Morgunblaðið - 13.01.1999, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 13.01.1999, Blaðsíða 16
16 MIÐVIKUDAGUR 13. JANÚAR 1999 MORGUNBLAÐIÐ LANDIÐ NÝBYGGINGIN er bæði sunnan og norðan við eldra húsið. Morgunblaðið/Silli Ný sundlaug byggð á Húsavík Húsavík - Á liðnu ári hófust framkvæmdir við stækkun sund- laugarinnar á Húsavík með byggingu nýrrar sundlaugar 25 metra langrar, en sú sem er fyrir er 16,67 metrar og er fyrirhugað að byggja yfir hana í framtíðinni. Fyrsti áfangi var að byggja nýja og stærri búningsklefa og hafa þeir verið gerðir fokheldir og verða innréttaðir á þessu ári. Verktaki er Trésmiðjan Rein. Þarnæsti áfangi er að byggja 25 metra sundlaug, sunnan við núverandi laug, og þá verða gerðar ýmsar breytingar á gömlu byggingunni, búningsklef- um og böðum. Framkvæmdum er hagað þannig að ekki verði truflun á rekstri gömlu laugar- innar, sem vígð var 6. ágúst 1960. Það ár voru sundlaugar- gestir 7.301 en síðasta ár 54.000 talsins auk 15.000 skóla- og kennslugesta. Forstjóri sundlaugarinnar er Sveinn Rúnar Arason. Þrettánda- gleði á Tálknafirði Tálknafirði - Á þrettándanum var haldið jólaball og þrettándagleði í samkomuhúsinu á Tálknafirði. Samkoman var vel sótt og skemmtu menn sér vel. Það hefur tíðkast undanfarin 6 ár að halda þrettánda- gleði og hefur hún farið fram bæði utan og innan dyra ef veður hefur leyft. Að þessu sinni var árvissu jóla- balli yngri kynslóðarinnar og þrett- ándagleðinni skellt saman og mælt- ist það vel fyrir. Þarna mæta álfar og huldufólk, sem búsett er í tálkn- firsku dölunum. Er þetta stór hópur þegar saman kemur og skrautlega búinn. Einnig hafa örlagadísir Tálknafjarðar heiðrað samkomurn- ar undanfarin ár með nærveru sinni. Þá má ekki gleyma þeim heið- urssveinum sem kenndir eru við jól- in, en að sjálfsögðu mættu fulltrúar þeirra og heilsuðu upp á börnin. Ansi voru þeir nú orðnir þreytuleg- ir enda hafa þeir haft í mörgu að snúast um jólin og voru á leiðinni heim. Þó gáfu þeir sér tíma til þess að dansa og syngja með bömunum og fara í leiki. Áður en þeir héldu á brott útbýttu þeir sætindum þar ^Morgunblaðið/Finnur Pétursson FRÁ þrettándagleðinni á Tálknafirði. sem þeir voru sannfærðir um að tálknfii’sk böni hefðu muúð til þess með góðri hegðun og fyrirmyndar framkomu. Þegar samkomugestir höfðu lok- ið við kaffi og meðlæti, dausað og sungið nóg, var haldið út úr húsi. Utan dyra vai- kveikt í brennu og því bremit sem ekki brann á ára- mótabrennunni. Þá buðu björgunar- sveitarmenn upp á flugeldasýningu þar sem því var skotið upp sem ekki hafðist að skjóta upp á áramótum. Að þessu loknu héldu allir heim sæl- ir og ánægðir. Landmælingar taka til starfa á Akranesi Morgunblaðið/Gunnlaugur Arnason SÍÐASTI jólasveinninn, Kertasníkir, yfirgaf mannabyggðir á þrettándandum. Á leiðinni heim hitti Kerta- sníkir Agnar Jónasson frá Kóngsbakka og skoðaði hjá honum heyskera sem Agnar er að smíða. Eins og sjá má á myndinni leist honum mjög vel á smíðina Akranesi - Nýr kafli er hafínn í sögu Landmælinga Islands. Um áramótin tók stofnunin formlega til starfa og sl. fostudag var hátíðarat- höfn á Akranesi í tilefni hinna merku tímamóta. Meðal gesta við það tækifæri voru Davíð Oddsson forsætisráðhen’a og ráðherramir Guðmundur Bjamason og Ingi- björg Pálmadóttir auk alþingis- manna, sveitarstjómarmanna á Vesturlandi og fleiri gesta. Stofnun- in hefur til umráða nýtt og glæsi- legt húsnæði í stjómsýsluhúsinu á Akranesi. Þar er mjög vel búið að starfsfólki og virðist það vera al- mennt mjög ánægt með starfsað- stöðuna. Frá