Morgunblaðið - 04.12.1998, Síða 24
24 FÖSTUDAGUR4vDESEMBER 1998
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ
Reuters
NÁMSMAÐUR skoðar styttu sem lýðræðissinnar reistu við háskólann í
Hong Kong í gær til minningar um þá sem létu líflð er hermenn brutu
á bak aftur stúdentamótmæli í Peking árið 1989.
Lýðræðissinnar handteknir í Kína
Kínverjar mót-
mæla afskiptum
Bandaríkj anna
Roiitors
Peking. Reuters.
KÍNVERSK stjórnvöld vöruðu
Bandaríkin í gær við að skipta sér
af innanríkismálum Kína, eftir að
talmaður Hvíta hússins gagnrýndi
handtöku andófsmannsins Xu Wenli
og annarra forystumanna í Kín-
verska lýðræðisflokknum fyrr í vik-
unni. Kínverskir lýðræðissinnar eru
nú í hungurverkfalli til að mótmæla
handtökunum.
Xu, sem er 55 ára, var handtek-
inn á heimili sínu í Peking á mánu-
dag. Lögreglan vildi ekki gi-eina frá
því hvaða glæpi Xu er sakaður um,
að öðru leyti en að hann væri grun-
aður um athæfí sem ógnaði þjóðar-
öryggi. Flokksbróðir hans, Qin
Yongmin, var handtekinn í borginni
Wuhan og sagður hafa „lagt á ráðin
um að steypa stjórninni", sem varð-
ar lífstíðarfangelsi í Kína. Níu aðrir
meðlimir Kínverska lýðræðisflokks-
ins eni enn í haldi lögreglu.
Tveir leiðtoga stúdenta í mót-
mælunum á Torgi hins himneska
friðar árið 1989 hófu á miðvikudag
tveggja sólarhringa hungurverkfall
til að krefjast lausnar mannanna, og
sautján aðrir andófsmenn hyggjast
skiptast á að fasta í mótmælaskyni.
Lýðræði ekki í sjónmáli
Joe Lockhart, talsmaður Hvíta
hússins, sagði á miðvikudag að
Bandaríkjastjórn harmaði handtök-
umar, og að hún teldi að brotið væri
á mannréttindum með því að meina
meðlimum Kínverska lýðræðis-
flokksins að láta skoðanir sínar í
ljós á friðsamlegan hátt. Kínversk
stjórnvöld vísuðu þessari gagnrýni
á bug í gær sem óréttmætum af-
skiptum af innaríkismálum Kína.
Kínverjar undirrituðu í október
sáttmála Sameinuðu þjóðanna um
borgaraleg og pólitísk réttindi, sem
tryggja á funda- og málfrelsi. Li
Peng, forseti þingsins, sagði þó í
viðtali við þýska viðskiptablaðið
Handelsblatt fyrir viku, að kínversk
stjórnvöld léðu ekki máls á lýðræði
að vestrænni fyrirmynd og myndu
ekki leyfa nýja stjómmálaflokka ef
markmið þeirra væri að berjast fyr-
ir „fjölflokkakerfi og afneita forystu
kommúnistaflokksins“.
Vsx-407
Útvarpsmagnari
2x70w • Rms • 4x50w
30 stöðva minni • Rds
Pd-106 . ,
Geistaspilari
1 bft • forritaniegur
hantiahótsspifun
xk 18.900.- stgr.'i
I
7
DV-505 ,,
Myndgeislaspilari
AC3 • frambóinn i hJjóð og mynd
FRA
Lafontaine á fund ráðamanna í Washington
Bandaríkj amenn eru tor-
tryggnir á hugmyndir ESB
Bonn, London. Reuters.
OSKAR Lafontaine, fjármálaráð-
herra Þýzkalands, mun að öllum lík-
indum verða var við verulega and-
stöðu er hann hittir í dag ráðamenn
í Washington, m.a. til að reyna að
telja þá á að fallast á áætlun Evr-
ópuríkjanna um að þau fái að tefla
fram aukafulltrúum á fundum G7-
hópsins svokallaða, samtaka sjö
helztu iðnríkja heims.
