Morgunblaðið - 14.04.1999, Síða 34

Morgunblaðið - 14.04.1999, Síða 34
34 MIÐVIKUDAGUR 14. APRÍL 1999 MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN Réttindi skipulagsfræðinga samkvæmt lögum og reglugerð Kristín Linda Ingimar Arnadóttir Sigurðsson í TILEFNI af grein Gests Olafssonar, for- manns Skipulagsfræð- ingafélags Islands, sem birtist í Morgun- blaðinu hinn 27. mars sl. vill umhverfísráðu- neytið koma eftirfar- andi á framfæri varð- andi menntun þeirra sem sinna skipulags- gerð: Fjallað er um lög- gildingu á sérsviði í 49. gr. skipulags- og bygg- ingarlaga nr. 73/1997 og eru þar tilteknar nokkrar starfstéttir sem geta fengið lög- gildingu umhvei’fisráðuneytisins. í 48. gr. er tilgangur með löggild- ingu á ákveðnum sviðum skýrður, en þar segir í 1. mgr.: „Rétt til að leggja fram uppdrætti vegna bygg- ingarleyfis hafa þeir sem til þess hafa hlotið löggildingu ráðherra.“ I 1. mgr. 47. gr. segir ennfremm-: „Aðal- og séruppdrættir skulu vera gerðir af hönnuðum sem hafa feng- ið löggildingu, sbr. 48. og 49. gr. Hönnuðir skulu árita teikningar sínar og þannig ábyrgjast að hönn- unin sé faglega unnin og í sam- ræmi við lög og reglugerðir um byggingarmál.“ Samkvæmt þessu löggildir umhverfisráðuneytið ein- ungis þá sem leggja þurfa hönnun- argögn fyrir byggingarnefndir. Hönnuðir skipulagsáætlana leggja ekki uppdrætti sína fyrir bygging- arnefnd og þurfa ekki að hafa ábyrgðartryggingu eins og þeir hönnuðir sem leggja teikningar fyrir byggingamefnd sbr. 3. mgr. 47. gr. skipulags- og byggingar- laga. I 7. og 10. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 er kveð- ið á um það hverjir hafa heimild til að gera skipulagsuppdrætti. I 7. gr. segir: „I skipulagsreglugerð skal kveðið á um kröfur til mennt- unar og starfsreynslu skipulags- fulltrúa“ og í 5. mgr. 10 gr. segir ennfremur: „I skipulagsreglugerð skulu vera ákvæði um starfshætti skipulagsnefnda, skipulagsfulltrúa og samvinnunefnda um svæðis- skipulag og um menntun og starfs- reynslu skipulagsfulltrúa og ann- arra þeirra sem falin er gerð skipu- lagsáætlana." Ljóst er af þessum ákvæðum að einungis þeir sem uppfylla skilyrði um menntun og starfsreynslu skv. skipulagsreglu- gerð hafa heimild til að annast gerð skipulagsáætlana. I Skipulagsreglugerð nr. 400/ 1998 gr. 2.7. er skýrt tekið fram að einungis þeir sem uppfylla skilyrði 2. mgr. greinarinnar hafa heimild til að starfa sem skipulagsfulltrúar og í 5. mgr. hennar er tekið fram að einungis þeir sem hafa rétt til að sinna starfi skipulagsfulltrúa hafa heimild til að sinna skipulagsgerð. I áðumefndri 2. mgr. segir að í fyrsta lagi séu það skipulagsfræðingar sem hlotið hafa heimild iðnaðarráð- hen'a til að nota starfsheitið og í öðru lagi arkitektar, landslags- hönnuðir, verkfræðingar og tækni- fræðingar sem hlotið hafa heimild frá iðnaðan-áðherra til að nota það starfsheiti og hafa sérhæft sig á sviði skipulagsmála í námi og/eða Skipulagsgerð Það er mat ráðuneytis- ins, segja Ingimar Sigurðsson og Kristín Linda Arnadóttir, að atvinnuréttindum skipulagsfulltrúa og annarra sem heimild hafa til að sinna skipulagsgerð sé veitt fullnægjandi vernd. með starfsreynslu. Tvær undan- tekningar eru frá ofangreindu skil- yrði. Annars vegar er umhverfis- ráðheira heimilt að veita sveitar- stjórnum tímabundna undanþágu frá 1. mgr. gr. 2.7. ef enginn rétt- indamaður fæst í starfið og hins vegar skulu þeir starfsmenn sveit- arfélaga sem sinntu skipulagsmál- um fyrir gildistöku skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 hafa rétt til að gegna starfi sínu áfram þótt þeir fullnægi ekki skilyrðum þeim sem greint er frá í 2. mgr. gr. 2.7. Það er mat ráðuneytisins að at- vinnuréttindum skipulagsfulltrúa og annarra sem heimild hafa til að sinna skipulagsgerð sé veitt full- nægjandi vernd. Lagabreytingu þarf til að skipulagsfulltrúar geti hlotið löggildingu ráðherra á svip- aðan hátt og hönnuðir sem skila teikningum til byggingarnefndar. Þegar fmmvarp til skipulags- og byggingarlaga var til