Morgunblaðið - 13.01.1999, Síða 37

Morgunblaðið - 13.01.1999, Síða 37
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR MIÐVIKUDAGUR 13. JANÚAR 1999 37 * heim aftur og eignuðumst börn urðu þau eins og barnabörnin þeirra, enda er aldrei talað um þau á heimili okkar öðruvísi en afa og ömmu í Danmörku. Anna hélt upp- teknum hætti eins og hún gerði við okkur bræður í bernsku og sendi bömum okkar alltaf jóladagatal og var það árvisst tilhlökkunarefni. Eldri börnunum tveimur, Pétri og Tinnu, buðu þau til sumardvalar hjá sér þegar þau voru 11 ára og þannig urðu tengslin við næstu kynslóð enn sterkari. Tíðar heimsóknir Önnu og Peders til íslands urðu líka til þess að binda þessi hlýju bönd enn nánar og þegar við tókum við forráðum fjölskylduhússins á Túngötu var það sjálfsagður hlutur að amma og afl í Danmörku dveldu hjá okkur. Anna hafði yndi af að halda boð og voru afmæli hennar sem haldin vora í Vík víðfræg. Þar hittust Is- lendingar og Danir og snæddu og drukku tímunum saman við lang- borð úti undir krónum trjánna í yndislegu veðri, því það brást ekki að veðrið var gott í afmælum Önnu. Hún var uppátektasöm og í einni slíki-i veislu urðu allir boðsgestir að fleygja tómum drykkjarílátum aftur fyrir sig út í garðinn áður en þeir fengju ábót. Kostulegt var að sjá siðprútt fólk framkvæma þetta og kafroðna á eftir en skellihlæja síðan að öllu. Gestrisni Önnu var einstök. Hún var mjög ættrækin og frændur hennar og frænkur, jafnt úr móður- og föðurætt, voru alla tíð aufúsu- gestir á heimili hennar. Heimili Önnu og Peders var eins og áning- arstaður fyiir íslendinga sem áttu leið um Kaupmannahöfn. í kjallar- anum á Överodvej er stofa - havestuen - þar sem ávallt stóð uppbúið rúm til reiðu fyrir hvem þann íslending sem Anna vissi af að væri í bænum og væri í vandræðum, þótt það væri ekkert skilyrði. Anna var mikill forkur til vinnu og var sívinnandi við þýðingar sín- ar. Hún vélritaði svo hratt að það hljómaði eins og stanslaust suð fremur en venjulegur ásláttur þeg- ar hún sló lyklana. A sumrin sat hún úti í garði heima með ritvélina sína því hún var sóldýrkandi af verstu gerð. Ef sólin skein þá rauk hún út hvort sem það var með matinn eða vinnuna og sat þar meðan sólar naut. Við af íslandi, sem ekki vorum vön þessu, sáum ekkert nema flug- ur og pöddur í hverju horni og leið hreint ekki vel að borða mat innan um allt þetta skordýralíf. En þetta vandist og nú erum við næstum jafn slæm sjálf þótt tækifærin séu ekki jafnmörg hér á Fróni, né pöddurn- ar. Anna var stolt af uppruna sínum og var ófeimin að láta vita af því, enda rækti hún frændfólk sitt svo af bar. Hún var ekki síst stolt af föður sínum og vísindastörfum hans og er enginn vafi á að störf hans urðu til þess að vekja áhuga hennar á þýð- ingum í læknisfræði, sem varð sér- grein hennar. Hún þýddi meðal annarra merkra rita kennslubók eftir föður sinn. Þannig má segja að Anna hafi fetað í fótspor hans í viss- um skilningi því að þýðingar á dokt- orsritgerðum og fræðigi-einum lækna krefjast mikilla rannsókna og vísindalegrar íhygli. Þannig vissi hún um margar nýjungar í lækna- vísindum áður en þær komu fyrir annarra sjónir. Hún fylgdist líka mjög vel með á sínu sviði og fór reglulega í námsferðir til Englands og fékk oft inni hjá konunglega enska læknafélaginu til að kynna sér orðaforða í nýjum greinum læknisfræðinnar. Anna var ævinlega heilsuhraust enda hugsaði hún mikið um að halda sér við bæði líkamlega og andlega. Leikfimi stundaði hún heima og síðustu árin í