Morgunblaðið - 15.04.1999, Side 48
^8 FIMMTUDAGUR 15. APRÍL 1999
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ
Opið bréf til ritstjórn-
ar Morgunblaðsins
TILEFNI þessa bréfs er sá hluti
Reykjavíkurbréfs Mbl. sunnudag-
inn 11. apríl sl., sem fjallaði um
fiskveiðistjómarvandann og af-
stöðu manna til hans. Tilefnið á sér
þar á ofan rætur í þeirri staðreynd,
sem ritstjómin þekkir fullvel, að ég
hef um árabil skrifað um þessi efni
_ og allt hefur það verið birt á síðum
Mbl. Fyrir langlundargeð ritstjóm-
arinnar er ég afar þakklátur fyrir
mína hönd og þess fjölda fólks, sem
ég verð var við að nennir að lesa og
oft rýna vandlega í þessi skrif. I
leiðinni vil ég tjá þá skoðun mína,
að án einarðrar afstöðu ritstjórnar-
innar undanfarin ár í málefnum,
sem varða fiskveiðistjóm, væri
vandinn, sem hún hefur leitt af sér,
ekki pólitískt lifandi um þessar
mundir eins og hann er. Slíkur er
máttur þessa fjölmiðils og skoðana-
kannanir hafa gefið til kynna, að
ritstjómin hafi í þessum viðhorfum
sínum haft 75% þjóðaiinnar að baki
sér. Ritstjórnin á þannig drjúgan
þátt í því, að nú skuli stjóm-
málaforystumenn keppast við að
tala hver upp í annan um nauðsyn
breytinga á fiskveiðistjóminni, eins
og lýst er í téðu Reykjavíkurbréfi.
Höfuðviðfangsefni mitt í svo til
öllum skrifum mínum um þessi
efni hefur verið að greina, skilja og
skýra vandamálin, sem á þessu
sviði er við að fást. Eg hef kallað
þetta að skilgreina sjúkdóminn og
lýsa honum. Sú samlíking við
læknisfræði á við, því að lækning á
sjúkdómi, sem lýsir sér með
ýmsun hætti, er það sem þarf.
I samræmi við þetta reyni ég
sem best ég get að skilja málflutn-
ing ritstjórnarinnar í téðu Reykja-
víkurbréfi. Fyrst vil ég taka undir
með ritara bréfsins, að það væri
Kvótinn
*
Eg er ekki eins vongóð-
ur, segir Jón Sigurðs-
son, um framhaldið
eftir kosningar að
óbreyttum valdahlut-
föllum á þingi.
glæsilegt afrek í stjórnmálum,
sæmandi miklum leiðtogum á því
sviði, ef þeim þremur forystu-
mönnum, sem þar eru nefndir, Da-
víð Oddssyni, Halldóri Asgríms-
syni og Þorsteini Pálssyni, tækist
að sætta þjóð sína um lausn á
þessum vanda. En til þess bendir
ekkert, sem enn er fram komið.
Ég er bréfritara
ósammála um, að
flokksformennimir
tveir séu vændir um
óheilindi, þegar því er
haldið fram, að þeir
vilji í raun engu
breyta, en muni standa
vörð um sérhagsmun-
ina, sem gildandi fyrir-
komulag þjónar best.
Þvert á móti eru þeir
heilir og sannir í yfir-
lýsingum sínum, því að
þeim hafa af beggja
hálfu fylgt fyrirvarar,
sem ekki verða skildir
öðruvísi en að gildandi
fyrirkomulag fiskveiði-
stjórnar skuli í grundvallaratriðum
standa, hvað sem minni háttar
breytingum líður. Sjúkdóminn á að
meðhöndla eins og hann sé minni
háttar kvilli. Það er hann hins veg-
ar ekki og það er í grundvallarat-
riðum kerfisins sem sjúkdómurinn
býr um sig og gerir sinn skaða.
