Morgunblaðið - 13.01.1999, Side 44
44 MIÐVIKUDAGUR 13. JANÚAR 1999
MORGUNBLAÐIÐ
Dýraglens
HÆ,$ANPtZA! /MVMDip PO UlVJA KDMA MÉR A NVÁIZSBA - ■ ArsAKlf>.. Þ£TTA .NLVrOfZ AE> \IERA SKAK-KT NÚ/MER, HAl j
\A íK WJ ylji'li X .y w
iu, JÆ7A, fVesr ÞÚ eRTÁ LÍN-
NNI-tSÆT1R^Í> HLKTSA&ÞeJ?
m
UNNI-________________
- AO FARA'A SA-tt- •A lS/VHi.A-
V___________ j, _ KRSKVÖ LP?
Hundalíf
Spilaði Beethoven ein- Hann áleit eflaust að
hvern timann „Bjöllu- hann væri of góður til að
hljóð“? leika „Bjöiluhljóð"
Ef ég hefði verið þar
hefði ég sagt:
„Heyrðu, Lúðvig,
leiktu „Bjölluhljóð“!“
BRÉF
TIL BLAÐSINS
Kringlan 1 103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329
Því svo elskaði
Guð heiminn?
Frá Guðrúnu Sæmundsdóttur:
HVERNIG skyldi tilveran vera ef
við þyrftum ekki að lúta neinum regl-
um, nú eða að þær reglur sem við bú-
um við mættu túlkast eftir okkar eig-
in geðþótta? Tilveran yrði gríðarlega
hættuleg ef umferðarreglur, flugum-
ferðarreglur og sjóferðareglur færu
eftir geðþóttaákvörðunum okkar við
túlkun þeirra í stað þess sem nú er.
Nú, málið er það að undanfarin ár
hef ég í vaxandi mæli heyrt þær
raddir að lög Guðs til okkar mann-
anna séu túlkunaratriði hvers og
eins. Okkm' sé nefnilega algjörlega í
sjálfsvald sett hvemig við túlkum Bi-
blíuna, hún sé hvort eð er svo gömul
og eigi ekki við í tæknivæddu þjóðfé-
lagi og þýðingarnar séu mjög svo óá-
reiðanlegar. Þetta er ekki rétt. Við
íslendingar eigum mjög góða fræði-
menn sem annast útgáfu Biblíunnar
og þeir kasta ekki til þess höndunum.
Sumir halda því jafnvel fram að Kór-
aninn sé stytt útgáfa af Biblíunni.
Ekkert er fjarstæðara, Kóraninn
segir frá allt öðrum Guði heldur en
Biblían sem er orð Guðs til okkar
mannanna - hún er handbók í því
hvernig við eigum að lifa til að hljóta
náð Guðs, hvað við verðum að forðast
ef við ætlum að tilheyi-a Guði og eiga
öruggt athvarf hjá honum bæði í líf-
inu og í dauðanum.
Reyndar segir hún okkur það að
við getum öðlast eilíft líf fyrir að
meðtaka Jesú Krist sem frelsara
okkar og þá munum við aldrei deyja.
Það er nú ekkert smáræði.
Það er eðlislægt hverjum manni að
leita þess andlega, það er eins og það
að fá andlegt heimili sé manneskj-
unni jafn mikilvægt og það að búa
sér veraldlegt heimili.
Það eru margar leiðir í boði tO að
fullnægja þessari þörf, miðlar, spám-
iðlar, antikiistsmiðlar (þeir segja að
þeir séu að taka við skilaboðum frá
Jesú eða englum Guðs), dulspeki,
jóga, hugleiðsla, spákonur, heilun,
stjömuspeki, reiki, allskyns austræn
trúarbrögð, nýaldarfræði og svo
mætti lengi telja. Þetta er ekkert
nýtt og um þessa hluti má lesa víðs-
vegar í ritningunni. Biblían kallar
þetta allt einu nafni, sem er skurð-
goð, og þá sem iðka þetta skurðgoða-
dýrkendur, því bak við þetta allt eru
andar sem fólk gefur sig á vald með
því að iðka þessi fræði. Þessir andai-
eru ekki frá Guði, og flestir segjast
þeii- tilheyra alheimsljósi, þetta al-
heimsljós er í raun og sanni mikið
myi'kur, en sá Guð sem Biblían segir
frá og er hinn eini almáttugi Guð
skapai-i himins og jarðar er ekki
þetta alheimsljós.
