Morgunblaðið - 13.01.1999, Qupperneq 48
48 MIÐVIKUDAGUR 13. JANÚAR 1999
MORGUNBLAÐIÐ
Stórmyndin sem gæti sökkt Titanic
FÓLK í FRÉTTUM
JAKE Lloyd leikur Svarthöfða framtíðarinnar áður en röddin dýpkar
í bassarödd James Earl Jones.
Stjömustríð
nálgast
SAMUEL L. Jackson hefði ekki
vflað fyrir sér að gerast þræll
Loga geimgengils til að fá hlut-
verk í Stjörnustríði.
STJÖRNUSTRÍÐ er í uppsiglingu
og virðast jarðarbúar bíða þess í of-
væni. „Star Wars: The Phantom
Menace" verður frumsýnd í Banda-
ríkjunum 21. maí og mun að öllum
líkindum verða sumarmyndin í ár.
Raunar er því spáð að hún verði
mynd ársins og gæti jafnvel ógnað
veldi stórmyndarinnar Titanic hvað
aðsókn áhrærir. Þótt erfítt sé að
spá um slíkt eru mörg teikn á lofti. (
Sem dæmi má nefna að almenn-
ingur hópaðist í bíó í Bandaríkjun-
um til að horfa á tveggja mínútna
kynningarmynd fyrir Stjörnustríð í
nóvember og leikföng úr Stjörnu-
stríði hrönnuðust upp í búðarhillum
fyiir jólin. Tilkynning á nafni fyi'stu
myndar þríleiksins olli umferðar-
teppu á netinu þegar netverjar
vildu tjá sig um nafngiftina á heima-
síðunni www.Stai-wars.com.
„Útlit er fyrir að myndar hafí
aldrei verið beðið með meiri
óþreyju í gjörvallri kvikmyndasög-
unni,“ segir Paul Dergarabedian
hjá Exhibitor Relations í samtali við
tímaritið US en fyrirtækið metur
einmitt aðsókn í bíóhúsum.
Þræll Loga geimgengils
Með hliðsjón af ofansögðu þurfti
engum að koma á óvart að leikstjór-
inn George Lucas hefði úr gnótt
leikara að velja þegar hann réð í
hlutverk „The Phantom Menace".
Ewan McGregor úr Trainspotting,
sem hefur helst getið sér orð fyrir
óháðar myndir, stóðst ekki mátið að
leika ungu ofurhetjuna Obi-Wan
Kenobi og feta þar með í fótspor
Alec Guinness sem lék Kenobi á efri
árum. „Stjörnustríðsmyndirnar
taka myndum frá stóru kvikmynda-
verunum langt fram,“ sagði hann.
„Eg get ekki sagt nei.“
Samuel L. Jackson var á sama
máli. Þegar Lucas var að ráða leik-
ara í hlutverkin sumarið 1997 sagði
Jackson í breskum spjallþætti: „Eg
vil bara sitja í sama herbergi og
hann og láta hann vita að ég gæti
jafnvel vel hugsað mér að gerast
þræll Loga geimgengils." Jackson
verður þess í stað í hlutverki Jedi-
stríðsgai'ps eins og Liam Neeson.
Eftir að hafa fengið yfír 3.600
krakka í leikprufu valdi Lucas Na-
EWAN McGregor í hlutverki Nicks Leesons sem var ábyrgur fyrir
gjaldþroti Barings-banka árið 1995.
talie Portman, sem er 17 ára og hef-
ur m.a. leikið í Beautiful Girls og
Leon, og Jake Lloyd, sem er 9 ára
og hefur leikið í Jingle All the Way,
í hlutverk Anakin Skywalkers sem
síðar verður Svarthöfði.
Ahorfendur munu aftur hitta fyr-
ir vélmennin R2D2 og C-3PO, sem
líkt hefur verið við Abbott og
Costello í geimnum, og Yoda sem
Frank Oz mun tala inn á fyrir. John
Williams verður áfram með tónlist-
ina.
Guð minn góður!
Fátt hefur kvisast út um söguþráð
Stjörnustríðsmyndarinnar en
heyrst hefur að hún gerist hjá kyn-
slóðinni á undan síðasta Stjörnu-
stríði. Einnig að þar verði Obi-Wan
Kenobi og Jedi-meistari hans, sem
leikinn er af Neeson, sendir í leið-
angur til að frelsa Padme drottn-
ingu, sem síðar verður móðir Luke
Skywalkers og Leiu prinsessu.
Líklega fást ekki betri meðmæli
með myndinni en orðin „Guð minn
góðui'!" sem hrutu af vörum Steven
Spielbergs eftir að hann hafði séð
brot úr myndinni. Það var einmitt
tæknin sem Spielberg notaði við
gerð Júragarðsins sem kveikti löng-
un Lucasar til að halda áfram gerð
Stjörnustríðsmyndanna og taka að
sér leikstjórn í fyi'sta skipti síðan
hann leikstýrði upphaflega Stjörnu-
stríðinu fyi'ir 21 ári.
