Morgunblaðið - 10.04.1999, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI
LAUGARDAGUR 10. APRÍL 1999 23
Tölvumiðstöð Sparisjóðanna 10 ára
Hefðbundin
bankaútibú
á útleið?
HEFÐBUNDIN bankaútibú munu
hugsanlega víkja á sumum stöðum í
framtíðinni fyrir rafrænum útibúum
þar sem viðskiptavinimir afgreiða
sig sjálfir að mestu leyti. Þetta kom
meðal annars fram í máli Jónasar
Reynissonar, sparisjóðsstjóra í
Sparisjóði Hafnarfjarðar, á ráð-
stefnu sem haldin var í gær með
starfsfólki sparisjóðanna í tilefni af
10 ára afmæli Tölvumiðstöðvar
sparisjóðanna. Inntak ráðstefnunn-
ar var framtíðin og hvert væri
stefnt í upplýsingatæknimálum
sparisjóðanna.
Á ráðstefnunni flutti einnig erindi
meðal annarra Sæmundur Sæ-
mundsson, framkvæmdastjóri
Tölvumiðstöðvar sparisjóðanna, og
kynnti hann fundarmönnum ýmsar
hugmyndfr um framtíð tölvumið-
stöðvarinnar, en meðal annars er
Tölvumiðstöðin að huga að rekstr-
arformi fyrirtækisins. Þar er m.a.
horft til hugmyndar frá tölvumið-
stöð norskra sparisjóða, Fellesdata
A/S, sem gert var að sjálfstæðu
hlutafélagi og vinnur jafnframt verk
fyrir utanaðkomandi og hafa þær
breytingar þótt takast vel.
Nýtt sölukerfí
Sparisjóðimir munu bráðlega
taka í notkun nýtt sölukerfi sem
verður notað m.a. til að stýra sam-
skiptum við notendur, og í fram-
haldinu bætist við kerfi sem sér um
verkferli kringum útlánastarfsemi.
Þetta veldur miklum breytingum á
rekstri afgreiðslustaða sparisjóð-
anna þar sem áherslan verður á
samskipti við hvem viðskiptavin
fyrir sig, sagði Sæmundur Sæ-
mundsson í samtali við Morgun-
blaðið.
„Kerfið, sem keypt var af Felles-
data í Noregi og nefnist FD Front,
mun verða notað til að stýra m.a.
sölu og samskiptum við notendur,
verkferli kringum útlánastarfsemi
og eftirht með henni. Þetta er viða-
mikið kerfi og nokkurra ára verk-
efni að koma þessu á hjá okkur,“
segir Sæmundur.
„Kerfið ræður við að dreifa verk-
efnum niður á einstaka starfsmenn,
segja til um hvaða starfsmenn eigi
að hafa samband við hvaða við-
skiptavini og hvað eigi að gera. Það
fylgist svo með öllum samskiptum
og hvemig hver einasta markaðs-
herferð gengur fyrir sig. Yfirmenn
geta fylgst með árangrinum, hve
mikið er búið að selja, hversu
marga er búið að hafa samband við
og svo framvegis."
Breytt hugsun
Sæmundur segir að með þessum
breytingum séu sparisjóðimir að yf-
irgefa þann hugsunarhátt að spari-
sjóðimir reki afgreiðslustaði, en í
staðinn sé verið að vinna með hverj-
um viðskiptavini fyrir sig og þjóna
honum persónulega. „Með þessu er-
um við í raun að snúa dæminu við
frá því sem verið hefur og ger-
breyta áherslum."
Að sögn Sæmundar munu af-
greiðslustaðir taka breytingum og
hafa þegar gert það með nýju af-
greiðslukerfi sem þróað er af Tölvu-
miðstöðinni og EJS hf. „Við emm
hættir að prenta á skjöl, á innleggs-
og úttektarmiða og aðrar kvittanir.
I dag prentum við bara á strimil
eins og í stórmörkuðum með lista
yfir færslur. Þú kvittar fyrir með
rafrænni undirskrift og við geymum
undirskriftina þína,“ segir Sæ-
mundur, og bætir við að kerfi þetta
hafi vakið mikla athygli og hafi
Landsbankinn fest kaup á því til
uppsetningar í sínum útibúum á
liðnu ári.
Rafrænar dreifileiðir
ódýrari
Erindi Jónasar Reynissonar
nefndist „dreifileiðir fjármálafyrir-
tækja í framtíðinni“. Kynnti hann
fyrir fundarmönnum hvernig
áherslan er að færast í auknum
mæli til sjálfvirkra rafrænna dreifi-
leiða á fjármálaþjónustu. Það feli í
sér að almenningur muni sækja sér
bankaþjónustu m.a. í gegnum síma,
farsíma, tölvusjálfsala af ýmsu tagi,
heimabanka á Netinu og gegnum
gagnvirkt sjónvarp, auk hefðbundn-
ari gerða bankaþjónustu.
,Ástæðan fyrir þessari þróun í
rafrænar dreifileiðir er einfaldlega
sú að þær eru ódýrari heldur er hin-
ar,“ sagði Jónas Reynisson í samtali
við Morgunblaðið. „Niðurstaðan af
þessu er sú að þessar rafrænu
dreifileiðir geta að mörgu leyti kom-
ið í staðinn fyrir hið gamla útibú.
Einnig geta bankar blandað þessu
saman við hefðbundin útibú. Sú þró-
un virðist vera að eiga sér stað í
Bandaríkjunum, en þar telja menn
að hefðbundin útibú muni áfram
verða mikilvæg en þau muni
kannski breytast.“
Jón Ragnar Höskuldsson hjá
Tölvumiðstöð sparisjóðanna kynnti
einnig svonefnda gagnaskemmu,
eða „data warehouse" á ensku, sem
Tölvumiðstöðin hyggst koma í
gagnið með vorinu fyrir sparisjóð-
ina. í samtali við Morgunblaðið
sagði Jón að í gagnaskemmu og
gagnasmiðju væri ítarlegum upp-
lýsingum um viðskipti og aðgerðir
safnað skipulega saman í tímaröð
og unnið úr þeim, og myndi þetta
nýtast sem stjórnunartæki fyrir
stjómendur sparisjóðanna.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
RAFRÆNAR dreifíleiðir fjármálaþjónustu munu sækja á, sagði Jónas Reynisson, sparisjóðsstjóri Spari-
sjóðs Hafnarfjarðar, á 10 ára afmælisráðstefnu Tölvumiðstöðvar sparisjóðanna.
Burknar
Græna
þruman
Gróðurmold