félagi eldri borgara og fór í göngutúra um skógarstígana í nágrenninu með Peder og dætrum sínum. Hennar andlega leikfimi fólst í að spila bridds með Peder og kepptu þau með sínum klúbbi í mörg ár. Hún var ástríðuspilari og kappsöm mjög í bridds eins og öðru og oft var gam- an fyrir okkur sem ekkert spilum þegar þau komu heim á kvöldin eft- ir briddskeppni og fengu sér te og hafrakex með osti og fóru yfir vit- leysurnar sem hitt hafði gert. Anna varð stúdent frá Mennta- skólanum í Reykjavík 1933, þá að- eins átján ára gömul enda framúr- skarandi nemandi. Hún hafði sterk- ar taugar til skólans enda átti hún ættir að rekja til hans, en móðurafí hennar var Björn Jensson, yfír- kennari í Menntaskólanum, og móð- ir hennar var alin upp í skólanum þar sem fjölskyldan bjó. Þegar Anna átti stúdentsafmæli kom hún ævinlega til íslands til að taka þátt í hátíðahöldunum og til að hitta sína gömlu skólafélaga, sem fögnuðu henni. Hún hélt góðu sambandi við alla skólavini sína og höfðum við tækifæri til að vera viðstödd sam- fundina á heimili Önnu oftar en einu sinni og voru það yndislegar stundir og fagnaðarfundir. Þegar Anna var 60 ára stúdent kom hún heim eins og venjulega og hélt mjög eftirtektarverða ræðu við skólaslitaathöfnina í Háskólabíói þar sem hún biýndi fyrir nýstúd- entum að rækta vel líkamann og stunda heilaleikfimi og þar væri bridds besta leikfímin. Ef þau gerðu þetta gætu þau líka orðið svona hressir 60-ára stúdentar eins og hún. Þetta féll í mjög góðan jarðveg og vakti hrifningu og umræður meðal nýstúdentanna. Var tekið við- tal við hana í Morgunblaðinu í til- efni af þessari ræðu og afmælinu. Þegar Menntaskólinn í Reykjavík hélt upp á 150 ára afmæli sitt 1996 með skrúðgöngu og hátíðarfagnaði kom Anna heim til að missa ekki af neinu. Þótt hún væri þá farin að bila í hnjám lét hún það ekki á sig fá og naut augnabliksins til fulls í ör- stuttri heimsókn. A síðustu tveimur árum tók Anna að eldast hratt og vegna stirðleika í hnjám, sem ekki tókst að lækna þrátt fyrir aðgerðir, gat hún ekki stundað líkamsræktina sem var henni svo mikilvæg. Meiðsli á hendi komu í veg fyrir að hún gæti stund- að vinnuna sína og voru það henni mikil vonbrigði. Nokkrum vikum fyrir andlát sitt brotnaði hún um mjaðmarlið og eftir þrjár árangurs- lausar aðgerðir var útséð um að hún kæmist heim á Dverodvej aftur. Þegar henni var tjáð að hún yrði að fá vist á hjúkrunarheimili varð henni að orði: Það er ekki minn stíll! Andlát Önnu bar að örfáum klukku- stundum seinna. Hið sviplega fráfall Dísu dóttur hennar meðan hún lá á spítalanum hefur vafalítið átt sinn þátt í að hinn sterki lífsvilji hennar varð undan að láta. Þau Peder, Nanna og Peder yngi'i hafa mátt reyna mikla sorg að sjá á bak þeim tveimur á svo skömmum tíma. Samúð okkar og hugur er hjá þeim. Með Önnu er genginn kröftugur fulltrúi íslands á erlendri grund. Hún og eftirlifandi eiginmaður hennar, ljúflingurinn Peder David la Cour, voru okkur sem foreldrar á meðan við dvöldum í Danmörku og börnum okkar alla tíð afi og amma í Danmörku. Við munum ætíð búa að því hveraig þau tóku á móti okkur og urðu þess valdandi að Danmörk er okkar uppáhaldsútland. Svona fólk brúar höfin og tengir þjóðir. Blessuð sé minning mikilhæfrar konu. Jónína Margrét Guðnadóttir og Sveinn Snæland. Okkur langar til að minnast okk- ar kæru frænku Önnu Claessen la Cour sem nú er nýlátin. Mikill sam- gangur var á milli heimila foreldra okkar þar sem feður okkar voru bræður og var mjög kært með þeim. Þegar önnur hvor