Fjármálaráðherrar ESB-ríkj-
anna fimmtán urðu sammála um
það á þriðjudag að fara fram á að
fulltrúar Seðlabanka Evrópu og
framkvæmdastjómar ESB hefðu
rétt til að leggja sitt til málanna á
fundum G7 eftir að ellefu ESB-ríki
stofna með sér Efnahags- og mynt-
bandalag Evrópu (EMU) um ára-
mótin, en auk þess skuli sá ráðherra
sem gegnir formennskuhlutverkinu
í hópi EMU-ríkjanna hverju sinni
einnig sitja G7-fundina. Þar sem
formennskuhlutverkið í ráðherra-
ráði ESB gengur á hálfs árs fresti á
milli aðildarríkjanna yrði þar með í
fyrsta sinn opnað fyrir möguleikann
á því að fulltrúi frá hinum smærri
ríkjum Evrópu fengi seturétt á
fundum G7, án þess að viðkomandi
land eigi aðild að samtökunum.
Ahyggjur Bandaríkjamanna
Lafontaine, sem hefur vakið um-
tal á fyrstu fimm vikum sínum í
embætti íyrir að viðra hugmyndir
um strangari reglur um gjaldeyris-
markaði og aukið pólitískt eftirlit
með peningamálastefnu iðnríkj-
anna, er einn helzti stuðningsmaður
tillögu ESB-ráðherranna. En tals-
menn bandarískra stjórnvalda, sem
verða ásamt öðrum meðlimum G7
(Japan, Rússlandi og Kanada) að
veita tillögunni samþykki sitt, hafa
þegar sagt að þeir álíti hugmyndir
af þessu tagi ekkert annað en til-
raunir Evrópuríkjanna til að ná yf-
irhöndinni innan samtakanna. Fjög-
ur ESB-ríki eiga eins og er fasta-
fulltrúa í þeim, þ.e. Þýzkaland,
Frakkland, Ítalía og Bretland. Öll
verða þau nema Bretland með í
EMTJ.
Bandaríkjamenn hafa lengi leitað
eftir því að Evrópuríkin mæli einni
röddu á vettvangi G7, en þeir óttast
að sífelld mannaskipti geti grafíð
undan einbeitingu í starfi samtak-
anna.
Þjóðverjar gegna formennsku í
hópnum á næsta ári, og þar sem
þeir gegna jafnframt formennsku í
ráðhen-aráði ESB íyi'ri hluta ársins
verður Lafontaine sem fjármálaráð-
herra formennskuríkisins í lykil-
hlutverki. Finnar taka við ESB-for:
mennskunni síðari hluta ársins. I
viðtali við Reuters á miðvikudag
lýsti Paavo Lipponen, forsætisráð-
herra Finnlands, efasemdum sínum
um ágæti þeirrar málamiðlunar sem
ESB-ráðheiTamir hefðu náð um
þetta mál. Æskilegra væri að hans
mati að fulltrúi framkvæmdastjórn-
arinnar væri aðaltalsmaður ESB á
fundum G7 hvað málefni mynt-
bandalagsins varðar.
SLOKKVILIÐSMENN berjast við eldinn.
Reuters
27 fórust í eldi á barnahæli
TOn
** Vsx-906
Útvarpsmagnari
2x110w • Rms • 5x60w
30 siöðva minni • Rds-AC-3
. • Mji-707
. Mini-disk spilari
^ Stafræn upptaka og afspilun
Hægt að setja inn nafn eða titia,
39.900.- stgtE
Sv-606
Heimabíó hátaiarar
Aðeins 5sm þykkir • 150W Rms
+100w bassabox
Þegar hijómtæki skipta máii
jli—é B R Æ Ð U R N_ l__E
ORMSSON
Láamúla 8 * Sími 533 28 00
Lágmúla 8 • Sími 533 2800
UMBOÐSMENN UM ALLT LAND
Manila. Reuters.
AÐ MINNSTA kosti 27 manns
fórust, þar af 22 böm, þegar eld-
ur blossaði upp á hæli fyrir mun-
aðarlaus börn í miðborg Manila
fyrir dögun í gær. Flest þeirra
sem létu lífið í eldsvoðanum urðu
innlyksa á efri hæðum hússins
og nokkur koraabörn, sem höfðu
verið skilin eftir á vöggustofu
hælisins, urðu einnig eldinum að
bráð.
