Morgunblaðið - 14.04.1999, Side 22

Morgunblaðið - 14.04.1999, Side 22
22 MIÐVIKUDAGUR 14. APRÍL 1999 MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI 500 milljóna kr. hlutafjáraukningu Netverks lokið Stefnt að skráningu félagsins á erlenda hlutabréfamarkaði LOKIÐ er 500 milljóna króna hlutafjárútboði hátækni- og hug- búnaðarfyrirtækisins Netverks. Is- lenskir og erlendir fjárfestar keyptu allt hlutaféð. Jafnframt hef- ur verið ákveðið að höfuðstöðvar fyrirtækisins verði í Englandi og íslenska fyrirtækið verði dótturfé- lag þess erlenda. Stefnt er að skráningu á erlendum hlutabréfa- mörkuðum innan tveggja ára. Franski fjárfestingarbankinn Banque Paribas í London hefur unnið að 500 milljóna kr. hlutafjár- útboði Netverks hf. frá því í lok ágúst síðastliðins og er það í fyrsta skipti sem erlendur banki tekur að sér að bjóða út hlutafé íslensks fyr- irtækis. Landsbankinn sá um út- boðið hér á landi samkvæmt samn- ingi við franska bankann. Síðastlið- inn mánudag var gengið frá lokaá- fanga fjármögnunarinnar með und- irritun samnings milli Netverks hf. og forystufjárfestisins, breska fjár- festingarfyrirtækisins PiCapital, og í dag verður undirritað sam- komulag um að hlutafjárútboðinu sé að fullu lokið. Þróunar- og markaðsstarf „Að fá inn þetta hlutafé leyfir okkur að herða róðurinn við þróun á hugbúnaði og að byggja upp sölu- og markaðskerfi,“ segir Holberg Másson, stjómarformaður og aðal- eigandi Netverks, þegar hann er spurður að því hvaða tækifæri hlutafjárútboðið gefi félaginu. Net- verk framleiðir hugbúnað fyrir gervihnattasamskipti undir vöru- merkinu MarStar. Netverk mun byggja upp höfuð- stöðvar í Bracknell í Englandi en aOt rannsóknar- og þróunarstarf fer áfram fram á Islandi. Holberg segir að tU þess að gera félaginu kleift að leita til erlendra fjárfesta hafi orðið að stofna félag erlendis og gera íslenska fyrii-tækið að dótt- urfélagi þess. Erlendir fjárfestar hafi ekki kynnst íslenskum fyrir- tækjum að neinu ráði. Fyrirtæki á hinum Norðurlöndunum hafi farið eins að þegar þau leituðu í upphafi til erlendra fjárfesta en þeir hafi síðan í auknum mæli fjárfest beint í fyrirtækjunum. Býst hann við sömu þróun hér. Framkvæmdastjórinn í Englandi Um 300 milljónir af hlutafjár- aukningunni nú koma frá íslensk- um fjárfestum en um 200 miiljónir frá þeim erlendu. Holberg reiknar með frekari aukningu og að hún komi þá að mestu leyti frá erlend- um fjárfestum og að það hlutafé verði selt á hærra gengi en nú. Stefnt er að skráningu félagsins á erlendum hlutabréfamörkuðum og vonar Holbert að það takist innan tveggja ára. David Allen, markaðsstjóri Cisco Systems í Evrópu, hefur verið ráð- inn framkvæmdastjóri Netverk Ltd. með bækistöðvar í Bracknell, suður af London. Holberg segir að uppbygging aðstöðu í Bretlandi geri fyrirtækinu kleift að ráða Breta og Bandaríkjarnenn í sölu- og markaðsstarf. „Hluti af því að ná árangri á þessu sviði er að ná í hæft starfsfólk. Okkur hefur tekist að ráða reynt erlent starfsfólk tU fyrirtækisins.“ Nú vinna um 55 starfsmenn hjá Netverki og mun þeim fjölga ört á næstunni við upp- byggingu aðstöðunnar í BrackneU. Reiknar Holbert með því að þeir verði um 100 í lok ársins, helming- ur hér á landi og helmingur erlend- Fyrirtækja- stefnumót í Vín FULLTRÚAR um 2.500 fyrirtækja, víðsvegar að úr heiminum, munu taka þátt í svokölluðu fyrirtækja- stefnumóti sem haldið verður í Vín í Austurríki 10. og 11. maí næstkom- andi. Tilgangur stefnumótsins, sem ber heitið Europartenariat, er að leiða saman fyrirtæki sem hafa óskir um samstarf. Skipuleggjendur flokka þau fyrirtæki sem skrá sig eftir atvinnugreinum svo auðveldara sé fyrir gestafyrirtæki að velja þau fyrirtæki úr sem gætu hentað í sam- starfi. Þá eru skipulagðir fundir milli einstakra fyrii'tækja, allt eftir óskum þátttakendanna. Island hóf þátttöku í fyrirtækja- stefnumótum árið 1993 og hefur síð- an þá verið þátttakandi í um 4 mót- um á ári. Að jafnaði hafa 5-6 fyrir- tæki farið frá íslandi á hvert mót og hafa mörg þeirra farið oftar en einu sinni. Fram kemur í fréttatilkynn- ingu að flestir þátttakenda héðan telji þessa tegund stefnumóta mun hnitmiðaðri en alþjóðlegar vörusýn- ingar. Fyrirtækjastefnumót hafa verið haldin á vegum Evrópusambands- ins frá árinu 1988. Tilgangur þeirra er að leiða saman fyrirtæki frá ólík- um heimshornum sem áhuga hafa á samstarfi. Framkvæmdastjóm ESB útnefnir í upphafi eitt land til að gegna hlutverki gestgjafa þar sem mótið er haldið. Gestgjafaland- ið sér síðan um að kynna starfsemi og samstarfsóskir þarlendra fyrir- tækja og bóka fundi milli þeirra og hugsanlegra samstarfsaðila erlend- is. Fyrirtækjastefnumótin hafa ver- ið vel sótt og yfirleitt hafa u.