real Audio á slóðinni http:/Avqri.rwu.edu/vlv frá klukkan 13 til 16 að íslenskum tíma.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.