því í októbermánuði hefur verið unnið hörðum höndum við að flytja stofnunina og hefur sú vinna mætt mikið á þremur forstöðu- mönnum hennar sem hafa í náinni samvinnu við stjóm stofnunarinnar og Framkvæmdasýslu ríkisins séð til þess að allar áætlanir hafi staðist. Hálft þriðja ár er nú liðið síðan ákveðið var að flytja starfsemi Landmælinga til Akraness. Það vai- Guðmundur Bjamason umhverfís- ráðherra sem ákvað flutninginn, en hugmyndir að shku höfðu komið upp í tíð forvera hans, eftir að nefnd á vegum forsætisráðuneytisins hafði gert tillögur um flutning nokkmra ríkisstofnana út á land. Hefur verið markmið ríkis- stjóma um árabil Akvörðunin mætti á sínum tíma mikilli andstöðu _ meðal starfsfólks og fleiri aðila. í ræðu sem Guð- mundur Bjamason umhverfísráð- herra flutti við opnunarathöfnina fór hann nokkram orðum um ákvörðun sína og varði hana. Hann sagðist hafa verið að framkvæma það sem margar ríkisstjómir hefðu haft að markmiði um árabU. Hann sagði vel hafa tekist til um flutning- inn og óskaði stofnuninni og staifs- fólki hennar alls hins besta. Við flutninginn til Akraness liggur fyrir að um helmingur þeirra 30 starfs- manna sem vora hjá stofnuninni munu starfa áfram hjá henni á Akranesi. Fjöldi umsækjanda hefur sótt um þau störf sem losnuðu og era þeir sem ráðnir vora búsettir á Akranesi og nágrenni. Nýr framkvæmdastjóri, Magnús Guðmundsson, tók við starfí for- stjóra Landmælinga Islands nú um áramótin. Stykkishólmi - Agnar Jónasson sem áður var bóndi á Kóngs- bakka í Helgafellsveit, en býr nú í Stykkishólmi, hefur síðustu vikur verið að smíða heyskera. Undanfarin haust hefur hann keypt gærur af bændum sem slátra heima. Hann hefur sótt þær heim til bændanna og séð um að salta þær og selt þær síð- an til skinnaverkenda. Þessi vinna hefur gengið vel þar til í Smíðar heyskera haust að algjört verðfall varð á gærum. Verðið sem fékkst í haust fyr- ir saltaðar gærur var 100 krón- ur fyrir hveija gæru, sama verð og hann greiddi til bænda. Voru það mikil vonbrigði fyrir Agnar. En til að bæta sér skað- ann hóf hann fyrir nokkru að framleiða heyskera. Heysker- ana nota bændur og hestamenn til að létta sér verkin og segir Agnar að eftirspurn sé all mikil og að vel gangi að selja heyskerana. Hann hefur þegar selt marga skera og er ánægð- ur með hvað viðtökurnar hafa verið góðar. Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson ÝMISS konar furðuverur heiisuðu upp á Eyjamenn á þrettándagleði IBV. Fjölmenn þrett- ándagleði í Eyjum Vestmannaeyjum - Eyjamenn dönsuðu jólin út á hefðbundinn hátt á þrettándanum. ÍBV íþrótta- félag sá um þrettándagleðina sem hófst klukkan átta með því að nafn IBV var tendrað ofan við Hána þar sem jólasveinar kveiktu í blysum sínum og héldu niður af fjallinu til bæjarins. Flugeldasýning var á Hánni meðan sveinarnir gengu nið- ur. Þegar jólasveinarnir komu með blys sín niður af Hánni beið þeirra vagn með Grýlu, Leppalúða, tröll- um og öðra fúrðuhyski sem fór íyr- ir göngu til íþróttavallarins. Þrátt fyrir rigningu og kalsaveður lét fólk það ekki á sig fá og fjölmennti í gönguna. Á íþróttavellinum bættist fjöldi trölla, álfa, púka og annars hyskis í hópinn og kveikt var í bálkesti á vellinum. Þar dansaði allt hyskið um stund og heilsaði upp á mann- fjöldann. Frá íþróttavellinum var gengið um bæinn og niður að hafn- arsvæðinu þar sem jólasveinarnir slökktu í blysunum og héldu til fjalla á ný ásamt föraneyti sínu þar sem það mun allt dvelja til næstu jóla.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.