Morgunblaðið - 10.04.1999, Síða 61
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 10. APRÍL 1999 61
ÞJONUSTA/FRETTIR
Opið mán.-fimmtud. kl. 8.15-22, fóst. kl. 8.15-19. Laugd. 9-
17. Sunnud. kl. 11-17. Handritadeild er lokuð á laugard.
og sunnud. S: 525-5600, bréfs: 525-5615.
Morgunblaðið/Arnaldur
ÞEIR urðu sigursælastir í 16. landskeppninni í eðlisfræði. Frá vinstri:
Bjarni Kristinn Torfason, (5. sæti), Stefán Ingi Valdimarsson (3.-4.
sæti), Páll Melsted (3.-4. sæti), Jóel Karl Friðriksson (1. sæti) og Jens
Hjörleifur Bárðarson (2. sæti).
Úrslitakeppni 16. landskeppninnar í eðlisfræði
S
Fyrri Olympíufarar
sömdu tilraunaverkefni
LISTASAFN ÁRNESINGA, Tryggvagötu 23, Selfossi:
Opið eftir samkomulagi. S. 482-2703._________
I.ISTASAFN EINABS JÓNSSONAB: HSggmyndagarður-
inn er opinn alla daga. Safnið er opið laugardaga og
sunnudaga frá kl. 14-17.______________________
LISTASAFN ÍSLANDS, Fríkirkjuvegi. Sýningarsalir,
kaffistofa og safnbúð: Opið daglega kl. 11-17, lokað
mánudaga. Skrifstofa safnsins og upplýsingar um leið-
sögn: Opið alla virka daga kl. 8-16. Bókasafn: Opið
þriðjud.-fóstud. kl. 13-16. Aðgangur er ðkeypis á mið-
vikudögum. Uppl. um dagskrá á internetinu:
http//www,natgall.is__________________________
USTASAFN KÓPAVOGS - GERÐAKSAFN: Opið daglega
kl. 12-18 nema mánud._________________________
LISTASAFN SIGURJÓNS ÓLAFSSONAR: Safnið er opið
laugardaga og sunnudaga milli kl. 14 og 17. Tekið á
móti gestum skv. samkomulagi. Upplýsingar í síma 553-
2906._____________________________________
UÓSMYNDASAFN REYKJAVÍKUR: Borgartúni 1. Opið
alla daga frá kl. 13-16. Simi 563-2530.______
LYFJAFRÆÐISAFNIÐ: Neströð, Seltjarnarnesi. í sumar
verður opið á sunnud., þriðjud., fimmtud. og iaugard.
milli kl. 13 og 17.__________________________
MINJASAFN AUSTURLANDS, Safnahúsinu Laufskðgum
1, Egilsstöðum er opið alla daga nema mánudaga kl. 11-
17 til 1. september. Alla sunnudaga frá kl. 14-17 má
reyna sig við gamalt handbragð í tóvinnu undir leiðsögn
eldri borgara. Safnbúð með miiyagripum og handverks-
munum. Kaffi, kandís og kleinur. Sími 471-1412, net-
fang minaust@eldhorn.is.______________________
MINJASAFN RAFMAGNSVEITU ReyKjavíkur v/rafstöð-
ina v/Elliðaár. Opið sunnudaga kl. 15-17 eða eftir sam-
komulagi. S. 567-9009.________________________
MINJASAFN SLYSAVARNARFÉLAGS ÍSLANDS Þor-
steinsbúð við Gerðaveg, Garði. Opið á laugardögum og
sunnudögum frá kl. 13-16. Hægt er að panta á öðrum
tímum í síma 422-7253._______________________
MINJASAFNIÐ Á AKUREYRI: Aðalstræti 58 er lokað I
vetur vegna uppsetningar nýrrar sýningar sem opnuð
verður sumarið 1999. S. 462-4162, bréfs: 461-2562.
IÐNAÐARSAFNIÐ Á AKUREYRI verður opið framvegis
á sunnudögum kl. 14-16 í vetur. Að auki geta gestahóp-
ar og bekkjardeildir skóla haft samband við safnvörð í
síma 462-3550, sem opnar þá fúslega samkvæmt nánara
umtali.________________________
MYNTSAFN SEÐLABANKA/ÞJÓÐMINJASAFNS, Ein
holti 4, sími 569-9964. Opið virka daga kl. 9-17 og á öðr-
um tíma eftir samkomulagi.___________________
NÁTTÚRUFRÆÐISTOFA KÓPAVOGS, Digranesvegi 12.
