Morgunblaðið - 15.04.1999, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
FIMMTUDAGUR 15. APRÍL 1999 13
Unnið að gerð tilraunakjarasamnings við grunnskólakennara
Kennarar í Reykjavík
leggja niður störf
GRUNNSKÓLAKENNARAR í
Reykjavík ætla að hætta kennslu
kl. 11 í dag og nota það sem eftir
lifir dagsins til fundahalda um
kjaramál sín. Valdór Bóasson,
trúnaðarmaður kennara í Hamra-
skóla, segir að kennarar í Reykja-
vík krefjist sambærilegra kjara og
kennarar annars staðar á landinu.
Aðgerðirnar eiga sér stað á sama
tíma og verið er að reyna að ná
samkomulagi um tilraunasamninga
milli Kennarasambandsins og
sveitarfélaganna, en Valdór hafnar
því að samband sé þar á milli.
Valdór sagði að kennarar í
Reykjavík hefðu lagt fram kröfur
sínar um hærri laun í nóvember í
fyrra. Þessum kröfum hefði verið
fylgt eftir, m.a. á tveimur fundum
með Ingibjörgu Sólrúnu Gísladótt-
ur, borgarstjóra í Reykjavík. Hún
hefði vísað málinu til launanefndar
sveitarfélaganna. Ki'afa kennara
væri hins vegar að laun kennara í
Reykjavík yrðu hækkuð til sam-
ræmis við laun kennara annars
staðar á landinu. A síðustu misser-
um hefðu mörg sveitarfélög gert
samning við kennara um viðbótar-
launagreiðslur og kennarar í
Reykjavík vildu fá sambærilegar
launahækkanir.
Krefjast 250 þúsund
króna eingreiðslu
Kennarar í Reykjavík gera kröfu
um 250 þúsund króna eingreiðslu á
þessu ári. Valdór sagði að krafan
væri byggð á samanburði á samn-
ingum um viðbótargreiðslur sem
einstök sveitarfélög hefðu gert á
undanförnum mánuðum. Aðspurður
sagði Valdór rétt að í gildi væri
kjarasamningur sem kennarar
hefðu samþykkt með formlegum
hætti. Hann benti hins vegar á að
þrátt fyrir þennan kjarasamning
væri verið að greiða kennurum í
Reykjavík lægra kaup en kennui'um
í öðrum sveitarfélögum. Það væri
eðlileg krafa kennara í Reykjavík að
þessi munur yrði jafnaður.
Kennarasambandið hefur tekið
saman greiðslur umfram kjara-
samninga sem kennarar víða um
land hafa knúið fram á undanförn-
um misserum. Greiðslurnar eru á
bilinu 5.000-23.000 á mánuði. í
sumum skólum var jafnframt
samið um breytingar á vinnufyrir-
komulagi í skólunum, sem m.a. fela
í sér aukna vinnu kennara.
Valdór sagði að krafa kennara í
Reykjavík væri óháð niðurstöðu
viðræðna launanefndar sveitarfé-
laga og Kennarasambandsins um
gerð tilraunakjarasamnings. Kenn-
arar hefðu gert kröfu um að fá svar
frá Reykjavíkurborg við kröfu
sinni fyrir 1. aprfl. Þeir hefðu lagt
sig fram um að vinna að málinu án
þess að fara fram með kröfur sínar
á opinberum vettvangi. Þolinmæði
kennara væri hins vegar á þrotum.
Hann útilokaði ekki að til frekari
aðgerða kennara kæmi ef engin
viðbrögð kæmu frá Reykjavíkur-
borg.
Finnbogi Sigurðsson, formaður
Kennarafélags Reykjavíkur, sagði
að aðgerðir kennara í Reykjavík
væru ótengdar þeim viðræðum
sem staðið hefðu um gerð tilrauna-
kjarasamnings milli launanefndar
sveitarfélaganna og Kennarasam-
bandsins. Þessar viðræður hefðu
hafist sl. sumar og fjölluðu um
framkvæmd bókana við kjarasamn-
ing kennara, sem gerður var 1997.
