Morgunblaðið - 04.05.1999, Page 2
2 ÞRIÐJUDAGUR 4. MAÍ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Reykkafarar björguðu manni úr brennandi húsi
Góð tilfínning að
bjarga mannslífi
Margrét Frímannsdóttir á opnum
fundi á Reykjanesi
Vaxandi áhugi á
stjórn Sjálfstæðis-
flokksins og VG
Morgunblaðið/Björn Blöndal
REYKKAFARAR frá Brunavörnum Suðurnesja að loknum björgun-
araðgerðum í kjallaraíbúð, sem brann, við Hafnargötu í Keflavík.
Ómar Ingimarsson t.h. og Eiríkur Reynisson.
TVEIR reykkafarar frá Bruna-
vörnum Suðurnesja björguðu
manni úr brennandi kjallaraíbúð
við Hafnargötu í Keflavík um
klukkan 5 í gærmorgun. Maðurinn
lá sofandi í rúmi sínu þegar að var
komið og var töluverður reykur
kominn inn í herbergi hans innan
úr íbúðinni. Hann var með lítilli
rænu þegar Omar Ingimarsson og
Eiríkur Reynisson reykkafarar
björguðu honum og var hann
strax sendur á Sjúkrahús Reykja-
víkur. Að sögn læknis á gæslu-
deild er líðan hans ágæt og er
hann með góðri meðvitund.
„Ég fann hurð, sá reyk koma
undan henni og náði að rífa hana
upp,“ sagði Omar Ingimarsson
reykkafari. „Þá kom ég inn í sjón-
varpsherbergi og sá að þar var eld-
ur inni og gríðarlega mikill reykur.
Ég slökkti eldinn strax, hljóp út og
spurði hvort einhver vissi af fólki í
íþúðinni og var sagt að maður
byggi í hinum enda hússins." I ljós
kom að Omar hafði farið inn í rétta
íbúð en kom hins vegar óvenjulega
leið inn í hana.
„I því kom Eiríkur og setti á sig
reykköfunartæki í hvelli og ég fór
inn að leita. Þegar ég átti eftir að
leita í einu herbergi kom Eiríkur
inn í íbúðina og fann manninn um
leið. Þetta tók mjög stuttan tíma
en það var mikill reykur og við sá-
um ekkert til. Eiríkur fann mann-
inn í rúminu um leið og hann fór að
þreifa fyrir sér og við drifum hann
út í hvelli meðvitundarlítinn og
fluttum hann í bæinn.“
Ibúðin skemmdist töluvert og
eldsupptök eru ókunn, en talið
hugsanlegt að kviknað hafi í hæg-
indastól.
Mátti vart tæpara standa
Að sögn Omars mátti vart
tæpara standa og tekur hann undir
þá staðhæfíngu að það hafí orðið
manninum til bjargar hversu lágt
hann svaf frá gólfí. „Mér fannst
rúmið vera frekar lágt því þegar
við vorum að ná honum upp úr
rúminu þurftum við að fara lágt til
þess svo ég held að það hafi ekki
skemmt fyrir honum.“
Þetta er í annað sinn sem
Omari auðnast að bjarga manns-
lífi úr bruna, en í fyrra skiptið var
Omar ásamt bróður sínum við
björgunarstörf í eldsvoða á Faxa-
braut í októbermánuði árið 1997
og bjargaði manni með líkum
hætti og nú. Aðspurður segir Óm-
ar það vera góða tilfinningu að
bjarga mannslífi og sé það
ánægjuleg hlið á starfinu. „Þetta
hvetur mann áfram og sýnir
manni að maður er á réttri
braut,“ sagði Ómar.
Flóttamennirnir sem koma til íslands 1 vikulokin
Helming’urinn til Dalvíkurbyggðar
UM helmingur þeitra 50 flótta-
manna, sem væntanlegir eru til
landsins í vikunni, mun fara til
Dalvíkurbyggðar, en hinn helm-
ingur hópsins verður búsettur á
Reyðarfirði, samkvæmt frétt frá
félagsmálaráðuneytinu.
f fréttinni segir að félagsmála-
ráðherra hafi ákveðið að taka boði
Dalvíkurbyggðar um að taka á
móti um helmingi þeirra 50 flótta-
manna sem væntanlegir séu til
landsins í vikunni, en hinn helm-
ingur hópsins verði búsettur á
Reyðarfírði.
„Gert er ráð fyrir að sendineínd
muni fara til Makedóníu á fimmtu-
dag og að flóttamennimir komi
hingað til lands á laugardagskvöld
eða á sunnudag. Miðast áætlanir
við að flogið verði beint til Egils-
staða og að hópurinn dvelji á Eið-
um í 2-3 vikur,“ segir í frétt fé-
lagsmálaráðuneytisins.
