Morgunblaðið - 15.04.1999, Side 11
MORGUNB L AÐIÐ
FIMMTUDAGUR 15. APRÍL 1999 11
FRÉTTIR /■
Heyskortur
á Norður-
landi vestra
HEYSKORTUR hefur gert vai-t
við sig á Norðurlandi vestra, þ.e. í
Húnavatnssýslu og Skagafirði, en
það eru aðallega hrossaeigendur
sem verða fyrir barðinu á hækk-
andi heyverði.
Ari Teitsson, formaður Bænda-
samtakanna, sagði að ástandið
væri verst á þeim svæðum þar sem
mikið væri af snjó og hrossum.
Hann sagði að yfirleitt væra hross
í haga fram yfir jól, en veturinn
núna hefði byrjað ansi snemma og
því væri ástandið hjá hrossaeig-
endum víða nokkuð slæmt. Hann
sagði að Húnavatnssýslan og
Skagafjörðurinn væru eflaust þau
svæði sem heyskorturinn hefði haft
hvað mest áhrif á, en í Skagafirði
einum eru um 10.000 hross. Hann
sagði dæmi um að hey væri flutt í
Skagafjörðinn og Húnavatnssýsl-
una frá Ströndum og Eyjafjarðar-
sýslu.
Að sögn Eiríks Loftssonar, ráðu-
nauts Búnaðarsambands Skaga-
fjarðar, fer verð á heyi mikið eftir
gæðum. Hann sagði að heyrúllan
hefði verið seld á um 1.000 krónur í
fyrra, en að nú væri verið að borga
um 3.000 krónur fyrir rúlluna.
Ekki er hægt að búast við mikilli
almennri aðstoð við bændur eða
hrossaeigendur, en Bjargráðasjóð-
ur styrkir þá sem orðið hafa fyrir
miklum uppskerabresti, þannig að
einhverjir af þeim sem lenda í erf-
iðleikum nú fá aðstoð, að sögn Ara.
-------------------
Útlit fyrir gott
veður víða um
land um helgina
VEÐURSTOFA íslands gerir ráð
fyi'ir góðu veðri víða um land á
laugardag og sunnudag. Talsverð
snjókoma var um vestanvert landið
í gær og varð jörð alhvít á skammri
stundu í Reykjavík og nágrenni.
Að sögn veðurfræðings á Veður-
stofunni var lægðin ekki merkileg
sem bar með sér úrkomuna í gær,
en lægðin stefndi til suðausturs og
átti úrkomusvæðið að vera komið
suður af landinu um hádegi í dag,
fimmtudag, með björtu veðri suð-
vestanlands.
I dag er spáð stinningskalda og
allhvassri átt, sérstaklega norðan-
lands, með éljum og jafnvel
skafrenningi, sérstaklega á fjall-
vegum. Samkvæmt veðurspá á
norðanáttin að ganga niður á föstu-
dag, fyrst vestan til og ætti því að
vera komið gott veður víða um land
á laugardag.
--------------
Borgarráð
Framkvæmda-
leyfí veitt fyrir
V esturlandsveg
BORGARRÁÐ hefur staðfest
framkvæmdaleyfi fyrir tvöfóldun
Vesturlandsvegar frá gatnamótum
við Suðurlandsveg að Víkurvegi á
gnmdvelli frammats á umhverfisá-
hrifum og úrskurði skipulagsstjóra
ríkisins.
Pað er Vegagerðin sem sækir
um leyfi til að leggja hringveg frá
Nesbraut að Víkurvegi og er fram-
kvæmdin í samræmi yið staðfest
aðalskipulag Reykjavíkur með
þeim breytingum sem unnið er að.
I erindi til borgarráðs leggm-
skipulags- og umferðarnefnd til að
framkvæmdaleyfið verði veitt og
óskar jafnframt eftir því við Vega-
gerðina að gengið verði frá jarð-
raski við Vesturlandsveg milli Bæj-
arháls og Vesturlandsvegar á
þessu ári.
•Hatpamt
WWH7109T GENERAL
ELECTRIC ÞVOTTAVÉL
»4,5 kg »1000 snúninga
TL52PE HOTPOINT ÞURRKARI
5 kg •m/barka •veltir í báðar áttir.
KYVSftBltllli#
•Hotpomt
Hotpavrt
dlUM,r
DF23PE HOTPOINT UPPÞVOTTAVEL
• 12 manna »8 kerfi •b:60,h:85,d:60.
TC 72 PE HOTPOINT ÞURRKARI
’6 kg »barkalaus »m/rakaskynjara
•veltir í báðar áttir.
TFG20JRX GENERAL ELECTRIC
AMERÍSKUR ÍSSKÁPUR með
klakavél og rennandi vatni
•h:170, b: 80,d: 77,5 «491 lítra.
m
HEKLA
LAUGAVEGI 172 • 105 REYKJAVÍK • SÍMI 569 5770
AÐRIR SÖLUAÐILAR: Heimskringlan Kringlunni *Rafmætti Miðbæ, Hafnarfirði »K Á Selfossi Austurvegi 3, Selfossi »Verslunin Vík Egilsbraut 6,
Neskaupstað ‘Reynisstaðir Vesturvegi 10, Vestmannaeyjum »K.Þ. Smiðjan Garðarsbraut 5, Húsavík «Jókó Furuvöllum 13, Akureyri *Verslunin Hegri
Sæmundargötu 7, Sauðárkróki »Verslunin Straumur Silfurgötu 5, ísafirði »Rafstofan Egilsgötu 6, Borgarnesi •Hljómsýn Stillholti 23, Akranesi.