Morgunblaðið - 04.12.1998, Síða 8

Morgunblaðið - 04.12.1998, Síða 8
8 FÖSTUDAGUR 4. DESEMBER 1998 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Yfirþyrmandi klúður NEI, aulabárðurinn þinn, það er ég sem á að slá prinsinn kaldan en ekki þú. Rjúpnaveiðin er talsvert minni en í fyrra Óvíst að allir fái jóla- rjúpuna fyrir hátíðina RJÚPNAVEIÐIN virðist vera nokkru minni í ár en í fyrra. Jólarjúpan kostar hamflett 595 krón- ur í verslunum Nóatúns. Samkvæmt upplýsingum Jóhanns Ólasonar, verslunarstjóra í verslun Nóatúns, selur Nóatún um 10.000 rjúpur árlega og er líkast til um- fangsmest í greininni hér á landi. Jó- hann býst við að selja svipað magn í 1 ár. Hann segir að veiðin í ár sé nokkru minni en í fyrra og gildi það i um allt landið og verslunina vanti ennþá nokkuð af fugli til að sinna fóstum viðskiptavinum sínum. Rjúpnaveiðimaður norðan heiða tekur í sama streng og segir ástæð- una meðal annars þá að veiðiálagið hafi aukist og svæði sem áður var i erfitt að sækja nýti menn í auknum mæli á vélsleðum. Rjúpan kostar 595 kr. Jólarjúpan, hamflett, kostar núna 595 kr. í verslunum Nóatúns en verð- ið getur breyst þegar nær dregur jól- Morgunblaðið/RAX TALSVERT er um það að rjúpnaskyttur noti hunda sér til aðstoðar. um. Verðið á rjúpunni í fyrra var lengstum það sama og nú en fór nið- ur í 395 kr. rétt fyrir jólin. Jóhann sagði það verð alveg út í hött, en í fyrra barst þeim mikið magn af rjúp- um rétt fyrir jólin. Segir hann að rjúpan berist versluninni mun jafnar nú en áður. Fyrsta Ijóðabók ungs Ijóðskálds Agóðinn rennur til kapellu á líknardeild Guðmundur Breiðfjörð GUÐMUNDUR Breiðfjörð sendi frá sér sína fyrstu ljóðabók, „Köllun“, síðla í nóvember. Allur ágóði af sölu ljóðabókarinnar rennur til uppbyggingar kapellu við líknardeild á Kópavogshæli. Stefnt er að því að starfsemi líkn- ardeildarinnar hefjist í mars eða apríl á næsta ári. Guðmundur segir að í bókinni sé úrval ljóða sinna síðustu 10 til 15 ár- in. Alls eru ljóðin 57 og eru 14 ljóðanna á ensku. Ljóðabókinni er skipt í fimm hluta. „Fyrsti hlut- inn heitir Æskurím og hefur að geyma ljóð frá því að ég var 13 til 15 ára. Annar hlutinn heitir Proski og þróun og þar hefur áherslan færst frá höfuðstöfum og rími yfir í myndmál og merkingu. Þriðji hlutinn heitir Stökur, sá fjórði Minningarljóð og fimmti Englaborgin L.A. Ljóðin hef ég ort í Los Angeles síðustu árin. Form ljóðanna í seinni hlutun- um er blandaðra en í þeim fyrsta.“ -Um hvað eru Ijóðin? „Ég gekk í gegnum afar ei-fitt tímabil þegar ég missti afa, ömmu og fóður á þremur árum frá árinu 1994 til 1997. Dauðinn er því áberandi við- fangsefni í Stökunum og svo auðvitað í Minningarljóðunum. Skáldagyðjan kemur auðvitað að efnisvalinu og segja má að minningarljóðin, sérstaklega eftir ömmu og pabba, hafi nán- ast runnið úr pennanum. Af öðrum viðfangsefnum er hægt að nefna ástina, vinnuna, um- hverfið, einveruna, trúmál, stjórnmál og áfram væri hægt að telja.