Morgunblaðið - 13.01.1999, Blaðsíða 8
8 MIÐVIKUDAGUR 13. JANÚAR 1999
FRETTIR
MORGUNBLAÐIÐ
TJtvarpstvíeykið Tvíhöfði harmar hrópin á Alþingi
„Heitum því að gera
þetta ekki aftur“
LÖGREGLAN 1 Reykjavík
kallaði umsjónarmenn Tví-
höfða, þá Jón Gnarr og Sigur-
jón Kjartansson, til skýrslu-
töku í seinustu viku vegna
kæru Alþingis ó hendur þeim
fyrir að láta gera hróp að
þingmönnum af þingpöllum
18. desember sl.
„Við þekktum ekki þetta
ferli og bjuggumst ekki við að
málið hefði þessi eftirmál. Við
vorum leiðh- yfir þessu og
báðumst fyrirgefningar,"
segja Sigurjón og Jón. Þeir
segjast fráleitt hafa átt von á
þessum viðbrögðum Alþingis og telja
þau óþarflega hörð.
Blómin voru endursend
Forsvarsmenn Tvíhöfða létu færa
skrifstofustjóra Alþingis, Friðriki
Ólafssyni, blómvönd, sem var endur-
sendur að sögn þeirra félaga.
„Þetta var mjög einlægur vináttu-
vottur við Friðrik. En blómin voru
endursend og það fannst okkur ekki
fallegt og það særði hjarta okkar Tví-
höfðamanna. Menn vantreystu greini-
lega einlægni okkar og héldu að hún
væri einhvers konar kaldhæðni, sem
hún var ekki,“ segja Jón og Sigurjón.
„En ef skrifstofustjóri Al-
þingis vill ekki blóm verður
að gera eitthvað annað.
Hann sagði í Morgunblaðinu
í gær að hann vildi fá afsök-
unarbeiðni beint frá okkur
og við erum að hugleiða
hvort við verðum við því. Við
erum bara saklausir gi-ínist-
ar og okkur finnst þetta óg-
urlega leiðinlegt og okkiu-
tekur þetta sárt. Við erum
góðir strákar og grínistar,
viljum engum illt og heitum
því að gera þetta ekki aftur,“
segja Sigurjón og Jón.
Jón bendir á að frammíköll séu vel
þekkt á þingi og því sæti viðbrögð
Alþingis furðu. „Mér finnst mjög
einkennilegt að gera okkur að for-
dæmi. Við gerum engum illt og höf-
um aldrei gert. Við erum búnir að
biðjast fyrirgefningar og viljum gera
það enn og aftur. Við nennum ekki
að standa í lögreglumálum, okkur
finnst þau ekki spennandi og erum
ekki í krossferð gegn kerfinu," segir
hann.
Stutt röskun
Að sögn Sigurjóns tók maður á
vegum þáttarins að brýna raust sína
yfir þingheimi 18. desember síðast-
liðinn.
„Hann fór að mótmæla gagna-
grunnsfrumvarpinu af einhverjum
orsökum, sem var raunar ekki við
hæfi, því þarna var verið að tala um
sjávarútvegsfrumvörp og búið að
samþykkja gagnagrunnsfi’umvarpið.
Hann var ekki alveg með á nótunum.
Við fylgdumst með þessu og sendum
út beint. Þetta var mjög stutt röskun,
ég held að kallið hafi tekið fimm sek-
úndur allt í allt, og þingmenn gátu
haldið áfram störfum sínum óáreittir.
Hugmyndin vai- sú að setja þetta upp
sem dæmi um hvað myndi gerast ef
einhver reyndi slíkt á Alþingi og
þetta var mönnum svo sannarlega
víti til varnaðar. Mér sýnist að skrif-
stofustjóri Alþingis sé að setja þetta
upp sem einhvers konar prófmál,“
segir Sigurjón.
Alfa-námskeið
Lífgað upp á
barnatrúna
ARIÐ 1992 var far-
ið að halda
svokölluð Alfa-
námskeið í Holy Trinity
Brompton kirkjunni í
London. Námskeiða-
haldið vatt skjótt upp á
sig og í fyrra voru hald-
in 10.500 Alfa-námskeið
víðsvegar um heim með
um 600.000 þátttakend-
um. Alfa-námskeið verð-
ur haldið í Islensku
Kristskirkjunni á næst-
unni. Prestur þar er
Friðrik Schram.
„Það eru margir and-
lega leitandi sem vilja
gjarnan lífga upp á
barnatrúna. Trúin hefur
ef til vill orðið útundan í
amstri hversdagsins og
iðkun hennar kannski
glejrmst. Þegar um hægist í lífi
fólks vill það fara að huga að
andlegum málum og sálarheill.
Fólk veit ekki hvernig það á að
bera sig að. Alfa-námskeiðið
kemur þar til sögunnar því
meginhlutverk þess er að
hjálpa fólki að endurnýja trúna
og tengslin við kristna kirkju."
- Hver er ástæðan fyrir því
að námskeiðið hefur breiðst
svona hratt út?