þ.b. 2.000 gestafyrirtæki og 500 heima- fyrirtæki tekið þátt. Stoðtækjafyrirtækið Össur hf. stefnir á hlutabréfamarkað Hagnaður nam 79 milljónum 1998 STOÐTÆKJAFYRIRTÆKIÐ Össur hf. skilaði 79 milljóna króna hagnaði eftir skatt árið 1998, sam- anborið við tæpar 12 milljónir árið 1997 og 6 milljónir árið 1996. Heild- artekjur félagsins námu um 1.034 milljónum króna árið 1998 en þær voru 783 milljónir króna árið 1997 og 652 milljónir króna árið 1996. Arðsemi heildarfjármagns var 22% og arðsemi eigin fjár 77%, bæði eft- ir skatta. Helstu ástæður veltuaukningar árið 1998 eru nýjar vömr sem komu Verðbréfaþing íslands hefur samþykkt að taka til skráningar: Skuldabréf Sorpeyðingar höfuðborgarsvæðisins bs. 1. flokkur 1999 Krónur 310.000.000,- Greiddar veröa 10 jafnar afborganir, vextir og verðbætur á sex mánaða fresti, í fyrsta skipti 5. janúar 2005 og lokagjalddagi er 5. júlí 2009. Skuldabréfaflokkurinn verður skráður 19. apríl 1999. Nánari upplýsingar um skuldabréfin og skráningu þeirra má nálgast hjá Fjárfestingarbanka atvinnulífsins hf. á markað á árinu, m.a. Iceross Comfort, Iceross Pads og nýjar út- gáfur af Masterstep og IceCast. Jón Sigurðsson, forstjóri Össurar hf., sagði í samtali við Morgunblaðið að sem dæmi um velgengni nýrra vara mætti nefna að á síðasta ári hefðu rúmlega 30% tekna komið frá vörum sem settar hefðu verið á markað á síðustu tveimur áram. Sala Össurar hf. skiptist í megin- dráttum eftir markaðssvæðum með þeim hætti að sala á Bandaríkja- markaði nam 45% af veltu og sala til EES-landa nam 40% af veltu. Sala til stríðshrjáðra svæða nam 1% af sölu fyrirtækisins. Á árinu 1998 var öll starfsemi Össurar á Islandi flutt að Grjóthálsi 5 í Reykjavík, jafnframt því sem framleiðsludeildin var flutt heim til íslands frá Bandaríkjunum. „Þetta endurspeglar þá hröðu ný- sköpun sem er hjá fyrirtækinu, en framleiðsluvörarnar endurnýjast á 5-6 ára fresti. Vöraþróunin fer fram hér á landi og það kom í ljós að það var mjög dýrt að yfirfæra nýja vöru til framleiðsludeildarinnar sem var í Bandaríkjunum. Við komumst að því að mikill sparnaður yrði við að færa framleiðsluna á sama stað og vöruþróunina," segir Jón Sigurðs- son. Össur hf. undirbýr nú skráningu fyrirtækisins á hlutabréfamarkaði. „Það stendur þannig að við erum að athuga málið og erum með ráðgjafa í því, og verðum tilbúnir að tala við fjármálafyrirtæki eftir kannski einn mánuð,“ segir Jón og bætir við að þeir stefni að því að geta ákveðið hvenær og hvar skráning fari fram eftir tvo til þrjá mánuði. Um reksturinn á því ári sem nú er að líða segir Jón að hann hafi gengið mjög vel, og búist hann við því að reksturinn verði áfram viðun- andi. Starfsmenn Össurar hf. era nú 110 talsins. Barclays missir enn forstjóra London. Reuters. BARCLAYS bankafyrirtækið í Bretlandi hefur tilkynnt að nýr aðalframkvæmdastjóri þess, Michael O’Neill, hafi sagt af sér af heilsufarsástæðum, tæpum tveimur mánuðum eftir tilnefn- ingu hans í embætti. O’Neill er frá Kalifomíu og hon- um var falið að taka við stjóm Barclays eftir óvænta afsögn Martins Taylor í fyiTa. Honum var falið að valda vendingu í rekstri fyrii*tækisins eftir nokkur áföll sem bankinn hafði orðið fyrir. O’Neill settist aldrei í for- stjórastólinn. Hann er 52 ára og fær enga lokagreiðslu. I ljós kom eftir að hann veiktist af inflúensu að hjartsláttur hans var óreglulegur. O’Neil vann áður hjá Bank of America og var kunnur fyrir leikni í að sjá um flókna samn- inga. Hann átti að fá 850.000 pund í árslaun og 100% bónus fyrsta árið. i lh i u h 11 p u wi HÖNNUN / SMÍÐI / VIÐGERÐIR / ÞJÓNUSTA FJÁRFESTINGARBANKI ATVINNULÍFSINS H F Armúli 13a 108 Reykjavík Sími: 580 50 00 Fax: 580 50 99 www.fba.is ÉE HÉÐINN = Stórás 6 »210 Garðabæ sími 569 2100 • fax 569 2101 #

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.