Morgunblaðið - 14.04.1999, Page 8
8 MIÐVIKUDAGUR 14. APRÍL 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
ÞIÐ megið raula eitthvað með honum Geir litla, krakkar mínir.
Dabbi má ekki koma út að leika núna.
Þing skurðlækna og svæfíngalækna
Þrjár viðurkenn-
ingar fyrir erindi
Morgunblaðið/Þorkell
VIÐURKENNINGAR afhentar, frá vinstri: Aðalbjörn Þorsteinsson,
formaður Svæfinga- og gjörgæslulæknafélags íslands, Katrín Mari'a
Þormar, Jón Tómasson, Eh'sabet S. Guðmundsdóttir og Bjarni Torfa-
son, fráfarandi formaður Skurðlæknafélags íslands.
ÞRÍR unglæknar fengu viður-
kenningu á sameiginlegu ársþingi
Skurðlæknafélags íslands og
Svæfinga- og gjörgæslulæknafé-
lags Islands fyrir helgina: Katrín
María Þormar, Jón Tómasson og
Elísabet S. Guðmundsdóttir. Verð-
launin eru veitt fyrir framúrskar-
andi erindi en á þinginu greiða
fundarmenn atkvæði að loknum
hverjum fundi.
Þingin hafa
verulegt gildi
Bjarni Torfason, fráfarandi for-
maður Skurðlæknafélagsins, sagði
í samtali við Morgunblaðið að þing
sem þessi hefðu verulegt gildi,
þarna kæmi fram fjöldi fyrirlesara
með efni frá ólíkum sviðum sér-
greinanna og væri þetta ekki síst
góður æfingavettvangur fyrir
unglækna í því að taka saman efni
og flytja á móðurmálinu.
Samstarfsmenn
komu við sög^u
Elísabet S. Guðmundsdóttir, á
handlækningadeild Landspítalans,
hlaut viðurkenningu fyrir erindi
um Hirsehprungs-sjúkdóm (ristil-
sjúkdóm) á íslandi 1968 til 1998.
Jón Tómasson, á þvagfæraskurð-
deild Sjúkrahúss Reykjavíkur,
hlaut viðurkenningu fyrir erindi
um krabbamein í blöðnihálskirtli,
greiningarstig, meðferð og afdrif
karla á tímabilinu 1983 til 1987. Þá
hlaut Katrín María Þormar, á
svæfingadeild Landspítalans, við-
urkenningu fyrir erindi sitt,
þriggja lyfja utanbastsverkjameð-
ferð og ógleðitíðni síðustu þriggja
ára við stærri aðgerðir á hand-
lækningadeild Landspítalans.
I öllum tilvikum koma sam-
starfsmenn þeirra á deildunum eða
öðrum deildum eða stofnunum við
sögu við samantekt þeirra á um-
fjöllunarefninu.
Fötlun, fíkn og meðvirkni
Hefðbundin
meðferð hefur
ekki reynst vel
Halldór Kr. Júlíusson
OTLUN, fíkn og
meðvirkni er yfir-
skrift námskeiðs
sem Félag sálfræðinga
sem starfar að málefnum
fatlaðra stendur fyrir. Til
siðs hefur verið að halda
annað hvert ár námskeið
fyrir þá sem vinna við um-
önnun og meðferð fatlaðra
einstaklinga. Halldór Kr.
Júlíusson sálfræðingur
hefur unnið að skipulagn-
ingu námskeiðsins.
„Þetta námskeið er tví-
þætt, annars vegar verður
fjallað um fíkn meðal fatl-
aðra og meðferð. Hins
vegar ætlum við að taka
fyrir meðvirkni starfsfólks
sem vinnur að málefnum
fatlaðra."
-Þurfa fatlaðir á ann-
ars konar meðferð að halda en al-
mennt stendur til boða?
„Hluti fatlaðra getur ekki nýtt
sér hefðbundin meðferðartilboð.
Þar á ég fyrst og fremst við fólk
sem er alvarlega greindarskert
eða þroskaheft.
Hefðbundin meðferð setur for-
sendur um skilning og þátttöku í
umræðum og þroskaheft fólk hef-
ur ekki þennan þroska." Halldór
segir að ákveðinn hópur fatlaðra
þurfí meðferð og reynt hafí verið
að beita hefðbundnum leiðum en
þær hafa ekki gefíst vel. „Við
buðum þess vegna á námskeiðið
erlendum fyrirlesara sem hefur
unnið með þroskaheftum og al-
varlega greindarskertum ein-
staklingum á þessu sviði, þ.e.
þeim sem eru haldnir fíkn eins og
áfengisvanda eða spilafíkn."
