Morgunblaðið - 03.12.1998, Side 82

Morgunblaðið - 03.12.1998, Side 82
áJg FIMMTUDAGUR 3. DESEMBER 1998 MORGUNBLAÐIÐ Heilmikil orka í * hlátrasköllum Um þessar mundir er veríð að sýna fars- ann Tveir tvöfaldir eftir breska leikrita- skáldið Ray Cooney í Þjóðleikhúsinu. Dóra Ósk Halldórsdóttir tók Þór Tulinius leikstjóra tali og spurði hann grafalvarlega um hláturinn. LEIKRITIÐ Tveír tvöfaldir gerist á hóteli í miðbænum þar sem fáir eru það sem þeir segjast vera og menn bregða sér í hin ýmsu gervi. A hótelherbergi 650 gerast margir kyndugir hlutir svo við hæfi þótti að biðja Pór um að knýja á dyrnar á herbergi 650 þar sem hann var spurður spjörunum úr. - Hvernig kom það til að þú varst fenginn til að leikstýra Tveim tvö- földum íPjóðleikhúsinu? „Þjóðleikhúsið vildi bjóða mér leikstjórnarverkefni og verið var að sjjoða ýmis verk. Síðan stóð til að setja upp þetta verk og Stefán Baldursson bauð mér að taka það að mér. Ég veit ekkert hvers vegna hann veðjaði á mig, og held jafnvel að mörgum hafi ekki fundist ég vera maður til að setja upp farsa.“ -Ertu svona þunghúinn dags daglega? „Ja, ég hef að minnsta kosti ekk- ert verið í þessum skemmtanageira eða í gamanleik. Margir telja að best sé að láta gamanleikara eða „gaman“-leikstjóra setja upp farsa, en ég er ekkert endilega sammála því. Svo má auðvitað deila um hvort maður er gamanleikari eða ekki. Hvaða hæfileika hafa gamanleikar- ar fram jrfir harmleikara eða öfugt? Góður leikari er einfaldlega góður leikari. Ef farsi er vel skrifaður er ekkert svo mikið sem leikstjórinn þarf að gera annað en bara að fá fullan skilning allra aðstandenda á verk- inu. I Tveim tvöföldum lendir venjulegt fólk í mjög erfiðri stöðu, og það er nákvæmlega það sem ger- ir verkið fyndið. Þar með þarf mað- ur ekki að setja verkið upp öðruvísi en alvarlegra leikrit." -Er þetta ekki bara eðlislæg hógværð hjá þér? „Nei, þetta er alveg satt,“ segir Þór og kímir. „En auðvitað töluðum við um alla þá tækni sem fylgir farsaleik, eins og hraða, þéttleika, orku og skýra framsögn. Ég hafði það sem reglu í uppsetningunni að flýta sér hægt, og gera verkið eins FÓLK í FRÉTTUM raunverulegt og hægt var. Síðan var það aðeins síðustu dagana sem við fórum að gefa í og keyra hrað- ann upp. Maður byrjar engan veg- inn á því að tala um hraða. Ég var því frekar maðurinn á bremsunni til að byrja með.“ -Hvað fær fólk til að hlæja á svona sýningu. Er það feginleiki yf- ir að vera ekki sjálfur í þessum að- stæðum?" Nú hlær Þór, og segir að það megi vel vera. „Annars má ég til með að vitna í fyrirlestur sem Arni Ibsen hélt um kímnigáfuna, en hann þýddi og staðfærði leikritið. Hann vitnar þar í Nafn rósarinnar eftir Umberto Eeo sem er spennusaga sem gerist á miðöldum. Glæpur bókarinnar er sá að munkamir eru að fela meinta bók Aristótelesar um hláturinn. Ástæðan fyrir því að munkamir vilja fela bókina fyrir mannkyninu er sú að hláturinn er oft þyrnir í augum yfirvalda vegna þess að hann er mjög skætt vopn. Hláturinn er frelsandi afl. Hlátur losar líka um mikla spennu. Samfé- lag manna er fullt af siðum og venj- um sem við keppumst við að halda okkur við. En þar sem við emm ekki fullkomin tekst það ekki alltaf. I Tveimur tvöföldum er lostinn