Morgunblaðið - 14.04.1999, Síða 26
26 MIÐVIKUDAGUR 14. APRÍL 1999
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ
Afsagnar Perssons krafíst
í sænskum fjölmiðlum
Gagnrýnin, sem ríkisendur-
skoðunin beinir gegn Ringholm
að sögn sænska útvarpsins lýtur
að embættisfærslu hans og ráð-
stöfun fjármuna á vegum embætt-
isins, en ekki í eigin þágu. Gagn-
rýnin er alvarleg og snýst um að
Ringholm hafi notað meira fé en
Atvinnumiðlunin hefur til umráða.
Af hálfu Ríkisendurskoðunar er
hnykkt á að Ringholm beri
ábyrgð á þessu sem yfirmaður
stofnunarinnar.
Valdabarátta
og mittismál
Með afsögn Ásbrinks þykir ljóst
að valdabarátta hafi farið fram í
ríkisstjórninni. Þegar Persson
myndaði stjórn að nýju eftir kosn-
ingarnar í september sló hann
þremur ráðuneytum saman í öfl-
ugt atvinnu- og efnahagsráðuneyti
undir Björn Rosengi’en og hinni
vinsælu en umdeildu Monu Sahlin,
sem um tíma var augljóst leiðtoga-
efni en dró sig í hlé vegna fjár-
málaóreiðu. Ummæli Perssons um
skattalækkanir, sem urðu Ásbrink
tilefni til afsagnar, eru álitin til-
raun Perssons til að koma til móts
við Rosengren á kostnað Ás-
brinks.
Fjórtán ráðherra á 4/2 ári, þar
af fjóra í tíð nýju stjórnarinnar,
hefur Göran Persson forsætisráð-
hen-a Svía misst eða látið hætta í
tíð sinni sem forsætisráðhen-a.
Sænskir fjölmiðlar beina því mjög
athyglinni að stjórnunarstíl Pers-
sons. Fæstir þora að gagnrýna
hann undir nafni, en stíll hans þyk-
ir af mörgum einræðislegur. Hann
taki ákvarðanir og þoli engar mót-
bárur.
En Expressen hefur sína eigin
skýringu á afsögn fjármálaráð-
herrans. Með því að rifja upp
holdafar undanfarinna fjármála-
ráðherra og forsætisráðherra
kemst blaðið að þeirri niðurstöðu
að hin gullna regla sé að aðeins
annar þeirra megi vera feitur. Þar
sem bæði Persson og Ásbrink séu í
góðum holdum geti þeir gi-einilega
ekki setið í sömu stjórn og þvi hafi
annar þurft að víkja. Með útnefn-
ingu Ringholms sem er hár og
grannur, sé eðlilegt jafnvægi kom-
ið á að nýju.
Gengið fyrir lifendur
Reuters
TVEIR gyðingadrengir taka fána
Ísraelsríkis af gaddavírsgirðingu í
Auschwitz í Póllandi. Á hverju ári
er ganga lifenda gengin í fanga- í helför nazista í heimsstyijöldinni
búðunum fyrrverandi til minningar siðari. Um 1.800 gyðingar tóku þátt
um sex milíjónir gyðinga sem létust í göngunni í Auschwitz í gær.
Kaupmannahöfn. Morgunblaðið.
„PERSSON ætti að segja af sér“
er fyrirsögn að leiðara Dagens
Nyheter í gær í kjölfar afsagnar
Eriks Ásbrinks fjármálaráðherra
og í sama streng taka fleiri sænsk-
ir fjölmiðlar. Blaðið segir ekkert
að Bosse Ringholm, eftirmanni
Ásbrinks, en með þessari uppá-
komu sé ljóst að hefð jafnaðar-
manna fyrir sterkum fjármálaráð-
herrum sé brotin.