Meginefni viðræðnanna væri gerð
svokallaðs tilraunakjarasamnings
þar sem kveðið væri á um breyttan
vinnutíma kennara gegn öðrum
launaviðmiðunum. Stefnt væri að
því að þessi kjarasamningur tæki
gildi í haust í nokkrum skólum.
Ekkert lægi fyrir í hvaða skólum
þessi tilraun yrði gerð, en það væri
a.m.k. ákveðið að skólarnir yrðu í
nokkrum ólíkum sveitarfélögum.
Finnbogi sagði að Kennarafélag
Reykjavíkur stæði ekki fyrir að-
gerðum kennara í Reykjavík og
kvaðst ekki hafa tekið þátt í að
skipuleggja þær. Aðgerðirnar
tengdust ekki viðræðunum um til-
raunakjarasamninginn. Hann vís-
aði á trúnaðarmenn kennara í skól-
um í Reykjavík þegar hann var
spurður um hver stæði fyrir að-
gerðunum.
Kennarar í Reykjavík ætla að
ræða kjaramál sín á fundi í Bíó-
borginni kl. 13 í dag. Þeir áforma
einnig að fylgjast með fundi borg-
arstjórnar Reykjavíkur í dag, en
búast má við að kjaramál kennara
verði þar til umræðu.
Tilbúin að greiða fyrir
bætt skólastarf
„Eg get ekkert um þá aðgerð
sagt annað en að hún kemur mér
vægast sagt mjög á óvart. Það má
hverjum manni ljóst vera að það er
í gildi kjarasamningur við kennara,
samþykktur af öllum til þess bær-
um aðilum, og þegar samningur er
í gildi er friðarskylda og allt sem er
á skjön við hana er ólögmætt,"
sagði Ingibjörg Sólrún Gísladóttir
borgarstjóri þegar leitað var álits
hennar á aðgerðum kennara.
Kvaðst hún ekki trúa því fyrr en
hún tæki á því að kennarar felldu
almennt niður kennslu.
„Ég ætla ekkert að segja um
það. Það er Ijóst hvaða reglur
gilda. Ég vil að kennarar sinni sín-
um skyldum af því að þeim eru þær
ljósar en ekki af því að það vofi yfír
þeim einhver refsing," sagði borg-
arstjóri.
Lagði hún áherslu á að engin rök
réttlættu aðgerðir kennara en
spurð um kröfur þeirra segir hún
að þeir geti haft nokkuð til síns
máls, að þeir gætu lifað við betri
kjör. Um það væri ekki ágreining-
ur en ætti við marga aðra hópa í
samfélaginu. „Ég hef alltaf sagt
það við kennara og þeim er það al-
veg ljóst að ég er tilbúin að ræða
við þá um ákveðnar kjarabætur að
því gefnu að við fáum út úr því
betra skólastarf og breytingar í
skólastarfinu. Þar er ég fyrst og
fremst að tala um breytingar á
vinnutíma og vinnufyrirkomulagi
inni í skólunum. Ég held að það sé
mjög margt í kjarasamningum
kennara sem kemur í veg fyrir að ur eru á lokastigi. Við erum tilbúin
við getum skipulagt betra og nú- að gi-eiða nokkuð fyrir slíkt en er-
tímalegra skólastarf. Við höfum um ekki tilbúin til að bæta í án
verið að ræða það við Kennarasam- þess að nokkuð komi á móti,“ sagði
bandið frá áramótum. Þær umræð- Ingibjörg Sólrún.