Það er af þessum ástæðum, sem
ég er ekki eins vongóður um fram-
haldið eftir kosningar að óbreytt-
um valdahlutfóllum á þingi, eins og
höfundur Reykjavíkurbréfsins. Og
ekki get ég fallist á að
það sé lega mín í
gömlum skotgröfum
að halda þessu á loft.
En fleira kemur til.
011 umræðan um
minni háttar lagfær-
ingar á gildandi skip-
an óbreyttri að öðru
leyti á sér stað eins og
kvótadómur Hæsta-
réttar frá í vetur hafi
aldrei gengið. Af hon-
um er hins vegar ljóst
hverjum þeim, sem
horfast vill í augu við
svo óþægOega stað-
reynd, að það er ekki
aðeins úthlutun veiði-
leyfa skv. 5. gr. fiskveiðistjórnar-
laga, heldur einnig úthlutun veiði-
heimilda skv. 7. gr. sömu laga, sem
stangast á við jafnræðis- og at-
vinnufrelsisákvæði stjórnarskrár-
innar. Aform formanna stjórnar-
flokkanna fela þannig í sér ráða-
gerð um að Alþingi hrekist undan
málsóknum borgaranna og dóm-
stólum við að marka stefnu, sem
samrýmist sjálfum stjórnskipunar-
lögunum að þvi er varðar mann-
réttindi. Meðan svo standa sakir
Jón
Sigurðsson
Fordæmir
ástandið
sem ríkir
MORGUNBLAÐINU hefur
borist eftirfarandi ályktun
Landsfundar Húmanista-
flokksins:
„Landsfundur Húmanista-
flokksins leggur til að hafin
verði barátta fyrir mannrétt-
indum í íslensku samfélagi.
Sérstaklega verði tekið á
stærsta mannréttindabrotinu
sem viðgengst á Islandi í dag,
hinum ömurlegu kjörum
þeirra sem verst eru settir í
samfélaginu. Húmanistaflokk-
urinn fordæmir þetta ástand
sem ríkir og kaldhæðni ráða-
manna sem reyna að breiða
yfir raunverulega þjáningu
þúsunda íslendinga með ódýr-
um talnaleik. Húmanistaflokk-
urinn leggur fram tillögur um
skjótar aðgerðir til úrbóta.
Húmanistaflokkurinn for-
dæmir þann siðferðisbrest
sem ríkir á Alþingi Islendinga
þar sem stór hluti alþingis-
manna tekur þátt í umfjöllun
og ákvörðunum um mál eins
og kvótamálið, sem þeir, eða
einhverjir nákomnir þeim,
hafa verulega fjárhagslega
hagsmuni af, umfram flesta
landsmenn. I slíkum tilvikum
ættu viðkomandi menn skil-
yrðislaust að lýsa sig vanhæfa
og draga sig í hlé.
Húmanistaflokkurinn for-
dæmir árásir Atlantshafs-
bandalagsins í Júgóslavíu sem
andstætt því sem ætlast var til
hefur einungis aukið á hörm-
ungar íbúa í Kosovo. Flokkur-
inn harmar að íslendingar
fara nú í fyrsta skipti með
stríð á hendur annarri full-
valda þjóð.“
Ertu að hugsa um:
Bíll sem er algjörlega hannaður fyrir þig.
Og það leynir sér ekki...
Fæst í tískulitnum í ár: aluminium silver metallic.
• Rými
• Þægindi
• Gott endursöluverð
• Allt þetta sem staðalbúnað:
16 ventla vél með fjölinnsprautun, 85-96 hestöfl
Vökva- og veltistýri • Hæðarstillanleg kippibelti
Rafstýrðar rúður og speglar • Öryggisloftpúðar
Samlæsing • Krumpusvæði að framan og aftan
Þjófavörn • ABS hemlar • Styrktarbitar í hurðum
Upphituð framsæti • Útvarp með segulbandi
Rafstýrð hæðarstilling framljósa • Litaðar rúður
Samlitaðir stuðarar