Morgunblaðið - 14.04.1999, Síða 45
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 14. APRÍL 1999 45
UMRÆÐAN
Ihald og iðr-
andi syndarar
FRAMTÍÐ þjóðar-
innar og hvernig hags-
munum almennings á
Islandi verður best
borgið á næstu fjórum
árum ræðst fyrst og
fremst af þeirri fram-
tíðarsýn sem stjóm-
málaflokkarnir á Is-
landi hafa. Framtíðin
ræðst ekki af skoðun-
um manna á erjum úr
fortíðinni um hug-
myndaheim sem er
hruninn. Kjör aldraðra
og öryrkja, vernd nátt-
úru landsins og mögu-
leikar unga fólksins til
þroska og velmegunar
ráðast ekki af úr sér genginni hug-
myndabaráttu íhaldsmanna til
hægri og vinstri. Forysta Fram-
sóknai-floksins kemur nú fram fyiir
skjöldu sem iðrandi syndari. Hún
ætlast til þess að kjósendur fyrir-
gefí Framsóknarflokknum að hafa
gleymt því að hafa „fólk í fyrir-
rúmi“, að muna ekki eftir loforðum
sínum hvað varðar bamabætur og
hag fjölskyldunnar 1 landinu. Fram-
sóknai-flokkurinn biður kjósendur
að fyrirgefa sér að hafa látið kjör
aldraðra og öryrkja sitja á hakan-
um. Framsóknarflokkurinn iðrast
og lofar að gera betur næst. Halelú-
ja.
Svikin kosningaloforð
I miðjum klíðum við niðurdýfingu
framsóknarmanna í skímarlaug
sannleikans sáu þeir friðardúfuna,
vonina, í orrustuþotum NATO yfir
Kosovo. Flóttafólk þaðan á auðvitað
skilið að fá alla þá að-
stoð sem hægt er að
veita, en ætlar Fram-
sóknarflokkurinn að
gera kosningabaráttu
sína út frá Kosovo?
Pað er gott að geta
skriðið ofan í gamlar
skotgrafir kalda stríðs-
ins eins og hægri og
vinstri íhaldsmenn
gera. Þar er ylur og
þar er skjól. Par þurfa
menn ekki að ræða
framtíð íslensku þjóð-
arinnar, svikin kosn-
ingaloforð og gríðar-
lega misskiptingu lífs-
gæða á sama tíma og
þjóðarbúskapurinn býr við bestu
skilyrði. Þar þarf ekki að svara
Stjórnmál
Samfylkingin, segír
Heimir Már Pétursson,
er stjórnmálaafl sem
horfir til framtíðarinn-
ar og gefur skýr svör
um áform sín.
spurningum unga fólksins í landinu
um framtíðarsýn stjórnmálaflokk-
anna. Hvort þeir sjái fyrir sér
áframhald á miðstýrðu skömmtun-
ai’valdi núverandi stjórnarflokka
eða stefnu jöfnuðar, réttlætis, lýð-
ræðis, kvenfrelsis og frjálslyndis.
Heimir Már
Pétursson
Hvort þeir sjá fyrir sér áframhald á
gjafakvótakerfinu eða hvort þeir
ætla að innleiða almennar lýðræðis-
legar leikreglur í lög um stjóm fisk-
veiða.
Hvað með Stalín?
Pað er miklu þægilegra að sitja í
rústum kalda stríðsins og spyrja:
Hvernig finnst þér Stalín, hvaða
skoðun hefur þú á Nixon og Ví-
etnam-stríðinu, var Margi-ét
Thatcher mannvinur eða ófreskja?
Þetta getur auðvitað verið ákaflega
fjömgt umræðuefni. Verst að þeir
sem búa við fátækt á Islandi nærast
ekki á spakmælum og dapurlegt að
þetta skuli ekki fela í sér nein svör
til unga fólksins sem eðilega spyr
um áform stjórnmálaflokkanna í
menntamálum, atvinnumálum og
velferðarmálum framtíðarinnar. En
hverjum má ekki vera sama þegar
við getum valið á milli iðrandi synd-
ara og íhaldsmanna til hægri og
vinstri, allt fólk með svo dásamlegar
skoðanir á fortíðinni. Þvílíkt lán fyr-
ir íslenska þjóð.
Samfylkingin er stjórnmálaafl
sem horfir til framtíðarinnar og gef-
ur skýr svör um áform sín. Hún
segir hvorki Albönum, Serbum,
Clinton né Jeltsín stríð á hendur.
Samfylkingin lýsir yfir stríði gegn
fátækt á Islandi, misskiptingu gæð-
anna, spillingu í stjórnkerfinu og
eyðileggingu á náttúru landsins.
Samfylkingin vill byggja þjóðfélag
réttlætis, lýðræðis og frjálslyndis,
þar sem allir Islendingar óháð efna-
hag, búsetu og heilsufari búa við
sömu réttarstöðuna og sömu mögu-
leikana á að leita sér hamingju og
þroska. Samfylkingin hejr kosn-
ingabaráttu sína á íslandi en ekki
frá Kosovo, þótt hún hafi djúpa
samúð með flóttamönnum þaðan,
sem eru á flótta frá því mjög svo
vafasama stríði sem þar er rekið.
Höfundur skipar 11. sæíi
Samfylkingarinnar í Reykjavík.
AJ2H3I*ER
|^eilabilun af völdum Alzheimer sjúkdóms er æ meira áberandi með auknum fjölda
aldraðra. Alzheimer sjúkdómur rænir einstaklíngínn og fjölskyldu hans því sem mestu
varðar, minni og annarri vitrænni getu, og veldur miklum mannlegum þjáningum auk
mikilla fjárhagslegra útgjalda. Rannsóknir hafa þegar aukið innsæi í meingerð Alzheimer
sjúkdómsins og það er raunhæft að vænta þess að á næstu árum og áratugum komi fram
meðferðarleiðir er bægja frá þessum ógnvaldi. Lionshreyfingin gerir vel í því að stuðla
að rannsóknum á þessu sviði.
Pálmi V. Jónsson, forstöðulæknir öldrunarsviðs Sjúkrahúss Reykjavíkur
Þú
qefiö—
utanlandsrerð
- I hverjum mánuði!
í kvöld er dregið í Víkingalottóinu
um tugi milljóna króna!
Fáðu þér miða fyrir kl. 16 í dag.
( ATH! Aðeins^^kr. röðin ~)