Morgunblaðið - 14.04.1999, Síða 25
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 14. APRÍL 1999 25
ERLENT
Forseti Bandaríkjanna dæmdur fyrir að sýna rétti í Arkansas óvirðingu
Clinton gaf vísvitandi
rangan vitnisburð
ÞÓTT Bill Clinton, forseti Banda-
ríkjanna, hafi verið sýknaður af
ákærum til embættismissis fyrr á
þessu ári er glímu hans við dóms-
kerfið ekki lokið. Nú hefur forset-
inn verið fundinn sekur um að sýna
rétti í Arkansas-ríki óvirðingu.
Sama dag og það gerðist var Susan
McDougal, fyrrverandi viðskipta-
félagi Clinton-hjónanna, sýknuð af
sams konar ákæru í sakamáli á
hendur henni.
Dómari í Arkansas kvað á mánu-
dag upp úr um að Bill Clinton, for-
seti Bandaríkjanna, hefði sýnt rétt-
inum óvirðingu með því að fara vís-
vitandi með rangan vitnisburð í
máli Paulu Jones á hendur Banda-
ríkjaforseta. Við vitnaleiðslur í
máli Paulu Jones í janúar 1998
sagðist Bill Clinton aðspurður
aldrei hafa átt í kynferðissambandi
við Monicu Lewinsky en dró þau
orð til baka í ágúst sl. Þetta er í
fyrsta sinn að refsiákvæði þessu er
beitt gegn forseta Bandaríkjanna.
Svörin „röng, blekkj-
andi og loðin“
Susan Webber Wright, ríkis-
dómari í Arkansas, ritaði í 32 síðna
langri skýrslu um málið að svör
Clintons fyrir dómi í Paulu Jones
málinu hefðu verið „röng, blekkj-
andi og loðin, ætluð til þess að
hindra störf réttarins“. Webber
Wright telur mikilsvert að treysta
og vernda réttarkerfíð í málum
sem þessum, „ekki aðeins til þess
að taka á afbroti forsetans heldur
einnig svo aðrir reyni ekki að feta í
fótspor hans og þar með grafa und-
an réttarkerfinu", segir í skýrslu
dómarans. Susan Webber Wright
dómari tekur fram að „engin
ánægja sé fólgin í því að dæma fos-
eta þjóðarinnar fyrir að sýna rétt-
inum óvirðingu".
Lögfræðingar Bandaríkjafor-
seta, sem hafa dóminn til athugun-
ar, hafa ekki tjáð sig um málið op-
inberlega en Clinton hefur 30 daga
frest til þess að áfrýja dómnum eða
biðja um aðrar vitnaleiðslur. Tveir
mánuðir eru hðnir síðan Bill Clint-
on var sýknaður af tveimur ákær-
um til embættismissis í öldunga-
deild Bandaríkjaþings. Ákærurnar
voru afsprengi Paulu Jones-máls-
ins þegar sérskipaður saksóknari,
Kenneth W. Starr, var fenginn til
þess að rannsaka hvort forsetinn
hefði framið meinsæri og hindrað
framgang réttvísinnar.
Lagaspekingar segja niðurstöðu
dómarans í Arkansas áfall fyrir
forsetann og orðspor hans. Sagn-
fræðingar taka í sama streng og
segja dóminn munu marka um-
fjöllun um forsetatíð Bills Clintons
um alla framtíð. Að auki gæti
Clinton misst málafærsluréttindi
sín í Arkansas en Wright dómari
hefur beðið þar til bæra aðila að
meta nauðsyn þess að svipta for-
setann réttindunum í heimaríki
sínu.
Bill Clinton gæti þurft að greiða
Paulu Jones háar upphæðir til við-
bótar þeim 850.000 dollurum, jafn-
virði rúmlega 60 milljóna íslenskra
króna, sem hann samþykkti að
greiða henni er Susan Wright
Webber dómari hafði vísað máli
Jones frá. Auk þess mun forsetinn
þurfa að reiða fram fé til þess að
greiða kostnað er hlaust af fram-
ferði hans fyrir rétti.
