Morgunblaðið - 04.12.1998, Page 32
32 FÖSTUDAGUR 4. DESEMBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
VÍSINDAAFREK
BÆKUR
Fræðirit
„ALLEGORY IN NJÁLS SAGA
and its Basis in Pythagorean
Thought", eftir Einar Pálsson. For-
máli og umsjón útgáfu: Árni Einars-
son. Myndskreyting: Robert Guillem-
ette. Prentun: Prentsmiðjan Oddi.
Útgcfandi: Mímir 1998.
BÓKIN Allegory in Njáls Saga,
sem kom út nú á þessu ári, er um
líkingamál eða dulmál Njáls Sögu,
þar sem niðurstaða rannsókna Ein-
ars Pálssonar, heitins, eru nú birt,
samanþjöppuð í einni bók á ensku,
en Einar lést eins og kunnugt er 30.
október 1996.
Eins og heiti bókarinnar ber með
sér er kenning Einars studd veiga-
miklum rökum Pythagoreskrar
hugsunar og er hér í fyrsta skipti að
fínna fjölda tilvísana í önnur rit um
sama efni og Einar Pálsson hefur
verið að fjalla um á opinberum vett-
vangi síðan 1969, að hans fyrsta bók,
Baksvið Njálu, kom út hér á íslandi.
Það er skarð fyrir skildi, að þessi
bók skuli ekki vera rituð á íslensku
og á hún því ekki eins greiða leið til
áhugamanna um þessi mál hér á
landi. Þetta á jafnframt við um þrjár
síðustu bækur Einars um þessi mál.
Astæða þess er einfaldlega sú, að
Einar var að tryggja aðgengi er-
lendra fræðimanna að hugmyndum
sínum.
Bókin er í einu orði sagt hið mesta
snilldarverk. Áreiðanlega munu
kenningar Einars Pálssonar verða
grundvöllur til endurmats á mörgu
því, sem áður hefur verið ski-ifað í ís-
lenskum fræðum. Fyrir mér hafa ný-
ir heimar opnast og margt, sem áður
var mér algjörlega hulin ráðgáta í
fomsögunum og goðafí-æðinni, blasii'
nú við, eins og opin bók. í heild má
líkja þessu við að standa á tindi
Mælifells í Skagafirði í fógru sumar-
veðri og horfa yfir héraðið sem blasir
við, eins og útbreitt landabréf. Það
sem áður virtist óskiljanlegt og var
það reyndar, er nú augljóst og hægt
að skýra með hliðsjón af kenningum
Einai’s. Það er vísinda-
afrek að geta lesið dul-
mál Njálu og áreiðan-
lega var það tónlistin
sem Einar fékk í vöggu-
gjöf sem gerði þetta
kleift. Þessu má líkja
við það þegar barni er
kennt að lesa nótur og
nýr heimur áður
óþekktur opnast. Nót-
mrnar virðast ekki skilj-
anlegar í upphafi, en
eru leikur einn að lesa,
þegar fi'arn í sækir.
Fyrir okkur, sem höfum
lesið allar bækur Ein-
ars frá upphafi, eru
þetta engin tíðindi. í
þessari bók reynir hann
að þjappa saman helstu niðurstöðum
sínum og tipla á því helsta, er þær
varða. Hér ber hæst grundvöll kenn-
inga Einars, sem settar era fram
með skýringarmyndum á bls. 24 og
31 í bókinni. Til að lýsa þessum
kenningum íyrir lesendum er á bls.
24 sýnd mynd af Rangárhjólinu. Það
hjól fann Einar með því að nota tölur
og dulmál Njálu, til að reikna og
mæla hjólið, eins og það er sýnt í
bókinni. í örstuttu máli er hér um
það að ræða, að við landnám íslands
vora notaðar hugmyndir, sem síðar
kom á daginn að vora þekktar m.a.
hjá Grikkjum og fleiri þjóðum. Fom-
menn skiptu tilveranni í þrjú tilvera-
svið. „Macrocosmos", stjömuhiminn,
sem heimur. „Mierocosmos", maður-
inn, sem endurljómi alheimsins.