Ljóst er að Lucas er við stjórn-
völinn nú sem fyrr. Hann sér um að
fjármagna myndina sjálfur og kost-
ar til þess um 8 milljörðum króna,
en upphaflega myndin kostaði 720
milljónir. Hann hefur því algjört
ákvörðunarvald við gerð myndar-
innar og verður 20th Century Fox
einungis dreifíngaraðili.
„The Phantom Menace" er fyi-sta
Stjörnustríðsmyndin af þremur sem
Lucas ætlar að gera næstu sjö árin.
Hann mun líklega einnig leikstýra
annarri myndinni sem stendur til að
frumsýna árið 2002. Þriðja myndin
verður svo frumsýnd árið 2005.
NATALIE Portman átti stór-
leik í frönsku myndinni Leon og
ætti að geta plumað sig í
Stjörnustríði.
LIAM Neeson eins og hann kom
áliorfendum á Broadway fyrir
sjónir í fyrra í hlutverki Oscars
Wilde í leikritinu Koss Júdasar.
Ljóst er að ekki verður um auð-
ugan garð að gresja í kvikmynda-
húsum þegar Stjörnustríðið verður
fnimsýnt í vor. Önnur kvikmynda-
ver hyggjast halda að sér höndum
minnug þess að bara endursýning
Stjörnustríðsþríleiksins halaði inn
22 milljarða króna árið 1997 og ekki
síður allra þeirra mynda sem féllu í
skuggann af risaskipinu Titanic í
fyrravetur.
ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ sími 551 1200
Sýnt á Stóra sUiði kt. 20.00:
BRÚÐUHEIMILI — Henrik Ibsen
6. sýn. í kvöld mið. uppselt — 7. sýn. sun. 17/1 uppselt — 8 sýn. fös. 22/1
uppselt — 9. sýn. sun. 24/1 örfá sæti laus — 10. sýn. fim. 28/1 —11. sýn.
sun. 31/1.
TVEIR TVÖFALDIR — Ray Cooney
12. sýn. á morgun fim. nokkur sæti laus — lau. 16/1 nokkur sæti laus —
lau. 23/1 - fös. 29/1 - lau. 30/1.
SOLVEIG — Ragnar Arnalds
Fös. 15/1 - fim. 21/1 - mið. 27/1.
BRÓÐIR MINN LJÓNSHJARTA — Astrid Lindgren
Sun. 17/1 kl. 14.00 nokkur sæti laus — sun. 24/1 kl. 14 — sun. 31/1 kl. 14.
Sýnt á Litta soiði kt. 20.00:
ABEL SNORKO BÝR EINN — Eric Emmanuel-Schmitt
Á morgun fim. — lau. 16/1 — fim. 21/1 — lau. 23/1 — fös. 29/1 — lau. 30/1.
Ath. ekki er hægt að hleypa gestum inn í salinn eftir að sýning hefst
Sýnt á SmibaUerkstœði kt. 20.30:
MAÐUR í MISLITUM SOKKUM
Á morgun fim. uppselt — fös. 15/1 uppselt — lau. 16/1 uppselt — sun. 17/1
síðdegissýning kl. 15 — fös. 22/1 uppselt — lau. 23/1 uppsett — sun. 24/1
uppselt — fim. 28/1 — fös. 29/1 uppselt — lau. 30/1 örfá sæti laus.
Miðasalan er opin mánud.—þriðjud. kl. 13—18, miðvikud.—sunnud. kl. 13—20.
Símapantanlr frá kl. 10.00 virka daga. Sími 551 1200.
A SIÐUSTU STUNDU:
Síðustu klukkustund fyrir sýningu
eru miðar seldir á hátfvirði.
Stóra svið kl. 13.00:
IDiiX
eftir Sir J.M. Barrie
Lau. 16/1, nokkur sæti laus,
sun. 17/1, nokkur sæti laus,
lau. 23/1, nokkur sæti laus,
sun. 24/1, örfá sæti laus.
Stóra^svið kl. 20.00:
MAVAHLATUR
eftir Kristínu Marju Baldursdóttur
í leikgerð Jóns J. Hjartarsonar
fös. 29/1.
Verkið kynnt á Leynibar kl. 19.00.
Stóra svið kl. 20.00:
n í sven
eftir Marc Camoletti.
Lau. 16/1, örfá sæti laus,
lau. 23/Í, lau. 30/1.
Litla /;við kl. 20.00:
BUA SAGA
eftir Þór Rögnvaldsson.
Fös. 15/1, nokkur sæti iaus,
fös. 22/1, sun. 31/1.
Miðasalan er opin daglega
frá kl. 13—18 og fram að
sýningu sýningardaga.
