Morgunblaðið - 04.12.1998, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 4. DESEMBER 1998 13
FRETTIR
Læknavaktin hefur gert
þjónustusamning við ríkið
Þjónar hundrað
og sj’ötíu þtísund
manna svæði
Læknavaktin hefur tekið til starfa í nýju húsnæði
á annarri hæð við Smáratorg 1 í Kópavogi og
um leið hefur þjónustusvæði vaktarinnar verið
stækkað til muna.
í BYRJUN október var undirritaður
þjónustusamningur Læknavaktar-
innar við heilbrigðisráðuneytið til
fímm ára og er þar gert ráð fyrir
vaktþjónustu kvöld, nætur og helgi-
daga fyrir um 170 þúsund manns
sem búa á svæðinu.
Atli Árnason, yfirlæknh- heilsu-
gæslustöðvarinnar í Grafarvogi, er
formaður stjómar Læknavaktarinn-
ar og Þórður G. Ólafsson, heilsu-
gæslulæknir í efra Breiðholti, er
vaktstjóri. Þeir eru spurðir um stað-
setninguna í Smáranum og hvort það
sé ekki nokkuð róttæk breyting að
fara úr Heilsuvemdarstöðinni í
Reyþjavík í annað bæjarfélag.
Nálægt fjölmennum hverfum
„Staðurinn er góður og er hugsað-
ur til framtíðar. Hér erum við í aust-
urhluta höfuðborgarsvæðisins, ná-
lægt fjölmennum hverfum Reykja-
víkui’ í Breiðholti og Grafarvogi, í
þeim hluta Kópavogs þar sem upp-
bygging er hröðust og þegar haft er í
huga að nú bætast Garðabær, Hafn-
arfjörður og Bessastaðahreppur við
þá er Smárinn hentugur staður og
miðsvæðis. Hann liggur vel við sam-
göngum í allar áttir og þótt vega-
lengd sé nú meiri til okkar úr mið-
og vestm’hluta Reykjavíkur teljum
við það samt sem áður vel viðun-
andi,“ segir Atli og telur að líkja
megi staðsetningunni nú við það
þegar Borgai'spítalanum var valinn
staður í Fossvogi á sínum tíma.
Þórður G. Ölafsson segir vakt-
þjónustuna rekna með svipuðum
hætti og verið hafi nema að hún sé
nú efld: „Við höfum til þessa haft tvo
lækna á vakt í senn, annan í móttöku
og hinn í vitjunum, og þriðji læknir-
inn var síðan á bakvakt. Við erum
áfram með tvo lækna á vakt en þrjá
á bakvakt sem við köllum til starfa ef
álagið krefst. Hér er nú aðstaða fyrir
þrjá til fjóra lækna í einu til að taka
á móti sjúklingum. Annað starfsfólk
er móttökuritari, hjúkrunarfræðing-
ur og bflstjórinn sem ekur læknum í
vitjanir. Þá sjáum við fram á að
þurfa að ráða eins konar læknaliða
eða aðstoðarmann sem myndi hjálpa
sjúklingum og aðstoða okkur á ýmsa
lund. Einnig erum við að ráða á
næstunni skrifstofumann til að sjá
um daglegan rekstur og fjármálaum-
sýslu stöðvarinnai- auk þess sem
stjórnin sinnir ýmsum verkefnum er
við koma daglegri stjórn."
Alls taka rúmlega 50 heimilis-
læknar að sér vaktþjónustu Lækna-
vaktarinnar. Flestir starfa á heilsu-
gæslustöðvunum á höfuðborgai--
svæðinu en nokkrir sjálfstætt. Ár-
lega hefur Læknavaktin þjónað um
30 þúsund manns á móttöku sinni og
í vitjunum, en þeir Atli og Þórður
gera ráð fyrir að heimsóknum muni
fjölga með stærra þjónustusvæði. Til
samanburðai’ má geta þess að kring-
um 40 þúsund manns koma á slysa-
deild Sjúkrahúss Reykjavíkur ár-
lega.
