Morgunblaðið - 15.04.1999, Síða 28
28 FIMMTUDAGUR 15. APRÍL 1999
MORGUNBLAÐIÐ
Pakistanar prófa langdræga sprengiflaug
Vígbúnaðar-
kapphlaupið
á nýtt stig
Gwadur í Pakistan, Teheran. Reuters.
NAWAZ Sharif, forsætisráðherra
Pakistans, greindi frá því í gær að
pakistönskum vísindamönnum hefði
tekizt að senda í tilraunaskyni á loft
nýja langdræga eldflaug, sem svar
við sams konar tilraun af hálfu Ind-
verja sl. sunnudag.
Sharif tjáði fréttamönnum í
strandbænum Gwadur, skammt frá
þeim stað þar sem flaugin kom til
jarðar í gænnorgun, að drægi
Ghauri-II-flaugarinnar væri allt að
2.300 km, en til þess þyrfti að
minnka þá eins tonns hleðslu sem
tilraunaflaugin bar. Petta var fyrsta
opinbera staðfestingin á því að
Pakistanar hefðu tilraunaskotið
endurbættri gerð Ghauri-flaugar,
en „fyrsta kynslóð" slíki-ar flaugar
sást fyrst fara á loft fyrir réttu ári.
Drægni hennar var 1.500 km og hún
gat borið 700 kg hleðslu.
Drægni nýju flaugarinnar er
nógu mikið til að allar helztu borgir
grannríkisins Indlands séu innan
skotfæris. Indverjar og Pakistanar
hafa eldað grátt silfur saman allt frá
því þeir hlutu sjálfstæði frá Bretum
fyrir hálfri öld. Vonir um að þessi
fjölmennu en fátæku ríki létu af
hinu dýra vígbúnaðarkapphlaupi
hafa minnkað eftir þessa nýjustu at-
burði.
Iranar prófa loftvarnaflaug
Irönsk stjórnvöld tilkynntu líka í
gær að þau hefðu gert árangursrík-
ar tilraunir með háþróaðar loft-
varnastýriflaugar sem gætu aukið
hernaðarmátt landsins verulega.
Mandela stað-
festir kjördag
Jóhannesarborg. Reuters.
NELSON Mandela, forseti Suður-
Afríku, tilkynnti í gær formlega að
2. júní yrði dagurinn, sem Suður-
Afríkumenn af öllum kynþáttum
ganga að kjörkössunum í annað
sinn frá því kynþáttaaðskilnaðar-
stefnan var afnumin. Með kosn-
ingunum lýkur forsetatíð Mand-
elas.
„Forsetinn undirritaði yfírlýs-
inguna í morgun (...). Par með hef-
ur formlega verið blásið til þess-
ara kosninga," sagði talsmaður
Mandelas, Parks Mankahlana. Að-
ur hafði Mandela sagt að stefnt
væri að því að kjördagur yrði 2.
júní, en vegna ákvæða í stjórnar-
skrá landsins gat hann ekki stað-
fest dagsetninguna fyrr en nú.
Margir stjórnarandstöðuflokkar
hafa líka lagt inn kæru vegna til-
högunar undirbúnings kosning-
anna og hafði það fram að þessu
vakið efasemdir um að mögulegt
yrði að standa við dagsetninguna.
Gengið er út frá því sem vísu að
Afríska þjóðarráðið, flokkur
Mandelas, fái endurnýjað umboð
til að fara með stjórn landsins og
skila Thabo Mbeki í forsetaemb-
ættið. Reiknað er með að Mbeki
taki um miðjan júní formlega við
af hinum áttræða Mandela, sem
þar með mun geta setzt ásamt eig-
inkonu sinni Graca Machel í helg-
an stein í fæðingarbæ hans, Qunu,
sem er lítið sveitaþorp á austan-
verðum Góðrarvonarhöfða.
MIDE EYES
Tínif Complex Cream SPF10
ERLENT
Reuters
Mannræn-
ingja leitað
HERINN í Kólombíu hefur hafið
mikla leit að marxískum skæru-
liðum, sem rændu á mánudag
flugvél í innanlandsflugi með 46
farþegum og fimm manna
áhöfn. Létu skæruliðarnir lausa
í fyrradag sex farþega, aldrað
fólk og eitt ungabarn. Voru
flugmennirnir neyddir til að
lenda á afskekktum stað í
Andesfjöllum og til skærulið-
anna sást þar sem þeir ráku
fólkið í gegnum frumskóginn.