Hið sanna ljós er Guð og leiðin til
hans er Jesús, hann segir: ég er veg-
urinn sannleikurinn og lífíð, enginn
kemst til fóðurins nema fyrir mig.
Sæll er sá er gerir Jesú að sínu and-
lega heimili. Jesús situr við hægri
hönd Guðs fóður almáttugs og Guð
hefur lagt allt undir fætur hans.
Jesús Kristur er ofar hverri tign og
valdi og mætti, hann er ofar hverju
nafni sem nefnt er ekki aðeins í þess-
ari veröld heldur og hinu komandi.
Nýaldarsinnar tala oft um hina
svokölluðu helgistjórn sem á að vera
einskonar valdapýramídi á innri svið-
um. Þetta skipurit þeirra setur svo-
kallað alheimsljós ofar Jesú og setur
Jesú á bekk með Búdda hvað varðar
völd og áhrif. En sem betur fer er
þetta fánýt vitleysa og gleðilegu
fréttirnar eru þær að það er sama
hvað dulspekingar búa til mörg
skipurit yfír skurðgoð sín, þau munu
öll verða fótum troðin af hinum
hæsta. Og vei þeim sem þá er undir
þessi skurðgoð seldur sama hvaða
tignarheiti þau bera, því ekki mun
hann eiga hlutdeild í hinu eilífa lífi
sem Jesús gefur sínum.
Stórkostlegur er gleðiboðskapur
jólanna: Því svo elskaði Guð heiminn
að hann gaf son sinn eingetinn svo að
hver sem á hann trúir glatist ekki
heldur hafi eilíft líf. Þennan son gaf
Guð þér til að þú fáir fyrir þá fóm
sem færð var á krossinum, fyrirgefn-
ingu allra synda þinna og þar með
öðlast þú eilíft líf. Ekki bíða þar til
seinna, taktu við gjöfinni í dag. Guð
elskar syndarann en hatar syndina.
Það skiptir engu hvaða synd þú hefur
drýgt. Kannski ert þú miðill, jógaiðk-
andi, heilari, þjófur, fíkniefnasali,
bamaníðingur, morðingi, kynferðis-
lega brenglaður(uð), hefur látið eyða
fóstri, sadisti eða hvað sem hægt er
að nefna, komdu til Jesú og biddu
hann að fyrirgefa þér syndir þínar og
hjálpa þér að sigrast á þeim, biddu
Jesú um að koma í hjarta þitt og gefa
þér sinn frið, sem er ofar öllum mann-
legum skilningi. Bænir þínar munu
heyrast, og gott bænalíf sem þú getur
átt mun breyta lifi þínu. Þar sem áður
var bölvun mun Guð veita blessun.
Byrjaðu að lesa Biblíuna, best er að
byija á Nýja testamentinu og halda
svo áfram í Postulasögunni og post-
ulabréfunum. Orð Guðs er lifandi og
við einlæga lesningu nærumst við af
Guðs heilaga anda, biddu Guð um að
vera með þér alla daga og nætur og
fylla líf þitt af sér. Drottinn blessi þig
og varðveiti í Jesú nafni.
GUÐRÚN SÆMUNDSDÓTTIR,
Hverfisgötu 24, Hafnarfirði.
fþrótta-
hreyfingin
á hálum ís
Frá Sigurjóni Þórðarsyni:
MILLI jóla og nýárs var birt yfirlýs-
ing m.a. frá forseta Iþrótta- og
Ólympíusambands íslands og for-
manni Ungmennafélags Islands þar
sem þeir tóku þátt í því að fordæma
Astþór Magnússon, í nafni hreyfinga
sinna. Tilefni fordæmingar forsvars-
manna íþróttahreyfinganna var deila
Ástþórs og Halldórs utanríkisráð-
herra um flutning jólapakka til
Bagdad. Því verður vart á móti mælt
að Ástþór fór offari í málflutningi
sínum gegn Halldóri og spillti fyrir
málstað sínum. Ég tel það meira en
lítið vafasamt að það sé verið að beita
nafni íþróttahreyfingarinnar til for-
dæmingar á mönnum. Ég er nú einn
þeirra sem aldrei hafa fengið botn í
þetta jólapakkamál Halldórs og Ást-
þórs, þrátt fyrir að hafa lesið yfirlýs-
ingu frá yfirvöldum í Morgublaðinu.
SIGURJÓN ÞÓRÐARSON,
varaformaður UMSS.
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fyigir fyrirvari hér að lútandi.