Morgunblaðið - 04.05.1999, Side 6
6 ÞRIÐJUDAGUR 4. MAÍ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
Vorveiðimenn teknir með ólöglegan feng sunnanlands og* norðan
Vanþóknun lýst
á veiðiskapnum
VEIÐISTJÓRI, formaður Skotveiði-
félagsins og Fuglaverndarfélags ís-
lands lýsa vanþóknun á veiðum á
friðuðum fuglum sem uppvíst hefur
orðið um síðustu daga norðanlands
og sunnan. Veiðistjóri segir þessar
veiðar siðlausar og formaður
SKOTVÍS segir þær bera vott um
siðblindu og græðgi.
Lögreglan á Akureyri stöðvaði
pallbiíreið þriggja manna á þrítugs-
aldri um hádegið á laugardag við
Dvergastein í Glæsibæjarhreppi með
59 helsingja og 8 heiðagæsir á palli
bifreiðarinnar. Hafði lögreglan feng-
ið ábendingu frá aðila sem þótti sitt-
hvað grunsamlegt við ferðir mann-
anna og hóf eftirgrennslan eftir
þeim. í ljós kom að mennimir höfðu
veitt fuglana friðaða utan löglegs
veiðitíma í Vatnsdal norðan við bæ-
inn Miðhús í Sveinsstaðahreppi.
Lögreglan færði mennina á lög-
reglustöð og lagði hald á skotvopn
þeirra, skotfæri, veiði og tálbeitur.
Að sögn lögreglu telst málið upplýst
og verða mennimir kærðir fyrir brot
á lögum um fuglaveiðar og fuglafrið-
un. Verður mál þeirra sent sýslu-
manninum á Akureyri þar sem tekin
verður ákvörðun um ákæra á hendur
þeim. Viðurlög við brotum af þessu
tagi varðar sektum og upptöku skot-
vopna sem notaðar era við veiðarnar.
Sama dag, laugardaginn 1. maí,
fékk lögreglan á Hvolsvelli tilkynn-
ingu frá bónda og sumarhúsaeiganda
um skotveiðimenn við Affall í Austur-
Landeyjum. Er lögreglan kom á vett>
vang hafði bóndinn króað mennina af
í malamámi við Suðurlandsveginn.
Mennimir, sem era 18 og 21 árs
gamlir, höfðu drepið 3 gæsir, 5
stokkendur, 1 toppönd, 2 lóma og 2
tjalda. Vora þeir færðir á lögreglu-
stöð og lagt hald á byssur þeirra og
veiði. Annai- mannanna hafði leyfí
fyrir byssunum sem notaðar voru, en
hinn yngri var ekki á byssuleyfisaldri.
Að sögn lögreglunnar er líklegt að
þeir hafi drepið meginhluta fugl-
anna á Mýrdalssandi. Mál þeirra
verður sent sýslumanni Rangár-
vallasýslu til áframhaldandi með-
ferðar.
Aki Armann Jónsson veiðistjóri
segir að skotveiðar utan löglegs
veiðitíma eins og þær sem menn
Andlát
JOHANN ÞORIR
JÓNSSON
JÓHANN Þórir Jóns-
son, fyrrverandi rit-
stjóri tímaritsins
Skákar, Iést á Grens-
ásdeild Sjúkrahúss
Reykjavíkur sunnu-
daginn 2. maí síðastlið-
inn, á fimmtugasta og
áttunda aldursári.
Hann fæddist 21. októ-
ber 1941 í Reykjavík.
Foreldrar Jóhanns
Þóris voru Aðalheiður
Sigríður Guðmunds-
dóttir og Þórarinn B.
Ólafsson. Hann ólst
upp hjá kjörforeldrum,
Guðrúnu Jóhannsdótt-
ur og Jóni Ólafssyni
frá Söðulsholti, í Vesturbænum í
Reykjavík.
Eftirlifandi eiginkona Jóhanns
er Sigríður Vilhjálmsdóttir kenn-
ari. Böm þeirra eru Kristín María
Kjartansdóttir skrifstofumaður,
fósturdóttir Jóhanns, Hannes Jó-
hannsson hagfræðingur og Steinar
Jóhannsson rithöfundur.
Jóhann Þdrir
Jónsson
Jóhann Þórir var
kunnur skákmaður og
gaf út tímaritið Skák
aEar götur frá árinu
1963 þar til hann hætti
störfum vegna veik-
inda haustið 1997.
Hann rak bókaútgáfu í
tengslum við tímaritið
sem gaf út bækur um
skák auk ljóðabóka og
annars efnis. Einnig
stýrði hann prent-
smiðjunni Skákprent
lengst af þeim tíma.