Opið miðvikud. og laugd. 13-18. S. 554-0630._
NÁTTÚRUGRIPASAFNIÐ, sýningarsalir Hverfisgötu 116
eru opnir sunnud. þriðjud. fimmtud. og laugard. kl.
13.30-16.____________________________________
NESSTOFUSAFN, Yfir vetrartímann er safnið einungis
opið samkvæmt samkomulagi.____________________
NORRÆNA HÚSIÐ. Bókasafnið. 13-18, sunnud. 14-17.
Kaffistofan 9-18, mánud. - laugard. 12-18 sunnud. Sýn-
ingarsalir: 14—18 þriðjud.-sunnud. Lokað mánud.
PÓST- OG SÍMAMINJASAFNIÐ: Austurgötu 11, Hafnar-
firði. Opið þriðjudaga og sunnudaga 15-18. Sími 555-4321.
SAFN ÁSGRÍMS JÓNSSONAR, Bergstaðastræti 74, s.
551-3644. Sýning á uppstillingum og landslagsmyndum.
Stendur til marsloka. Opin laugardaga og sunnudaga kl.
13.30- 16.___________________________________
SJÓMINJASAFN ÍSLANDS, Vesturgötu 8, Hafnarfirði, er
opið laugardaga og sunnudaga frá kl. 13-17 og eftir sam-
komulagi fyrir skólanema og aðra hópa. & 565-4242,
bréfs. 565-4251.______________________________
SJÓMINJA- OG SMIDJUSAFN JÓSAFATS
HINRIKSSONAR, Súðarvogi 4. Opið þriðjud. - laugard.
frá kl. 13-17. S. 581-4677.__________________
SJÓMINJASAFNIÐ Á EYRARBAKKA: Hópar skv. samkl.
Uppl.ís: 483-1165,483-1443.___________________
STOFNUN ÁRNA MAGNÚSSONAR: Handritasýning opin
þriðjudaga, miðvikudaga og fimmtudaga frá kl. 14-16 til
14. maf. ____________________________________
STEINARÍKI fSLANDS Á AKRANESI: Opið alla daga kl.
13- 18 nema mánudaga. Sfmi 431-5566.________
SÖGU- OG MINJASAFN Slysavarnafélags íslands,
Garðinum: Opið um helgar frá kl. 13-16.______
ÞJÓÐMINJASAFN ÍSLANDS: Opið alla daga nema
mánudagakl. 11-17.___________________________
AMTSBÓKASAFNIÐ Á AKUREYRI: Mánudaga til föstu
daga kl. 10-19. Laugard. 10-15._______________
LISTASAFNIÐ Á AKUREYRl: Opií alla daga frá .kl.
14- 18. Lokað mánudaga._____________________
NÁTTÚBUGRIPASAFNIÐ Á AKUREYRI: Lokað í vetur
nema eftir samkomulagi. Sími 462-2983.________
NORSKA HÚSIÐ f STYKKISHÓLMI: Opið daglega 1 sum-
arfrákl. 11-17.______________________________
ORÐ DAGSINS____________________________________
Reykjavfk sími 551-0000.________________
Aknreyri s. 462-1840.____________________
SUNDSTAÐIR ________________
SUNDSTAÐIR I REYKJAVfK: Sundhöllin er opin v.d. kl.
6.30- 21.30, helgar kl. 8-19. Opið I bað og heita potta alla
daga. Vesturbæjarlaug er opin v.d. 6.30-21.30, helgar 8-
19. Laugardalslaug er opin v.d. 6.50-21.30, helgar 8-19.
Breiðholtslaug er opin v.d. kl. 6.50-22, helgar kl. 8-20.
Grafarvogslaug er opin v.d. kl. 6.50-22.30, hclgar kl. 8-
20.30. Árbæjarlaug er opin v.d. kl. 6.50-22.30, helgar kl.
8-20.30. Kjalarneslaug opin mán. og fimmt. kl. 11-15.
þri., mið. og föstud. kl. 17-21.______________
SUNDLAUG KÓPAVOGS: Opin mád.-fóst. 7-21. Laugd. og
sud. S-18. Sölu hætt hálftfma fyrir lokun.___
GARÐABÆR: Sundlaugin opin mád.-föst. 7-20.30. Laugd.
og sud. 8-17. Sölu hætl hálftíma fyrir lokun._
HAFNARFJÖRÐUR. Suðurbæjarlaug: Mád.-fóst. 7-21.