sá mannlegi breyskleiki sem menn ráða ekki alveg við, þótt þeir séu í vígðri sambúð. Þetta er eitthvað sem allir þekkja. En spuming er bara hvað þú gerir við það, hvort þú lætur undan eða ekki. Þess vegna geta allir séð sig í aðstæðum þar sem menn em að kljást við ófullkomleika sinn og breyskleika. En hláturinn gerir okkur lífið létt- ara. Öll list er í rauninni speglun. Við speglum okkur í hug- arheimi einhvers ann- ars og listamenn em alltaf að reyna að fanga einhvern sann- leika um sjálfa sig eða samfélagið. í þessu tilviki verður speglun- in til þess að losa um spennu.“ - Er farsinn sem form kannski háalvar- legur? „Mér finnst farsinn vera vanmetið form. Alvarlegri dramatísk- um verkum er oft meira hampað og gert er lítið úr farsanum og gamanleikjum. Fyndnin er gerð lág- kúraleg og ekki talin jafn menningarleg og alvarlegri leikbók- menntir. En þess eru dæmi að farsaformið hefur sameinað fólk sem er undirokað. í ráðstjómarríkj- unum var til að mynda komin hefð fyrir gamanleik sem var mjög póli- tískur. En ekki var hægt að ritskoða leikritin því öll pólitísk skilaboð vora undir rós. En almenningur hló sig máttlausan og fékk í leikhúsinu vett- vang til að losa um óuppgerðar til- finningar til stjómkerfisins. Þar var hláturinn bæði hættulegur og líkn- andi. En Tveir tvöfaldir er ekki pólitísk- ur farsi, heldur er þar gert meira góðlátlegt grín að hinum venjulega manni. Það er fullt til af fólki sem gengur um og áttar sig ekkert á því að það á í baráttu við kenndir sínar, að það tekur á að vera siðaður ein- staklingur. En með því að sjá svona sýningu losnar spenna úr læðingi. Það er heilmikil orka í hlátrasköllun- Morgunblaðið/Kristinn Olafía Hrönn Jónsdóttir N0 NAME andlit ársins 1998 NO NAME ---COSMETICS ‘Kynning Helga Sæunn förðunarfræðingur gefur ráðleggingar í dag frá kl. 14-18. Snyrtistofan Paradís, Laugarnesvegi 82 NO NAME .—COSMETICS ......... ‘Xynnitifi Silla Páls förðunarfræðingur gefur ráðleggingar í dag frá kl. 14-18. NoaN»MEa°"má0renins°998 Snyrtivöruverslunin Sandra, Smáratorgi HVER ERU HELSTU MISTOK KVENNA í SAMSKIPTUM VIÐ KARLMENN? 5 4 -Á' ó ÍA.........ú pl§ „Þessi bók gefur konum kjark til þess að líta í eigin barm og taka ákvörðun um að axla ábyrgð á lífi sínu og tilfinningum." FANNÝ JÓNMUNDSD. LEIÐBEINANDI Zé; . -■ : 4 OGJíAj JDJ j j Ój'JJSGAj JÐJ * * i'lÓDGAi JDJ j UMFRAM ALLT GÓÐ BÓK Bandarískar stjörnur fá leik- húsverðlaun í Lundúnum ►TVEIR bandarískir kvikmynda- leikarar fengu stór verðlaun þegar leikhúsverðlaunin í Lundúnum voru afhent með viðhöfn á mánu- dag. Nicole Kid- man sem fékk frábæra dótna gagnrýnenda fyrir kynþokka- fulla frammi- stöðu sina í Bláa herberginu fékk sérstök verðlaun dagblaðsins Evening Standard fyr- ir framlag sitt til leikhússheims Lundúnaborgar. Kevin Spacey var svo valinn besti leikari fyrir frammistöðu sína í „The Iceman Cometh“. Kynnir á hátíðinni var breska kvikmyndastjaman úr Tra- inspotting og næsta Stjörnustríði, Ewan McGregor, sem hefur fengið lofsamlega dóma fyrir frammi- stöðu sína í leikriti frá sjöunda áratugnum, „Malcolm litli og bar- átta hans við geldingana." Jólagjafirnar jr I RCWELLS Kringlunni 7, sími 5 88 44 22

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.