Morgunblaðið - 14.04.1999, Blaðsíða 66
66 MIÐVIKUDAGUR 14. APRÍL 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FÓLK í FRÉTTUM
>í
SÖNGVARINN geðþekki
Bruee Springsteen, ásamt
hljómsveit sinni E-Street
Band, er lagður af stað í
tónleikaferð um heiminn.
Hann hóf ferðaiagið með
tónleikum í Ólympfuhöllinni
í Barcelona á Spáni síðast-
liðinn föstudag.
,AAAH, er ekki notalegt í baði,“
gæti annar björninn verið að segja
við hinn í Cdogne dýragarðinum í
Þýskalandi. Á heitum dögum finnst
böngsunum gott að busla í baði enda
eru þeir upphaflega vanari kaldara
loftslagi. Spáð er mjög hlýju veðri
næstu daga í Þýskalandi og því gætu
bangsarnir verið orðnir gegnsósa
áður en yfir lýkur.
Miöasalan er opin daglega frá kl. 13-19.
Símapantanir virka daga frá kl. 10.
Leíkstjóri David Freeman
Hljómsveitarstjóri.Garöar Cortes
Flytjendur
Sigrún Hjálmtýsdóttir
Bergþór Páisson
Þóra Einarsdóttir
Hrafnhildur Björnsdóttir - Loftur Erlingsson
Sigurður Steingrimsson - Þorgeir J. Andrésson
Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir - Snorri Wium
Edda Björgvinsdóttir
ISLENSKA OPERAN
—Jllll Sími 551 1475
MYNDBÖND
Sænskur
hasar
Hamilton
(Hamilton)
IV j ósna/hasar
★★
Leikstjórn: Harold Zwart. Aðalhlut-
verk: Peter Stormare, Lena Olin og
Mark Hamil. 101 mín. Sænsk. Sam-
myndbönd, mars 1999. Aldurstak-
mark: 16 ár.
MARGIR muna eftir framhalds-
þáttum um sænska leyniþjónustu-
manninn Carl Hamilton úr sjón-
varpinu. Nú er komin út fyrsta
kvikmyndin um
kappann. Hún
einkennist fyrst
og fremst af því
að vera sænskt
eintak af kvik-
myndategund
sem hefur verið
stjórnað af
Hollywood hing-
að til. Sagan er
ágæt og minnir
mikið á „Peacemaker" þar sem
George Clooney var í hlutverki of-
urhetjunnar. Utfærslan gengur
hins vegar ekki alveg upp hér. Ein
af ástæðum þess er eflaust sú að
maður er orðinn svo samdauna
bandarískum myndum af sama
toga að manni finnst að svoleiðis
eigi þær að vera. Nokkurs stirð-
leika gætir jafnframt í frásögninni
og þrátt fyrir fagmannleg vinnu-
brögð verður myndin til þess að
minna á hversu framarlega
draumasmiðjan stendur í gerð af-
þreyingarmynda. Spennan verður
aldrei alveg trúverðug, frekar en
helstu persónur sögunnar. „Ha-
milton" er sæmilegasta afþreying,
en nær hvergi að gera miklu betur
en það.
Guðmundur Ásgeirsson
Suðræn
og sæt
Tökum sporið
(Dance With Me)_________
Dansinynd
★★%
Leikstjóri: Randa Haines. Handrit:
Daryl Matthews. Kvikmyndataka:
Fred Murphy. Tónlist: Michael Con-
vertino. Aðalhlutverk: Vanessa Willi-
ams, Chayanna og Kris Kristoffer-
son. (122 mtn.) Bandarísk. Skífan,
ntars 1999. Myndin er öllum leyfð.
HÉR er á ferðinni suðræn dans-
mynd sem líkist einna helst stórri
glansmynd. Markmið hennar er
fyrst og fremst
að skemmta
áhorfendum með
fjörugum dansi,
sykursætum
leikurum og
rómantískum
ástarævintýrum
- og tekst vel til.
Ymsa veikleika í
handriti og kvik-
myndatöku bæt-
ir myndin síðan upp með einlægni
og melódramatískum metnaði.
Dansatriðin eru dálítið misjöfn en
alltaf stemmning og kraftur í
þeim. Þar er Vanessa Williams
bráðsjarmerandi í hlutverki at-
vinnudansarans Ruby en hún
sleppur vel út úr dansatriðunum
með því að bera sig vel og setja
heilmikla persónulega tjáningu í
framkomuna. Kúbverski hjarta-
knúsarinn Chayanne er ómót-
stæðilegur í hlutverki hins þolin-
móða vonbiðils hennar og Kris
Kristofferson kemur með traust
innlegg. Fyrir þá sem vilja hreina
skemmtun og rósrauða rómantík,
er Tökum sporið góður kostur.
Heiða Jóhannsdóttir