meðferðar á Alþingi á 121. löggjafarþingi kom Skipulagsfræðingafélag Islands að skoðunum sínum um að gera ætti kröfur um að einungis fólk með skipulagsfræðimenntun fengi heim- ild til þess að standa fyrir og bera ábyrgð á efstu þrepum í skipulags- ferlinu þ.e.a.s. landsskipulagi, svæðisskipulagi og aðalskipulagi. Hvað varðar deiliskipulag ættu arkitektar og skipulagsfi’æðingar að hafa réttindi til að standa fyrir þeim enda hefðu báðar stéttimar menntun til þess. Greinar 7. og 10. í frumvarpi umhverfisráðherra til skipulags- og byggingarlaga breyttust í meðfómm Alþingis þannig að sömu greinar skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 kveða á um menntun og starfsreynslu skipulagsfulltrúa og annari'a sem falin er gerð skipulagsáætlana skulj fjallað í skipulagsreglugerð. I skipulagsreglugerð er komið til móts við sþoðanir Skipulagsfræð- ingafélags Islands og gerðar kröfúr til menntunar þeirra sem mega fást við skipulagsgerð, sbr. það sem segir hér að framan. Inginmr er skrifstofustjóri og Kristín Linda Árnadðttir er deildarsérfræðingur. Hálendið og fískimiðin LÖGIN um stjórn fískveiða segja fortaks- laust að nytjastofnar við Island séu sameign þjóðarinnar. I reynd era það orðin tóm. Kvótakerfið, sem byggist á sömu lögum, gerði réttinn til að nytja stofnana að einkarétti örfárra. Sameignarákvæðið er í reynd orðið marklaust. Sama staða er nú uppi varðandi þjóðar- eign á hálendinu. 1.100 ámm eftir landnámið var miðhálendið loks- ins gert að sameign I og skipta á milli jafn- A ALÞJOÐA geð- margra sveitarfélaga heilbrigðisdeginum 10. -í' 'l ^^^jj)ar sem !)(i% íbúanna október síðastliðinn B búa ekki. var gleðilegt að sjá A 1 Fyrir stjórnarflokk- viðbrögð heilbrigðis- þ - / I 'V| anna dugar ekki að visa ráðherra ríkisstjórnar 1 ,***».. I til þess að Albingi hafi Davíðs Oddssonar .... ■ \ 1| samþykkt lög um sér- þegar Tómas Zoega ■ J ■ ■ _j[ > if 1 staka samvinnunefnd yfirlæknir rétti henni 1- álp7|] sem á að búa til sam- skýrslu sem m.a. fjall- 1; / .'•jÆ&ká ræmt skipulag fyrir há- aði um aðbúnað geð- lendið sem hefði hags- veikra bama á íslandi. mun* heildarinnar að Viðbrögð ráðherra fólu leiðarljósi en ekki ein: í sér fögur fyrirheit, en j stakra sveitarfélaga. í ekkert hefur þó komið orðaskiptum mínum og fram sem gefur til Össur Skarphéðinsson þjóðarinnar með langþráðum lög- um um þjóðlendur. Það stóð ekki lengi. Stjórnmál Þeir sem ekki hafa úrslitavald um ráðstöf- un eignar sinnar, segir Össur Skarphéðinsson, eiga hana í reynd ekki lengur. Sama aðferð og var notuð til að ræna þjóðinni eign sinni á fiskimið- unum var jafnskjótt notuð til að taka af henni hálendið líka. Eftir að hafa lýst hálendið sameign knúðu stjórnarflokkarnir í gegn önnur lög sem sviptu þjóðina ráðstöfunar- rétti á hálendinu og færðu hann í hendur örfámenns minnihluta þegnanna. Það gerði ríkisstjórnin með því að búta hálendið niður í 42 ræmur ar umhverfisráðherra á Alþingi 10. mars sl. lýsti ráðherrann neftiilega skorinort yfir að lögin bæri að túlka þannig að hagsmunir einstakra sveitarfélaga einsog þeir birtust í aðalskipulagi væra rétthærri hinu samræmda svæðisskipulagi. Þetta merkir, að eitt örlítið sveit- arfélag getur sett allt skipulag há- lendisins úr skorðum með því að hafna heildarskipulagi samvinnu- nefndarinnar. Hagsmunirnir sem er um að tefla era miklir: Orku- mannvirki með tilheyrandi vega- gerð og línulögnum getur fært ör- litlu sveitarfélagi gríðarlegar tekj- ur. Örfámennt sveitarfélag getur því auðveldlega eyðilagt hálendis- skipulag sem byggist á hagsmunum heildarinnar ef það þjónar hags- munum þess. Þeir sem ekki hafa úrslitavald um ráðstöfun eignar sinnar eiga hana í reynd ekki lengur. Á kjarn- yrtri íslensku heitir þetta að þjóðin hafi með löglegum hætti verið rænd auðlindum sínum bæði í haf- inu og á hálendinu. Höfundur er í 2. sæti á lista Sainfylkingarinnar í Reykjavík. Breytum rétt gagnvart geðveikum börnum kynna að hendur verði látnar standa fram úr ermum. Á þessari stundu er töluverður hópur heimila