Morgunblaðið - 10.04.1999, Blaðsíða 67

Morgunblaðið - 10.04.1999, Blaðsíða 67
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. APRÍL 1999 67 Stutt Kveðja sem aldrei barst ►BRESKUR sjómaður fann flöskuskeyti á dögunum sem var hinsta kveðja bresks hermanns til eiginkonu sinnar en flösku- skeytið var sent fyrir 85 árum. Thomas Hughes sem var óbreytt- ur hermaður skrifaði bréfið til eiginkonu sinnar þegar hann var á leið í skotgrafirnar í Frakk- landi í fyrri heimsstyijöldinni. Tólf dögum eftir að skeytið var skrifað var Thomas allur. Sjómaðurinn Steve Gowan sagði í samtali við dagblaðið Sun að flaskan hefði borið með sér að vera forn. „Þegar ég strauk óhreinindin af henni sá ég að ein- hver miði var innan í henni.“ I hinsta bréfi hermannsins kveður hann konu sína á hjartnæman hátt. Syngjandi smokkar ►SVÍFANDI húsgögn, músíkalskir ” smokkar og andremmuspæjari hafa verið valin sem sérkennilegustu uppfinningar mannsins. Svífandi húsgögnin voru fyllt með gasi svo þau svifu til lofts þegar þau væru ekki í notkun svo meira rými væri í stofunni! Músíkölsku smokkai-nir voru þannig útbúnir að þegar rétt pressa var á þeim heyrðist lag óma. Andremmuspæjarinn var hannaður sem rör sem leitt var frá nefi að munni svo notandinn gæti brugðist skjótt við ef andremman léti á sér kræla. Vísindaritið Focus safnaði saman upplýsingum um uppfinningarnar og var farið í gegnum margar sjúkrasögur til að finna furðuleg- ustu uppfinningamar. Auk ofantal- inna uppfinninga þótti „Tootsie Tu- be“ afar sérkennilegt tæki en það j var hannað fyrir kaldar vetrarnæt- ur. Plaströr var leitt út munni niður að tám svo heitur andardrátturinn hitaði tærnar! ■ . Þú ert hand- tekinn, herra ►VEGNA óánægju almennings í New York borg með lögreglu borgarinnar hefur borgarstjór- inn Rudolph Giuliani gefið út þá tilskipun til lögreglumanna að sýna kurteisi í hvívetna við öll skyldustörf og eru þá handtökur ekki undanþegnar. „Ef jafnvel verstu glæpamenn sem handteknir eru fá kurteis- legar móttökur eins og „þú ert handtekinn, herra,“ mun það draga úr reiði og sársauka yfir atburðinum. „Ég veit að sumir munu sjá þessa stefnu í kald- hæðnu ljósi," bætti Giuliani við. »Ég hef verið nógu lengi borgar- sljóri New York til að vita að niargir bregðast við góðum breytingum með kaldhæðni og finna þeim allt til foráttu.“ Rifrildi hið besta mál (►NÆST þegar rifist er á heimilinu er kannski ráð að safna börnunum saman til að fylgjast með. Það gæti gert þeim gott. Nýleg könnun í kanadískum háskóla sýnir að börn sem hafa orðið vitni að rifrildi for- eldranna geta orðið meira skapandi og haft meira ímyndunarafl en þau sem heyra aidrei styggðai-yrði fara á milli foreldranna. „Ef foreldra barna greinir á um margt verða bömin að vera Ieldsnögg að sjá marga fleti á ágreiningsefninu og eins verða þau hæfari í að þola óvissu og umbera ^ skoðanamun en önnur börn,“ segir Richard Koestner sem stóð fyrir könnuninni. H FOLK I FRETTUM KVIKMYNDIR/Sambíóin og Nýjabíó í Keflavík og á Akureyri hafa tekið til sýningar myndina Jack Frost með Michael Keaton og Kelly Preston í aðalhlutverkum. JACK gaf syni sínum, Charlie, munnhörpu stuttu áður en hann lést í bflslysi. JACK og Charlie bjuggu til snjókall saman. Faðir fær annað tækifæri Frumsýning JACK Frost (Miehael Keaton) var í þann veginn að ná ævi- löngu markmiði sínu um að verða frægur tónlistarmaður þeg- ar hann dó í bílslysi. Hann lét eftir sig eiginkonu (Kelly Preston) og son, sem höfðu orðið að þola stöðugar fjarvistir hans að heiman og sonurinn sífelld svikin loforð. En Jack snýr aftur frá helheimum ári eftir fráfall sitt í gervi snjókalls sem vaknar til lífsins og æðri mátt- arvöld veita honum með þessum hætti lokatækifæri til þess að bæta samskiptin við son sinn áður en hann hverfur honum að eilífu. Michael Keaton naut þess að leika tónlistannann og í hljómsveit. Hann æfði af kappi með hljóm- sveitinni sem Jack Frost spilar í í myndinni. „Ég missti aldrei úr æf- ingu og hélt áfram að djamma með hinum tónlistarmönnunum þar til ég féll inn í hópinn.