„Mesocosmos“, þjóðfélagið. Þess
vegna var stjörnuhiminn notaður til
viðmiðunar til að festa
skipan á jörðu niðri,
hvar allt væri staðsett
og hlutverk allra hluta.
Samræmi var milli
goða, guða og manna.
Alcveðnar tölur stóðu
fyrir ákveðin gildi og
kennileiti, og gerð ein-
staklinga í Njálu og
guða tók mið af þessum
fræðum. Það sama er
upp á teningnum á bls.
31 í bókinni, þar skýrir
Einar Ask Yggdrasils,
en hann er samtvinnað-
ur ummáli sólar, hinum
fullkomna teningi
(hymingasteininum),
þríhymingnum 3/4/5 og
Lambda-formúlunni. Utkoman er
ávallt sú sama, talan 216, grundvöll-
ur alheimsins og laga. Svo skemmti-
lega vildi til að núna, síðasta laugar-
daginn í nóvember, sýndi þýska
sjónvarpsstöðin BR heimildarmynd
um Indus-menninguna, sem stóð
3.500 til 1.900 íyrh’ Krist. Og hvað
halda menn að sé niðurstaða fom-
leifafræðinga, sem hafa rannsakað
þessa menningu? Jú, nákvæmlega sú
sama og Einar Pálsson komst að við
rannsóknir sínar á Njálu. Þeir fundu
og skýra frá því, að við uppgröft á
rústum hinu fomu borgar Indus-
þjóðarinnar hafi áttvísi, tölfræði og
dulmál verið notað með sama hætti
og í Rangárhverfi. Sama niðurstaða,
en önnur fræðigrein og enn eldri
menning. Microcosmos,
Macrocosmos og Mesocosmos vora
undirstöður Indus-menningarinnar,
stærðfræði-, dulfræði- og stjarn-
fræðikunnátta. Fullvíst þykir, að
Indus-fólkið kenndi öðram þessi
fræði og að þeir þekktu m.a. núllið,
en þaðan er það komið til Ai-abíu. Og
enn í dag er þessi þekking kennd í
gildum í Pakistan, eins og vai’ á ís-
landi þar til lúterskan kom til skjal-
anna.
I heild er bókin ótrúlega
skemmtileg aflestrar, en gæti verið
tjrfin þeim, sem ekki bera skyn-
bragð á tölvísi og launhelgar. Til-
vitnanir Einai-s í forn fræði frá
horfnum menningarheimum og
ófí-úleg elja hans við að koma þessu
viðamikla efni á framfæri í bók, sem
er ekki nema 357 blaðsíður, er afrek
útaf fyrir sig. Á einfaldan hátt er nú
hægt að skilja Eddu-kvæðin og
margt í fomsögunum. Það sem áður
var ógjörlegt að fá neinn botn í, er
nú hægt að skrifa og tala um á
„mannamáli“, eins og krakkamir
segja. Jafnframt sýnir Einar fram á
hversu mikilhæfir þeir menn vora,
sem rituðu og gáfu út Njálu og forn-
bókmenntir okkar. Menntun og
kunnátta þessara vísindamanna hef-
ur verið á heimsmælikvarða og
miklu meiri en hingað til hefur verið
haldið. Fyrir okkur nútímamenn,
sem teljum okkur vita og kunna allt,
er slíkt ótrúlegt og æði mikið undr- |
unareftii. Háskóla íslands bíður |;
brýnt verkefni og það hlýtur að vera
tilhlökkunarefni fyrir unga vísinda-
menn að vinna á næstu öld að víð-
tækum rannsóknurii á grundvelli
þess, að Einar Pálsson hefur opnað
leynihólf íslenski-ar fornmenningar
fyrir þá. Áður óþekktur þáttur í ís-
lenskri menningu hefur með rann-
sóknum Einars verið uppgötvaður
og mun gefa mönnum erlendis og |
hér heima nýja möguleika á að 1
skýra leyndardóma víða um heim, p
sem hingað til hafa verið torráðnir.