okkar veiktist lítillega var Gunnlaugur frændi, eins og við kölluðum föður Önnu, alltaf mættur á staðinn. Dætur Gunnlaugs og Þórdísar konu hans voru tvær, Þórdís sem kölluð er Dída og Anna sem hér er minnst. Önnu kynntumst við lítið fyn- en á fullorðinsárum því hún fór korn- ung til útlanda til náms eftir stúd- entspróf sem hún tók aðeins 17 ára gömul. Fyrst fór hún til Danmerkur og síðan til Englands. Hún gerðist löggiltur skjalaþýðandi í ensku í Kaupmannahöfn með læknisfræði- leg rit sem sérgrein. Má þar nefna að hún þýddi yfir á ensku doktors- ritgerð doktors Friðriks Einarsson- ar sem hann skrifaði á dönsku. Var Anna talin, að hans sögn, ein af bestu skjalaþýðendum í Danmörku á þessu sviði. Einnig þýddi Anna mörg rit föður síns á ensku. Gunn- laugur varð doktor í læknisfræði við Karolinska Institutet í Stokkhólmi 1928. Viðfangsefni hans var á sviði röntgenlækninga. Hann samdi á dönsku kennslubók í ljóslækninga- fræðum sem lengi var notuð sem kennslubók á Norðurlöndum. Önnu kynntumst við fyrst veru- lega þegar við fórum að venja kom- ur okkar til Danmerkur. Þá var hún gift Peter la Cour bankamanni. Var heimili þeiraa alltaf opið ættingjum þegar komið var til Kaupmanna- hafnar. Peter talar ekki íslensku en hann skilur hana því betur. Okkar börn hafa notið góðs af gestrisni Önnu og Peters, einkum Hjörtur Reynir, sem hafði þar athvarf í þrjá vetur við nám og einnig í styttri heimsóknum. Alltaf vora nógar veitingar þó að fyrirvari væri oft lítill. Ég veit ekki betur en að þau tækju alltaf einn dag í matreiðslu og legðu til hliðar til að hafa einhverjar veitingar þeg- ar gest bar óvænt að garði sem oft var. Að sögn Hjartar Reynis voru þau fastheldin á gamlar venjur og má til gamans geta þess að þau fengu sér alltaf eitt sérríglas klukk- an 17 á hverjum degi og klukkan 22 var kvöldkaffí með svokölluðu frí- merki sem var lítil rúgbrauðssneið með osti. Peter var sérlega húsleg- ur enda veitti ekki af því að þau væru samhent í matreiðslu. Anna vann alltaf sína vinnu heima. Var hún fljót að tileinka sér þá tækni sem tölvur voru þegar þær komu á markaðinn. Peter vann einnig fulla vinnu í bankanum. Un- aðsreitur þeirra var sumarbústað- ui'inn í Vík úti á Sjálandi og nutu margir góðs af honum. Anna mat bekkjarsystkini sín úr Menntaskólanum mikils og kom hún alltaf heim á fímm ára fresti til að fagna með þeim á stúdentsaf- mælum, nema á stríðsárunum frá 1939 til 1945. Það voru gleðidagar þegar Anna kom heim með Dísu litlu 1945 þegar stríðinu lauk. Var hún í fyrstu ferð sem farin var með Catalínuflugbáti til íslands. Nú hefur Anna frænka kvatt. Blessuð sé minning hennar. Kristín Claessen og Laura Claessen Nú er hún elsku amma mín í Danmörku látin. Anna la Cour hefur alla tíð verið ein af þeim manneskjum sem mér þykir vænst um. Fyrstu minningar mínar um hana tengjast jólunum, því hún sendi okkui' Tinnu systur alltaf risastórt jóladagatal úr papp- ír, sem við skemmtum okkur svo við að setja saman og stilla upp á besta stað í húsinu. Á jólum og afmælis- dögum gaf hún mér alltaf harðan pakka, því hún vissi vel hvemig best mátti gleðja litla frænda sinn á ís- landi. Við systkinin vorum stolt af því að eiga svona góða ömmu í út- löndum. Amma i Danmörku var líka sér- lega dugmikil og lífsglöð kona. Vinnu sinni og félagsstörfum sinnti hún af mikilli samviskusemi og vandvirkni og leyndi sér aldrei*^- áhugi hennar á viðfangsefnum sín- um. Það kom okkur þvi ekki mikið á óvart þegar hún, komin hátt á átt- ræðisaldurinn, lagði gömlu góðu