Forráðamenn Læknavaktai’innar
leggja áherslu á að síðdegisvakt
standi víða áfram til boða á heilsu-
gæslustöðvunum. Móttaka Lækna-
vaktarinnar er opin daglega milli
klukkan 17 og 23.30 og milli 9 og
23.30 um helgar og á frídögum.
Símaráðgjöf er hins vegar veitt milli
17 og 8 á virkum dögum og allan sól-
arhringinn um helgar og frídaga.
Vitjanaþjónusta er veitt bæði á mót-
töku- og símatímum. Sími Lækna-
vaktarinnar sf. er 1770. Læknarnh’
segja að æ meira sé um það að fólk
komi á vaktina og dragi úr vitjunum.
„Þetta hefur verið að gerast smám
saman, enda má segja að við getum
veitt betri þjónustu hér en þegar við
Morgunblaðið/Þorkell
MEÐAL forráðamanna Læknavaktarinnar eru Atli Arnason (t.v.) sem er formaður
stjdrnar og Þórður G. Olafsson vaktstjóri.
vitjum sjúklinga. Hér er hægt að aka
inn í bflageymslu í kjallara hússins
og taka lyftuna beint upp á aðra hæð
þannig að fólk þarf ekki að fara út í
misjöfn veður. Það verður hins vegar
vitanlega gert áfram og stundum er
um það veikt fólk að ræða að við
sendum það beint á spítala. Hér get>
um við skoðað sjúklinga, tekið blóð-
og þvagsýni og gert ákveðnar mæl-
ingar en annað er sent til rannsókna-
stofa. Sé það gert fara niðurstöður til
viðkomandi heimilislæknis og fólk
leitar til hans eftir frekari ráðgjöf.“
Gjald fyrir viðtal á móttöku
Læknavaktarinnar er það sama og á
heilsugæslustöð, þ.e. 1.100 krónur,
700 kr. fyrir þá sem hafa afsláttar-
kort, 500 kr. fyrir lífeyrisþega og
börn og 300 fyrir fólk í þeim flokki
sem hefur afsláttarkort.
En í hverju felst þjónustusamn-
ingurinn við ríkið?
„Læknavaktin fær ákveðna upp-
hæð á ári til að veita íbúum á svæð-
inu læknisþjónustu utan sjúkrahúsa
og utan dagvinnutíma," segir Atli. „I
samningnum eru skilgreindar
ákveðnar magntölur og staðalkröfur
sem gerðar eru til þjónustunnar og
verðum við að standa og falla með
þeim með 6% fráviki til eða frá.
Breytist tölumar meira en það er
hægt að endurskoða samninginn til
hækkunar eða lækkunar. í þessari
þjónustu er falið að við sjáum um að
útvega húsnæðið, sem við leigjum
hér, og allan búnað, greiðum starfs-
KRAFTBIRTINGARHLJOMUR
GUÐDÓMSINS
K R K' Xí I
j’ R, t’-í f )
„ l U R: A
H „ ó m s i N s
c i i •• Ð \ D O /
6 , F 0 g' * V " D 1
B í< ^ ’
S& g u.R n u
/ S A A H J
ú s J> iM s 0 N A k
/ '• V "i ■ ý jft
mf s
H Á S
K
UNNENDUR
HEIMSLJÓSS
HALLDÓRS
LAXNESS ÆTTU
EKKI A Ð LÁTA
ÞESSA BÓK FRAM
H J Á S É R FARA
LÍF OG DAGBÆKUR MAGNÚSAR
HJ. MAGNÚSSONAR ER
VIÐFANGSEFNl ÞESSARAR BÓKAR,
EN HANN ER FYRIRMYND
HALLDÓRS LAXNESS AÐ ÓLAF
KÁRASYNI LJÓSVÍKING
HANS HEIMSLJÓSI. HÉR^Í &
SKIPTI BIRT
DA<
SIGURÐUR GYLFI MAGNÚSSON
TÓK RITIÐ SAMAN 0£ SKRIFAR
ÍTARLEGAN1N-Ilkir A
Ú T
G A F
S í M I 5 2 5
fólki og eða undirverktökum laun og
höfum eins marga lækna á vaktskrá
og við teljum nauðsynlegt. Samning-
urinn er gerður til fimm ára og ég
vona að við getum haldið áfram þeg-
ar þeim tíma er lokið.“
Þeir tvímenningar segja að í
samningnum sé auk þessarar þjón-
ustu fólgin símaráðgjöf að næturlagi
við 13 H-l-heilsugæslustöðvar út um
landsbyggðina, þ.e. stöðvar með að-
eins einum lækni, og verður á næst-
unni útfært nánar hvernig sú þjón-
usta verður rekin. Er þá sími við-
komandi heilsugæslustöðvai’ tengd-
ur Læknavaktinni beint og aðeins
kallað í heilsugæslulækninn ef alvar-
legur vandi kemur upp sem leysa
þarf strax úr og er þessu ætlað að
létta á óþarfa truflunum heima fyrir.
