Morgunblaðið - 04.12.1998, Page 20
20 FÖSTUDAGUR 4. DESEMBER 1998
VIÐSKIPTI
MORGUNBLAÐIÐ
Síhringingar baggi á kaupmönnum
Kaupmenn kvarta
við kortafyrirtæki
mest seldu fólksbíla-
tegundirnar í
jan.- nov. 1998 ^ári
Fjöldi % %
1. Toyota 2.121 16,5 +28,8
2. Volkswagen 1.329 10,3 +27,2
3 Nissan 1.145 8,9 +63,6
4. Subaru_____1.079___8,4__+8,2
5. Mitsubishi 815 6,3 -9,3
6. Opel_________770 6,0 +17,6
7. Suzuki_______714 5,5 +34,5
8. Hyundai 609 4,7 -17,7
9. Honda 563 4,4 +74,3
10. Renault 503 3,9 +28,3
11. Peuqeot_____425 3,3 +148,5
12. Ssanqyonq 395 3,1 +103,6
13. Daihatsu 361 2,8 +137,5
14. Ford________359 2,8 -10,7
15. Daewoo______303 2,4______:
^AðrarteEp^^^l^^OÆ^^TíjA
Samtals 12.891 100,0 +33,6
Mikil aukning í sölu á Peugeot
Þriðjungi fleiri fólksbifreiðar voru nýskráðar fyrstu 11 mánuði ársins
heldur en á sama tíma í fyrra. 12.891 bifreið nú en 9.649 í fyrra.
Sala á Peugeot bifreiðum hefur aukist um 148,5%, á Daihatsu um
137,5% og Ssangyoung um 103,6%. Jafnframt hefur sala á Honda
aukist um 74,3% og á Nissan um 63,6%. Dregið hefur úr sölu á
Mitsubishi um 9,3%, á Hyundai um 17,7% og á Ford um 10,7%.
Daewoo er í 15. sæti með 303 bíla, en ekki eru til samanburðartölur
við síðasta ár þar sem Daewoo kom fyrst á markað á íslandi á þessu
ári. Sama á við um Galloper jeppa sem eru í 16. sæti með 224 bíla.
Kellogg segir upp
hundruðum starfsmanna
Battle Creek, Michigan.
12 891 Bifreiða-
innflutn.
í janúar
tii nóv.
1997 og
1998
VORU-,
SENDI- og
HÓPFERÐA-
BÍLAR, nýir
1.212
1997 1998 1997 1998
SAMKVÆMT heimildum Morgun-
blaðsins verður kostnaður kaup-
manna vegna símhringinga úr
svokölluðum posavélum, rafgreiðsl-
um á sölustað, um 75 milljónir
króna í ár og nemur símkostnaður
þessi um 45% af heildarsímakostn-
aði hvers kaupmanns.
Mikillar óánægju gætir með þetta
meðal kaupmanna og hafa þeir
skrifað forsvarsmönnum kortafyi-ir-
tækjanna bréf þar sem þeir fara
Vegmál fékk
gatnamálun
til 2002
STJÓRN Innkaupastofnunar
Reykjavíkm-borgar hefur sam-
þykkt, að undangengnu útboði,
að leggja til við borgarráð að
tilboði lægstbjóðanda í gatna-
málun 1999-2002, Vegmáls ehf.,
verði tekið.
Tvö tilboð bái-ust auk tveggja
fráviksboða frá Vegmáli. Tilboð
Vegmáls hljóðaði upp á kr.
79.016.160. miðað við allt tíma-
bilið, sem þýðir árlegan kostnað
upp á kr. 19.754.040, en tilboð
hins bjóðandans, Vegmerking-
ar ehf., hljóðaði upp á
98.720.000 eða kr. 24.680.000 á
ári.
Kostnaðaráætlun hljóðaði
upp á kr. 136.635.300 og er því
tilboð Vegmáls 57,83% af kostn-
aðaráætlun.
fram á að komið verði til móts við
þá í þessum efnum.
Helst hafa þeir kvartað vegna
svokallaðra síhringikorta, en vissir
aðilar fá úthlutað slíkum debetkort-
um til að koma í veg fyrir að teknar
séu út vörur umfram innstæðu.
Vilja að fólk borgi
fyrir þjónustuna
Hluti af handhöfum debetkorta
sem hafa lent í einhverjum áföllum í
viðskiptum sínum þurfa að nota
kort þar sem hringt er inn í hvert
sinn sem það er notað og kannað
hvort heimild er fyrir úttekt. Aðrir
eru ófjárráða sem aðeins mega nota
innstæðu, og enn aðrir eru skilafólk
sem biður um síhringiþjónustu til
að fara aldrei í skuld á reikningi sín-
um.
Kaupmenn leggja til að bankarn-
ir greiði að minnsta kosti kostnað
vegna síðastnefnda hópsins, sam-
kvæmt heimildum Morgunblaðsins.
Ragnar Önundarson fram-
kvæmdastjóri Europay Island stað-
festi í samtali við Morgunblaðið að
fjallað yrði um erindi kaupmanna á
næstunni.
Grænt númer leysir
ekkivandann
Um það hvort umræða um upp-
setningu svokallaðs græns númers,
þar sem bankinn í þessu tilfelli þyrfti
að borga allar innhringingar, hefði
farið fram, sagði Ragnar að svo hefði
ekki verið. Hann sagði þó að slíkt
myndi ekki leysa nein vandamál þar
sem Landsíminn væri með hærri
gjaldskrá fyrir slík númer.
