Morgunblaðið - 13.01.1999, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 13.01.1999, Blaðsíða 23
MORGUNBLABIÐ ERLENT MIÐVIKUDAGUR 13. JANÚAR 1999 23 Ný tillaga um framtíð Austur-Tímor Opnað fyrir mög’uleikann á fullu sjálfstæði Adeleide. Reuters. Þrír kunnir gyðingar skrifa Clinton bréf _ Askorun um lausn Pollards Los Angeles. Reuters. JOSE Ramos Horta, útlægur leið- togi andspyrnuhreyíingar Austur- Tímora, fagnaði í gær stefnubreyt- ingu áströlsku stjórnarinnar, sem kveðst nú vera hlynnt því að Austur- Tímor fái aukna sjálfstjórn og íbúun- um verði síðan gefínn kostur á að greiða atkvæði um sjálfstæði þegar fram líða stundir. Astralía er eina ríkið utan Asíu sem hefur viðurkennt yfíiTáð Indónesíu yfír Austur-Tímor og hefur hingað til aðeins stutt þá hugmynd að land- svæðið fái aukna sjálfstjórn. Alexand- er Downer, utanríkisráðhen'a Ástral- íu, sagði hins vegar í gær að Astralar væru hlynnth- því að deilan um Aust- ur-Tímor yrði leyst með sama hætti og deilan um sjálfstæði Nýju Kaledóníu, eyju í sunnanverðu KyiTahafí. Frakkar hafa haft yfm'áð yfír eyjunni en samþykktu á liðnu áiá að veita henni aukna sjálfstjórn og heimila þjóðai’atkvæðagi-eiðslu um sjálfstæði eftir fimmtán ár. Downer sagði að stjórn Astralíu teldi að sjálfstæði Austur-Tímor væri enn „næstbesta lausnin". Að- skilnaður Austur-Tímor gæti orðið til þess að Indónesía leystist upp og valdið óstöðugleika í Austur-Indíum. Astralar teldu hins vegar ijóst að Austur-Tímorar myndu ekki fallast á tilboð Indónesa um aukna sjálfstjórn nema þeim yrði gefín kostur á þjóð- aratkvæðagreiðslu um sjálfstæði þegar fram líða stundir. Ibúarnir fengju þannig tækifæri til að meta hvort stjómvöld í Indónesíu stæðu við tilboð B.J. Habibie, forseta landsins, um að Austur-Tímor fengi víðtæka sjálfstjórn. Ramos Horta kvaðst vera mjög ánægður með stefnubreytingu Ástrala og sammála henni um að hægt væri að leysa deiluna um fram- tíð Austur-Tímors með sama hætti og í Nýju Kaledóníu. „Eini munurinn er sá að aðskilnaðarsinnarnir í Nýju Kaledóníu fást við siðmenntaða stjórn í París, en við glímum við villi- menn ... her Indónesíu.“ Hann sagði þó að hugsanlegt væri að íbúar Austur-Tímor myndu sam- þykkja að vera áfram undir yfirráð- um Indónesíu efth’ fímm eða sex ár ef staðið yrði við tiiboðið um sjálf- stjórn og ef stjórnvöld í Indónesíu kæmu á raunverulegu lýðræði og hegðuðu sér „á siðaðan hátt“. Austur-Tímor var portúgölsk ný- lenda til ársins 1975 og Indónesar innlimuðu landsvæðið með hervaldi ári síðar. Norður-Irland Yalda- framsal í mars? Belfast. Reuters. BRESKIR stjómarerindrek- ar sögðu í gær að bresk stjórnvöld hygðust framselja völd sín á Norður-írlandi í hendur heimastjórnarþinginu nýja í Belfast 10. mars næst- komandi. Eykur þetta mjög þrýsting á stjórnmálaleiðtoga á Norður-írlandi um að jafna ágreining sinn um stofnun heimastjórnar með aðild allra stærstu flokka, en án hennar getur ekki orðið af valdafram- salinu. Sambandssinnar á Norður- Irlandi hafa neitað að setjast í heimastjórn með fulltrúum Sinn Féin, stjórnmálaarms írska lýðveldishersins (IRA), nema IRA hefji afvopnun fyrst. Hefur stofnun heima- stjórnarinnar því tafist von úr viti enda eru IRA-menn sem kunnugt er