“ - Hvers vegna ákvaðst þú að láta ágóðann renna til uppbygg- ingar kapellu á líknardeild á Kópavogshæli? „Aðdragandinn að því tengist dauða föður míns. Mér og móð- ur minni var algjörlega ómetan- legt að geta leitað stuðnings sr. Braga Skúlasonar, sjúkrahúss- prests, á meðan á dauðastríði hans stóð. Faðir minn varð fangi í eigin líkama, missti mál, sjón og mátt öðrum megin áður en hann fékk loks hvfld eftir þriggja mánaða þjáningu. Eftir að ég hafði takið ákvörðun um að gefa ljóðin út velti ég því upp í samtali við sr. Braga hvemig ég gæti látið gott af mér leiða með ljóðunum. Fljótlega barst í tal að verið væri að koma upp fyrstu líknar- deildinni á íslandi, 10 rúmum, á Kópavogshæli. Oddfellow gaf 30 milljónir til uppbyggingar líkn- ardeildarinnar í tilefni af 100 ára afmæli hreyfingarinnar. Ríkisspítalamir reka deildina með fjárframlögum frá ríkis- sjóði og gert er ráð fyrir að þjóðkirkjan greiði launakostnað vegna sjúkrahússprests í hálfu starfi við deildina. Nú er hins vegar ekki útlit fyrir meiri stuðning frá þjóðkirkjunni og ekki er gert ráð fyrir kapellu eða sérstöku afdrepi fyrir sjúk- ► Guðmundur Breiðfjörð er fæddur 20. mars árið 1968 í Reykjavík. Hann lauk stúd- entsprófi frá Menntaskólanum við Hamrahlíð árið 1988, BA- gráðu í kvikmyndafræði frá Columbia College í ársbyrjun 1992 og prófi í leikhúsfræðum frá Los Angeles Theatre Academy árið 1997. Guðmundur vann m.a. við þjónustu- og markaðsmál, kvikmynda- og handritsgerð, í Los Angeles á árunum 1990 til 1997. Nú er Guðmundur mark- aðs- og sölufulltrúi hjá IU. Hann gaf út sína fyrstu ljóða- bók, „Köllun“, 27. nóvember. linga og aðstandendur á deild- inni. Mér fannst því tilvalið að láta ágóðann af sölu bókarinnar renna til uppbyggingar kapellu." - Hvað stefnir þú á að safna miklu? „Ég stefni að því að safna um 50.000 krónum og hef sótt um jafn hátt mótframlag frá Kristnisjóði. Fyrir 100.000 kr. væri hægt að kaupa stóla, kertastjaka, Biblíur og sálma- bækur í smá afdrep á deildinni. Með því móti væri hægt að skapa bráðabirgðaaðstöðu fyrir sjúklinga og aðstandendur fyrir opnun deildarinnar í lok mars eða byrjun aprfl á næsta ári.“ -Hvar er hægt að kaupa bókina? „Ljóðabókin er til sölu í Pennanum í Kringlunni, Ey- mundsson í Austurstræti og Kringlunni. Ég sel bókina sjálf- ur á 1.000 kr. eða á 500 kr. lægra verði en í bókabúðunum.“ -Hvernig líst þér á staðsetningu líkn- ardeildarinnar? „Mér finnst hafa valist ákaflega fallegt umhverfi. Lítill niður heyrist af bflaum- ferðinni og gert er ráð fyrir að sjúkrarúmin snúi út að firðin- um. Gott svæði er til útivistar í kringum húsið. Ég efast heldur ekki um að Þorbjörg Guð- mundsdóttir, deildarstjóri, og Valgerður Sigurðardóttir, yfir- læknir, eigi eftir að halda mjög vel utan um starfsemina." -Getum við átt von á fleiri ljóðabókum frá þér á næstunni? „Ég er að semja leikrit núna sem tekur allan huga minn. Vonandi tekst mér að koma því frá mér á næsta ári.“ Sótt um mót' framlag frá Kristnisjóði *

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.