rit- vélinni sinni og notaði hennar í stað tölvu og ritvinnsluforrit af nýjustu gerð. Hún var nokkrum áratugum eldri en næstelsti nemandinn á tölvunámskeiðunum sem fylgdu með í kaupunum. Fyrir nokkrum árum fékk ég að búa í „havestuen“ hjá Önnu og Pétri um nokkurra mánaða skeið meðan ég var í námi. Þar var gaman að vera og áttum við margar ánægju- legar stundir saman. Eftirminnileg- ustu stundirnar voru þó þegar við sátum yfir „natmad“ - kexi með osti ásamt bjór og stöku brennivíns- staupi. Þar var talað um allt milli himins og jarðar og oft hlegið dátt. Þau hjónin kunnu að segja skemmtilega frá og höfðu líka frá mörgu að segja eftir langa og við- burðaríka ævi. Þessi stutti tími hjá þeim í Holte er ógleymanlegur og verður mér alltaf kær. Guð blessi hana og fjölskyldu hennar. Pétur S. Snæland. Anna la Cour, frænka mín, er gengin. Hún var mikil kona, stór- gáfuð, fróð og með skemmtilegustu persónum sem ég hef kynnst. Hún fór ung til náms í Kaupmannahöfn, kynntist þar og giftist lífsástinni sinni, eignaðist þar dætur sínar og sinnti þar starfí sínu, sem var að þýða doktorsritgerðir lækna yfir á ensku og þótti einstaklega fær í því. Anna og Peter la Cour, eiginmað- ur hennar, tóku alltaf á móti ætt- ingjum frá Islandi opnum örmum, ótal ættingjar og vinir fengu frá-*^ bærar viðtökur og gistingu um lengi’i og skemmri tíma. Viðtökurn- ar voru þannig að hverjum og ein- um fannst þeir vera einstaklega vel- komnir, hjartahlýjan og gleðin ríkti, og í samtölunum fólst alltaf eitthvað sem auðgaði einhvern veginn svo mikið andann. Þau Anna og Peter gáfu mikið, sem við sem kynntumst þeim getum gefið áfram af okkur. Þau voru dásamleg fyrirmynd. Ég sendi Pétri, Nönnu og Pétri yngri, sólargeisla og vini ömmu sinnar, innilegar samúðarkveðjur. Dóra Thoroddsen. Móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang- amma, UNNUR VILHJÁLMSDÓTTIR, Siéttuvegi 13, áður Snorrabraut 71, lést á Landspítalanum mánudaginn 11. janúar. Útförin verður auglýst síðar. Sveinbjörn Kristjánsson, Arnbjörg Óladóttir, Elín Kristjánsdóttir, Teitur Lárusson, Hörður Kristjánsson, Óiöf Antonsdóttir, Sigríður Kristjánsdóttir, Sveinn Ævarsson, barnabörn og barnabarnabörn. t Ástkaer eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir og afi, ÓLAFUR BJÖRNSSON loftskeytamaður, Vík ( Mýrdal, varð bráðkvaddur á heimili sínu föstudaginn 8. janúar. Útförin fer fram frá Víkurkirkju laugardaginn 16. janúar ki. 14.00. Elín Tómasdóttir, Björn Ármann Ólafsson, Susan N. Ellendersen, Einar Hjörleifur Ólafsson, Anna M. Hjálmarsdóttir, Sigurbjörg B. Ólafsdóttir, Gunnar Óskarsson, Guðrún S. Ólafsdóttir, Sigurborg Á. Ólafsdóttir, Valgeir F. Backman, barnabörn og barnabarnabörn. + Elskuleg eiginkona mín og móðir okkar, tengdamóðir og amma, GUÐRÚN GUÐLAUGSDÓTTIR, sem lést á heimili sínu sunnudaginn 3. janúar, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju fimmtu- daginn 14. janúar kl. 15.00. Helgi Þorsteinsson, Elín Helgadóttir, Gunnar Hákon Jörundsson, Guðlaugur Már Helgason, og barnabörn. + Ástkær faðir okkar, tengdafaðir og afi, SIGURÐUR JÚLÍUSSON, Skúlaskeiði 5, Hafnarfirði, er andaðist á Sjúkrahúsi Reykjavíkur fimmtu- daginn 7. janúar, verður jarðsunginn frá Hafnarfjarðarkirkju föstudaginn 15. janúar kl. 15.00. Þeim, sem vilja minnast hans, er vinsam- legast bent á að láta Krabbameinsfélagið njóta þess. Margrét Sigurðardóttir, Elísabet Sigurðardóttir, Eyþór Guðlaugsson, Sarah Sigurðardóttir og barnabörn.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.