Laugd. 8-18. Sud. 8-17. Sundhöll Hafnarfjarðar: Mád.-
föst. 7-21. Laugd. 8-12. Sud. 9-12.
VAKMÁKLAUG f MOSFELLSBÆ: Opið virka daga Id.
6.30- 7.45 og kl. 16-21. Um helgar kl. 9-18._
SUNDLAUGIN f GRINDAVfKtOpið alla virka daga kl. 7-
21 og kl. 11-15 um helgar. Sfmi 426-7555._____
SUNDLAUG KJALANESS: Opin v.d. 6.45-8.30 og 14-22,
helgar 11-18._________________________________
SUNDMIÐSTÖÐ KEFLAVfKUK: Opin mánud.-Bstud. kl.
7-21. Laugard. kl.8-17. Sunnud. kl. 9-16._____
SUNDLAUGIN í GARÐI: Opin mán.-föst. kl. 7-9 og 16.30-
21. Laugardaga og sunnudaga. kl. 10-17. S: 422-7300.
SUNDLAUG AKUREYRAR er opin v.d. kl. 7-21. Laugard.
og sunnud. kl. 8-18. Sfmi 461-2532.___________
SUNDLAUG SELTJARNARNESS: Opin mád.-föst. 7-
20.30. Laugard. og sunnud. kl. 8-17.30._______
JAÐARSBAKKALAUG, AKRANESI: Opin mád.-fóst. 7-
21, laugd. og sud. 9-18. S: 431-2643._________
BLÁA LÓNIÐ: Opið v.d. kl. 11-20, helgar kl. 10-21.
ÚTIVIST ARSVÆÐI _______________________________
FJÖUSKYLDU- OG HÚSDYRAGARÐUKINN er opinn alla
daga kl. 10-17, lokaö á miðvikudögum. Kaffihúsið opiö á
sama tfma. Sfmi 5757-800._____________________
SORPA_____________________
SKRIFSTOFA SORPU er opin kl. 8.20-16.15. Endur-
vinnslustöðvar eru opnar a.d. kl. 12.30-19.30 en lokaðar
á stórhátfðum. Að auki vcrða Ánanaust, Garðabær og
Sævarhöfði opnar kl. 8-19.30 virka daga. Uppl.sími 620-
2205.
Dilbert á Netinu
<g> mbhjs
_ALLTAf= eiTTHVAO HÝTT
Samkomur Sam-
bands íslenskra
kristniboðsfé-
laga
SAMBAND íslenskra kristniboðs-
félaga gengst fyrir samkomuröð
undir yfirskriftinni Tilboðsdagar
dagana 11.-18. apríl.
Það verða samkomur flest kvöld
vikunnar með fjölbreyttri dagskrá,
söng og lofgjörð. Meðal söngvara
sem taka þátt má nefna Kanga-
kvartett, Afríkusystur, Erlu og
Rannveigu Káradætur, Þorvald
Halldórsson og fleiri.
Aðalræðumaður á tilboðsdögum
verður norski kristniboðsfrömuður-
inn Torbjöm Lied, en hann er sér-
fróður um stöðu og útbreiðslu krist-
innar trúarinnar í heiminum á okk-
ar dögum, segir í fréttatilkynningu.
Að auki taka margir íslensku
kristniboðanna til máls og gefa inn-
sýn í daglegt líf í Afríku og lýsa lífi
og siðum heiðingja. Biskup Islands
segir frá Afríkuferð sinni á liðnu
ári. Tekinn verður púlsinn á al-
heimskristniboðinu í dag. Eitt
kvöldið verður listakvöld með kaffi-
húsabrag og lokasamkoman verður
lofsöngskvöld með sérstakri bæna-
göngu.
Samkomumar verða haldnar í
Húsi KFUM & K við Holtaveg og í
Kristniboðssalnum á Háaleitisbraut
58. Hver samkoma verður auglýst
sérstaklega. Dagskrá tilboðsdaga er
einnig hægt að nálgast á vefsíðu
kristniboðssambandsins. Slóðin er:
http://sik.torg.is.
Allir em velkomnir á sam-
komumar meðan húsrúm leyfir.