„A nokkrum ái'um eru Alfa-
námskeiðin orðin vinsælustu
biblíunámskeið sem um getur.
Svo virðist sem námskeiðin
henti venjulegu nútímafólki
sem er að leita andlegra verð-
mæta. Frá árinu 1992 þegar
fimm námskeið voru haldin
hefur þróunin verið ör. Næsta
ár urðu þau 200 og árið 1994
voru þau orðin 750 talsins. Árið
1995 voru haldin 2.500 nám-
skeið, árið 1996 5.000 og árið
1997 voru haldin 7.500 nám-
skeið víða um heim. I fyrra
tóku um 600.000 manns þátt í
þeim 10.500 námskeiðum sem
haldin voru.“
- Hvernig er námskeiðið
byggtupp?
„Þátttakendur hittast eitt
kvöld í viku í tíu vikur. Hver
kvöldstund byrjar með kvöld-
verði og í framhaldi af því er
fyrirlestur. Að honum loknum
eru umræður þar sem efni fyr-
irlestursins er rætt. Þá er fólki
frjálst að koma fram með sínar
skoðanir og spyrja að vild. Hér
á Islandi höfum við síðan endað
hvert kvöld með helgistund.“
Friðrik segir að sama fyrir-
komulagið sé haft öll kvöldin
en um mitt námskeið ---------
fer fólkið saman út
úr bænum eina helgi.
„A námskeiðinu
tökum við fyrir
ákveðið efni á hverju
kvöldi eins, t.d. hver
er Jesús, hver er þessi Guð fað-
ir og skapari, læknar Guð fyrir
bæn? hvernig eignast menn
trúarvissu, hvernig á að biðja
og hvað um Biblíuna? Þá velt-
um við fyrir okkur spurningum
um það við hvernig heilagur
andi starfi, hvernig við getum
staðið gegn hinu illa og hvernig
við miðlum trú okkar.“
- Hversu oft hafa Alfa-nám-
skeið verið haldin hér á landi?
„Það eru þrjú ár síðan byrj-
að var að halda námskeiðin
hérlendis. Fyrsta námskeiðið
var haldið í Keflavík og í fyrra
héldum við okkar fyrsta nám-
skeið í íslensku Kristskirkj-
unni. Eftir því sem ég best veit
verða Alfa-námskeið að
Friðrik Schram
► Friðrik Schram er fæddur í
Reykjavík 8. febrúar árið
1946. Friðrik lauk verslunar-
prófi frá Verslunarskóla ís-
lands árið 1966. Hann starf-
aði við verslunarstörf um
skeið en lauk predikaranám-
skeiði við Biblíuskóla Norska
heimatrúboðsins vorið 1968.
Friðrik var einn af stofn-
endum Ungs fólks með hlut-
verk árið 1976 og formaður
samtakanna til haustsins 1997
er hann ásamt öðrum stofnaði
íslensku Kristskirkjuna.
Friðrik var vígður til prests
í þeini söfnuði af biskupi
Norsku lútersku fríkirkjunn-
ar í Breiðholtskirkju árið
1997.
Eiginkona Friðriks er Vil-
borg R. Schram og eiga þau
þrjú börn.
I fyrra voru
haldin 10.500
Alfa-námskeið
víða um heim
minnsta kosti á fimm stöðum
hér á landi nú á vormisseri.
-Hefur fólk nálgast kirkj-
una sína eftir að hafa verið á
Alfa-námskeiði?
„Já, ég veit þess mörg dæmi
að þátttakendur hafa í fram-
haldi farið að starfa fyrir sína
kirkju, jafnvel fólk sem áður
sótti mjög lítið kirkju.
Fólk sem sótti Alfa-nám-
skeið hjá okkur síðastliðið
haust komst að því að trúin er
ekki fyrir fáa útvalda, heldur
alla, fólk í alls konar stöðum og
á ýmsum aldri. Alfa varð eins
konar brú yfir óljósar hindran-
ir og hjálpaði nemendunum til
að komast aftur í gang með
trúna, geta farið að biðja, lesa
-------- Biblíuna og miðla
trúnni á eðlilegan
hátt til vina og kunn-
ingja. Þannig eflist
kirkjan og söfnuð-
________ irnir stækka. Þetta
er meðal annars
reynsla Breta en þar tala menn
nú jafnvel um þjóðarvakningu í
tengslum við Alfa-námskeiðin.“
- Hvenær hefst námskeiðið?
„Það hefst þriðjudagskvöldið
19. janúar og kostar 3.000
krónur. Við höfum reynt að
stilla verði í hóf svo að kostnað-
ur verði ekki hindrun fyrir
neinn. Námskeiðið fer fram í
húsnæði íslensku Kristskirkj-
unnar sem er að Bíldshöfða 10.
-Er ekki stutt síðan ís-
lenska Kristskirkjan var stofn-
uð?r
„Islenska Kristskirkjan er
lútersk fríkirkja sem var stofn-
uð 4. október árið 1997. Alls
eru nú um 135 manns í söfnuð-
inum.“