Föst mánaðarleg greiðsla ofan á kjarasamninga grunnskólakennara
Sveitarfélag kr. á mán. Forsendur
Hólmavík 22.934 Kennari með 172 námsstig og 15 ára
Vestmannaeyjar 22.347 prófaldur. Hann kennir 31 tíma í bekk með 22 nemendur (umsjónarbekk og síðan öðrum til uppfýllingar kennsluskyldu). Útreikningur Miðað er við greiðslur á 12 mánaða grundvelli, þ.e. þegar um er að ræða greiðslur sem einungis eru greiddar á starfstíma skóla eða eingreiðslur er þeim jafnað yfir allt árið. * Þýðir að skólastjóri getur ráðstafað einhverjum hluta þess tíma sem verið er að greiða fyrir. ** í Garðabæ hefur verið farin sú leið að greiða bekkjarkennurum fyrir 60 mínútna næðisstund á degi hverjum sem um 1,5 kennslustundir væri að ræða. Þetta eru annarsvegar 20 mínútur í stofu áður en kennsla hefst að morgni þar sem mæting nemenda er frjáls og hinsvegar 40 mínútur sem fara í nestis- og matartíma. Má með þessu segja að Garðabær sé fyrsta sveitarfélagið til að meta kennslu í einum bekk sem fullt starf. Einnig greiðir Garðabær öllum list- og verkgreinakennurum fyrir umsjón með
Álftanes Hrafnagil Skagaströnd 20.882 19.717 18.093
Austur-Landeyjar Hveragerði 17.752 17.717 ★ *
Árborg 17.572
Hvolsskóli 17.572 *
Blönduós 17.047 *
ísafjörður 15.942 *
Þorlákshöfn Fjarðarbyggð 15.598 15.217
Seltjarnarnes Mosfellsbær 14.764 14.764 *
Stykkishólmur 14.058 *
Reykjanes 13.804
Akranes Borgarbyggð 13.697 13.587 * *
Varmaland Snæfellsbær 13.587 13.587 ★ *
Borgarnes Skagafjörður 13.587 12.717
Akureyri Ólafsfjörður 12.717 12.717 *
Húsavík 12.717 *
Hafralækur 9.182 stofu og einnig aukalega fyrir efniskaup.
Hafnarfjörður 5.299 Þessar greiðslur nema frá 8 til 16 klst. á
Garðabær ** mánuði.
Heimild: Vefur Kennarasambands Islands; www.ki.is
Morgunblaðið/Golli
TRÚNAÐARMENN í grunnskólum Reykjavíkur komu saman til fund-
ar í Kennarahúsinu í gær til að skipuleggja aðgerðirnar í dag.
Rauða kross húsið
Stefnt að
sparnaði í
rekstri
AKVEÐIÐ hefur verið að endur-
skipuleggja starfsemi Rauða kross
hússins við Tjarnargötu í Reykja-
vík. Fimm starfsmönnum hússins
hefur verið sagt upp störfum og eru
horfur á að þeir hætti í sumar því
þeir sóttu ekki um störfín þegar þau
voru auglýst í vor. Sigrún Arnadótt-
ir, framkvæmdastjóri Rauða kross-
ins, sagði breytingarnar ekki þýða
að dregið yrði úr þjónustu við skjól-
stæðinga hússins.
Sigrún sagði að breytingarnar
miðuðu að því að spara í rekstri.
Hún sagði að sérmenntað fólk hefði
verið á vakt í Rauða kross húsinu
allan sólarhringinn. Fyrirhugað
væri að ráða tvo unglingafulltrúa og
tvo næturverði í stað fímm ung-
lingaráðgjafa sem starfa í húsinu í
dag. Gert væri ráð fyrir að ung-
iingafulltrúarnir störfuðu frá hádegi
fram eftir degi, en síðan tækju næt-
urverðir við.
Sigrún sagði að ætlast væri til að
unglingar sem gistu í húsinu færu
út kl. 9 á morgnana um leið og ann-
að fólk héldi til vinnu. Húsið yrði því
ekki opið frá 9 til hádegis. Alltaf
yrði hins vegar einhver við störf í
húsinu því forstöðumaður þess
myndi starfa á dagvinnutíma.
. :
BíldshÖfdi 20-112 Reykjavík Sími 510 8000
jfasett
L
LAGUNA þægilegur sófi, klæddur mjúku.fallegu, upphleyptu bómullarefni
Lausar sessur og bakpúðar. Sessur bólstraðar með kaldsteyptum svampi
3ja sæta söfi L227 sm, kr. 75.290,- 2ja sæta sófi LI70 sm, kr. 62.680,-.
v MEXICO sófaborð úr fornfáðri,gegnheilli*býflugnavaxborinni furu,
B80xLI 30 smkr. 39.220,-
MEXICO barskápur úr fornfáðri, gegnheilli, býflugnavaxvorinni furur
B105 x L195 x D48 sm, kr. 89.960,- ! I"ÍMm
LA
Radgreiðsiur í 36 mán.
HUSGAGNAHÖLUN