Svo virðist, sem Einar Pálsson hafi
ráðið fon-itunarmál fomaldar, þar
sem hulunni er svipt af klösum,
stengjum, lesgildum og reiknivirkj-
um. Nú geta menn á notendavænan
hátt skilið, greint og nýtt sér forrit-
unai-mál Njálu. Þúsundir íslendinga
hafa í dag lært nútíma foi-ritun fyrir
tölvur. Það væri verðugt verkefni I
fyrir einhvern þessara mörgu vís- 1
indamanna í tölvuheiminum að gera p
kennsluforrit fyrir tölvur um dul-
ræðimál Njálu, sem væri aðgengi-
legt almenningi og um leið vísinda-
legt tæki til rannsókna.
Mai’gar skýringarmyndir prýða
bókina og mikill fjöldi tilvitnana eru
í henni, bæði í erlend og innlend rit.
Það eina sem betur hefði mátt fara
er, að upptalning á eldri ritum Ein-
ars hefði þurft að vera einnig á I
ensku, ásamt stuttheitum þeirra og |
rúnum. Víða er til að mynda vitnað í f
RIM, sem er fyrsta bók Einars, en
ekki er víst að allir átti sig á því.
Eina villu sá ég, þar sem fallið hafði
út tala á bls. 89, en flestir ættu að
átta sig á því. I heild er þetta snotur
kilja og bráðnauðsynlegt að eiga
hana og lesa fyrir alla þá, sem
stunda íslensk fræði.
Hreggviður Jónsson k
Einar
Pálsson
Milli
lestarferða
BÆKUR
Fngliiiga.saga
í DRAUMI LÍFSINS
eftir Hákan Lindquist í þýðingu
Ingibjargar Hjartardóttur. Skjald-
borg. 1998 -153 bls.
LÍF okkar er sjaldan eins og við
búumst við. Sum trúarbrögð gera í
raun ráð fyrir að lífið sé breyting,
ekki bara meðan við lifum, heldur
haldi eilíf hringrás breytinganna
áfram eftir líkamsdauðann. I
draumi lífsins nefnist bók fyrir ung-
linga eftir sænska höfundinn Hákan
Lindquist sem út hefur komið í þýð-
ingu Ingibjargar Hjartardóttur.
Meginviðfangsefni bókarinnar er
sorgin og ástin og hvernig missir og
sorg leiðir til einhvers konar endur-
fæðingar og hvernig kærleikurinn
gerir okkur heil á ný.
Aðalpersónan, Michael, missir
föður sinn og fyllist við það sorg. I
upphafi sögu era þrír mánuðir liðnir
frá fráfalli hans og enn á Michael
margt óleyst. Það er dæmi um list-
fengi höfundarins að hann rammar
söguna inn í upphafl og endi annars
vegar með hugleiðingu um endur-
holdgun og einnig með lestarferð-
um. I byrjun sögu er Miehael á leið í
lest til Skánar á æskuslóðir til
kunningja þar sem hann hafði oft
dvalið með föður sínum. Þessi ferð
er á vissan hátt táknræn um þá
breytingu sem er að verða með
Michael og þegar hann heldur heim
á leið síðar er hann breyttur maður
og hefur ef til vill fundið sjálfan sig.
Michael tekst nefnilega ekki bara
á við eilífðarmálin og sorgina heldur
uppgötvar hann og viðurkennir með
sjálfum sér að hann er samkyn-
hneigður því að hann festir ást á
pilti, Theo að nafni, sem endurgeld-
ur ást hans. Þetta er sem sé öðrum
þræðinum saga af samkynhneigðum
unglingi sem er að uppgötva ástina
og mátt hennar.
