Morgunblaðið - 14.04.1999, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 14. APRÍL 1999 23
VIÐSKIPTI
Stefnir í 5% vaxtamun milli
Islands og annarra landa
VEXTIR vom lækkaðir um 25
punkta í Bretlandi á fimmtudag.
Vextir vora einnig lækkaðir um 50
punkta í Evralandi. Vaxtamunur
milli Islands og annarra landa
stefnir því óðfluga á 5,00%. Búast
má við að þessi mikli munur styðji
við gengi krónunnar þar sem
vaxtalækkanir erlendis era ígildi
vaxtahækkunar hér á landi. Mikill
og viðvarandi viðskiptahalli og við-
leitni Seðlabankans til að styrkja
gjaldeyrisvaraforðann munu þó
koma í veg fyrir verulega styrk-
ingu krónunnar.
Englandsbanki virðist hafa met-
ið það svo að engin hætta væri á
aukinni verðbólgu og að þar með
væri ekki tekin mikil áhætta með
lækkuninni á fimmtudag. Hagvöxt-
ur hefur farið minnkandi í Bret-
landi að undanfömu og reynir
Seðlabankinn að ná svokallaðri
„mjúkri lendingu" hagkerfisins.
Vextir era nú 5,25% í Bretlandi
sem era lægstu vextir síðan í sept-
ember 1994. Eins og ávallt var
þessi vaxtalækkun að hluta til
komin inn í verð pundsins á gjald-
eyrismörkuðum, að því er fram
kemur í markaðsyfirliti Lands-
banka Islands á fóstudag.
Vextir vora einnig óvænt lækk-
aðir um 50 punkta í Evrópu. Þar
voru rökin augljósari fyrir vaxta-
lækkun en það kom hins vegar á
óvart hversu mikil lækkunin var.
Verið getur að Seðlabanki Evrópu
hafi viljað sýna markaðnum fram á
sjálfstæði sitt með því að koma á
óvart og lækka meira en almennt
var búist við.
Þrýstingur á að Bretar lækki
vexti enn frekar
í markaðsyfirliti Landsbankans
kemur fram að nú hafi vextir verið
lækkaðir í Svíþjóð, Kanada, Bret-
landi og nú síðast í Evrulandi.
„Þessar vaxtalækkanir skila sér
hingað til lands í foi-mi aukins
vaxtamunar milli Islands og okkar
helstu viðskiptalanda. Vaxtamunur
er nú í sögulegu hámarki en ofan-
greindai’ vaxtalækkanir þýða að
vaxtamunur hefur farið úr 4,20% í
4,60%. í morgun (á fóstudag) lækk-
uðu vextir í Sviss og Danmörku um
50 punkta. Eftir þessa hrinu má bú-
ast við að Svíþjóð og Noregur fylgi
á eftir. Þessi lækkun í Evralandi
mun einnig auka þrýsting á að
Bretar lækki aftur þar sem vaxta-
munur milli Þýskalands og Bret-
lands hefur á nýjan leik aukist. Ef
við gefum okkur að þessi ríki lækki
vexti um 25 punkta í þessum og
næsta mánuði mun vaxtamunur
aukast um 10-15 punkta.
Vaxtamunur milli íslands og
annarra landa stefnir því óðfluga á
5,00%. Þessi mikli munur hlýtur
fræðilega að styðja við gengi krón-
unnar þar sem vaxtalækkanir er-
lendis era ígildi vaxtahækkunar
hér á landi. Mikill og viðvarandi
viðskiptahalli og viðleitni Seðla-
bankans til að styrkja gjaldeyris-
varaforðann munu þó koma í veg
fyrir veralega styrkingu krónunn-
ar. Einnig draga hertar lausafjár-
reglur Seðlabankans úr aðgengi
innlendra aðila að erlendu lánsfé.
Þess vegna er ekki gefið að mikill
vaxtamunur kalli á mikið gjaldeyr-
isinnstreymi til landsins. Sam-
kvæmt ofansögðu er talsvert við-
nám við styrkingu krónunnar," að
því er fram kemur í markaðsyfirliti
Landsbankans.
Verðtryggð skuldabréf
álitlegur kostur
Þar kemur fram að hugsanlega
hafi á nýjan leik skapast tækifæri
til þess að opna skiptasamninga
þar sem fjárfest er í innlendum
verðbréfum og kaupin fjármögnuð
með erlendu lánsfé. „Avöxtunar-
krafa á langtímamarkaði hækkaði
eftir aðgerðir Seðlabankans. Það
getur því verið álitlegur kostur að
kaupa verðtryggð skuldabréf um
þessar mundir. Eins réttlætir hinn
mikli vaxtamunur skuldsetningu í
erlendri mynt,“ að því er fram
kemur í markaðsyfirliti Lands-
bankans.