í „herkví" geðveiks bams. Geðveiki bama brýst einatt út í mjög mikilli athygliþörf, látum, öskram og ýmiss konar neikvæðri hegðun sem ekki verður stöðvuð þar sem um sjúkdóm er að ræða, en ekki frekju og „óþekkt". Þegar börn fæðast hér á landi er læknir yfirleitt til staðar sem skoð- ar þau og gengur úr skugga um að allt sé í lagi. Sé eitthvað að eru gerðar ráðstafanir til lækninga. En ekki er hægt að sjá alla sjúkdóma, sem börn kunna að vera með, við fæðingu. Þetta á ekki síst við um geðveiki, því hún kemur svo sterkt fram í hegðuninni. Foreldrar átta sig seint á að „hin mikla óþekkt“ stafar af andlegum veikindum barnsins. Enda er það iðulega ekki fyix en sjúkdómurinn er orðinn óbærilegur fyrir íjöl- skylduna að leitað er hjálpar sér- fræðinga. Því miður er það svo að mjög löng bið er fyrir höndum, er foreldrar leita hjálpar með geð- veikt barnið sitt. Og þegar komið er að barninu fær það hugsanlega „flýtimeðferð" þar eð næstu böm verða líka að komast að. Þannig verður lækningin eða meðferðin erfiðari og lakari til árangurs. Eft- irfylgd er líka í lágmarki eins og gefur að skilja og á það ekki síst við um landsbyggðina. Eg veit um fólk sem hefur gefist upp á því að leita til BUGL (Barna- og unglinga- geðdeild Landspítal- ans) vegna hins hrika- lega álags sem er á stofnuninnni. Um skólagöngu þessara barna er líka margt ljótt að segja. Til era böm sem notið hafa kennslu í skólan- um sem tengdur er BUGL. Hjá mörgum Karl V. þeirra hefur góður Matthíasson gangur komist í nám- ið. En síðan hefur hall- að undan fæti vegna þess að barna- geðdeildarkerfið getur ekki sinnt hlutverki sínu. Erfitt er fyrir for- Heilbrigðismál Ég er þess fullviss að betri lækningar og þjónusta við geðveik börn, segir Karl V. Matthíasson, hefði getað komið í veg fyrir marga raun í þessum efnum, því er enn brýnna að tekið sé til hendinni. eldra að hafa horft vonglaðir fram á veginn eftir að barnið útskrifaðist og lenda síðan í sama vanmætti að nýju vegna ónógrar eftirfylgdar og styrks frá BUGL. Augljós fylgni er á milli andlegra sjúkdóma unglinga og ofneyslu eit- urlyfja svo sem alkóhóls. Margir andlega þjáðir unglingar finna líkn í þessum eiturlyfjum og leiðast síð- an út í afbrot og glæpi. Eg er þess fullviss að betri lækningar og þjón- usta við geðveik böm hefði getað komið í veg fyrir marga raun í þessum efnum, því er enn brýnna að tekið sé til hendinni. Hér er um víðtækar forvarnir að ræða. Fyrsta skóflustunga hefur verið tekin að nýju sjúkrahúsi fvrir börn (það er hið besta mál, en dapurlegt er að tæknileg mistök hafið tafið framkvæmdir). Ekki er gert ráð fyrir því að þau böm sem geðveik era eigi þar sína deild. Ekki var heldur í tengslum við fyrstu skóflustunguna tilkynnt að hlúð yrði frekar að geðveikum bömum. Era ekki öll veik börn jöfn fyrir kerfinu? Furðulegt er að geðveik börn skuli ekki hafa fengið inni í þessu sjúkrahúsi því augljóst er að þau þurfa á stoðdeildum spítalans að halda (blóðrannsóknir, sjúkraþjálf- un og fleira). Einnig kæmi það sér vel fyrir hin bömin að hafa þessa deild nálægt þar eð sum þeirra nytu góðs af þjónustu hennar við andlega aðhlynningu, því mikið álag er fyrir börn að vera á sjúkra- húsi. Þrátt fyrir margítrekaðar ábendingar lækna og margra ann- arra vina geðveikra bama hefur lít- ið annað gerst en að ráðherrann í heilbrigðisráðuneytinu brosti blíðu brosi til Tómasar Zoega, sem benti á hina alvarlegu stöðu geðveikra bama á Islandi. Era það bara „þungavigtarráð- herramir" sem geta hent út silfri til lýðsins svona rétt fyrir kosning- ar? Eg skora á heilbrigðisráðherr- ann og fjármálaráðherrann að láta til sína taka og skrifa nú þegar 500 milljón króna ávísun; mér skilst að staða ríkissjóðs sé svo gífurlega góð. Ef ekki þá bara skrifa fram í tímann, næsta ríkisstjóm mun ör- ugglega og með glöðu geði finna ráð til að greiða þessa upphæð. Höfundur er sóknarprestur í Grundarfirði og skipar 2. sæti á lista Samfylkingarinnar á Vestfjörðum.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.