- Hvað er átt við með að
starfsfólk á þessu sviði geti verið
meðvirkt?
„Fólk sem vinnur umönnun-
arstörf tengist oft skjólstæðing-
um sínum sterkum tilfinninga-
böndum. Slíkt samband er eðli-
legt og mikilvægt fyrir báða að-
ila.
Stundum upplifir starfsfólk
hins vegar að það hafi kvaðir
gagnvart skjólstæðingum sínum
sem ná út yfir vinnuna og það
hefur stöðugar áhyggjur af vel-
ferð þeirra og líðan. Starfsfólkið
tekur t.d. upp á því að bjóða
skjólstæðingum heim til sín, færa
þeim mat, föt eða aðrar gjafir og
hafa stöðugar áhyggjur af þeim
þegar þeir eru í fríi. I stuttu máli
láta þeir líðan sína stjómast af
líðan skjólstæðinganna. Slíkt er
kallað meðvirkni."
Halldór bendir á að meðvirkni
sé alvarlegur álagsþáttur í starfi
og sé ein algengasta ástæða kuln-
unar í starfi. „Flestir sem starfa
við umönnun kannast
við einhver einkenni
meðvirkni."
- Hvað er átt við
með kulnun?
„Það er þegar fólk
fer að verða vart við
ýmis einkenni andlegs
álags eins og depurð og framtaks-
leysi varðandi starfið. Það missir
áhugann á starfi sínu og gefst
jafnvel upp á að vinna í sínu fagi.“
- Er þetta algengt?
„Já, á þessu sviði er töluvert
um að þetta gerist. Meðvirkni
meðal starfsfólks hefur á hinn
bóginn lítið verið til umræðu, um-
ræðuefnið þykir óþægilegt þar
sem það snertir sterk tilfinninga-
viðbrögð.“
-Hvaða fyrirlesara verðið þið
með á námskeiðinu?
► Halldór Kr. Júlíusson er
fæddur í Reykjavík árið 1948.
Hann nam sálfræði við Kaup-
mannahafnarháskóla og lauk
magistersprófi frá sama skóla
árið 1982.
Halldór lauk doktorsprófi í
þróunarsálfræði frá Háskólan-
um í Alabama í Bandaríkjunum
árið 1994. Hann var forstöðu-
maður og framkvæmdastjóri
Sólheima í Grímsnesi og hefur
undanfarin tvö ár verið yfirsál-
fræðingur svæðisskrifstofu
Reykjavíkur í málefnum fatl-
aðra.
Eiginkona hans er Ólína Guð-
mundsdóttir skurðhjúkrunar-
fræðingur og eiga þau þijár
dætur.
„Aðalfyrirlesarinn okkar er
Bandaríkjamaðurinn Duane
Reynolds sem er forstöðumaður
Vinland Center í Minnesota. Sú
stofnun hefur verið að vinna með
alvarlega greindarskert fólk og
þroskahefta sem þurft hafa á
meðferð að halda. Duane hefur
áratuga reynslu af starfí á þessu
sviði og það er okkur mikilvægt
að fá hann hingað til lands. Du-
ane mun bæði ræða um meðferð
og meðvirkni. Þá mun Páll Bier-
ing geðhjúki-unarfræðingur
halda fyrirlestur en hann gerði
rannsókn á meðvirkni meðal
hjúkrunarfræðinga. Andrés
Ragnarsson sálfræðingur talar
um meðvirkni og Geirlaug
Bjömsdóttir þroskaþjálfi ræðir
um eigin reynslu í starfi og
hvemig hún uppgötvaði með-
virkni hjá sér og tókst á við þá
þætti.
Jón Bjömsson, sálfræðingur
og forstöðumaður fræðslu, menn-
ingar- og uppeldissviðs hjá
Reykjavíkurborg verð-
ur með innlegg í þessa
umræðu, Þórkatla Að-
alsteinsdóttir sálfræð-
ingur mun skilgreina
meðvirkni og Stefán
Jóhannsson fjöl-
skylduráðgjafi talar
um skilgreiningu og þróun á fíkn
og meðferð. Auk þess talar Pétur
Tyrfingsson hjá SÁÁ um
spilafíkn á íslandi og Björgvin
Kristbergsson sem er fatlaður
mun segja frá spilafíkn sinni. Að
lokum mun ég kynna niðurstöður
úr könnun þar sem meðvirkni og
streita var könnuð og sr. Anna
Pálsdóttir ræðir um meðvirkni út
frá trúarlegum sjónarhóli. Nám-
skeiðið stendur yfir dagana 15.
og 16. apríl og verður í Rúg-
brauðsgerðinni.
Meðvirkni
meðal starfs-
fólks hefur
lítið verið til
umræðu