Morgunblaðið - 04.12.1998, Qupperneq 6

Morgunblaðið - 04.12.1998, Qupperneq 6
6 LAUGARDAGUR 5. DESEMBER 1998 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Laun járniðnaðarmanna hafa hækkað umfram samninga Hækkanir raktar til vinnustaðasamninga LAUN jámiðnaðamianna hafa hækkað talsvert umfram 4% al- menna kauphækkun frá seinustu áramótum. Það gildir bæði um laun með og án bónusgreiðslna, að því er fram kemur í könnun sem Félag járniðnaðarmanna gerði á meðal félagsmanna sinna í október síðast- liðnum. Orn Friðriksson, formaður Félags jámiðnaðarmanna, segir að launahækkanir séu mismunandi, þannig megi nefna að á höfuðborg- arsvæðinu hafi laun járniðnaðar- manna án bónuss hækkað um 8,8% frá október 1997 og laun með bónusum um 10,3% frá sama tíma. Utan höfuðborgarsvæðisins, þ.e. á Suðurlandi, hafi laun jámiðnaðar- manna án bónuss hækkað um 5,7% frá október 1997 og laun með bónusgreiðslum hækkað um 7,6% frá sama tíma, að meðtalinni 4% hækkun í janúar síðastliðnum. Eftirspum á haustdögum lítil „Samningarnir um seinustu áramót gerðu ráð fyrir að menn gætu gengið til vinnustaðasamn- inga, sem ættu bæði að færa fyrir- tækjum og starfsmönnum tekju- hækkun, eftir þvi samkomulagi sem næðist urn^ skipulagningu og hag- ræðingu. Eg tel að stóran hluta þeirrar hækkunar sem orðið hefur umfram þessi 4% megi rekja til slíkra vinnustaðasamninga. Eitt- hvað hefur líka verið um að menn færi sig á milli fyi'irtækja þannig að persónulegar launabreytingar hafa orðið hjá hluta þeirra sem svöruðu könnuninni. Þó má líka skrifa einhvern hluta þessarar hækkunar á spennu á markaðinum sem varð fram á sein- asta sumar, en eftir það hef ég ekki orðið var við neinar launabreyting- ar að heita má. Það er nóg að gera hjá öllum, en ég verð ekki var við neina sérstaka þenslu eða spennu undanfarið og engin sérstök eftir- spurn efth' mönnum nú á haustdög- um,“ segir Orn. Könnunin var gerð meðal allra félagsmanna Félags járniðnaðar- manna og komu svör frá 321 félags- manni. I niðurstöðum könnunarinn- ar kemur fram að launahækkanir hafi verið heldur meiri á höfuðborg- arsvæðinu en utan þess. Mótun, notkun og frágangur miðbæjarsvæðisins í Kópavogi Arkitektar koma með hugmyndir KÓPAVOGSBÆR hyggst ráða þrjái' ai'kitektastofui' til að koma fram með hugmyndir um mótun, notkun og frágang miðbæjar- svæðisins í Kópavogi, og þar á meðal hvernig tengja megi bakka Kópavogsgjái’innar saman. Að sögn Birgis Sigurðssonar, skipu- lagsstjóra bæjarins, eiga þær hugmyndh- að liggja fyi'h' í mars næstkomandi. „Þetta verður tvíþætt, þar sem annars vegar verðm- Hamraborg- in frá Alfhólsvegi upp að kh'kju og Digranesvegurinn, og hins vegar hugmyndir um það hvernig tengja megi bakka gjáarinnar saman. Ut úr því gætu komið einhveijai- nýj- ar byggingar, en við vitum það ekki. Við höfum óljósai' hugmynd- h’ um þetta, en við viljum fá þessa þrjá aðila til að spreyta sig og gefa okkur hugmyndir," sagði Birgir. Eins og fram kom í Morgun- blaðinu í gær hefur ein lóð yftr gjána verið auglýst til úthlutunai', en verslanakeðjan 10-11 sótti um það síðastliðið sumar að fá að byggja verslunarhús á lóðinni. Birgir sagði að fleiri hefðu enn sem komið er ekki sýnt áhuga á að byggja á lóð yfir gjána. „Þetta hefur verið höfuðverkur hingað til, enda dýrt, en þetta er hlutur sem þarf að vinnast í sam- ráði við Vegagerðina sem er veg- haldari á Hafnai-fjarðarveginum,“ sagði hann. * Samvinnunefnd um svæðisskipulag á hálendinu Fyrirvarar gerð- ir við lónastærð í NIÐURSTÖÐUM Samvinnu- nefndar um svæðisskipulag á miðhá- lendinu til Skipulagsstjóra er gerður fyrirvari við Fljótsdalsvirkjun sam- kvæmt núgildandi tilhögun. Fyrir- vai'inn snýr að stærðum á lónum á Eyjabakkasvæðinu og segir í skýrsl- unni að vegna mikilvægis og ,sér- stöðu svæðisins hvað varðar gróður- far, dýralíf, landslag og fleira sé ástæða til endurskoða tilhögun virkj- unar samkvæmt gildandi lögum. í skýrslunni segir að svæðið hafi Fimm ölvaðir við stýrið ÁTTA ökumenn voru teknir í Reykjavík í fyrrinótt vegna gruns um ölvun við akstur. Eru það óvenju margir í miðri viku en lögreglan fylgist grannt með hugsanlegum ölvunarakstri um þessar mundir. Af þessum átta reyndust fimm með áfengismagn yfir leyfilegum mörkum í blóði en þrír voru undir mörkum og sluppu