Morgunblaðið - 04.12.1998, Page 56
56 FÖSTUDAGUR 4. DESEMBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
AÐSENDAR GREINAR
Alftagerðisbræður
á Landspítalanum
SUM augnablik eru
svo stórkostleg að jafn-
vel þótt maður ætti þau
á myndbandi og reyndi
að lifa þau aftur með
því að horfa á mynd-
bandið þá tækist það
ekki, því þetta ákveðna
augnablik varir aðeins
þessa einu stund.
A slíkum stundum er
maður bergnuminn og
þakklátur fyrir að hafa
verið viðstaddur. Tón-
listin og leiklistin tengj-
ast mjög oft slíkum
upplifunum, sem þá
eiga sér stað í konsert-
sölnm eða leikhúsum.
Hinn 16. október sl. fór fram
kor.sert sem á sinn hátt var einstæð-
ur og ógleymanlegur, fyrst og
fremst vegna þess að aðstæður allar
í kringum þennan konsei-t voru svo
sérstæðar. Upphafið var að Anna
Jónsdóttir, vinkona mín og sam-
ker nari, frá Stóru-Ökrum í Skaga-
firði, veiktist af illvígum sjúkdómi
sem engin viðhlítandi
skýring hefur fundist á.
Hún liggur á Landspít-
alanum og líf hennar
umturnaðist við það að
fá þennan sjúkdóm,
breyttist úr lífi athafna-
konu, sem aldrei féll
verk úr hendi, í líf mjög
líkamlega máttfarinnar
konu sem getur sig vart
úr rúmi hreyft. Þetta er
eins og að lenda í fjötr-
um á vissan hátt. Það
þekkja allir sem hafa
legið á spítala langtím-
um saman að ekki er al-
gengt að skemmtikraft-
ar komi þangað tO að
brjóta upp daglegt mynstur og veita
lífi og gleði inn í líf sjúklinganna.
Engan undrar það þótt margir verði
daprir og missi jafnvel löngunina til
að lifa. Hún Anna mín hefur þó sem
betur fer endurheimt lífsneista sinn
og kímnin og næmi á hið spaugilega
er aftur komið á sinn stað. Þessir
ljósu punktar fóru að birtast um það
16. október fór fram
konsert sem á sinn hátt
var einstæður og
ógleymanlegur, segir
Jóhanna Sigríður
Sigurðardóttir, fyrst
og fremst vegna þess
að aðstæður allar í
kringum hann voru
svo sérstæðar.
leyti sem Álftagerðisbræður voru
væntanlegir til Reykjavíkur 16.
október sl. til að syngja á Hótel Is-
landi. Anna hefur hlustað á þessa
drengi, syni Skagafjarðar, allt frá
því þeir fóru að koma fram opinber-
lega. Þeir eru nátengdir öllum sem í
Skagafirði hafa búið og hafa þeir
sýnt uppruna sínum og bernskuslóð-
um mikla tryggð.
Að sjálfsögðu hafði Anna mikinn
hug á að fara á Hótel ísland og hlýða
á söng bræðranna. í fyrstu var að
því stefnt að hún fengi aðstoð bama
sinna og vina til að komast á tónleik-
ana. En þvi nær sem dró var sýnt að
hún væri of máttfarin og tíminn fram
að tónleikunum yrði of stuttur til að
tækist að endurhæfa Önnu nægilega.
Þá var sú ósk borin fram um það
sem gat virst óframkvæmanlegt að
biðja þá bræður að koma á spítalann
og syngja fyrir Önnu.
Skemmst er frá því að segja að
bræðumir og hjálparhella þeirra á
HOTEL SKJALDBREIÐ, LAUGAVEGI 16
NYTT HOTEL A BESTA
STAÐ í MIÐBORGINNI
VETRARTILBOÐ
Verðfrá kr. 2.700 á mann í2ja manna herbergi.
Morgunverðarhlaðborð innifalið.
Frir drykkur á veitingahúsinu Vegamótum.
Sími 511 6060, fax 511 6070
guesthouse@eyjar.is
ÁifiJ íf
______
Jóhanna Sigríður
Sigurðardóttir
f ci
ÁLFTAGERÐISBRÆÐUR, frá vinstri Sigfús, Óskar,
Pétur og Gísli Péturssynir.
tónlistarsviðinu og undirleikari,
Stefán R. Gíslason, tóku þessari
beiðni afar vel. Stefán gerðist milli-
göngumaður og. með ljúfmennsku
sinni og hógværð skipulagði hann
heimsóknina á spítalann. A meðan
gestirnir á Hótel Islandi snæddu
kvöldverð og biðu þess að hlusta á
Alftagerðisbræður syngja þutu þeir,
að lokinni hljóðstillingu í hátalara-
kerfi hótelsins, upp á Landspítala.
Mikil eftirvænting ríkti á sjúkra-
stofunni hjá Önnu og ákveðið var að
allir sjúklingarnir á deildinni fengju
að njóta söngsins. Eftir því sem ég
hef komist næst mun það ekki hafa
gerst áður að söngskemmtun hafi
farið fram á þessari sjúkradeild
Landspítalans. Hjúkrunarfólkið tók
þátt í undirbúningi fyrir konsertinn
og skulu færðar þakkir til þeirra.
Þarna kom Skagafjörður til Önnu
íyrst hún var fjarri honum, firðinum
sem hún hefur lært að unna. Bræð-
urnir frá Álftagerði hafa sungið um
brekkurnar heima, bláskyggðan
fjallahring, ljósbrot á Héraðsvötn-
um og lóuna sem söng á holtinu, þeir
hafa sungið um draumana og að í
Skagafirði eigi þeir heima hvert sem
leiðin liggi. Þeir félagarnir kalla
fram allt það besta sem í hverjum
manni býr, þeir hreyfa hjartans
innsta streng, eins og segir í kvæð-
inu. Það er auðvelt að láta hugann
reika og grafa upp gömul ævintýr
þegar maður hlustar á söng þeirra
og þeir eru svo mannlegir og eðlUeg-
ir þegar þeir tala til áheyrenda milli
laga. Þetta kvöld mátti sjá gleðitár
blika á brá og ýmist urðu menn orð-
lausir eða þeir, sem lítið höfðu sagt,
fengu mál.
Kæru bræður og Stefán, ég vil
þakka ykkur fyrir það sem þið gerð-
uð fyrir hana Önnu, þakka ykkur
fyrir sönginn, gleðina, léttleikann og
hlýjuna sem þið veittuð okkur þetta
fallega vetrarkvöld. „Hið mikla
geymir minningin en mylsna og
smælkið fer,“ segir í bók eftir Forn-
ólf.
Skrifað með þakklæti í huga í nóv-
ember 1998.
Höfundur er sjúkraþjálfuri.
mmiu
- -
Kajakferð Árna Sæberg Ijósmyndara við strendur Grænlands.
í blaðinu á sunnudaginn.