Morgunblaðið - 13.01.1999, Page 4
4 MIÐVIKUDAGUR 13. JANÚAR 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Menntaskólinn í Reykjavík tekur í notkun nýtt húsnæði sem skólinn fékk að gjöf
„Gamli
andinn
í nýju
húsiu
MENNTASKÓLINN í Reykjavík
tók í gær í notkun nýtt kennslu-
húsnæði að Þingholtsstræti 18
sem skólinn fékk að gjöf á 150
ára afmæli sínu fyrir tæpum
þremur árum. Nemendur í
fímmta bekk munu hafa aðsetur
í nýja húsinu sem ekki hefur
verið gefíð nafn eins og tíðkast
hefur um þær viðbótarbygging-
ar sem skólanum hefur hlotn-
ast. Höfðu nemendur þessarar
gömlu menntastofnunar að orði
að gamli andinn ríkti í nýju
húsi.
Þau tímamót urðu einnig í
gær að MR er nú einsetinn en
nemendur í þriðja bekk hafa
hingað til setið skólann eftir há-
degi. Byggð var tengibygging á
milli hússins og þess sem geng-
ur undir nafninu Casa Nova.
„Þetta er fínt og allt annað
en Fjósið þar sem við vorum áð-
ur. Annaðhvort var okkur ískalt
eða hitasvækja myndaðist í því
húsi. Þetta minnir mann á
grunnskólann þar sem allt var
nýtt, fínir stólar og borð og
nægt pláss,“ sögðu Þóra, Sig-
urður og Stefán, nemendur í 5-
Y, en bættu því við að með ein-
setningu skólans væri orðið
heldur þröngt í „matsal" Cösu í
frímínútunum.
Bekkjarsysturnar Brynhildur
og Berglind í 5-S voru sammála
um að nýja byggingin væri
nauðsynleg viðbót við skóla-
þorp skólans. Loftræstingin sæi
nemendum fyrir góðu lofti auk
þess sem salernisaðstaðan væri
mun betri. Einstaka stundaskrá
hefði breyst með einsetning-
unni sem kæmi þó ekki að sök-
um. „Þetta er mjög ólíkt MR-
andanum þar sem allt, er af
Morgunblaðið/Golli
NEMENDUR í 5. bekk Mennta-
skólans í Reykjavík sátu tíma í
nýju húsnæði skólans í fyrsta
sinn í gærmorgun.
gamla skólanum en þetta venst
vafalaust vel.“
Formleg vígsla
á sunnudag
Theódóra Torfadóttir þýsku-
kennari var ekki síður sátt við
nýja húsið og lýsti meðal annars
yfír ánægju sinni með glænýja
og hreyfanlega töflu. „Eg er
ekki búin að kynna mér annan
tækjabúnað en mér líst mjög vel
á þetta,“ sagði Theódóra sem
áður kenndibekknum í Casa
Christi, húsnæði sem var áður í
eigu KFUM.
Formleg vígsla nýja hússins
verður næstkomandi sunnudag
og verður Björn Bjarnason
menntamálaráðherra meðal
gesta.
BRYNHILDUR og Berglind í 5-S
í tröppum nýrrar tengibyggingar
sem tengir saman húsið við Þing-
holtsstræti og Casa Nova.
Fjölmennasta ein-
staka póstnúmerið
er 200 Kópavogur
Póstnúm-
er 112 fjöl-
mennast í
Reykjavík
TÓLF búa í fámennasta póst-
númeri landsins, 345 Flatey á
Breiðafirði, og næstfámenn-
asta póstnúmerið er 522 Kjör-
vogur á Ströndum þar sem
eru 13 íbúar. Fjölmennasta
póstnúmerið er 200 Kópavog-
ur en þar eru íbúar 21.376.
Tölur þessar koma fram í
fréttum frá Hagstofu Islands
og er miðað við íbúafjölda frá
1. desember síðastliðnum.
I Reykjavík búa flestir í
póstnúmeri 112 sem nær yfir
hverfin í Grafarvogi. Þar býr
14.981 íbúi. Næstfjölmennasta
póstnúmerið er 105, sem eru
Hlíðar og Tún, með 14.648
íbúa, 14.263 búa í miðborginni
í póstnúmeri 101, 12.609 búa í
109 sem eru Breiðholtshverfi
og 12.239 í 108 sem tekur yfír
Bústaðahverfi og Fossvog.