Tilraun með hrossauppboð í Hindisvík
Tíu trippi boðin upp
UPPBOÐ eru algengur sölumáti á
hrossum víða um heim en hér á
landi er lítið um slíkt nema þá helst
þegar boðin eru upp óskilahross.
A morgun kl. 16 verður gerð til-
raun í Hestamiðstöðinni Hindisvík
að Varmárbökkum í Mosfellsbæ
þegar boðin verða upp 10 ótamin
hross.
Að uppboðinu standa Davíð Jóns-
son og Ástmundur Norland. Byrjað
verður á að hleypa hrossunum inn
tveimur saman í senn og gestum
boðið að skoða allan hópinn með
þeim hætti. Síðan verður tekið eitt í
senn í salinn og óskað eftir boðum.
I auglýsingu segir að fylgt sé al-
mennum uppboðsskilmálum og
greiðsla fari fram við hamarshögg.
í samtali við Morgunblaðið sögðu
þeir Davíð og Ástmundur að þetta
væri tilraun sem gerð væri bæði í
gamni og alvöru. Uppboðsleiðin
væri mjög algeng erlendis við að
koma hrossum á framfæri við kaup-
endur. Þetta væri skemmtilegur
verslunarmáti sem oft skapaðist
góð stemmning í kringum.
Eftirfarandi
viðskiptanúmer voru
vinningsaðilar i Talló
1 58 102 143 187 233 283 322 364 401
2 59 103 144 191 234 284 323 365 402
3 60 105 145 193 235 285 324 366 403
5 61 106 146 195 236 289 327 367 406
7 63 107 147 197 238 290 328 368 407
10 65 108 149 199 239 292 329 370 410
13 66 109 150 200 240 294 331 371 411
14 68 110 152 202 241 295 332 374 412
15 69 113 157 203 242 297 333 375 413
16 73 114 158 204 243 298 336 376 414
17 74 115 161 205 244 301 337 377 415
21 75 116 162 207 246 302 338 379 416
25 76 117 163 208 247 303 340 380 417
27 77 118 165 211 250 304 341 381 418
32 78 119 166 212 254 305 342 382
34 79 120 168 214 258 306 343 383
35 81 121 170 215 259 307 344 384
38 82 122 171 216 264 308 345 385
43 87 123 172 217 265 309 346 386
44 88 124 174 218 266 310 347 387
45 89 127 176 220 270 311 348 389
46 90 128 178 222 271 312 349 390
47 91 130 179 223 272 313 351 391
48 93 134 180 224 274 314 356 392
49 96 136 181 225 275 315 357 394
50 97 137 182 227 276 317 358 395
51 98 139 183 228 278 318 359 396
54 99 140 184 229 280 319 360 397
56 100 141 185 230 281 320 362 399
57 101 142 186 231 282 321 363 400