Hér er á ferðinni vel skrifuð bók
og þýðingin er á einföldu og ljósu
máli svo að hún er þægileg aflestr-
ar. Höfundur velur þá leið að segja
söguna í 3. persónu eintölu en sögu-
miðjan er ávallt þar sem aðalper-
sónan er. Jafnframt er okkur sýnt
inn í hugarheim Michaels með því
að sýna okkur drauma hans sem all-
ir tengjast láti fóður hans. Sagan er
því í reynd ferðalag ungs manns í
leit að sjálfum sér.
Persónusköpun er yfirleitt skýr
og einfóld en mesta rækt leggur
höfundur þó við aðalpersónuna.
Þetta er kærleiksríkur piltur og til-
finningar sínar nær hann að tjá
hindrunarlaust þegar hann upp-
götvar þær og skilur. Það ætti ekki
að trufla neinn þótt ást hans sé
samkynhneigð. Höfundur segir
þannig frá að það styggir engan,
enda greinilega eitt meginmarkmið
hans að vinna gegn fordómum
gagnvart samkynhneigðum og öðr-
um minnihlutahópum. Um aðra per-
sónu, kærasta Tínu vinkonu
Michaels, en hann er fullur for-
dóma, segir Tína og tjáir bersýni-
lega skoðun höfundar: „Ég á við að
heimurinn mun aldrei laga sig að
fordómum hans. Þess vegna verður
hann að vera það séður að laga sig
að umheiminum. Maður getur ekki
skilið eða sætt sig við allt en maður
þarf heldur ekki að fordæma það
sem hann skilur ekki eða sættir sig
ekki við. En einfaldast væri þó að
reyna að skilja. Og skilji maður ekki
þrátt fyrir tilraunina þá verður
hann barasta að kyngja því og gera
sig ánægðan með að hafa þó í það
minnsta reynt.“
I draumi lífsins er vönduð ung-
lingabók um sorgina, ástina, um-
breytingu lífsins og sjálfsleit. Hún
er vel skrifuð og þýðingin er með
ágætum. Hér er á ferðinni bók sem
vinnur gegn fordómum en er jafn-
framt ágætis bókmenntaverk.
Skafti Þ. Halldórsson
Alhliða landlýsing
BÆKUR
Þjóðfræði
HULDULANDIÐ
I máli og myndum eftir Vigfús
Björnsson. 336 bls. Kornið. Prentun:
Ásprent/Pob ehf. Akureyri, 1997.
ÞAÐ ERU hinar eyddu byggðir
nyrst á skaganum milli Eyjafjarðar
og Skjálfanda sem Vigfús Bjöms-
son lýsir í þessari ágætu bók:
Látraströnd, Fjörður, Flateyjar-
dalur, Flatey og Náttfaravíkur.
Þarna var fyrram blómleg byggð.
Þegar líða tók á öldina fór byggðin
að grisjast, bæimir fóra í eyði hver
á eftir öðram. Og við lok síðari
heimsstyrjaldarinnar var ljóst að
þama yrði ekki lífvænlegt til fram-
búðar sakir mannfæðar og sam-
gönguleysis. Lengst var búið í
Flatey. En þar var raunar hið fjör-
legasta athafnalíf á stríðsámnum.
Vigfús lýsir landslagi og landkost-
um; fjallvegum sem þóttu allhrika-
legir í vetrarferðum; bújörðunum
og búskaparháttum; ennfremur
kennileitum sem setja svip á lands-
lagið á þessum afskekktu en mikil-
fenglegu slóðum. Hann
rekur sögu byggðanna,
einkum að því er varð-
ar minnisstæða ein-
staklinga og atburði.
Og þjóðtrúin fær verð-
ugt rúm í bókinni. Vig-
fús hefur meðal annars
skráð stutta þætti eftir
mönnum sem segja frá
minnisverðum atvikum
á árum áður. Oft var
það tengt einhverju
ferðasvalki. Lætur
Vigfús þá talmál þeirra
með sérkennum sínum
og áherslum njóta sín.