Símapantanir virka daga frá kl. 10.
Greiðslukortaþjónusta.
Sími 568 8000 fax 568 0383.
HAFNARFJARÐAR
LEIKHÚSIÐ
Vcsturj>ala 11. Hafnarlirúi.
VIRUS -
Tölvuskopleikur
eftir Ármann Guðmundsson,
Sævar Sigurgeirsson og
Þorgeir Tryggvason.
Sýn. fös. 15. jan. kl. 20
svn. lau. 23. ian. kl. 20
5 30 30 30
Miðasola opin kl. 12-18 og fram að sýningu
sýningardago. Simapantanir virka daga fró kl. 10
ROMMÍ - átakanlegt gamanleikrit- kl. 20.30
lau 16/1, sun 17/1, Iau23/1
ÞJÓNN í SÚPUNNI - drepfyndið - kl. 20
fös 15/1, fim 21/1, fös 22/1
DIMVIAUMM - fallegt barnaleikrit - kl. 16,
sun 17/1, sun 24/1
TÓNLEIKARÖÐ kl. 20.30
Francis Paulanc - alla þriðjudaga í janúari
Tilboð til leikhúsgesta!
20% afsláttur af mat fyrir leikhúsgesti í Iðnó
Borðapantanir í síma 562 9700
Tilboð til leikhúsgesta!
20% afsláttur af mat fyrir leikhúsgesti í Iðnó.
Borðapantanir í síma 562 9700
ISI.I NSkA 01*11« \\
^lili -JSíJ -.1 JjJ ,j
m—
Gamanleikrit í leikstjórn
Sigurðar Sigurjónssonar
fös. 15/1 kl. 20 og 23.30 uppselt
lau. 16/1 kl. 20 og 23.30 uppself
mið. 20/1 kl. 20 uppselt
fös. 22/1 kl. 20 uppselt S
Miðaverð kr. 1100 fyrir karia
kr. 1300 fyrir konur
ajtA'
L.E|KR|T Fy"ih aiáa^
sun 17/1 kl. 14 örfá sæti laus
sun 24/1 kl. 16.30
sun 31/1 kl. 16.30
Ath sýningum lýkur í febrúar
Georgfélagar fá 30% afslátt
Miðasala alla daga frá kl 15-19, s. 551 1475
Gjafakort á allar sýningar
Leikhópurinn Á senunní 5- sVn-1-1 !an kl- 20
uppsell
II- 6.sýn. 17. jan kl. 20
_ iininn wse"
7. sýn. 21. jan kl. 20
TUllKOmni örlásælilaus
IB afninrii 8. syn. 23. |an kl. 20
Jdllllliyi 9. sýn. 26. jan kl. 20
öriá sæli láus
Leikrit eftir Felix Bergsson
í leikstjórn Kolbrúnar Halldórsdóttur
Miðasala í síma 552 3000
Miðapantanir allan sólahringinn
waw
Frumsýning mið. 20. janúar kl. 20.30 örfá sæti laus
2. sýn. fös. 22/1 kl. 20.30. 3. sýn. sun. 24/1 kl. 20.30
Leikstjóri: Guðjón Pedersen. Leikmynd og búningar: Vydas Narbutas.
Tónlist: Egill Ólafsson. Ljós: Lárus Bjömsson. Leikendur: Hilmir Snær
Guðnason, Jóhann Sigurðarson, Guðmundur Ólafsson, Kjartan Bjarg-
mundsson, Sveinn Geirsson, Sigurþór Albert Heimisson, Helgi Björnsson,
Inga María Valdimarsdóttir, Atli Rafn Sigurðarson, Þröstur Guðbjartsson.
MauNn
HAFNARFjARÐAR
LEIKHÚSIÐ
Vcslurj>ala 11. Hafnarlirúi.
VIRUS -
Tölvuskopleikur
eftir Ármann Guðmundsson,
Sævar Sigurgeirsson og
Þorgeir Tryggvason.
Sýn. fös. 15. jan. kl. 20
svn. lau. 23. ian. kl. 20
Miöapantanir í síma 555 0553. Miðasalan cr
opin milli kl. 16-19 alla da&a ncnia sun.
SVARTKLÆDDA
KONAN
fyndið, spennandi, hrollvekjandi ■ eitthvað nýtt
Viðar Eggertsson tekur við
hlutverki Arnars Jónssonar
Lau: 16. jan - endurfrumsýning
allur ágóði rennur til styrktar alnæmissamtakanna
Lau: 23. jan, Fðs: 5. feb, Lau: 6. feb, Fðs: 12. feb
sýningar hefjast klukkan 21:00
Tilboð frá veitingahúsum fylgja öllum miðum
takmarkaður sýninga r f j öId i
TJARNARBÍÓ
Miðasala opin fim-lau. 18-20 & allan
sólarhringinn í síma 561 -0280 / vh@centrum.is