Ekki þótti þó vogandi að ráðast
gegn þeim af ótta við, að gísl-
arnir yrðu fyrir skoti.
Stuðningur við
Persson minnkar
Stokkhólmi. Reuters.
NÝJAR skoðanakannanir sýndu
í gær að stuðningur sænskra
kjósenda við Göran Persson, for-
sætisráðherra, minnkaði snar-
lega í kjölfar afsagnar Erik As-
brinks úr embætti fjármálaráð-
herra á mánudag eftir langvar-
andi deilur þeirra um skatta-
lækkanir ríkisstjórnarinnar.
Aðeins 24% þeirra eitt þúsund
einstaklinga sem spurðir voru,
lýstu miklu eða mjög miklu
trausti sínu á forsætisráðherran-
um. í liðinni viku voru tæp 40%
kjósenda á þeirri skoðun. Enn-
fremur studdi aðeins um helm-
ingur kjósenda Jafnaðarmanna-
flokksins Persson sem er um
20% fall frá síðasta mánuði.
Könnunin var gerð á þriðjudags-
kvöld, deginum eftir að Asbrink
sagði af sér. Samkvæmt könnun-
inni töldu 24% Svía að ríkis-
stjórnin ætti að fara frá völdum
en um tveir þriðju hlutar voru
því andsnúnir.
Netanyahu skakað 1
sjónvarpseinvígi í ísrael
Jerúsalem. Reuters.
BENJAMIN Netanyahu, forsæt-
isráðherra Israels, sem hefur
löngum verið næstum ósigrandi í
sjónvarpskappræðum, þótti fara
hinar mestu hrakfarir í fyrsta ein-
víginu fyrir kosningarnar 17. maí
nk. Tókst hann þá á við Yitzhak
Mordeehai, fyrrverandi varnar-
málaráðherra sinn.
„Sjónvarpssnillingurinn Net-
anyahu var sleginn út á heima-
velli,“ sagði í stærsta dagblaðinu,
Yedioth Ahronoth, í gær og
fréttaskýrendur voru almennt
sammála um það. Netanyahu rak
Mordechai úr ríkisstjórninni í jan-
úar sl. og er hann nú í framboði
fyrir Miðflokkinn. Ehud Barak,
leiðtogi Verkamannaflokksins,
vildi ekki taka þátt í sjónvarps-
umræðunum en samkvæmt skoð-
anakönnunum nýtur hann meira
fylgis en Netanyahu og Mor-
dechai.
I einvígi þeirra Netanyahus og
Mordechais gengu klögumálin á
víxl og í sjálfu sér þótti fátt, nýtt
koma fram. Framkoma þeirra
vakti hins vegar athygli. Netanya-
hu drungalegur og óöruggur en
Mordechai brosandi og sæll í sinni
um leið og hann lét skeytunum
rigna yfír forsætisráðherrann.
Sagði hann, að Netanyahu væri
„ótrúverðugur, óheiðarlegur og
stefnulaus".
Töfrastafur Mordechais
„Þessi grámyglulegi og litlausi
embættismaður," sagði Yedioth
Ahronoth um Mordechai, „dró
upp töfrastaf og breytti sjálfum
galdrakarlinum í kanínu. A móti
Mordechai sat vandræðalegur
forsætisráðherra, líkastur leikara,
sem er búinn að gleyma rullunni.“
Það var helst, að Netanyahu
næði sér á strik er hann sakaði
Miðflokk Mordechais um algert
stefnuleysi og talsmenn Liku-
dflokksins, flokks Netanyahus,
sögðust ánægðir með, að Mor-
dechai skyldi hafa lýst yfir, að
hann ætlaði ekki að draga fram-
boð sitt til baka. Talið er, að það
myndi koma sér best fyrir Barak.
Raunar var það niðurstaða sumra,
að Barak hefði sigrað í sjónvarps-
einvíginu með því að taka ekki
þátt í því.