Ennfremur er þama
leiðsögn fyrir þá sem
leggja land undir fót til að bera
augum þetta tilkomumikla land við
nyrsta haf. En bæirnir í Fjörðum
töldust fyrram til hins einangrað-
asta sem þekktist á landi hér. Létu
menn sér þó ekki allt í augum vaxa
hvað það varðaði. Meðal annars
skírskotar höfundur til vísu Látra-
Bjargar sem bar saman með eftir-
minnilegum hætti sumardýrðina
og vetrarhörkumar á æskustöðv-
um sínum.
En bók þessi er, eft-
ir á að hyggja, drjúg-
um meira en texti. Hún
er líka myndskreytt,
mikið myndskreytt, og
allt í lit, nema hvað
gamlar ljósmyndir,
sem teknar vora löngu
áður en litmyndun
hófst, verða að halda
sínu svari/hvíta. Þama
era landslagsmyndir,
hesta og fuglamyndir;
myndir af bátum og
skipum, myndir af
bæjarhúsum og kirkj-
um; þar að auki mynd-
ir af málverkum; teikn-
ingai- margai’, að
ógleymdum uppdráttum af svæð-
inu. Eðlilega eru flestar litmyndirn-
ar teknar að sumarlagi. Vitna þær
rækilega um sannleiksgildi upp-
hafsorðanna í vísu Látra-Bjargar:
»Fagurt er í Fjörðum.«
Þetta er í fáum orðum sagt al-
hliða landlýsing og hugtæk endur-
minning um mannlíf sem einu sinni
var.
Erlendur Jónsson
Vigfús
Björnsson
RÆKUR
Barnabók
LJÓNIÐ, NORNIN OG
SKÁPURINN
Eftir C.S. Lewis. Myndskreytingar:
Christian Birmingham. íslensk þýð-
ing: Kristín R. Thorlacius. Muninn,
1998. - 48 s.
BÆKUR C.S. Lewis hafa verið
gríðarlega vinsælt lesefni um all-
an heim og margar þeirra komið
út á íslensku. í þetta sinn kemur
ein þeirra út sem stytt útgáfa í
mjög fallegri myndaumgjörð.
Sagan segir frá ensku krökkunum
fjórum, Pétri, Súsönnu, Lúsíu og
Játvarði og ferð þeirra inn í töfra-
landið Narníu. Til þess lands ligg-
ur aðeins ein leið og hún er í
gegnum fataskáp í húsi gamals
Narnía í
myndum
prófessors sem býr úti í sveit. I
Narníu fá börnin að kynnast bar-
áttu góðs og ills. Þar eigast við
hvíta nornin sem heldur í landinu
eilífum vetri og Aslan konungur
sem í gervi ljónsins er tilbúinn að
fórna lífi sínu fyrir einn svikara.
Frásagan af því þegar hann er
bundinn og drepinn af valdi hins
illa, svo og upprisa hans minnir á
margt á krossfestingu Krists þótt
hér sé talað um töfra. Aukaper-
sónur sem koma við sögu t.d. eru
bjórapabbi og jólasveinninn sem
hjálpa til í baráttunni hver á sinn
hátt.
Myndirnar eru ákaflega fallegar
og útgáfan öll vönduð en sagan er
svo mikið stytt að fyrir þann sem
ekki þekkir alla söguna getur verið
vandkvæðum háð að fylgjast með
hvað er að gerast. Þýðing Kristín-
ar er falleg og vel við hæfi ævin-
týrsins, enda hefur Kristín fengið
verðlaun fyrir þýðingar sínar á
Narníu bókunum. Þó hnaut ég um
orðið „tyrkjasælu“ (Turkish
delight). Eg held að fáir á íslandi
viti hvað um er að ræða en hins
vegar er þetta þekkt sælgæti í
enskumælandi löndum. Því hefði
verið fremur átt að kalla þetta
„sælgæti" en „góðgæti" en þetta
er aðeins sparðatíningur því í heild
er þýðingin á góðri og fallegri ís-
lensku eins og þýðanda var von og
vísa.
Sigrún Klara Hannesdóttir