Morgunblaðið - 04.12.1998, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 04.12.1998, Qupperneq 16
16 FÖSTUDAGUR 4. DESEMBER 1998 MORGUNBLAÐIÐ Morgunblaðið/Aldis Hafsteinsdóttir STARFSMAÐUR verslunarinn- ar Heiðar Ásgeirsson. Ný raftækja- verslun Hveragerði - Raftækjaverslunin ELÓ var opnuð nýverið í Hveragerði. Verslunin sem er staðsett við Austur- mörk býður uppá Qölbreytt úrval raf- tækja, ljósa og efnis til raflagna. Verslunin selur vörur frá ýmsum þekktum verslunum á höfuðborgar- svæðinu svo sem Heimilistækjum, Sjónvarpsmiðstöðinni, Rafha og fleirum. Að sögn eigenda verður kappkostað að bjóða góðar vörur á góðu verði. Mikið úrval er af hvers- konar gjafavöru nú fyrir jólin og ennfremur er boðið uppá Mizuno íþróttavörur ásamt hinum sívinsælu Hamars-göllum. Eigendur verslunarinnar eru giónin Guðni Guðjónsson og Ebba lafía Ásgeirsdóttir. LANDIÐ Morgunblaðið/Gunnlaugur Árnaon FJOLMENNI heimsótti dvalarheimili aldraða f Stykkishólmi er minnst var 20 ára starfsafmælis. Ungt tónlistarfólk skemmti gestum með hljóðfæraleik sem heimilisfólk hafði gaman af. MARÍA Guðmundsdóttir var heiðruð á afmælinu, en hún hefur starf- að allan tímann á dvalarheimilinu. Á myndinni er með henni Kristín Björnsdóttir forstöðukona, en hún hefur tengst starfi dvalarheimilis- ins í langan tíma. Dvalarheimilið í Stykkishólmi 20 ára Stykkishólmi - Dvalarheimili aldraðra í Stykkishólmi tók til starfa 25. nóvember 1978. í til- efni af 20 ára afmælinu var heimilsmönnum og öðrum bæj- arbúum boðið í afmæliskaffi. Nemendur tónlistarskólans Iéku á hljóðfæri, flutt var kveðja frá Árna Helgasyni í bundnu máli og næturvörður- inn, Hinrik Finnsson, spilaði gömul dægurlög á píanó. Á þessum timamótum var María Guðmundsdóttir heiðruð, en hún hefur starfað við dvalar- heimilið allt frá byrjun. Helstu breytingar á starf- seminni á þessu tímabili er bygging þjónustuíbúða fyrir aldraða sem eru áfastar dval- arheimilinu. Árið 1991 voru teknar í notkun 8 íbúðir og í fyrra var enn byggt við og þá bættust við 7 íbúðir. Næstu framkvæmdir við dvalarheimil- ið verða á næsta ári, en þá á að endurnýja eldhúsið og stækka borðsalinn. Dvalarheimilið er fullskipað og búa þar 19 heimilismenn. El- stir þeirra eru fæddir árið 1906, en það eru þau Dagbjört Níelsdóttir, Guðrún Ólafsdóttir og Jóhann Rafnsson. Magnúsína Magnúsdóttir hefur dvalið lengst eða í 19 ár. Forstöðu- kona dvalarheimilisins er Krist- ín Björnsdóttir. fyrir krakka Tvær spennandi sögur um furðufyrirbæri sem elcki sjást alltaf 1 veruleikanum. Sögur tjiTir 8-14 ára krakka eftir Helga Jónsson. svona erfitt í Sjálfstætt fr; bókunum ALLTÍSLEIKog SUNDUR & SAMAN eftir Helga Jónsson tndur 8 0 k «6 I 1 i * l . .... ... ... ., Sparisjóður Olafsvíkur Morgunblaðið/Ólafur Jens Sigurðsson STARFSFÓLK Sparisjóðs Ólafsvíkur, f.v.: Þórey Kjai-tansdóttir, Anna Ingvarsdóttir, Erla Þórðardóttir, Helga Guðjónsdóttir skrif- stofustjóri og Kristján Hreinsson sparisjóðsstjóri. KRÓNURNAR vöktu niikla kátínu og hvetja börn vonandi til að fara vel með aurana sína. Nýr af'greiðslusalur tekinn í notkun Hellissandi - Sparisjóður Ólafsvíkur hefur tekið í notkun nýjan af- greiðslusal. Sparisjóðurinn var stofnaður árið 1892 og hefur starfað óslitið síðan. Öllu útliti Sparisjóðsins og aðstöðu fyrii' viðskiptavini og starfsfólk hefur verið gjörbreytt. Þá opnaði hann hraðbanka nýlega en slík þjónusta hefur ekki verið til staðar fyrr. Sparisjóðurinn hefur fimm fasta starfsmenn. Sparisjóður Ólafsvíkur er ekki einn af stærstu sparisjóðum landsins en honum hefur lánast að starfa óslitið í 106 ár og rekstur hans hefur alla tíð staðið traustum og öruggum fótum enda hefur hann verið svo lán- samur að eiga trygga og ábyrga við- skiptamenn. Áfgreiðslusalurinn nýi hefur gjör- breytt útliti Sparisjóðsins og hefur það verið gert eftir teikningu Snorra Haukssonai-, arkitekts í Reykjavík. Verður varla annað sagt en af- greiðslusalurinn sé nú með þeim ný- tískulegustu sem sjást í bankastofn- unum. Framkvæmdirnar önnuðust: Jónas Ki-istófersson trésmíðameist- ari, Jón Arngiímsson rafvirkjameist- ari, Sævar Þórjónsson málarameist- ari og Einar Beinteinsson dúklagn- ingameistari. Auk þess hefur salurinn verið stækkaður og gefur það viðskipta- mönnum og starfsfólki betri aðstöðu til þjónustu og starfa. Eftir miðjan janúar verður sett upp nýtt og full- komið afgreiðslukerfi. í tilefni þess- ara breytinga var Sparisjóðurinn op- inn íbúum, boðið var upp á veitingar og skerhmtun sl. föstudag og var mikið fjölmenni í Sparisjóðnum þann dag. Lúðrasveitin Snær lék undir stjórn Ian Wilkinson og settur var á svið Krónuleikur sem vakti mikla at- hygli viðstaddra. I tilefni dagsins gaf Helgi Krist- jánsson, stjórnarformaður Spari- sjóðsins, sjóðnum myntsafn sitt sem hann hefur safnað frá bernsku og óskaði eftir að það yrði varðveitt í Sparisjóðnum. I
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.