Morgunblaðið - 12.03.1999, Blaðsíða 54
54 FÖSTUDAGUR 12. MARZ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
*
Dýraglens
Ljóska
WU MAVE TO eo TO
5CH00L TOMORROU).. VOU
CAN'T HIPE UNDER HOUK BEP..
SCHOOL ISN'T 50 BAP...
THINKOF ALLTHE THIN65
YOU'RE e0IN6T0 LEARN..
Við hvern ertu að tala?
BREF
TIL BLAÐSINS
Kringlunni 1 103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329
Fjármögnun Blóð-
gjafafélagsins
Frá Birni Harðarsyni:
ÞANN 24. febrúar síðastliðinn var
haldinn aðalfundur BGFI í húsa-
kynnum Landspítalans. Efni fund-
arins var með
hefðbundnu að-
alfundarsniði.
Hetjublóðgjöf-
um veitt viður-
kenningarskjöl
fyrir að hafa
gefið 50, 75 og
100 sinnum
blóð. 51 blóð-
gjafi fékk viður-
kenningu fyrir
50 blóðgjafir, 11 fyrir 75 gjafir og 3
fyrir að hafa gefið blóð 100 sinn-
um. Að auki fékk „gjafakóngur-
inn“ okkar viðurkenningu fyrir 125
blóðgjafir. Þeir sem náðu 100 gjafa
markinu að þessu sinni voru:
Hávarður Emilsson, Sölvi Þór
Þorvaldsson og Ögmundur Krist-
insson. Sem fyrr er Þórður Berg-
mann Þórðarson sá sem gefið hef-
ur manna mest af blóði hér á landi.
Stjórn félagsins var endurkjörin.
Fræðsluerindi voru flutt á fund-
inum. Þar sagði Pétur Þorsteinsson
stjómarmaðin- í BGFI frá heim-
sókn sinni til Damnerkur þar sem
hann kynntist starfsemi blóðgjafa-
samtakanna þar í landi. I máli hans
kom fram sá gífurlegi aðstöðumun-
ur sem er á félögunum þar og hér,
en þar eru blóðgjafafélögin viður-
kennd sem nauðsynlegur hluti af
blóðgjafastarfseminni. Sigríður
Ósk Lárusdóttir hjúkmnarfræð-
ingur í Blóðbankanum sagði frá
verkefni um heilsueflingu blóðgjafa
sem er að fara í gang í Blóðbankan-
um. Sveinn Guðmundsson forstöðu-
læknir í Blóðbankanum sagði frá
því helsta sem er á döfinni í Blóð-
bankastarfseminni. I máli hans
kom fram að Blóðbankinn vill auka
gæði þjónustu við blóðgjafana með
bættum aðbúnaði í húsinu og sér-
hæfðum blóðtökubfl. Forstjóri Rík-
isspítala og Sjúkrahús Reykjavík-
ur, Magnús Pétursson, þakkaði
blóðgjöfum fyrir sitt framlag.
A fundinum kom fram í ræðu
formanns félagsins, Bjöms Harð-
arsonar, að á síðastliðnu ári gekk
BGFI í alþjóða blóðgjafasamtökin
(IFBDO) og að haldið var í fyrsta
sinn hér á landi hátíðlega upp á 23.
maí sem er alþjóðlegur blóðgjafa-
dagur. Um verkefni framtíðarinn-
ar kom fram í máli formanns að
Blóðgjafafélag Islands er vett-
vangur blóðgjafa til að hafa áhrif á
málefni blóðgjafastarfseminnar á
Islandi. Þar þer hæst: Betri að-
búnað fyrir blóðgjafa. Þótt breyt-
ingar á húsnæði sem gerðar hafa
verið innan Blóðbankans á undan-
förnum áram hafi tekist mjög vel
og verið til bóta, þá er öllum ljóst
sem til þekkja að starfsemi Blóð-
bankans, sem stofnaður var árið
1953, er búin að sprengja utan af
sér húsnæðið.
Sjúkratryggingar blóðgjafa.
Hér er átt við tilfelli sem geta
komið upp á við blóðgjöf og era
þess valdandi að blóðgjafi verði frá
vinnu um tíma eða þurfi að standa
straum af rannsóknum af ein-
hverju tagi. I Danmörku er talið
að í einu tilfelli af hverjum átta
þúsund blóðgjöfum þurfi að grípa
tfl ákvæða um sjúkratryggingar
blóðgjafa. Við getum án efa dregið
nokkum lærdóm af Dönum í þess-
um efnum.
Marka stefnu BGFÍ. Á fundi
með ráðherra heilbrigðismála hef-
ur komið fram skilningur og vilji
ráðuneytisins um að hér á landi
séu starfandi blóðgjafasamtök og
tryggja verið starfsgrundvöll
þeirra. Stjóm BGFÍ hefur skrif-
lega óskað eftir viðræðum hags-
munaðila um hvemig þessum mál-
um verði best komið.
Öraggur rekstrargrandvöllur
BGFÍ. í Blóðbankanum hefur
skapast möguleiki á að safna og
senda utan blóðvökva til fullvinnslu
lyfja. Þrátt fyrir ítrekaðan vilja
stjómar BGFI til viðræðna við
heilbrigðisyfirvöld um ráðstöfun
þessarar vöra, þá hefur ekki enn
sem komið er verið óskað eftir at-
hugasemdum frá fulltrúum blóð-
gjafa. Stjóm BGFÍ hefur lagt
áherslu á að tryggja verði að sjálf-
boðaliðstarf blóðgjafa nýtist til að
styrkja blóðbankaþjónustu á Is-
landi, efla meðferð sjúklinga og
skapa rekstrargrandvöll fyrir
BGFI til framtíðar. I maí á þessu
ári verður haldin heimsráðstefna
blóðgjafasambanda á Italíu. Við
eigum fullt erindi þangað þar sem
við getum bæði lært og miðlað af
okkar reynslu. Eins og rekstrar-
málum BGFI er háttað getur
stjóm félagsins ekki sent fulltrúa
sinn. Stjóm félagsins hefur farið
þess á leit við heilbrigðisráðuneytið
að fá styrk til fararinnar, en án ár-
angurs. Fátt er því til fyrirstöðu að
hefja fullvinnslu lyfja úr blóðvökva.
Að mati stjómar BGFI þarf aðeins
að taka ákvarðanir og tryggja
rekstrargrandvöll félagsins.
Stækkun BGFÍ. A blóðgjafa-
svæði Fjórðungssjúkrahúss Akur-
eyrar er verið að kanna hvort vilji
sé þar á bæ til að stofna deild inn-
an BGFÍ. Rætt hefur verið um
stofnun beinmergsgjafaskrár. Er-
lendis koma beinmergsgjafar í
miklum meirihluta úr hópi blóð-
gjafa og vaknar sú spurning hvort
BGFÍ verði hagsmunaaðiðli bæði
blóðgjafa og beinmergsgjafa.
Stjóm félagsins mun fylgjast með
af áhuga og er tilbúið til viðræðna
hvenær sem er.
BJÖRN HARÐARSON,
formaður Blóðgjafafélags Islands.
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskiiur sér rétt tii að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.
yÁömbl.is
\LLTAf= eiTTHXSAÐ AJÝTT
Þú verður að fara í skólan á morg-
un. Þú getur ekki falið þig undir
rúmi.
Skólinn er ekki svo afleitur,
hugsaðu um allt munt læra.
íþróttir á Netinu