afar tregir til að láta vopn sín af hendi. Halda leiðtogar Sinn Féin því aukin- heldur fram að ekki sé að fmna í friðarsamkomulaginu nein ákvæði sem gera afvopn- un IRA að skilyrði þess að Sinn Féin fái aðild að heima- stjórninni. ÞRIR kunnir gyðingar hafa skorað á Bill Clinton, forseta Bandaiíkjanna, að sýna „miskunn“ og sleppa Jonath- an Pollard, Bandaríkjamanni, sem staðinn var að því að njósna fyrir ísraela, laus- um úr fangelsi. Þeir, sem undir áskorunina skrifa, eru Edgar Bron- fman, forseti AI- heimsráðs gyð- inga, Elie Wiesel, friðarverðlaunahafí Nóbels, og Alan Dershowitz, lagaprófessor við Har- vard-háskóla.. I bréfínu, sem þeir sendu frá sér, biðja þeir einnig um fund með Clinton. Clinton hét því í október, þegar hann hafði milligöngu um Wye-sam- komulagið milli ísraela og Palest- ínumanna, að mál Pollards yrði tek- ið til skoðunar en þá hafði Benjamin Netanyahu, forsætisráðherra Isra- els, krafíst þess, að frelsi Pollards yrði hluti af samkomulaginu. Sam- starfsmenn Clintons ýmsir og leyni- þjónustumenn vara Clinton hins vegar harðlega við því að sleppa Pollard, sem byrjaði að afplána lífs- tíðardóm árið 1986.. í bréfínu, sem Reuters-fréttastof- an fékk afrit af, segja höfundarnir, að afbrot Pollards séu fyrirlitleg og þeir vilji ekki reyna að réttlæta þau á neinn hátt. I ljósi þess, að hann hafi setið lengi í fangelsi og marg- sinnis iðrast gerða sinna, vilji þeir samt biðja Clinton að sýna honum miskunn og veita honum frelsi. Svo leynileg að þau eru ekki nefnd á nafn Pollard, sem er haldið í sérstöku öi’yggisfangelsi í Butner í Norður- Karólínu játaði 1986 að hafa afhent ísraelsku leyniþjónustunni mjög mikilvæg skjöl. Frá því segir líka í grein, sem birtist sl. mánudag í tímaritinu New Yorker. Vitnar höf- undur hennar, rannsóknafréttamað- urinn Seymour Hersh, í „háttsetta menn“ í bandarísku leyniþjónust- unni og hefur eftir þeim, að Pollard hafi komið áleiðis upplýsingum um afar leynilegt eftirlitskerfi og upp- lýsingum um önnur kerfi, „sem eru svo leynileg, að þau hafa aldrei ver- ið nefnd á nafn opinberlega". Pollard hefur oft vísað á bug yfír- lýsingum af þessu tagi og segir, að stjórnvöld hafi ekki sagt rétt frá því efni, sem hann kom í hendur Israel- um. Jonathan Pollard Þnggja punkta öryggisbelti meö strekkjurum og höggdempurum fyrir alla farþega bílsins, líka aftur í. Farangursrými stækkaö meó einu handtaki. Veró 1.678.000 y Það er líkt og Renault Mégane Scénic stækki þegar þú sest inn í hann, enda er hann fyrsti fjölnota- bfllinn í flokki bfla í millistærð. Segja má að Scénic sé í raun þrír bflar, fjölskyldubíil, ferðabfll og sendibfll. Hann er aóeins 4,23 m á lengd en hugmyndarík hönnun og mikið innanrými gerir hann ótrúlega notadrjúgan og hagkvæman fyrir einstaklinga og fjölskyldur. Pað er því engin furða þó hann hafi umsvifalaust verið valinn bíll ársins af öllum helstu bílatímaritum í Evrópu þegar hann var kynntur. Hér á landi hefur hann þegarfengið frábærar viðtökur. Mégane Scénic stækkar þegar þú sest inn í hann: Rýmiö kemur á óvart, þú situr hátt og hefur því frábært útsýni. Góö lesljós í farþegarými, leslampi yfir framsætum, Ijós í farangursrými.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.