Hann var um skeið
formaður Taflfélags
Reykjavíkur og var
heiðursfélagi Skák-
sambands Islands og vann meðal
annars að undirbúningi heims-
meistaraeinvígisins í skák hérlend-
is 1972. Hann stóð fyrir skákmót-
um víða um land og var að undir-
búa fimmtugasta helgarskákmót
sitt sem halda skyldi í Viðey þegar
starfsorka hans þraut fyrir hálfu
öðm ári.
Samfylking í sókn
Grafarvogi í dag
Samfylking í sókn i Grafarvogi í dag.
Frambjóðendur Samfylkingarinnar eru
á ferð um Grafarvoginn í dag.
Þeir heija ferð sína við Grafarvogslaug og
verða við verslunarmiðstöðvar síðla dags.
Kosningamiðstöð Ármúla 23, sími 588 4350
Samfylkingin Igg
í Reykjavík
urðu uppvísir að norðan-
lands og sunnan um
helgina lýsi háttsemi
sem er eins langt frá
þeirri veiðisiðfræði sem
kennd er á skotvopna-
námskeiðum veiðistjóra-
embættisins og lögreglu
og hægt sé að hugsa sér.
Veiðistj óraembættið
geti þó fátt annað að-
hafst vegna atburðanna,
annað en að auka sið-
fræðiþáttinn á umrædd-
um námskeiðum því
gagnvirkt eftirlit með
veiðimönnum komi ekki
til álita þar sem ekki fá-
ist fé'frá hinu opinbera
til að sinna því þrátt fyr-
ir óskir þess efnis.
„Þarna var verið að
skjóta friðaðar tegundir
utan veiðitíma, á þeim
tíma sem þær eru við-
kvæmastar fyrir, rétt áður en varp
hefst,“ segir veiðistjóri. „Þannig að
þetta er algerlega siðlaust."
Að sögn veiðistjóra hefur ekki ver-
ið haldin samræmd skrá yfir brot af
þessu tagi svo ekld er unnt að sjá
með óyggjandi hætti hvort ólöglegar
veiðar hafi aukist eða dregist saman
á liðnum áram, en eftir stendur að á
þessu ári sé orðið ljóst að slíkur
veiðiskapur hafi blossað upp og því
sé kominn tími til að horfast í augu
við vandamálið.
„Eg hef orðið sérstaklega mikið
var við þetta í vor. Það er eins og sú
flugufregn hafi komist af stað að
bændur megi leyfa vorveiðar á tún-
um en það er algert bull. Bændur
Morgunblaðið/Þórhallur Jónsson
MAGNUS Axelsson, varðstjóri Akureyrar-
lögreglunnar, við friðaða fugla sem drepnir
voru um helgina.
geta sótt um undanþágu til umhverf-
isráðuneytisins og umsóknirnai- fara
í gegnum ráðgjafanefnd um villt dýr
og þar hefur aðeins ein undanþága
verið veitt í vor.“
Veiðistjóri segir að veiðieftirlit sé í
molum á Islandi miðað við önnur
Evrópulönd og segir hann að það sé
vilji sinn að fá meiri völd til handa
embættinu til að stunda veiðieftirlit.
„Allt veiðieftirlit er í höndum lög-
reglu og hún er í yfirvinnufjársvelti
og getur því ekki sinnt eftirlitinu um
helgar.“
Að sögn veiðistjóra kemur ekki til
álita að banna allar fuglaveiðar þótt
ólöglegar veiðar hafi sannast á menn
en hins vegar sé það óskandi að skot-
menn sem drepi friðaðar tegundir
utan veiðitíma fái þungar sektir fyrir
brot sín svo það verði öðram víti til
varnaðar.
Hann segir að gagnvirkt veiðieft-
irlit, sem gæti komið í veg fyrir ólög-
legar veiðar þurfi ekki að kosta mik-
ið fé en gæti hins vegar haft töluverð
áhrif. „Þó ekki væri nema það að við
hefðum fjárveitingu til að fara eftir-
litsferðh’ með lögreglu eina til tvær
helgai’ um þau svæði sem mest heyr-
ist af, myndi slíkt eftirlit hafa sín
áhrif ef það væri sýnilegt og það yrði
nóg til að menn hugsuðu sig tvisvar
um áður en haldið yrði til veiða á
ólöglegum tíma.“
Siðblinda og græðgi
Aðspurður um viðbrögð við frétt-
um af drápi á friðuðum fuglum utan
veiðitíma, segir Sigmar B. Hauks-
son, formaður Skotveiðifélags Is-
lands, að skömm sé að slíkum veið-
um og félagið fordæmi slíkan veiði-
skap. Einnig sé mikilvægt að al-
menningui’ sé vel á verði og láti lög-
reglu vita ef sést til manna með skot-
vopn um hönd að vori.
„Þetta er ekkert nema siðblinda
og græðgi og þessum mönnum þarf
að gera ljóst hvað þeir eru að gera.