Ungfrú Reykja-
vík krýnd á
Broadway
FEGURÐARDROTTNING
Reykjavíkur verður valin úr hópi 18
keppenda á Broadway fimmtudag-
inn 15. apríl og er þá lokið und-
ankeppnum fyrir Fegurðarsam-
keppni íslands sem verður 21. maí
nk.
Krýning Fegurðardrottningar
Reykjavíkur verður í kringum mið-
nættið og auk hennar verður valið í
2. og 3. sæti, ljósmyndafyrirsæta
DV og vinsælasta stúlkan, sem
keppendur velja sjálfir.
Dómnefnd skipa: Elín Gestsdótt-
ir, formaður dómnefndar, Berg-
sveinn Sampsted, markaðsstjóri
Europay ísland, Fjölnir Þorgeirs-
son athafnamaður, Silja Ailansdótt-
ir, framkvæmdastjóri Fegurðar-
samkeppni Vesturlands, og Sigur-
jón Orn Þórsson framkvæmda-
stjóri.
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi yfirlýsing frá áhuga-
hópi um auðlindir i almannaþágu í
tilefni af stefnuyfirlýsingu Samfylk-
ingarinnar um sjávarútvegssmál.
Hún var samin í framhaldi af
annarri sem hópurinn gerði eftir
landsfund Sjálfstæðisflokksins.
Yfirlýsingin sem hér birtist í heild
var send fjölmiðlum 27. mars síðast-
liðinn:
„Áhugahópur um auðlindh- í al-
mannaþágu fagnar þeirri stefnu-
mörkun í sjávarútvegsmálum sem
fram kemur í nýútkominni stefnuyf-
irlýsingu Samfylkingarinnar. Þar
kemur fram skilningur á því að nú-
verandi fiskveiðistjómkerfi fær ekki
staðist til lengdar, heldur verði að
tryggja í verki eignarhald þjóðarinn-
ar á auðlindinni og um leið jafnræði
landsmanna í aðgangi að henni. Jafn-
framt verði að huga að verndun
nytjastofna, hagkvæmri nýtingu
þeirra og öfiugri byggð í landinu.
í umræddri yfirlýsingu er lögð
áhersla á þjóðarsátt um nýtt kerfi.
Hópurinn tekur undir þetta en varar
þó við því að sáttahugtakið sé túlkað
of vítt. Til dæmis er óvíst að sátt geti
náð til þeirra einstaklinga sem eiga
mestra persónulegra hagsmuna að
gæta í núverandi kerfi, og þarf að
varast að veita þeim neitunarvald
FYRIR skömmu fór fram í Há-
skóla íslands úrslitakeppni í land-
skeppni í eðlisfræði og er það í
16. sinn sem slík keppni fer fram.
Keppendur voru 14 nemendur úr
framhaldsskólum sem bestum ár-
angri höfðu náð í forkeppninni
sem fram fór 13. febrúar. Leystu
þeir 5 verkefni úr fræðilegri eðl-
isfræði og framkvæmdu 2 til-
raunir og skrifuðu skýrslur um
þær. Þorsteinn Vilhjálmsson og
Leó Kristjánsson við eðlis-
fræðiskor Háskóla Islands höfðu
veg og vanda af samningu fræði-
legu verkefnanna en ólympíufar-
ar sem nú eru nemendur við Há-
skóla Islands, sömdu verkefnin
fyrir verklega hlutann undir
stjórn Ara Olafssonar, eðlis-
fræðiskor Háskóla Islands. Stefán
G. Jónsson, Háskóla Islands á
Akureyri, valdi spurningar úr
gagnabanka framhaldsskóla-
kennara til forkeppninnar.
Verðlaunaafhending fór fram
14. mars í Skólabæ undir forystu
Ingibjargar Haraldsdóttur. Viðar
Ágústsson afhenti bókaviður-
kenningar fyrir þátttöku í for-
keppninni en Þorsteinn Vil-
hjálmsson afhenti peningaverð-
laun til 5 efstu manna í úrslita-
keppninni. Bæði ræddu þau Jjann
ávinning sem eðlisfræðin á Is-
landi hafði haft af 29. Ólympíu-
leikunum í eðlisfræði sem fram
fóru á Islandi sumarið 1998.