Góðir rekkar tryggja hámarksnýtingu á
dýrmætu plássi. Bjóðum allskonar
lager- og hillukerfi. Jafnt rúllurekka sem
innkeyrslurekka, jafnvel færanlega rekka.
Mjög gott verð!
Lyftitæki og triilur færðu einnig hjá okkur.
Lagerlausnir eru okkar sérgrein
MECALUX
gæði fyrir gott verð
UMBOÐS- OG HEILDVERSL UN „
irauœiír shf
SUNDABORG 1 • SlMI 568-3300
Bliki G. Ben. hf. með 28,5 milljónir
króna í hagnað
Viðsnúningur í
rekstri milli ára
BLIKI G. BEN hf„ BGB, á Ár-
skógssandi var rekið með rúmlega
28.5 milljóna króna hagnaði á síð-
asta ári en velta fyrirtækisins nam
729 milljónum ki’óna. Ef tekið er til-
lit til taps á rekstri dótturfélags
BGB, Oturs ehf., var afkoman þó
nokkru lakari eða sem svarar til
13.6 milljóna hagnaðar. Afkoma fyr-
irtækisins hefur batnað til muna frá
árinu 1997 en þá var 27,6 milljóna
króna tap á rekstrinum. Eignir
BGB eru bókfærðar á 1.213 milljón-
ir og eru veltufjármunir þar af um
132 milljónir króna. Heildarskuldir
námu um 806 milljónum króna, þar
af vora 636 milljóna langtímaskuld-
ir. Eigið fé var rúmlega 400 milljón-
ir um síðustu áramót og veltufé frá
rekstri nam tæpum 98 milljónum
króna.
Að sögn Þóris Matthíassonar,
framkvæmdastjóra BGB, er skýr-
inga á bættri afkomu fyrirtækisins
milli ára einkum að leita í samlegð-
aráhrifum sem gæta fór í rekstrin-
um á síðasta ári og bættri vinnslu
eigin afla í landi. BGB keypti í lok
síðastliðins árs Otur ehf., útgerð og
fiskvinnslu á Dalvík, en hefur nú
selt aftur húsnæði og búnað fisk-
vinnslunnar.
Reynt að auka veiðiheimildir
félagsins
Fyi’irtækið hefur einnig ráðist í
að endurnýja skipakost sinn að
nokkru leyti með sölu á Arnþóri EA
og kaupum á Höfrungi AK. Kaupin
eru liður í tilraunum fyrirtækisins
til að að komast yfir auknar veiði-
heimildir og segir Þórir að nýja
skipið sé mun öflugra en það sem
verið er að selja og gefi meiri mögu-
leika í tengslum við veiðarnar.
Hann segir að þrátt fyrir sam-
drátt í rækjuveiðum hér heima séu
horfur í rekstri fyrirtækisins ágæt-
ar á þessu ári enda vegi auknar
rækjuveiðar á Flæmingjagrunni
upp þann samdrátt. BGB gerir alls
út þrjú fiskiskip og hjá fyrirtækinu
starfa 65 manns, þar af 25 í landi.
Ekki hefur enn verið tekin ákvörð-
un um hvenær aðalfundur félagsins
verður haldinn.
Langar þig til að
kynnast sjóstangaveiði?
Sjóstangaveiðifélag Reykjavíkur gengst fyrir kynningarfundi
um sjóstangaveiði sem skipulögð er á vegum félagsins.
Fundurinn er opinn öllum þeim sem hafa áhuga á að kynnast
starfsemi SJÓR.
Fundurinn verður haldinn fimmtudaginn 15■ apríl 1999
kl. 20:30 á Hótel Sögu, sal B.
BIBS
1 nm
HEIMABI0
Nýjasta og fullkomnasta tækni á einstöku verði!
Einar
Farest veit & Co. hf.
Borgartúni 28 S: 562 2901 og 562 2900
/7
Fallegt útlií
vönduð hönnun
Super-5 Digital Blackline
myndlampi
Digital Comb Filter
165 W magnari
6 framhátalarar
2 bassatúbur
2 bakhátalarar
Öflugur miðjuhátalari
2 Scarttengi að aftan,
Super VHS (DVD) og
myndavélatengi að framan
Glæsilegur skápur
á hjólum með innbyggðum
miðjuhátalara
T0SHIBA
heimabíósprengjan
2878DG kostar aðeins
Kr. ! 24.740 stgr*
með þessu öllu!!
T0SHIBA Pro-Logic tækin
eru magverðlaunuð af
tækniblöðum í Evrópu og
langmest seldu tækin í Bretlandi
T0SHIBA ERU FREMSTIR í TÆKNIÞRÓUN
Hönnuðir Pro-Logic heimabíókerfisins -
DVO mynddiskakerfisins og Pro-drum myndbauuaub
Onnur TOSHIBA 28" tæki
kosta írá kr. 66.510 stgr.
-Staðgreiðsluafslðttur er 10%