Morgunblaðið - 04.12.1998, Blaðsíða 68
J58 FÖSTUDAGUR 4, DESEMBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
FÓLK í FRÉTTUM
Tónleikar og upplestur i Tjarnarbíói
Rokk gegn þynnku
„ROKK gegn þynnku" verður yfirskrift
stórtónleika í Tjarnarbíói sem efnt verð-
ur til á laugardag klukkan 14. Botnleðja,
Súkkat, Unun og Ensími koma fram og
rithöfundarnir Mikael Torfason og Hall-
grímur Helgason lesar úr nýjum bókum.
„Allir halda þetta á kvöldin með bjór og
áfengi og vilja vera í stuði,“ segir Gunnar
Hjálmarsson í Unun.
„Okkur var sagt að aðalljónið í vegin-
um fyrir tónleikum svona snemma dags
yæri að allir væru þunnir eða í miðjum
'prófum. Við getum lítið gert til að höfða
til þeirra sem eru í próflestri nema þeir
vilji hvfla heilann við Ijúfa tóna. En ann-
að gildir um þunna liðið. Við getum boðið
því upp á magnyl og heitt te ef það er
kalt úti. Þá pössum við upp á að hljómur-
inn verði góður því við viljum ekki að
fólk fái hausverk. Og þótt fólk sé ekki
þunnt getur það átt þarna notalega dags-
stund.“
Og það verða ælupokar?
„Já, við ætlum að hafa þá, jafnvel sem
aðgöngumiða," segir Gunnar og brosir.
„Ef fólk er verulega illa farið þarf það
ekki að missa af neinu. Það getur jafnvel
pantað sér pizzu. Þynnkan er eitthvað
sem við ætlum að hjálpa fólki að upp-
ræta.“
YFIR 40.000 AH0RFEN00R
FGMorvniMM
RAGNAR Sólberg og tíkin Sara.
Upplifun Ragn-
ars Sólberg’
TOlMJST
Geisladiskur
UPPLIFUN
Fyrsti geisladiskur Ragnars Sólberg.
011 lög og textar eru eftir Ragnar
auk þess sem hann leikur á gítar og
bassa og syngur. Einnig koma fram á
disknum Egill O. Rafnsson, Omar
Kristjánsson, Haraldur Þorsteinsson,
Dan Cassidy, Heiðar Kristjánsson og
Hildur Guðnadóttir. Geislaplatan var
tekin upp í Græna herberginu og
hljóðblönduð af Ken Thomas. Error
músik gefur út en Japis dreifir.
HINN ungi Ragnar Sólberg gaf
fyrir skemmstu út sína fyrstu geisla-
plötu, nafnið Upplifun er vísun í Ex-
perience sveit Jimi Hendrix heitins
sem Ragnar hefur miklar mætm’ á.
Geislaplatan er afar stutt, aðeins
rúm tuttugu og ein mínúta, og fer
því nokkrar sekúndur yfu- staðlaða
skilgreiningu á smáskífu. Einnig eru
í raun aðeins sex lög á plötunni þvi
platan hefst á stuttri strengja-
stemmu, Nibblheimssöng, og lýkur á
sama stefi leiknu öfugu sem heitir
enda Öfugsnúið.
Upplifun hefst því á laginu Málum
myrkrið eins og sólina, hröðu og
hressu rokklagi, Ragnar syngur
sjálfur líkt og í flestum lögunum og
sýnir strax að þar fer óvenju fjöl-
hæfur drengur. Hann á ekki í
nokkrum vandræðum með að
syngja, syngur styrkri röddu þótt
gelgjuskeiðið sé ekki enn farið að
segja til sín auk þess að leika sjálfur
á gítar og bassa. Áðurnefnt lag er
líklega besta lag plötunnar, ferskt
og þróttmikið þungarokk. Lögin
sem fylgja eru flest rólegri og þar
tekst Ragnari ekki alveg eins vel
upp í lagasmíðum sínum, öll bera
lögin vott um ótvíræða hæfileika
hans sem tónlistarmanns og þá eink-
um sem gítarleikara, nægir að nefna
lögin Eg þrái og titillagið Upplifun
þar sem Ragnar leikur ásamt Dan
Cassidy fíðluleikara og Haraldi Þor-
steinssyni bassaleikara og gefur
þeim lítið eftir. Aðrir gestir plötunn-
ar standa sig með prýði, Hildur
Guðnadóttir og Heiðar Kristjánsson
hafa áður sannað sig sem söngvarar
en skemmtilegt er að bera Ragnar
saman við þau, hann hefur tilfinn-
ingu fyrir söngnum og fyrir utan
það að rödd hans er ekki tilbúin er
ekki að heyra að þar fari óreyndur
tónlistarmaður. Bróðir Ragnars,
Egill Örn Rafnsson, trommar einnig
af smekkvísi.
Lagasmíðarnar eru akkilesarhæll
Ragnars, hans eigin stíll er ekki enn
kominn fram og lögin sex eru að
mestu leyti tilraunir með og tilbrigði
við stíla sem áður hafa komið fram.
Þetta er skiljanlegt þegar litið er til
aldurs Ragnars, hann er aðeins tólf
ára gamall. Ragnar á enn eftir að
slípast mikið til'sem tónlistarmaður
og spurning er hvort skynsamlegt
hefði verið að bíða með útgáfu, jafn-
vel í nokkur ár.
Hljómur plötunnar er ágætur,
hefði þó mátt vera hrárri, Ragnar er
gítarleikari og það er á stundum
ekki nógu vel undirstrikað í hljóð-
blöndun. Umslagið hins vegar er af-
bragð, Spessi hefur sýnt að hann er í
fremstu röð útlitshönnuða og sjald-
gæft er að umbúðir séu svo stílhrein-
ar og áhorfanlegar á íslenskum
geisladiskum eins og þegar hann
hefur komið að gerð þeirra.
Margt er vel gert á Upplifun, auð-
séð er að Ragnar hefur hæfileika og
alla tilburði til að verða áberandi í
framtíðinni. Hins vegar er hann varla
tilbúinn strax til þess að leggja af
stað. Enda er Upplifun líklega aðeins
forsmekkurinn að Ragnari Sólberg.
Gísli Árnason.