Morgunblaðið - 04.12.1998, Page 52

Morgunblaðið - 04.12.1998, Page 52
^rí2 FÖSTUDAGUR 4. DESEMBER 1998 Jólakort til vina og ættingja Með aðstoð mbl.is getur þú nú sent vinum og vandamönnum jólakort á Netinu Þú velur úr fjölda jólalegra mynda, velur kveðju, skrifar eigin texta og sendir. Ódýr og einföld leið til að gleðja vini og vandamenn hvar í heimi sem er. MORGUNBLAÐIÐ AÐSENDAR GREINAR Um skattahækk- anir og talnaleg frumhlaup UM FÁTT hefur verið meira rætt undanfarna daga en þá skyndilegu ákvörðun meirihlutans í borgarstjórn Reykjavíkur að auka skattheimtu á borgarbúa. Þannig mun útsvar Reykvíkinga hækka um tæpan milljarð um næstu áramót. Þessi ákvörðun hefur í för með sér að fjölskylda í Reykjavík með 250 þúsund króna mánaðartekjur mun auka greiðslur sínar í borgarsjóð um 22.500 krónur á ári. Þetta gerist á sama tíma og ríkisvaldið er að lækka sína skatta. Um næstu ára- mót lækkar tekjuskattur ríkis enn um eitt prósentustig og hefur inn- heimtan því lækkað um 4 prósentu- stig á innan við þremur árum auk þess sem skattleysismörk hækka um 2,5 prósentustig á ári. í bakið á launþegum Sú staðreynd að borgin grípi fyr- irvaralaust tækifæri til að leysa til sín skattalækkun ríkisvaldsins er mikið áhyggjuefni. Ljóst er að rík- isstjórnin á erfitt með að auka hlut- fall þess sem verður eftir í launa- umslagi fólks í borginni, ef borgar- yfírvöld bregðast jafnharðan við að- haldi ríkis með auknum sköttum. Hið versta í þessu er að fólkið í borginni hafði gert ráð fyrir þessari skattalækkun um næstu áramót. Skattgreiðandinn bjóst við að lækk- unin kæmi í eigin vasa, en ekki að- eins því að hún mundi færast milli opinberra aðila. Við kjarasamninga í fyrra gaf ríkisstjórnin aðilum vinnumarkaðarins þau fyrirheit að skattar mundu lækka í þrepum. I trausti þess gerðu launþegahreyf- ingamar samninga við vinnuveit- endur til lengri tíma en áður hefur þekkst. Reykjavíkurborg hefur sem aðrir notið afar góðs af þessum langa friði á vinnumarkaði. Yfirvöld borgarinnar létu þess ekki getið við launþega við þessa samningsgerð að þau mundu hirða skattalækkun ríkisins til sín. Þvert á móti var fremur rætt um að sveitarfélög tækju örlítinn þátt í þessum lækk- unum. Eðlilegt traust fólks í Reykjavík á því, að borgaryfirvöld hygðust ekki hækka álögur, styrkt- ist enn frekar síðastliðið vor þegar meirihlutinn í borginni fjölyrti í sí- fellu um trausta fjárhagsstöðu Reykjavíkurborgar. Fyrsti maður á lista R-listans, Helgi Hjörvar, hét því jafnframt fyrir kosningar að ein af fjórum aðaláherslum fylkingar hans yrði „lækkun gjalda til Reykvíkinga" eins og rifjað hefur verið upp opinberlega nú nýverið. Fyiir vikið er þessi spánnýja og aukna skattheimta nú enn meira reiðarslag fyrir hinn almenna laun- þega og skattgreiðanda í Reykja- vík. Forsætisráðherra og efnahagsmálin Þáttur borgarstjórans í Reykja- vík í þessu máli er athyglisverður. I beinni útsendingu á Stöð 2 síðast- liðið mánudagskvöld sagði hún að- spurð um orð og efndir R-listans í skattamálum: „Hér hefur ekkert loforð verið svikið.“ Undirrituðum er gjörsamlega fyrirmunað að ímynda sér hvernig borgarstjóran- um tekst að komast að slíkri niður- stöðu, þótt ekki væri nema vegna ofangreinds loforðs fyrsta manns á lista. Borgarstjóri sagði hins vegar þetta kvöld á sama fjölmiðli: „Þekk- ir þú einhver dæmi þess að þeir sem bjóða sig fram til kosninga lofi skattahækkunum?“ Þau viðhorf borgarstjórans til loforða sem í þessum orðum felast skýra kannski að einhverju leyti fyrmefnda niður- stöðu hennar um meintar efndir. Mestu púðri hefur borgarstjórinn þó eytt í að kvarta undan gagnrýni forsætisráðherra á skattahækkun Reykjavíkurborgar og segir hann blanda sér með því sem hún kallar „sérkennilegum hætti" í umræð- una. Borgarstjóri virðist líta fram- hjá því að forsætisráðherra er ekki aðeins 1. þingmaður Reykvíkinga heldur einnig ráðherra efnahags- mála. Honum er eins og öðrum ljóst Yður er hér með boðið á tískusýningu í verslun^^^^L EVEREST, Skeifunni 6 í Reykjávík," laugardaginn 5. desember n.k. kl. 14 og 16 /ohn Casablanca. fískusýningarhópur mun sýna nýjusfu línuna í útivisfarfafnaði sem EVEREST °S SeSlagerðin AEgir eru með til sölu fýrir þessf fól. Skelfan 6 ■ Reykjavlk ■ Slml 533 4450 ALVÖRU SPORTVERSLUN

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.