Þetta era lúalegar veiðar því fuglinn
er auðveld bráð á þessum árstíma.
Auk þess eru þessir skotveiðimenn
að eyðileggja mannorð annan’a
veiðimanna. Við í Skotveiðifélaginu
erum með strangar siðareglur og
höfum lagt mikla vinnu í að prédika
þær, þannig að við tökum siðareglur
veiðimanna mjög alvarlega, bæði
varðandi umgengni við náttúruna og
hvernig við berum okkur að við veið-
arnar,“ segir Sigmar.
Hann segir að Skotveiðifélagið álíti
að fjársektir við veiðibrotum mætti
hækka og láta féð renna í veiðikorta-
sjóð sem er sá sjóður sem kostar
rannsóknir á villtum dýrum á Islandi
og fræðslu sem snýr að veiðum.
í fréttatilkynningu frá Fugla-
verndarfélagi Islands segir m.a. að
nauðsynlegt sé að veiðimenn sem
stundi vorveiðar á gæsum verði
sviptir skotvopnaleyfi í a.m.k. 10 ár
og greiði þungar sektir, en fagnar
árvekni almennings og lögreglu.
Könnun Félagsvísindastofnunar fyrir Sjálfstæðisflokkinn
Yfír 64% vilja Davíð sem
næsta forsætisráðherra
YFIR 64% landsmanna vilja helst
fá Davíð Oddsson, formann Sjálf-
stæðisflokksins, sem forsætisráð-
herra á næsta kjörtímabili, sam-
kvæmt könnun sem Félagsvísinda-
stofnun Háskóla íslands gerði fyr-
ir Sjálfstæðisflokkinn dagana 22.
til 25. apríl sl.
Næstflestir aðspurðra nefndu
Halldór Asgrímsson, foi-mann
Framsóknarflokksins, eða 12,0%,
þar á eftir kemur Jóhanna Sigurð-
ardóttir, efsti maður á lista Sam-
fylkingarinnar í Reykjavík, en
hana nefndu 7,8% aðspurðra og
því næst Margrét Frímannsdóttir,
talsmaður Samfylkingarinnar,
með 5,3% tilnefninga. Þá vildu
2,3% helst fá Össur Skarphéðins-
son, annan mann á lista Samfylk-
ingarinnar í Reykjavík, sem for-
sætisráðherra á næsta kjörtímabili
og 1,9% nefndi Steingrím J. Sig-
fússon, formann Vinstrihreyfíng-
arinnar - græns framboðs.
í könnuninni var spurt: „Hvern
íslenskra stjómmálamanna viltu
helst fá sem forsætisráðhema á
næsta kjörtímabili?“ Aðrir stjórn-
málamenn en þeir sem áður voru
taldir upp fengu samanlagt 42 at-
kvæði. Þeir fengu hver um sig
minna en 1% fylgi. Stuðst var við
slembiúrtak úr þjóðskrá sem náði
til 1500 einstaklinga á aldrinum 18
ára og eldri af öllu landinu. Full-
nægjandi samræmi var milli skipt-
ingar úrtaksins og þjóðarinnar
allrar eftir aldri, kyni og búsetu.
Svarhlutfall var 70,4%. Þeir sem
neituðu að svara voru 14,8%.
Hvern íslenskra stjórnmálamanna viltu helst fá
sem forsætisráðherra á næsta kjörtímabili?
12,0% Halldór Ásgrímsson
7,8% Jóhönnu Sigurðardóttur
5,3% Margréti Frímannsdóttur
2,3% Össur Skarphéðinsson
| 1,9% Steingrím J. Sigfússon
§ C\i
C c\j
-2 §
io e
■§ S
jw ig
S l!
S i£ sr
Skoðanakönnun DV
Meirihluti fylgjandi
aðildarviðræðum
I SKOÐANAKONNUN sem birt
var í DV í gær kemur fram að
tveir af hverjum þremur þeirra
sem taka afstöðu eru fylgjandi að-
ildarviðræðum við Evrópusam-
bandið, ESB.
Úrtak könnunarinnar var 600
manns og var því jafnt skipt milli
höfuðborgarinnar og landsbyggð-
ar. 53% sögðust fylgjandi aðildar-
viðræðum, 27,7% sögðust andvíg
en 15,2% voru óákveðin og 4,1%
svaraði ekki spurningunni. Af-
stöðu tóku því 80,7% og af þeim
voru 65,7& fylgjandi en 34,3%
andvíg aðildarviðræðum.
Jafnframt kemur fram í könn-
uninni að flestir fylgjendm- aðild-
arviðræðna eru í hópi stuðnings-
manna Sjálfstæðisflokksins og
Samfylkingar, eða 58-60%. And-
stæðingar aðildarviðræðna era að-
eins í meirihluta í Vinstrihreyfing-
unni - grænu framboði, eða 52%.