Efstir í úrslitakeppninni urðu
þeir Jóel Karl Friðriksson (1.
sæti), Stefán Ingi Valdimarsson
(3.-4. sæti), Páll Melsted (3.-4.
sæti), Bjarni Kristinn Torfason
fyrirfram. Þjóðarsátt hlýtur hér um-
fram allt að merkja að allur þorri al-
mennings telji að fiskveiðistjórnin sé
réttlát og að jafnræði ríki í aðgangi
að auðlindum sjávar. Jafnframt sé
veittur hæfilegur tími til aðlögunar
að nýju kerfi og dómstólar landsins
telji að lögum og stjórnarskrá sé
fylgt. Þjóðarsátt á kostnað réttlætis-
ins getur orðið skammgóður vermir.
í stefnu Samfylkingarinnar er
gert ráð fyrir að aflaheimildir sem
úthlutað er án endurgjalds skerðist
árlega um 5-10% af upphaflegum
tölum þar til ákvörðun hefur verið
tekin um nýtt stjórnkerfi. Kvótinn
sem þannig losnar verði boðinn upp
til leigu ásamt árlegri aukningu
heildarkvótans. Eitt meginmarkmið-
ið með slíku uppboði er það að lækka
hið uppsprengda, jaðarverð" á kvóta
sem nú gildir og ræður úrslitum um
ýmsar óheppilegar afleiðingar kvóta-
kerfisins. Hins vegar er óvíst að
þetta markmið náist með svo hæg-
fara aðgerðum sem þarna er lýst.
(5. sæti), Haukur Þorgeirsson
(7.-8. sæti) og Tryggvi Þorgeirs-
son (7.-8. sæti) frá Menntaskólan-
um í Reykjavík, Jens Iijörleifur
Bárðarson (2. sæti) frá Fjöl-
brautaskóla Suðurlands, Selfossi
og Teitur Arason (6. sæti),
Menntaskólanuni á Akureyri.
Islendingar hafa þegið boð frá
Ítalíu um að taka þátt í 30.
Ólympíuleikunum f eðiisfræði
sem fram munu fara í Padova í
júlí í sumar. I liði fslands verða
þeir 5 sem efstir voru í úrslita-
keppninni og ekki verða orðnir
tvítugir 30. júní næstkomandi.
Þeir eni Jóel Karl, Jens Hjörleif-
ur, Bjarni Kristinn, Tryggvi og
Páll en Stefán kemst ekki þar
sem hann mun keppa á Ólympíu-
leikunum í stærðfræði.
„Morgunblaðið stendur straum
af öllum kostnaði við framkvæmd
og verðlaun landskeppninnar og
hefur svo verið frá upphafi
keppninnar á Islandi 1984. Blaðið
birti einnig fréttir frá keppninni
og verðlaunaafhendingunni í Há-
skólabioi og aðstoðaði þannig við
að kynna keppnina almenningi.
Menntamálaráðuneytið veitti góð-
fúslega leyfi fyrir sitt leyti að for-
keppnin yrði haldin á skólatíma
og hjálpaði það til við að kepp-
endur í forkeppninni urðu 176
sem er með hæstu þátttökutölum
frá upphafi keppninnar. Háskóli
fslands lánaði alla aðstöðu fyrir
úrslitakeppnina og inntu starfs-
menn og nemendur HÍ alla sína
vinnu af hendi endurgjaldslaust,"
segir í frétt frá landskeppninni í
eðlisfræði.
Þannig kann að vera nauðsynlegt að
skerða endurgjaldslausar aflaheim-
ildir um 10-20% á ári til að ná fram
marktækri lækkun á markaðsverði
kvótans. Auk þess er æskilegt að í
upphafi liggi Ijóst fyrir það loka-
markmið breyttrai- fiskveiðistjórnar
að svokallaðar varanlegar aflaheim-
ildir hverfi og öllum leigukvóta verði
ráðstafað á markaði með einum eða
öði-um hætti. Hér skortir nokkuð á
skýrleika og festu í stefnuyfii'lýs-
ingu Samfylkingarinnar þannig að
nægileg vissa sé sköpuð um leikregl-
ur í þessu viðkvæma og mikilvæga
atriði.