MARGRÉT Frímannsdóttir, tals-
maður Samfylkingarinnar, sagði á
opnum fundi Samfylkingarinnar í
Reykjanesbæ í gærkvöldi að svo
virtist sem vaxandi áhugi væri fyi'ir
því innan Sjálfstæðisflokksins og
jafnvel VG, Vinstrihreyfingarinnar
- græns framboðs, að þessir flokkar
störfuðu saman og mynduðu stjórn
að loknum alþingiskosningunum 8.
maí nk. Fjölmennt var á fundi Sam-
fylkingarinnar sem haldinn var í
Stapanum í gæricvöldi og fluttu
Rannveig Guðmundsdóttir, Sigríður
Jóhannesdóttir og Jón Gunnarsson,
frambjóðendur Samfylkingarinnar í
Reykjanesi, stutt ávarp áður en
Margrét flutti ræðu sína.
„Nú eru aðeins örfáir dagar til
kosninga, aðeins örfáir dagar þangað
til úr því fæst skorið hvort Samfylk-
ingin eða Sjálfstæðisflokkurinn verð-
ur leiðandi af! í landstjóminni næstu
fjögur árin. Aðeins örfáir dagar
þangað til úr því fæst skorið hvort
Sjálfstæðisflokkurinn fær að ráða
einn á næstu fjóram áram eða með
Framsóknarflokknum eða Vinstri-
hreyfingunni - grænu framboði eins
og vaxandi áhugi virðist vera fyrir
innan Sjálfstæðisflokksins og jafhvel
Vinstrihreyfingarinnar - græns
framboðs,“ sagði Margrét.
Morgunblaðið/Halldór Kolbeins
MARGRÉT Frímannsdóttir,
talsmaður Samfylkingarinnar,
á fundinum í Stapa í gærkvöldi.
Hún lagði í ræðu sinni áherslu á
að Samfylkingin væri eina stjórn-
málaaflið sem gæti boðið Sjálfstæð-
isflokknum birginn og komið í veg
fyrir að hann færi fyrir landstjórn-
inni á næsta kjörtímabili.
Steingrímur J. Sigfússon, formaður
Vinstri hreyfíngar - græns framboðs
Sjálfstæðisflokk-
urinn höfuð-
andstæðingurinn
STEINGRIMUR J. Sigfússon, for-
maður Vinstrihreyfingarinnar -
græns framboðs, sagði á stjórn-
málafundi í Ólafsfirði í gærkvöld að
Sjálfstæðisflokkurinn væri höfuð-
andstæðingur hreyfingarinnar í ís-
lenskum stjórnmálum. Hann kom
inn á þetta atriði m.a. vegna þeirrar
umræðu sem komið hefur upp und-
anfarna daga þess efnis að einn
möguleikinn varðandi ríkisstjómar-
myndun eftir kosningar væri sam-
starf Vinstrihreyfingarinnar og
Sj álfstæðisflokksins.
„Það er í mínum huga augljóslega
fjarlægasti kosturinn sem uppi er.
Sjálfstæðisflokkurinn er á hinum
endanum og stendur fyrir þá hluti í
veigamiklum mæli sem era lengst
frá okkur. Þetta þarf ekki að koma
neinum á óvart. Og ekki dregur
þessi kosningastefnuskrá Sjálfstæð-
isflokksins, loksins þegar hún þó
kom, úr því mati mínu.“
Steingrímur vitnaði máli sínu til
stuðnings í atriði í kosningayfirlýs-
ingu Sjálfstæðisflokksins. Hann
sagði að flokkurinn vildi halda
áfram að lækka skatta „og hvað
þýðir það á mannamáli? Það þýðir
að halda áfram að draga úr opin-
berri þjónustu, halda áfram að
einkavæða og halda áfram að draga
saman samneysluna í þjóðfélaginu".
Steingrímur sagði að Sjálfstæðis-
flokkurinn vildi einkavæða fyrir-
tæki í opinberri eigu og innleiða
samkeppni á orkumarkaði. „Þarna
er boðuð væntanleg einkavæðing á
Landsvirkjun, líklega sala á Lands-
símanum og þarna á bakvið blunda
alveg örugglega áform um að fara
inn í velferðarkerfið með einkavæð-
inguna.“
I utanríkismálum eru Sjálfstæðis-
flokkurinn og Vinstrihreyfingin -
grænt framboð á öndverðum meiði í
veigamiklum málum að mati Stein-
gríms, m.a. í öryggis- og varnarmál-
um og gagnvart NATO.
MEÐ Morg-
unblaðinu í
dag er dreift
auglýsinga-
blaði frá
Bílahúsinu,
Ingvari
Helgasyni og
Bílheimum,
„Sumartilboð
á notuðum
bílum“.
Keppnisleyfi frá Júgóslavíu
ókomin til KSÍ /B1
Ingibergur vann Grettis
beltið í fjórða sinn /B4
Emi&teií li^UtSíiiiió
Á ÞRIÐJUDÖGUM
lleimili
Sérblöð í dag