Morgunblaðið - 04.05.1999, Side 1
STOFNAÐ 1913
98. TBL. 87. ÁRG.
ÞRIÐJUDAGUR 4. MAÍ 1999 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
70% Serbíu rafmagnslaus vegna árása Atlantshafsbandalagsins
Sautján óbreyttir borgarar
sagðir falla í árás NATO
Reuters
LOGREGLUMAÐUR geng-ur framhjá bfl og rútu sem urðu fyrir sprengjuárás í Kosovo í gær. Serbar sögðu
að sautján manns hefðu beðið bana í árásinni.
Bill Clinton ljær
máls á að gera
hlé á árásunum
Belgrad, Valjevo, Washington. Reuters, AP.
SERBNESKIR fjölmiðlar sögðu í
gær að flugvélar NATO hefðu varp-
að sprengjum á rútu í Kosovo og
orðið 17 manns að bana, meðal ann-
ars mörgum bömum. Starfsmenn
júgóslavneskra rafveitna reyndu í
gær að koma á rafmagni að nýju eft-
ir að sprengjuárásir NATO í fyrra-
kvöld ollu rafmagnsleysi í um 70%
Serbíu. Bill Clinton Bandaríkjafor-
seti sagði í gærkvöldi að NATO
kynni að fallast á að gera hlé á árás-
unum á Júgóslavíu ef þarlend stjóm-
völd yrðu við meginkröfum banda-
lagsins.
Serbnesku fjölmiðlamir sögðu að
flugvélar NATO hefðu varpað
sprengjum á áætlunai'bifreið nálægt
bænum Pec í vesturhluta Kosovo
þegar hún hefði verið á leið til Svart-
fjallalands. Ekki hefði verið hægt að
senda björgunarsveitir á staðinn
fyiT en tveimur klukkustundum síð-
ar þar sem NATO hefði haldið árás-
unum áfram.
Fréttamenn sáu leikföng og aðrar
eigur barna í rútunni og höfðu eftir
læknum á sjúki-ahúsi bæjarins að
margir hefðu særst og flesth' þeirra
væra börn.
Embættismenn NATO sögðu að
flugvélar bandalagsins kynnu að
hafa ráðist á bílalest serbneskra lög-
reglumanna á svæðinu en útilokuðu
ekki að flóttamenn hefðu verið í rút-
unni.
Nýju vopni beitt
Áður höfðu embættismenn NATO
viðurkennt að flugskeyti hefði misst
marks og lent á annarri rútu norðan
við Pristina, höfuðstað Kosovo, á
laugardag. Serbar segja að 39
manns, þ.á m. mörg börn, hafí látið
lífið í þeirri árás.
Serbneskir verkfræðingar sögðu
að flugvélar NATO hefðu varpað
sprengjum, sem hefðu sprungið yfir
orkuverum og dreift grafíti, sem
leiðh' rafmagn, og valdið skamm-
hlaupi en litlum skemmdum á mann-
virkjum. Árásirnar ollu einnig vatns-
leysi og símasambandið milli Serbíu
og Svartfjallalands rofnaði.
Embættismenn NATO lýstu árás-
unum sem „nýjum þætti“ í lofthern-
aði bandalagsins. Þeir sögðu að beitt
hefði verið „sérstöku vopni“ en vildu
ekki lýsa því nánar. „Með þessu höf-
um við sýnt að við getum lokað öllu
rafveitukerfinu hvenær sem við viij-
um,“ sagði einn þeirra.
Jamie Shea, talsmaður NATO,
lagði áherslu á að markmiðið með
árásunum væri ekki að skaða
serbnesku þjóðina. Hann gaf hins
vegar til kynna að NATO yrði ekki
hissa ef rafmagnsleysið yrði til þess
að serbneskur almenningur snerist
gegn Slobodan Milosevic Júgóslavíu-
forseta.
Rafmagnslaust var enn í um 80%
Belgradborgar í gærkvöldi en Milos-
evic lofaði efth' fund með embættis-
mönnum að ráðstafanir yrðu gerðar
tO að halda uppi allri nauðsynlegri
þjónustu í Júgóslavíu.
Tsjernomyrdín í Washington
Viktor Tsjemomyrdín, sérlegur
sendimaður rússnesku stjórnarinnar
í deOunni um Kosovo, fór tO Was-
hington í gær til að færa Bill Clinton
bréf frá Borís Jeltsín, forseta Rúss-
lands. Hann sagði að í bréfinu væru
„raunhæfar tillögur“ um lausn deil-
unnar.
Tsjernomyrdín vildi ekkert segja
um hvað fælist í tillögunum en rúss-
neska fréttastofan Ítar-Tass sagði að
hann myndi óska eftir því að gert
yrði hlé á árásum NATO tO að
greiða fyrir viðræðum við stjórnvöld
í Júgóslavíu. Clinton sagði í gær-
kvöldi að NATO kynni að ljá máls á
slíku hléi en áréttaði að Serbar yrðu
fyrst að verða við meginkröfum
bandalagsins.
