Morgunblaðið - 15.04.1999, Qupperneq 58
58 FIMMTUDAGUR 15. APRÍL 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Námskeið um
götutré og stór tré
GARÐYRKJUSKÓLI ríkisins,
Reykjum í Ölfusi, verður með nám-
skeið mánudaginn 19. apríl um
götutré og stór tré.
Námskeiðið fer fram að Borgar-
túni 6, Reykjavík, og stendur frá
kl. 9.30-18.
Fjallað verður um helstu þætti í
ræktun og umhirðu götutrjáa og
stórra trjáa m.a. um jarðvegsrými
og áburðargjöf, heppilegar tegund-
ir og staðarval með tilliti til hönn-
unar og viðhalds. Greint verður frá
sænskum rannsóknum á þessu
sviði og sagt frá reynslu Dana af
uppeldi á stórum trjám. Námskeið-
ið endar á heimsókn í Gróðrarstöð-
ina Gróanda á Grásteinum í Mos-
fellsbæ.
Fyrirlesarar á námskeiðinu verða
Kaj Rofl, sérfræðingur frá Svíþjóð,
Þórólfur Jónsson, landslagsarkitekt
hjá garðyrkjudeild Reykjavíkur-
borgar, Jan Klitgaard frá Gróðrar-
stöðinni Mörk í Reykjavík og
Tryggvi Marinósson og Baldur
Gunnlaugsson, starfsmenn um-
hverfísdeildar Akureyrarbæjar.
Fundarstjóri verður Ólafur Mel-
sted, fagdeildarstjóri á skrúðgarð-
yrkjubraut Garðyrkjuskólans.
Skráning og nánari upplýsingar
fást hjá endurmenntunarstjóra
skólans.
Ræsir hf. afhendir Steypustöð-
inni steypubíla
STEYPUSTÖÐIN ehf. í Reykjavík fékk fyrir tonn. Steyputunnurnar eru framleiddar af Muld-
nokkrum dögum afhenta tvo nýja steypubfla. Bfl- er í Hollandi og taka 9 rúmmetra hvor.
arnir eru af gerðinni Mercedes-Benz 3243 8x4. Ræsir hf. er umboðsaðili Mercedes-Benz á ís-
Þeir eru á íjórum ásum og vega fulllestaðir 32 landi.
aÓLVfiíSAR • VBÁGfÚSAR • ÚTIFLÍSAR
GótíHlsar
20-50% M
Vœmi: New Yoric grátt 20x20
W kr. 1.269 w2
veggt\mr
20-40% ofsí.
Vtmi: Vetm 15x20
kr. 1.079 m2
flísafjörið fjetur sparaö
pér púsundir k róna.
að byggja - Víltu breyta - Þarftu að bx
Fræðslufundur
LAUF
LAUF, félag flogaveikra, verður
með fræðslufund fimmtudaginn 15.
apríl í sal félags heyrnarlausra,
Laugavegi 26, 4. hæð og hefst hann
kl. 20.30. Gengið er inn Grettisgötu-
megin.
Hallgrímur Magnússon læknir
flytur erindi um óhefðbundnar
lækningar. Að venju er boðið upp á
veitingar á vægu verði.
Alþjóðadagur
meinatækna
ALÞJÓÐADAGUR meinatækna er
í dag, fímmtudaginn 15 apríl. Al-
þjóðasamtök meinatækna IAMLT
hafa beint sjónum árlega að ein-
hverju alþjóðlegu heilbrigðisvanda-
máli, í ár er það sykursýki.
I tengslum við aðalfund Meina-
tæknafélags Islands, sem verður
haldinn laugardaginn 17. aprfl kl. 16
í sal Múrarafélagsins, og alþjóða-
daginn gengst fræðslunefnd Meina-
tæknafélagsins íyrir fræðslufundi
kl. 18 í anddyri K-byggingar Lands-
spítalans og er efni fundarins príon-
prótein.
Skákfélagið Grandrokk
Meistaramót
í skák
SKÁKFÉLAG Grandrokks heldur
meistaramót í atskák sem hefst
mánudaginn 19. aprfl kl. 20 stund-
víslega.
Alls verða tefldar níu umferðir
samkvæmt Monrad-kerfi og fara
fyrstu þrjá umferðirnar fram á
mánudagskvöld. Þrjár næstu verða
tefldar kvöldið eftir kl. 20 og síðustu
umferðirnar á fimmtudag, sumar-
daginn fyrsta, kl. 14.
Aðeins félögum í Skákfélagi
Grandrokks er heimil þátttaka.
Keppendur geta skráð sig á
Grandrokk. Keppnisgjald er 500
kr.
Fornar rætur
og flakk gena
GUÐMUNDUR Eggertsson
prófessor flytur erindi sem nefnist
„Fornar rætur og flakk gena“ á
föstudagsfyrirlestri
Líffræðistofnunar, 16. aprfl.
Erindið verður haldið að
Grensásvegi 12, stofu G-6, og hefst
klukkan 12.20. Allir eru velkomnir
meðan húsrúm leyfir.
I erindinu segir m.a.: „Með
samanburði vel varðveittra
kjarnsýruraða (rRNA) hefur
lífverum verið skipt í þrjú veldi,
raunbakteríur, fornbakteríur og
heilkjörnunga. Rætur þessarar
skiptingar liggja djúpt. Svo virðist
sem flest grunnefnakerfi frumu
hafi samt verið allvel mótuð þegar
leiðir skildust, þótt líklega hafi
engin ein frama búið yfir öllum
genum og prótínum sem þessi kerfí
krefjast."