“ Keaton samdi m.a. tvö lög, sem leikin eru í mynd- inni, í félagi við Trevor Rabin, sem annast tónlistina í myndinni. Þar sem hann er í gervi snjókalls mestalla myndina þurfti Michael Keaton ekki að vera nema 3 vikur við tökur á myndinni en þurfti að lesa fyrir snjókallinn án þess að hafa séð fígúruna á tjaldinu. „Ég hafði aldrei gert neitt þessu líkt áð- ur,“ segir Keaton. „Þetta var skot út í loftið. Ég hafði ekki séð mynd af snjókallinum og vissi ekki hvað ég var að gera. Ég fékk að vita hvaða tilfinningar ætti að sýna og lék það svo með röddinni." Strákurinn Charlie, sonur Jack Frost, er hins vegar leikinn af Jos- eph Cross sem lék í Desperate Mea- sures með Michael Keaton. Hann þurfti mikillar þjálfunar við og lærði m.a. að spila íshokkí áður en hann hófst handa við leikinn í myndinni. Krydd- pía ger- ist náæta FYRRUM kryddpían Geri Hall- iwell, sem breyttist í siðsama og fágaða konu á augabragði eftir að hafa yfirgefið Spice Girls fyrir tæpu ári, kemur fram í enn einu gervinu í myndbandi við lag sem er frumraun hennar á sólóferlin- um. f myndbandinu leikur hún nokkurs konar náætu að sögn blaðsins Mirror og kemur fram í hvítum kjól og með sítt, rautt hár, arkandi á milli legsteina með hóp nunna á eftir sér. „Geri er eins og blanda af Kate Bush og Madonnu" er haft eftir manni sem vann við fram- leiðslu myndbandsins. „Þetta er stefnubreyting hjá henni og myndbandið mun hneyksla marga.“ Myndbandið var tekið upp í tékknesku borginni Prag og kostaði um 28 milljónir króna. Það er við lagið „Look At Me“ sem er fyrsta smáskífan af breið- skífunni sem kemur út í sumar. Geri hefur lagt hart að sér til að losna við væmnu poppímyndina sem hún fékk þegar hún var í Spice Girls og vonast til þess að nýja útlitið höfði til eldri áheyr- enda. Gagnrýnendur telja að hún hafí tekið mikla áhættu með því GERI Halliwell hóf sólóferil fyrir skömmu. að vera jafn lengi og raun ber vitni frá poppheiminum því fólk gæti hreinlega verið búið að gleyma henni. Hún gerði nýlega samning sem hljóðar upp á um 40 milljón- ir króna um að skrifa ævisögu sína fyrir bresku útgáfuna Delacorte og kemur hún út í september. Fregnir herma að hún sé tilbúin í slaginn og ætli að gera eftirminnilega vai't við sig að nýju. Halliwell var löngum talin hugsuðurinn á bak við Spice Girls en síðan að hún hætti í hljómsveitinni hafa hin fjögur kryddin þó haldið áfram að semja vinsæla tónlist. Eftirminnilegast finnst honum samt að hafa leikið í mynd á móti 175 sm háum snjókalli. „Ég sá hann íyrst þegar við vorum að máta búningana, og það var furðulegt hvemig þeir gátu látið hann tala og gert hann dapran eða hamingjusaman til skiptis og gefið honum allar mann- legar tilfinningar," segir strákurinn. Leikstjórinn Troy Miller hefur hlotið tvenn Emmy-verðlaun iyrir sjónvarpsmyndir en hefur ekki áður gert kvikmynd fýrir hvíta tjaidið. Fi-amleiðandi myndarinnar Irv- ing Azoff segir að leikhópurinn hafi náð frábærlega vel saman. „Það var frábært að hafa Michael Keaton, Kelly Preston og afganginn af þess- um frábæra leikhóp, sem gaf þess- ari sögu góða blöndu af kímni og raunverulegum tilfinningum. Ég er í sjöunda himni með þessa mynd.“ Radisson SAS SagaHolel Reykjavík Heilsubðtar dansleikur eítir skemmtidagskrá Ladda og * i • ~x Klass leikurfyrir dansi frákl. 23.30 íkvöld. Söngvarar: Sigrún Eva Ármannsddttir og Reynir Guðmundsson Mfmishar Raggi Bjama og Slefán Jökulsson slá á léttari no'tur á Mfinisbar
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.