Morgunblaðið - 13.01.1999, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 13. JANÚAR 1999 15
AKUREYRI
Opið prófkjör
A-flokkanna á
Norðurlandi eystra
Ólíklegt
að Kvenna-
listinn
verði með
Á FUNDI viðræðunefnda ura sam-
fylkingu á Norðurlandi eystra um
helgina undirrituðu fulltrúar A-
flokkanna samkomulag um opið
prófkjör um skipan fjögurra efstu
sæta sameiginlegs framboðslista til
Alþingis. Samkomulagið er með
fyrirvara um samþykki kjördæmis-
ráða flokkanna og í því er ákvæði
um að sami flokkur geti ekki hlotið
bæði efstu sæti listans. Hins vegar
ákváðu fulltrúar Kvennalistans að
slíta viðræðum af sinni hálfu og
fara af fundinum.
Sigrún Stefánsdóttir, fulltnli
Kvennalistans í viðræðunefndinni,
sagði að á fundinum hafí ekki verið
neinn vilji til að koma til móts við
fulltrúa Kvennalistans eða hug-
myndir þeirra. „Við lögðum fram
tvær tillögur og fulltrúar A-flokk-
anna eina tillögu en við jnátum það
þannig að samningsvilji af þeirra
hálfu væri lítill sem enginn."
Sigrún sagði að Kvennalistinn
hafí lagt til að girðing yrði við
þriðja sætið, þannig að öllum fram-
boðunum yrði tryggt eitt sæti af
þremur efstu.
Vonbrigði en ekki áfall
I fréttatilkynningu viðræðu-
nefnda A-flokkanna segir að upp-
hafleg krafa Kvennalistans hafi
verið að öllum flokkunum yrði
tryggt eitt af þremur efstu sætun-
um. „Undir lokin buðu þeir að fall-
ist yrði á að tryggingin yrði fyrir
einu af fjórum efstu sætunum gegn
því skilyrði að ákvæðið um að sami
flokkur gæti ekki hlotið tvö efstu
sætin yrði fellt út. Á það gátu A-
flokkarnir ekki fallist."
Finnur Birgisson, fulltrúi Al-
þýðuflokks í viðræðunefndinni,
sagði að útganga Kvennalistans
væri fulltrúum Á-flokkanna nokk-
ur vonbrigði en ekki áfall. Hann
sagði samfylkingarhugmyndina
fyrst og fremst snúast um að sam-
eina krafta jafnaðannanna og hún
hafi frá upphafi verið knúin áfram
af almennum vilja fólks úr A-flokk-
unum.
---------------
Prófkjör Samfylkingar
á Norðurlandi eystra
Finnur í
framboð
FINNUR Birgisson, arkitekt á
Akureyri og formaður kjördæmis-
ráðs Alþýðuflokksins á Norður-
landi eystra, hefur ákveðið að gefa
kost á sér í prófkjör Samfylkingar-
innar í kjördæminu.
Finnur segir í fréttatilkynningu
að framboð sitt sé án afsláttar, þar
sem hann vilji gefa kjósendum í
prófkjörinu óskorað vald til þess að
leiða í ljós raunverulegt fylgi og
styrkleika einstaklinganna innan
hins nýja stjómmálaafls.
Sölustadir GSM Frelsis
Nýherji
Radíómiðun
Kaplan
Hátækni
Heimilistæki
Rafmætti
Símvirkinn
Smith & Norland
Elko
BT
Prentsmiðjan Oddi
Tölvuþj. Akranesi
Tölvu og rafþj.
Suðl.
Eyjaradíó Vmey.
Naust Akureyri
Hljómsýn Akranesi
Árvirkinn
Rafeind
Bókval Akureyri
Verslanir Símans
og pósthús um allt land
Select
Opið allan sólarhringinn
GSM Frelsis skafkortið
kostar 2000 krónur
SIMINN-GSM
www.gsm.is/frelsi
Áfylling á GSM Frelsi er einföld.
Þú kaupir skafkort á næsta sölustað,
hringir í 1441 og stimpLar inn
LykiLnúmerið.
mbl.is mbl.is mbl.is mbl.is mbl.is mbl.is mbl.is mbl.is mbl.is mbl.is mbl.is mbl.is mbl.is
hefst í dag kl. 10.00
Nýtt kortatímabil byrjar fimmtud. 14. janúar
PIPAR OG SALT
Klapparstíg 44 - sími 562 3614