KELLOGG, mesti kornmetisfram-
leiðandi heims, hyggst segja upp
525 starfsmönnum, eða um 21%
starfsmanna á launaskrá fyrirtæk-
isins í Norður-Ameríku, til að draga
úr kostnaði.
Fyrirtækið ætlar einnig að segja
upp 240 lausráðnum starfsmönnum,
sem eru um 20% starfsliðsins í
Norður-Evrópu.
Uppsagnirnar miða að því að
skera niður kostnað um 105 milljón-
ir dollara á ári frá 1999. Verð hluta-
bréfa í Kellogg lækkaði um 2,6%.
Verðbréfaþing
Gengi hluta-
bréfa í ÍS og
SH hækkar
VERÐ hlutabréfa í íslenskum sjáv-
arafurðum hækkaði um 11,5% í gær
og er þetta þriðji dagurinn í röð sem
bréf í félaginu hækka. Hlutabréf í
Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna
hækkuðu um 7,5%. Alls námu við-
skipti með hlutabréf á Verðbréfa-
þingi Islands 155 milljónum króna í
gær. Mest viðskipti voru með hluta-
bréf í Fjárfestingarbanka atvinnu-
lífsins, 103 milljónir króna, og hækk-
aði gengi þeirra um 1,1% og var
lokagengið 1,81. Úrvalsvísitala Að-
allista lækkaði um 0,13% í gær.
Markaðsávöxtun
skuldabréfa lækkar
Heildarviðskipti á Verðbréfaþingi
námu 2.513 milljónum króna í gær.
Mest viðskipti voru með ríkisvíxla,
alls 1.260 milljónir króna og lækkaði
markaðsávöxtun þeirra um 3-9
punkta. Viðskipti á skuldabréfa-
markaði námu alls um 1.100 milljón-
um króna og lækkaði markaðsávöxt-
un um 2-15 punkta.
fiertu
GARÐURINN
-klæðirþigvel
Háskólinn hafnar til-
boði í INTÍS
FBA bauð
ríflega 37
milljónir
króna í 7%
eignarhlut
HÁSKÓLI íslands hefur hafnað ríf-
lega 37 milljóna króna tilboði Fjár-
festingarbanka atvinnulífsins í eign-
arhlut Háskólans í Internet á Is-
landi, INTÍS. Eignarhlutur Háskól-
ans er ríflega 7% í INTÍS, eða rúm-
lega fjórar milljónir króna að nafn-
virði. Tilboð FBA nam tæpum 40
milljónum króna á genginu 9, sem
er hæsta gengi sem þekkst hefur í
viðskiptum með hlutabréf í INTÍS.
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins gerði BFA tilboð í bréf
INTIS fyrir hönd viðskiptavinar.
Páll Skúlason, rektor Háskóla ís-
lands, vildi ekki tjá sig um ástæður
þess að tilboði FBA í eignarhlut
Háskólans var hafnað. INTÍS var
stofnað áríð 1987 í tengslum við
rekstur á netsambandi við útlönd en
það var gert að hlutafélagi árið
1995. Félagið annast heildsölu á
nettengingum hér á landi.
---------------
Hlutafjárútboð
Opinna kerfa hf.
Mikil um-
frameftir-
spurn
MIKIL umframeftirspurn var eftir
þeim hlutabréfum sem boðin voru til
sölu í hlutafjárútboði Opinna kerfa
hf. á dögunum. Samkvæmt upplýs-
ingum frá Búnaðarbanka Islands,
sem hafði umsjón með sölunni,
skráðu forkaupsrétthafar sig fyrir
tæplega 17 milljónum króna en ein-
ungis fjórai- milljónir voru boðnar út.
I almenna útboðinu, sem lauk á
miðvikudag, voru boðin út hlutabréf
að nafnverði 1,5 m.kr. Alls sóttu um
3 þúsund aðilar um hlutabréf í félag-
inu að nafnverði rúmlega 52,5 millj-
ónir króna. Miðað við útboðsgengi
var óskað eftir hlutafé að markaðs-
verðmæti rúmlega 3 milljarðar
króna. Umframeftirspurn var því um
37-fóld í almennu útboði, sem er sú
mesta sem átt hefur sér stað í hluta-
íjárútboði félags á Verðbréfaþingi
Islands til þessa.
Mikill vöxtur hefur átt sér stað í
starfsemi félagsins og hefur velta
aukist um 26% á milli ára frá stofnun
þess. Rekstraráætlun fyrir árið 1998
gerir ráð fyrir að velta verði 1.600
milljónir, sem er 32% aukning frá
fyrra ári. Þá er gert ráð fyrir 70
m.kr. hagnaði eftir skatta að meðtal-
inni hlutdeild í afkomu dóttur- og
hlutdeildarfélaga.
------♦-♦-♦----
Niðurskurður
hjá BF-
Goodrich
Richfield, Ohio.
BFGoodrieh hyggst loka fjórum
verksmiðjum, sem framleiða flug-
vélahluta, og leggja niður 775 störf
til að einfalda framleiðsluna í sam-
ræmi við söluspár.
Verksmiðjum verður lokað í Mar-
yland, Arkansas og Hamborg í
Þýzkalandi á þremur síðustu mán-
uðum næsta árs að sögn fyrirtækis-
ins.
Niðurskurðurinn stendur ekki í
sambandi við fyrri tilkynningu
BFGoodrich um fyrirhuguð kaup á
Coltec Industries fyrir 2,2 milljarða
dollara, eða tilkynningu Boeings um
uppsagnir 20.000 starfsmanna, að
sögn talsmanns BFGoodrich..