Tvær stærstu stjórnmálahreyf-
ingar landsins hafa nú tjáð sig um
fiskveiðistjórn á undanförnum vik-
um. Þegar þetta er skrifað hefur
formaður Framsóknarflokksins
einnig haldið setningarræðu sína á
miðstjórnarfundi þar sem hann seg-
ir meðal annars að „lög um fiskveiði-
stjórn verði að vera í takt við rétt-
lætiskennd þjóðarinnar". Ahugahóp-
KIRKJUSTARF
Safnaðarstarf
s
Iþróttir og
djass í
Laugar-
neskirkju
FERMT verður í Laugarneskirkju
á sunnudaginn kl. 11 og sunnu-
dagaskólinn heldur sama tíma en
breytir nokkuð um svip.
Komið verður saman í íþrótta-
húsi Laugarnesskóla undir stjórn
Hjördísar Kristinsdóttur og henn-
ar samstarfsfólks. Þetta skiptið fá
sparifötin að hanga inni í skáp en
íþróttagallinn tekinn fram. Farið
verður í leiki þar sem Biblíu-
fræðslan er fléttuð inn ásamt
söngvum og sprelli.
Um kvöldið hefst djassinn kl. 20.
Þar eru það þeir Gunnar Gunnars-
son, Matthías Hemstock, Sigurður
Flosason og Tómas R. Einarsson
sem leika.
Kvöldmessan hefst svo formlega
kl. 20.30 þar sem Laufey Geir-
laugsdóttir syngur einsöng og kór
Laugameskirkju leiðir safnaðar-
sönginn undir stjórn Gunnars
Gunnarssonar.
Prestar verða hjónin Jóna
Hrönn Bolladóttir og Bjarni
Karlsson.
Neskirkja. Biblíulestur kl. 10.30.
Lesið úr Matteusarguðspjalli. Allir
velkomnir. Sr. Frank M. Halldórs-
son. Félagsstarf aldraðra kl. 15.
Kvikmyndasýning. Ferðalag á
hestum um Fjallabaksleið. Kristín
Bögeskov djákni segir frá lífinu á
fjöllum. Kaffiveitingar. Allii' vel-
komnir.
Fella- og Hólakirkja. Opið hús
fyrfr unglinga kl. 21.
Hafnarljarðarkirkja. Kl. 11-12.30
opið hús í Strandbergi. Trú og
mannlíf, biblíulestur og samræður.
Leiðbeinendur sr. Gunnþór Inga-
son og Ragnhild Hansen.
KEFAS, Dalvegi 24, Kópavogi.
Almenn samkoma kl. 14. Predikari
Björg R. Pálsdóttir. Allir velkomn-
ir.
Hjálpræðisherinn. Laugardags-
skóli laugardag kl. 13.
Akraneskirkja. Kirkjuskóli yngin
bai'na (6 ára og yngri) kl. 11. TTT-
starf í safnaðarheimilinu Vina-
minni kl. 13.
Krossinn. Unglingasamkoma kl.
20.30 að Hlíðasmára 5. Allir vel-
komnir.
ur um auðlindii' í almannaþágu skor-
ar á miðstjórn flokksins að mai'ka
skýra stefnu í samræmi við þetta
markmið, enda er ljóst að núverandi
ráðstöfun á varanlegum veiðiheim-
ildum til afmarkaðs hóps manna mis-
býður réttlætiskennd þjóðarinnar.
Áhugahópur um auðlindfr í al-
mannaþágu áréttar að eina raun-
hæfa lausnin sem mætir kröfu
stjórnarskrárinnar um jafnræði er
sú að kvótinn verði afhentur almenn-
ingi, ríki og sveitarfélögum og síðan
leigður á markaði þannig að allir
sem vilja sækja sjó hafi jafnan að-
gang að honum.
Hópurinn vekur athygli á vefsíðu
sinni, www.kvotinn.is, en þar hefur
bæst við talsvert efni frá því að hún
var opnuð.
Að lokum ítrekai' hópurinn að fisk-
veiðistjórn er eitt afdrifaríkasta mál-
ið sem tekist verður á um í alþingis-
kosningunum í vor. Ef svo fer fram
sem horfir verða skil milli stjórn-
málaafla vart skýrari í öðrum mála-
flokkum en þessum. Ábyrgð okkar,
hinna almennu kjósenda, er því sér-
lega mikil á þessu sviði að verja at-
kvæðum okkar skynsamlega og veita
stjórnmálamönnum aðhald þannig
að þeir nái landi að lokum og leysi
þessi mál á þann veg sem meirihluti
þjóðarinnar vill.“
Yfírlýsing frá áhugahópi um auðlindir 1 almannaþágu
Fiskveiðistefna
Samfylkingar