þvi. Fjórh' voru sviptir ökuréttindum til bráðabirgða, en einn var ökuréttindalaus. einnig mikið gildi fyrir ferðaþjónust- una. Nefndin gerir ráð fyrir að skoðaðir verði til hlítar möguleikar á að virkja saman Jökulsá á Brú (Kára- hnúkavirkjun) og Jökulsá í Fljótsdal með þeim hætti að Kárahnúkalón geti nýst sem miðlun fyrh- bæði vatna- svæðin. „Því er gerður fyrii-vari um lónastæðir á Eyjabakkasvæðinu og aðra tilhögun virkjunai'. Fljótsdalsvirkjun var heimiluð með lögum 1981 og leyfi ráðherra var veitt fyrir 1. maí 1994. Virkjunin er því ein- ungis matsskyld ef um breytingar er að ræða frá upphafiegum áætlunum. Lokatillaga væntanleg Skipulagsstofnun hefur nú svæðis- skipulag á miðhálendi íslands fram tii 2015 til umfjöllunar. Stoftiunin gerir lokatillögu til umhverfisráðherra um afgreiðslu málsins og má búast við því að sú vinna taki nokkrar vikur. „Þetta er niðurstaða nefndai'innar og við fórum yfir hana og metum hvað fyrirvarinn þýðir. Það er síðan umhverfisráðherra sem tekur af- stöðu til þess hvort hann staðfesti svæðisskipulagið samkvæmt tillögu samvinnunefndarinnar. Fyrirvarann þarf að skoða betur áður en málið verður afgreitt frá skipulagslegu sjónarmiði jafnvel þótt virkjunar- leyfi sé gilt. Það verður því að ganga frá skipulagi á svæðinu," segir Stefán Thors skipulagsstjóri. Aldrei gefíð lof- orð um samráð , Morgunblaðið/ FELAGSMENN Dagsbrúnar/Framsóknar í starfi hjá Reykjavíkurborg voru boðaðir til þriggja funda í gær þar sem þeir greiddu atkvæði um uppsögn kjarasamninga við borgina vegna deilna um skólaliða. Von er á að niðurstöður atkvæðagreiðslunnar liggi fyrir eftir helgi. Forstöðumaður fjármálasviðs Fræðslumiðstöðvar Reykjavíkur HOLTACARÐAR OPIO í DAG TIL KL« Í9UO REYKJAVÍKURBORG hefur ekki lofað samráði við Dags- brún/Framsókn um það hvort störf skólahða verði tekin upp í fleiri skólum en þeim þremur þar sem þetta starfsheiti var tekið upp haustið 1997, að sögn Ólafs Darra Andrasonar, forstöðumanns fjár- málasviðs Fræðslumiðstöðvar Reykjavíkur. I Morgunblaðinu í gær var haft eftir Halldóri Björnssyni, formanni Dagsbrúnar/Framsóknar, að í kjölfar dóms félagsdóms hefði borgin gefíð það loforð að taka ekki upp skólaliðafyrirkomulagið í fleiri skólum án samráðs við félagið en það hefði verið svikið í haust þegar fyrirkomulagið var tekið upp í þremur skólum til viðbótar. Ólafur Darri sagði að samráðið hefði hins vegar falist í viðræðum við félagið um það hvernig tryggja mætti að þeir einstaklingar í skólunum sem voru í störfum ræstingarfólks færu sem best út úr breytingunni og fengju annað hvort störf skólaliða eða yrðu aðstoðaðir við að fá sam- bærileg störf í öðrum skólum. „Það var aldrei gefið loforð um að það yrði samið um það við Dags- brún/Framsókn hvort þetta yrði tekið upp í öði'uni skólum,“ sagði Ólafur Darri. Fyrst og fremst samráð um að tryggja atvinnuöryggi Hann sagði að þegar störf skóla- liða voru tekin upp með því að sam- eina almenn störf gangavarða og ræstingarfólks hefðu gömlu stöð- urnar verið lagðar niður og fólki boðið nýtt staif á nýjum kjörum. Ágreiningur hafi síðan komið upp um það við Dagsbrún/Framsókn hvort rétt hafi verið að málum staðið. Aðilar hefðu orðið sammála um að vísa þeim ágreiningi til félagsdóms, sem staðfesti að borg- in hefði staðið rétt að málinu í öll- um atriðum. „I framhaldi af því undirbjugg- um við að taka þetta upp í fleiri skólum og við ræddum það við Dagsbrún/Framsókn. Af hálfu borgarinnar voram við fyrst og fremst að tala um samráð um það hvemig við gætum tryggt atvinn- uöryggi þessa fólks, en félagið aft- ur á móti óskaði eindregið eftir því að við semdum við félagið um störf skólaliða. Það er í raun og veru þvert á niðurstöðu félagsdóms um að Reykjavíkurborg hafi staðið rétt að málinu með því að líta á þetta sem ný störf og að eðlilegra væri að þau væra á verksviði Starfs- mannafélags Reykjavíkurborgar. Við höfum aftur á móti viljað gera þessa kerfisbreytingu eins milda fyrir það starfsfólk sem lend- ir í þessu og hugsast getur og höf- um lagt okkur fram við það. Þannig teljum við okkur hafa getað tryggt öllum atvinnu sem þess óskuðu, annað hvort við skóla- liðastörf eða við ræstingu í öðram skólum," sagði Ólafur Darri.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.