Snör handtök Görans Perssons
við að finna eftirmann Ásbrinks
þykja benda til að hann hafi átti
von á afsögninni, þótt flestir séu
sammála um að dagsetningin,
tveimur dögum áður en nýjar
efnahagsráðstafanir voru kynntar,
hafi komið á óvart. Ringholm þyk-
ir holdgerving sígildrar sænskrar
jafnaðarstefnu eins og Persson
sjálfur og var nú síðast yfirmaður
Átvinnumiðlunarinnar, sem er ein
af kjarnastofnunum sænska jafn-
aðarmannaveldisins. Þar hefur
hann sætt gagnrýni ríkisendur-
skoðunarinnar. „Það er engin and-
stæða milli hagvaxtar og réttlæt-
is,“ fullyrti Bosse Ringholm er
Persson kynnti hann blaðamönn-
um. Ringholm er 56 ára og ólst
upp við rýr efni líkt og Persson
sjálfur, sem notar hvert tækifæri
til að minna á uppruna sinn og
treysta þannig hugmyndafræðileg-
an grunn sinn. Ringholm hóf póli-
tískan feril í ungliðahreyfingu
flokksins, var formaður hennar og
Göran Bosse
Persson Ringholm
hefur verið embættismaður, en
einnig starfað fyrir flokkinn, eins
og algengt er á þeim bæ. Sjálfur
segist hann vera liðsmaður, sem
vísast var sneið til Ásbrinks fyrir
að geta ekki lagað sig sig að hóp-
anda ríkisstjórnarinnar.
Atkvæðagreiðslu um vantraust á Rússlandsforseta frestað
Jeltsín hæðist
að andstæð-
ingunum
Moskvu. Reuters, The Daily Telegraph.
BORIS Jeltsín, forseti Rússlands,
gagnrýndi í gær þá ákvörðun
þingsins eða Dúmunnar að fresta
atkvæðagreiðslu um vantraust á
hann en nú er talið, að hún verði
um miðjan maí. Eru það einkum
kommúnistar, sem vilja koma
Jeltsín úr embætti, og léttir þessi
niðurstaða nokkuð á þeirri kröfu
þeirra, að Rússar styðji ekki Jú-
góslava aðeins í orði, heldur einnig
á borði.
Ákæra kommúnista og stuðn-
ingsmanna þeirra á Jeltsín er í
fimm liðum og forsetinn kvaðst
hafa kosið, að þingið tæki afstöðu
til hennar heldur fyrr en seinna.
„Þjóðarmorð“ meðal
ákæruatriða
„Enn einu sinni hafa þeir
frestað atkvæðagreiðslunni, þeir
eru alltaf að leita að hentugum
tíma til að reka forsetann úr emb-
ætti,“ hafði Interfax-fréttastofan
eftir Jeltsín. „Þeim mun þó ekki
takast það,“ bætti hann við og
sagðist hafa ítrekað það við
Gennadí Seleznjov, forseta þings-
ins, að annaðhvort greiddi þingið
atkvæði um embættissviptinguna
eða sleppti því alveg.
Gennadí Zjúganov, leiðtogi
kommúnista, sagði, að líklega yrði
málið tekið fyrir um miðjan næsta
mánuð en meðal ákæruatriðanna
er, að Jeltsín hafi leyst upp Sovét-
ríkin með ólöglegum hætti og hafi
auk þess gerst sekur um „þjóðar-
morð“. Er þá átt við, að Jeltsín beri
ábyrgð á örbirgðinni í Rússlandi.
Frjálslyndir menn á þingi styðja
eitt ákæruatriðanna, sem er, að
Jeltsín beri ábyrgð á stríðinu í
Tsjetsjníu 1994-’96.
Ef eitthvert ákæruatriðanna fær
stuðning 300 af 450 þingmönnum í
Dúmunni þá fer málið fyrir stjórn-
arskrárdómstólinn og hæstarétt.
Sambandsráðið eða efri deild
þingsins mun síðan hafa lokaorðið.
Talið er, að Jeltsín njóti stuðnings
dómstólanna og sambandsráðsins
og því ekki miklar líkur á, að hann
verði sviptur embætti.
Akvörðunin um að fresta at-
kvæðagreiðslunni léttir nokkuð á
þrýstingnum, sem Jeltsín hefur
orðið fyrir vegna átakanna í
Kosovo, en þar fyrir utan er það
ekki talið þjóna hagsmunum
kommúnista að láta nú sverfa til
stáls. Þá yrði málið afgreitt með
ósigri þeirra en með því að halda
því vakandi geti þeir notað það í
áróðri sínum 1. maí nk. og á sigur-
deginum 9. maí. Með því að fresta
atkvæðagreiðslunni hættir Dúman
hins vegar á taugastríð við Jeltsín,
sem er ekki vanur að láta andstæð-
ingana eiga neitt inni hjá sér.