íbúafjöldi í öðrum póstnúmer-
um er undir 10 þúsundum.
Sú breyting hefur orðið í
Reykjavík að póstnúmer 116
nær nú yfir fyrrverandi Kjal-
arneshrepp sem áður hafði
póstnúmerið 270 með Mos-
fellsbæ. Þar eru íbúar 618 og
er þar minnstur íbúafjöldi
undir einu póstnúmeri.
í nokkrum póstnúmerum á
landinu eru færri en 50 íbúar,
t.d. 22 á Norðurfirði sem hef-
ur póstnúmerið 524 og 36 á
Finnbogastöðum á Ströndum,
nr. 523, og á Austfjörðum voru
27 íbúar í Mjóafirði þar sem
póstnúmerið er 715.
í yfirliti Hagstofunnar kem-
ur fram að íbúar á landinu
voru 275.277, 137.880 karlar
og 137.397 konur. Eldri en 67
ára voru 28.176, á aldrinum
21-66 ára voru 156.675 og
börn á aldrinum 0-15 ára voru
25.744.
Danskur farþegi með þotu Flugleiða gerir alvarlegar athugasemdir við fluglag við Flugmálastjdrn
Utsýnisflug að frum-
kvæði flugmanns
DANSKUR maður sem flaug
hingað til lands með þotu Flug-
leiða 28. september síðastliðinn
hefur sent Flugmálastjórn erindi
vegna þess sem hann telur vera
óeðlilegan flugmáta fullhlaðinnar
farþegavélar þennan dag. Pétur
K. Maack, framkvæmdastjóri
flugöryggissviðs Flugmálastjóm-
ar, segir að athugun stofnunarinn-
ar hafi ekki leitt neitt ámælisvert í
ljós.
Jens Bjamason, flugrekstrar-
stjóri Flugleiða, segir flugið hafa
verið farið að frumkvæði flug-
manns vélarinnar og það sé ekki
samkvæmt stefnu félagsins. Flug-
ið hafi hins vegar verið innan
þeirra marka sem eðlilegt má telj-
ast. Flugmaður vélarinnar hefur
verið í veikindaleyfi frá því
skömmu eftir að þetta gerðist, en
Jens segir það með öllu ótengt
fluginu 28. september.
Taldi sig
vera í hættu
Daninn hefur undanfarna mán-
uði unnið að verkefni hérlendis og
flogið hingað margsinnis, auk
þess að hafa til að bera þekkingu
á flugmálum. Samkvæmt heimild-
um Morgunblaðsins tilkynnti
flugstjóri í umræddri ferð,
skömmu fyrir lendingu í Keflavík,
að hann hygðist fljúga hring yfir
Reykjavík og lenda síðan í kjöl-
farið í Keflavík. Þegar flogið var
yfir Kópavog hafi vélin síðan
lækkað flugið skyndilega, tekið
sveigju og virst stefna rakleiðis í
hafið. Þetta hafi valdið ugg á
meðal farþega. Eftir hinar
kröppu beygjur hafi verið flogið
beint til Keflavíkur án frekari
skýringa á undangengnum at-
burðum.
Daninn áleit að vélin hefði ver-
ið hætt komin þar sem slíkt flug-
lag stórra farþegavéla tíðkaðist
ekki nema verið væri að bjarga
vélinni eða sveigja henni frá
annarri flugumferð. Hann sendi
því Flugmálastjóra náðurnefnt
erindi og spurðist fyrir um orsak-
ir málsins.
Pétur K. Maack kveðst kannast
við þennan atburð og hafi hann
verið rannsakaður. Málið hafi
verið þess eðlis að ástæða hafi
þótt til að óska eftir skriflegum
skýringum. „Við athuguðum með
flugþjónustusviði hvort eitthvað
hefði verið óeðlilegt við þetta
flug. Þar var staðfest að allt flug-
ið var í fullu samráði við flugum-
sjónarstjórnina og engar athuga-
semdir voru skráðar þar eða
gerðar síðar. Flugið hefur því
farið fram samkvæmt öllum regl-
um,“ segir Pétur.