Þriggja baraa var enn saknað
15 klukkustundum eftir að eldur-
inn blossaði upp vegna gallaðra
rafleiðslna. Starfsmenn hælisins
sögðu að mörg barnanna sem
fórust hefðu ekki komist út úr
byggingurmi vegna þess að út-
göngudyrnar hefðu verið læstar.
Yngsta baraið af þeim 22 sem
fórust var þriggja mánaða. 50
manns - 24 börn, umsjónarmenn
þeirra og starfsfólk - komust út
úr byggingunni.
Joseph Estrada, forseti Fil-
ippseyja, skoðaði hælið eftir
branann og kvaðst sjálfur ætla
að stjórna fjársöfnun til að hægt
yrði að endurreisa það. Hann
sagðist einnig ætla að fyrirskipa
rannsókn á því hvernig staðið
var að slökkvistarfinu.
Að sögn filippeyskra ljölmiðla
kom fyrsti slökkvibíllinn ekki á
staðinn fyrr en klukkustund eftir
að eldurinn blossaði upp þótt
hælið sé aðeins 500 m frá næstu
slökkvistöð. Slökkviliðsmennirn-
ir komust ekki strax inn í bygg-
inguna, 78 ára gamalt timbur-
hús, vegna gífurlegs hita og
dældu vatni inn í hana.
Krstic flutt-
ur til Haag
Haag. Reuters.
SERBNESKI hershöfðinginn Rad-
islav Krstic var fluttur með flugvél
til Haag í gær og ráðgert er að hann
verði leiddur fyrir stríðsglæpadóm-
stól Sameinuðu þjóðanna í næstu
viku.
Saksóknarar Sameinuðu þjóðanna
hafa ákært Krstic fyrir stríðsglæpi
og segja að hann hafí stjórnað morð-
um á um 6.000 múslímum í borginni
Srebrenica árið 1995 ásamt Ratko
Mladic, þáverandi yfirmanni hers
Bosníu-Serba.
Krstic, sem var tekinn höndum í
fyrradag, er níundi maðurinn sem
hermenn NATO hafa handtekið
vegna stríðsglæpanna í Bosníu og
hæst setti herforingi Bosníu-Serba
sem náðst hefur til þessa. Saksókn-
arar stríðsglæpadómstólsins vonast
nú tii þess að Radovan Karadzic,
fyrrverandi leiðtogi Bosníu-Serba,
verði handtekinn og telja að líkurn-
ar áþví að það takist séu miklar.
„Eg tel að við verðum að gera allt
sem í okkar valdi stendur til að það
takist og varfærni borgar sig í þeim
efnum,“ sagði Louise Arbour, aðal-
saksóknari SÞ.
------------------
Varað við
hryðjuverkum
London. Reuters.
CHILESKUR þingmaður, Ignacio
Perez Walker, varaði í gær við því
að öfgamenn í Chile kynnu að ráða
stjórnmálamenn af dögum og grípa
til hryðjuverka, yrði Augusto Pin-
ochet, fyrrverandi einræðisherra í
Chile, framseldur til Spánar.
Walker, sem er nú í London til að
þrýsta á Breta að fallast ekki á
framsal Pinochets, sagði að í Chile
stæði valið á milli réttlætis og friðar.
Hann benti á að Bretar hefðu fyrr á
þessu ári neitað að framselja n-írska
konu til Þýskalands, þar sem hún
var eftirlýst fyrir aðild að sprengju-
tilræði IRA, á sama tíma og viðræð-
ur um friðarsamninga á Norður-ír-
landi stóðu yfir. Hann sagði að Bret-
ar hefðu valið þann kost að standa
vörð um friðinn, og að þeir ættu
einnig að gefa Chilebúum tækifæri
til þess.
Breska dagblaðið The Independ-
ent greindi frá því í gær að lögfræði-
kostnaður Pinochets næmi yfir 12
þúsund pundum (um 1,4 milljónum
ísl. kr.) á dag, og yrði kominn yfir
eina milljón punda (116 milljónir ísl.
kr.) um jólin, en hann hefur fimm
lögfræðinga á sínum snærum.