Zoran Djinjic, einn af leiðtogum
stjórnarandstöðunnar í Serbíu, spáði
því í gær að Milosevic myndi fallast á
friðarskilmála NATO innan tveggja
tO þriggja vikna og sagði að orðfæri
júgóslavnesku ráðamannanna hefði
breyst á síðustu dögum. „Þeir eru
farnir að tala um möguleikann á al-
þjóðlegri friðai'gæslu í Kosovo,“
sagði Djinjic. „Þannig er þetta í
kommúnistaheiminum. Fyrst verða
menn varir við breytingar á orðfæri
ráðamannanna og síðan á gerðum
þeirra.“
■ Árásir NATO/30-31
Skotland
Yerka-
manna-
flokkurinn
heldur
forystunni
DONALD Dewar, forsætisráð-
herraefni Verkamannaflokksins í
þingkosningunum í Skotlandi, sem
fram fara á fimmtudag, vildi í gær
ekkert ræða um hvort hann hygði á
stjórnarsamstarf við Frjálslynda
demókrataflokkinn en nýjar
fylgiskannanir sýndu að Verka-
mannaflokkurinn var enn nokkuð
frá því að tryggja sér hreinan
meirihluta á þingi.
Forysta Verkamannaflokksins
er sögð nokkuð sannfærð um að ef
flokknum tækist að tryggja sér í
kringum 60 af 129 þingsætum
væri raunhæfur möguleiki að
mynda starfhæfa minnihluta-
stjórn. Sem fyrr er þó talið senni-
legast að Verkamannaflokkurinn
verði að bjóða frjálslyndum til
samstarfs.
SNP í sókn
Skoðanakönnun, sem birtist í
helgarblaðinu Scotland on Sunday,
staðfesti að fylgi Skoska þjóðai'-
flokksins (SNP) hefði vaxið á nýjan
leik en könnunin sýndi að Verka-
mannaflokkurinn hlyti 57 þingsæti,
SNP 41, íhaldsmenn 17, frjálslynd-
ir 13 og sósíalistar kæmu einum
manni að. Samkvæmt könnun
Sunday Herald fengi Verkamanna-
flokkurinn hins vegar 62 sæti en
SNP 45.
Fréttaskýrendur segja að
Verkamannaflokkurinn muni þá
daga, sem eftir eru af kosningabar-
áttunni, byggja tilraunir sínar til
að nálgast sextíu þingsæta markið
á Dewar sjálfum en kannanir sýna
að honum treysta kjósendur í
Skotland framar öðmm flokksleið-
togum til að gegna forsætisráð-
herraembættinu.
■ Þykir umdeildur/32
Lögreglan grunuð um íkveikju á Korsíku
Héraðsstjórinn
sætir rannsókn
Ajaccio á Korsíku. Reuters.
SKÝRT var frá því í gærkvöldi að
Bemard Bonnet, héraðsstjóri á
Korsíku, sætti rannsókn vegna
gruns um að hann hefði fyrirskipað
lögreglunni að kveikja í veitingahúsi
á eyjunni. Stjórnin bað Jacques
Chirac forseta um að víkja Bonnet
úr embætti vegna málsins.
Heimildarmaður, sem tengist
rannsókninni, sagði að einnig hefði
verið leitað að gögnum um málið á
helstu skrifstofum franska ríkisins
á Korsíku. Rannsóknin er talin reið-
arslag fyrir vinstristjórn Lionels
Jospins, forsætisráðherra Frakk-
lands, sem hefur lagt mikla áherslu
á að koma á lögum og reglu á eyj-
unni síðan fyrirrennari Bonnets var
myrtur fyrir 15 mánuðum.
Þrír lögreglumenn era í gæslu-
varðhaldi vegna brunans og lög-
fræðingur þeirra sagði í gær að yf-
irmaður þeirra, Henri Mazeres,
hefði skipað þeim að kveikja í veit-
ingahúsinu, sem hafði verið reist án
heimildar franskra yfirvalda.
Jospin sagði á franska þinginu í
vikunni sem leið að stjómin væri á
engan hátt viðriðin íkveikjuna.
Leiðtogar aðskilnaðarsinna á Kor-
síku halda því fram að lögreglan
hafí kveikt í húsinu í því augnamiði
að skella skuldinni á skæraliðasveit-
ir á eyjunni.
Reuters
Danadrottning
í Brasilíu
MARGRÉT Danadrottning fór í
gær í ellefu daga opinbera heim-
sókn til Brasilíu og skoðar hér
heiðursvörð við móttökuathöfn í
Planalto-höll í Brasilíuborg.
Seinkunum í
flugi mótmælt
London. The DaUy Tclegraph.
FLUGFÉLÓG í Evrópu hafa
hótað að stöðva greiðslur sínar
til Eurocontrol, stofnunar sem á
að samræma flugumferðar-
stjórn í Evrópulöndum, þai' sem
þau óttast að óvenju miklar tafir
verði í flugumferð í álfunni í
sumar.
Flugfélögin krefjast þess að
stofnunin geri þegar í stað ráð-
stafanir til þess að leysa vand-
ann. Samkvæmt upplýsingum
The Daily Telegraph urðu
seinkanir á 10.500 áætlunarflug-
ferðum í Evrópu á þremur
fyrstu mánuðum ársins og hart-
nær helmingi oftar en á sama
tíma árið áður sem var hið
versta í áratug. Fjóram af
hveijum tíu flugferðum seinkaði
um 25 mínútur að meðaltali í
mars og apríl.
Óttast enn meiri tafir
Flugumferðin er yfirleitt
minnst á þessum árstíma og ótt-
ast er að seinkanirnar verði
mjög algengar í sumar þegar
umferðin nær hámarki. Evrópu-
samband flugfélaga íhugar því
nú að stöðva greiðslumar til
Eurocontrol sem nema alls um
240 milljörðum króna á ári þar
til hún ræður bót á ástandinu.