Paula Jones gat ekki leynt gleði
sinni með .niðurstöðu dómarans og
aðspurð hvort hún kæmi landi og
þjóð til góða svaraði hún: „Það
gildir einu. Þetta snýst ekki um
það heldur hvað hann gerði.“ Paula
Jones höfðaði einkamál á hendur
Bill Clinton íyrir að hafa sýnt
henni kynferðislega áreitni í hótel-
herbergi í Little Rock í Arkansas
árið 1991.
Susan McDougal sýknuð
Susan McDougal, fyrrverandi
samstarfskona Clinton-hjónanna,
hafði fullan sigur á mánudag í ára-
langri glímu sinni við Kenneth St-
arr, sérstakan saksóknara, er hún
var sýknuð af ákæru um að hindra
framgang réttvísinnar í rannsókn
Starrs á Whitewater-málinu svo-
kallaða. Niðurstaða kviðdómend-
anna er álitin meiriháttar áfall fyr-
ir Starr. í yfirlýsingu frá skrifstofu
saksóknarans sagði að næstu skref
í málinu yrðu gaumgæfð í ijósi
dómsins.
Susan McDougal afplánaði 18
mánaða fangelsisdóm fyrir að sýna
rétti óvirðingu með því að neita að
svara spumingum frá Kenneth St-
arr vegna rannsóknar hans á
vafasömum fasteignaviðskiptum
forsetahjónanna í Arkansas, við-
skiptum sem kennd eru við
Whitewater.
„Eg er enn svolítið dofin,“ sagði
McDougal fyrir utan dómhúsið.
„Þetta er í fyrsta skipti frá því árið
1993 að ég á ekki kæru yfir höfði
mér.“
Reuters
BILL Clinton, forseti Banda-
ríkjanna, gaf vísvitandi rangar
upplýsingar fyrir dómi.
SUSAN Webber Wright, dóm-
ari í Arkansas.
SUSAN McDougal var sýknuð
af ákæru um að hindra fram-
gang réttvísinnar.
Kosningabaráttan
í Skotlandi
Persónufylgi
Salmonds
hrapar
London. The Daily Telegraph.
STAÐA Verkamannaflokksins
breska vegna komandi þingkosninga
í Skotlandi styrktist enn á mánudag
þegai' ný skoðanakönnun dagblaðs-
ins The Scotsman sýndi að persónu-
fylgi Alex Salmonds, leiðtoga Skoska
þjóðarflokksins (SNP), hefur minnk-
að verulega, en Salmond hefur hing-
að til verið álitinn eitt helsta vopn
SNP í baráttunni. Salmond reyndi
að bera sig vel í gær og sagði að mál-
efnin en ekki menn myndu ráða nið-
urstöðunni þegar fólk gengi að kjör-
borðinu 6. maí næstkomandi.
Donald Dewar, foringjaefni
Verkamannaflokksins í Skotlandi,
nýtur langmests trausts kjósenda í
Skotlandi, David McLeitchie, leið-
togi íhaldsmanna, kom næstur og
Salmond þriðji, sem er nokkurt áfall
fyrir hann. Þegar spurt var hvern
kjósendur myndu vilja sem forsætis-
ráðherra skoskrar heimastjómar
sögðust 46% helst geta hugsað sér
Dewar en einungis 21% Salmond.
SNP nýtur þó áfram umtalsverðs
fylgis í Skotlandi, en flokkurinn hef-
ur sjálfstæði Skotlands á stefnuskrá
sinni, hefur um og upp úr 30% fylgi
en Verkamannaflokkurinn hefur ná-
lægt 45% fylgi.
Lítill vafi er talinn leika á því að
minni vinsældir Salmonds eigi rætur
að rekja til ummæla sem hann við-
hafði um stríðsrekstur Atlantshafs-
bandalagsins (NATO) í Júgóslavíu.
Þau orð hans að árásir NATO væru
„óafsakanleg vitleysa“ virðast ekki
hafa átt upp á pallborðið hjá kjós-
endum og samkvæmt skoðanakönn-
un The Scotsman hafa nú jafnvel
sumir kjósenda SNP efasemdir um
að Salmond sé réttur maður til að
taka að sér hlutverk forsætisráð-
herra, beri SNP sigur úr býtum í
kosningunum.