Skýringar taldar viðhlítandi
Hann segir að Flugmálastjóm
hafi sömuleiðis athugað hvort eðli-
legum starfsreglum hafi verið
fylgt, í samræmi við eftirlitshlut-
verk stofnunarinnar með flugrek-
andanum. Beðið var um skýringar.
„Það dróst ögn að fá formleg og
skrifleg svör, sem helgaðist af því
að flugmaðurinn var í leyfi en þau
bárust okkur síðan í lok desember.
Flugmaðurinn hafði þá gert grein
fyrir sínum málum, bæði gagnvart
okkur og Flugleiðum, og lá fyrir
skýrsla frá honum. Eg vil helst
ekki fara út í þær skýringar í smá-
atriðum en segi þó að hefði eitt-
hvað meiriháttar óeðlilegt verið við
þetta allt saman hefði annaðhvort
verið tekið af honum skírteinið eða
málið sett í frekari rannsókn. Skýr-
ingar þær sem liggja fyrir eru hins
vegar viðhlítandi. Þetta mál fer því
ekki í opinbera rannsókn, enda
ekki um brot á lögum eða saknæmt
athæfi að ræða,“ segir Pétur. „Við
gerum því engar athugasemdir, þó
svo að menn geti haft þá skoðun að
eðlilegt sé að gera farþegum ítar-
lega grein fyrir því hvað er að ger-
ast hverju sinni, ef vikið er frá
hefðbundinni áætlun. Það þarf hins
vegar ekki að varða flugöryggi."
Hann segir að Dananum verði
fljótlega gerð grein fyrir þessum
málalyktum og að ekki verði gripið
til frekari aðgerða af hálfu Flug-
málastjórnar.
Jens Bjamason, flugrekstrar-
stjóri Flugleiða, segir að Daninn
hafi sent Flugleiðum afrit af erindi
sínu til Flugmálastjómar og í
framhaldinu hafi Flugmálastjórn
óskað skýringa. Eftirgrennslan fé-
lagsins hafi leitt í ljós að flugmað-
urinn hafi tekið umræddan krók að
eigin fmmkvæði en það frávik hafi
verið smávægilegt og án tOkostn-
aðar fyrir Flugleiðir.
í samræmi við reglur
„í þessu tilviki kom í ljós að allt
var í fullu samráði og með fullri
heimOd viðkomandi flugturns. A
venjulegu flugi getur þurft að taka
krappar beygjur og sveigjur en
hversu mikið það var í þessu tilviki
er ómögulegt fyrir þann að meta
sem ekki var í vélinni. Eg veit hins
vegar ekki til þess að nokkur hafi
gert athugasemd nema þessi eini
Dani, þannig að kannski var hann
óvenju viðkvæmur sem er fullkom-
lega eðlOegt. Fluginu var hins veg-
ar að öHu leyti hagað í samræmi við
þær reglur sem gOda,“ segir Jens.
Hann kveðst telja að í langflest-
um tilvikum sé útsýnisflug til
ánægjuauka fyir fólk þegar skil-
yrði em hentug. „Við emm sann-
færðir um að öryggi farþega hafi
ekki verið á neinn hátt ógnað í
þessu tilviki, en okkur er mjög um-
hugað um vellíðan þeirra og vitum
að margir kæra sig ekki um nein
frávik frá fyrirframgefínni leið. Það
er því stefna Flugleiða að víkja ekki
af áætlaðri leið nema sérstaklega
standi á, og við töldum ekki að til-
efni hefði verið til þess í umræddu
tOviki. Þá getur verið að tilkynning
flugmanns til farþega hafi ekki ver-
ið fullnægjandi, að minnsta kosti
þótti viðkomandi farþega hún
greinOega ekki nægilega ítarleg.
Við ræddum því við viðkomandi að-
ila. Það var gert í fuOri sátt og mál-
inu er lokið af okkar hálfu,“ segir
Jens.
Flugmaður í umræddri ferð hef-
ur verið í veikindaleyfi síðan
skömmu eftir að þetta gerðist, en
Jens segh- að leyfið sé ekki á neinn
hátt tengt fluginu eða þeim athuga-
semdum sem gerðar voru við það.