Hugsanleg
atburðarás
Jeltsín var búinn að gera það
lýðum ljóst, að samþykkti Dúman
vantraust á hann, myndi hann
svipta ráðherra úr kommúnista-
flokknum embætti. Jevgení
Prímakov forsætisráðherra færi
þá einnig því að hann hefur lýst
yfir, að hann muni ekki líða það,
að ráðherrar sínir verði reknir.
Jeltsín yrði þá að koma með nýtt
forsætisráðherraefni og eins lík-
legt, að hann tilnefndi einhvem,
sem Dúman gæti alls ekki sætt sig
við, t.d. Anatolí Tsjúbaís. Þegar
Dúman hefði hafnað honum
þrisvar myndi Jeltsín rjúfa þing
eins og hann hefur heimild til og
enginn efast um, að hann hafi þor
til þess.
Kommúnistar hafa hótað að
svara þessu með því að hvetja til
allsherjarverkfalls og mótmæla um
allt land en sumir frjálslyndir
menn telja, að þá myndi Jeltsín
láta drauminn sinn rætast og
banna kommúnistaflokkinn.
Sinn Fein
hafnar
málamiðlun
SINN Fein hafnaði í gær Hills-
borough-yfirlýsingunni, mála-
miðlunartillögu forsætisráð-
herra Bretlands og Irlands í af-
vopnunardeilunni á Norður-ír-
landi. En Mo Mowlam, Norður-
írlandsmálaráðherra bresku
ríkisstjórnarinnar, sagði í gær
að hörmulegar afleiðingar of-
beldis og deilna annars staðar í
heiminum í dag, ættu að sýna
mönnum hversu brýnt það væri
að komist yrði að samkomulagi.
Hún sagði ítrekaði einnig að yf-
h'lýsingin væri enn gunnur
samningaviðræðnanna.
Dómur í máli
Anwars
VOPNAÐAR sveitir Malasíu-
hers tóku sér stöðu í gær fyrir
utan dóms-
húsið í Kuala
Lumpur,
höfðuborg
Malasíu, þar
sem úrskurð-
ur í máli
Anwars Ibra-
him, fyrrver-
andi fjármála-
ráðherra
landsins,
verður kveðinn upp í dag.
Námsmenn höfðu safnast sam-
an skammt frá dómshúsinu til
að sýna Anwar stuðning sinn en
hópur þeirra leystist upp við
komu lögreglumanna.
Vinsældir
Hollywood-
sjónvarps-
þátta minnka
VINSÆLDIR sjónvarpsþátta
sem framleiddir eru í
Hollywood, hafa minnkað mjög
í Evrópu og Ástralíu. Niður-
stöður könnunar sem kynnt var
á blaðamannafundi í Cannes á
mánudag sýndu m.a. að 78% af
þeim sjónvarpsþáttum sem
sýndir voru í Evrópu og Ástral-
íu árið 1998 voru innlendir en
bandarískt efni aðeins 18%.
Stjórnarsátt-
máli í Finnlandi
FJÖLFLOKKASTJÓRN
Paavos Lipponens í Finnlandi
náði í gær samkomulagi um
nýjan stjórnarsáttmála og get-
ur því horft fram á fjögur ár til
viðbótar við stjórnvölinn, en
þingkosningar fóru fram í land-
inu í síðasta mánuði. Það tók
flokkana fimm, sem aðild eiga
að stjórninni, fjóra daga að ná
samkomulagi um efnahags-
stefnu og ráðheiTaskipan en
Jafnaðarmannaflokkur
Lipponens varð á endanum að
láta undan kröfum Hægri-
flokksins um aukin áhrif í
stjórninni.
Pólitísk ólga
á Indlandi
MIKIL spenna skapaðist í gær
í ríkisstjórn Indlands er Jay-
aram Jayalitha, leiðtogi annars
stærsta stjórnarflokk landsins,
AIADMK, sagðist ætla að hefja
viðræður við stjórnarandstöðu-
flokka með það að markmiði að
koma á nýrri samsteypustjórn.
Talsmaður stærsta stjórnar-
flokksins, BJP, segjast þó
bjartsýnir á að halda völdum.