Morgunblaðið - 04.05.1999, Side 12
12 ÞRIÐJUDAGUR 4. MAÍ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Bandalag íslenskra listamanna boðar frambjóðendur til umræðufundar
Ríkið og skipan menn-
ingarmála á nýrri öld
Morgunblaðið/Golli
BJÖRN Bjarnason, Valgerður Sverrisdóttir, Mörður Árnason og Kol-
brún Halldórsdóttir á fundinum á Hótel Borg í gær.
MIKILVÆGI menningarmála var
rækilega undirstrikað á fundi sem
Bandalag íslenskra listamanna bauð
til frambjóðendum þeirra flokka,
sem bjóða fram á landsvísu í kom-
andi kosningum, á Hótel Borg síð-
degis í gær. A fundinum var meðal
annars deilt um hlutverk ríkisins í
skipan menningarmála og áætlun
um menningarhús á landsbyggðinni.
Fundurinn bar yfirskriftina
„menningaráherslur í upphafi nýrr-
ar aldar“ og fyrst frambjóðenda tók
til máls Margrét Sverrisdóttir, 3.
frambjóðandi á lista Frjálslynda
flokksins í Reykjavík, og sagði hún
að flokkur sinn legði áherslu á að
bæta skólastarf og hlúa að listum.
Stofna bæri sérstaka akademíu til
varnar tungunni og menningunni,
tveimur höfuðþáttum í tilveru þjóð-
arinnar.
Akademíur og menningarráð
„í þessu felst meginstefna flokks-
ins og ég vek sérstaka athygli á
þeirri fyrirætlan að stofna akadem-
íu menningar og lista,“ sagði hún.
„Slík akademía væri hópur rithöf-
unda, listamanna og fræðimanna til
eflingar bókmenntum, listum og vís-
indum. Frjálslyndi flokkurinn vill
að ríkið styrki stofnanir eftir tillög-
um þessarar akademíu, en ríkið
sjálft kæmi hvergi nærri stjórnum
þeirra stofnana."
Valgerður Sverrisdóttir, 1. fram-
bjóðandi á lista framsóknarmanna á
Norðurlandi eystra, sagði að í raun
væri engin opinber menningar-
stefna rekin á ísland og oft væri lík-
ast því að ákvarðanir stjómvalda
um fjárveitingar hverju sinni væru
handahófskenndar. Því hefði hún
sett fram tillögu á síðasta kjörtíma-
bili um stofnun menningarráðs, sem
ekki hefði náð fram að ganga vegna
skorts á undirtektum hjá samstarfs-
flokki framsóknarmanna í stjóm, en
ætti að vera farvegur faglegrar um-
ræðu og móta heildarstefnu með
samráði fagmanna á ýmsum sviðum
menningarmála.
Kolbrún Halldórsdóttir, sem
skipar 2. sæti á framboðslista
Vinstri hreyfmgarinnar - græns
framboðs í Reykjavík, vísaði í
stefnuskrá flokks síns og sagði að
hann legði áherslu á að listsköpun
væri viðurkennd iðja, sem hefði
skilað þjóðinni jafnt menningarleg-
um sem fjárhagslegum verðmætum.
Stofnanir menningannála ættu að
starfa á faglegum grunni án af-
skipta stjómmálamanna og þeim
mætti ekki fórna undir „yfirskini
frjálsrar samkeppni".
Björn Bjarnason menntamálaráð-
herra, sem skipar 2. sæti á lista
sjálfstæðismanna í Reykjavík, hóf
mál sitt á því að flest það sem lagt
hefði verið fram í áætlun, sem sam-
in var skömmu eftir að hann settist
í menntamálaráðuneytið, hefði
náðst á þessu kjörtímabili og miklu
meira.
Hann sagði ljóst að við hverjum
þeim, sem starfa mundi sem
menntamálaráðherra á komandi ár-
um, blasti ný sýn í menningarmál-
um að því leyti að einstaklingar og
íyrirtæki þeirra létu æ meira að sér
kveða.
„Krafan frá þessum aðilum er að
þeir fái aðstöðu til að starfa jafnfæt-
is ríkisstofnunum," sagði hann.
„Þess vegna er það spurningin
hvernig við lögum ríkisstofnanimar
að þessum breyttu kröfum og
hvernig þróast þær með hliðsjón af
því að einkaaðilar eru sífellt að
verða öflugri á þessu sviði?“
Birgitta Jónsdóttir, sem skipar 2.
sæti á lista húmanista í Reykjavík,
sagði að engu máli skipti hvað um-
gjörðin væri fín, ef listamenn gætu
ekki starfað að sinni listgrein.
Hún sagði að húmanistar legðu til
að listamenn, hvort sem um væri að
ræða há- eða lágmenningu, mynd-
uðu eitt stórt stéttarfélag til að
vinna að málum sínum. Hún sagði
einnig að listamenn, sem til dæmis
hefðu útgáfusamninga, ættu ekki að
fá laun frá ríkinu, heldur ættu for-
lögin að borga þeim fyrir að vera í
vinnu hjá þeim. Styi'kja ætti jaðar-
inn og gróskuna.
Mörður Arnason, sem skipar 6.
sæti á lista Samylkingarinnar í
Reykjavík, sagði að Samfylkingin
vildi gera úttekt á stöðu menningar-
lífs í landinu og móta í kjölfarið
menningarstefnu, sem fylgt yrði
eftir með framkvæmdaáætlun.
Hann sagði að eiginleg menning-
arstefna væri ekki til og fram-
kvæmd án samhengis og ómarkviss
og þegar Sjálfstæðisflokkurinn færi
með menntamálaráðuneytið færi ár-
angur eftir einstaklingnum í ráð-
herrastóli, ekki stefnu flokksins.
Deilt um menningarhús
Nokkrar umræður spunnust um
menningarhús. Margrét Sverris-
dóttir sagði að áætlanir um menn-
ingarhús minntu sig „óneitanlega á
glæstar áætlanir Moskvuleiðtog-
anna um æskulýðshallir á sífreran-
um í Siberíu á árum áður“ og
Mörður Arnason sagði að ekki væri
þörf á meiri steinsteypu á lands-
byggðinni. Valgerður Sverrisdóttir
og Björn Bjarnason ítrekuðu að
með menningarhúsum væri ekki
verið að tala um að reisa nýjar
byggingar, væru þær óþarfar,
heldur að skapa aðstöðu til menn-
ingarstarfs.
Fylgi flokkanna
á Suðurlandi
Sjálfstæðis-
flokkur
fengi þrjá
Sjálfstæðisflokkurinn fengi þrjá
kjördæmakjörna þingmenn á Suður-
landi samkvæmt skoðanakönnun
sem Gallup gerði á fylgi flokkanna í
kjördæminu fyrir Ríkisútvai’pið dag-
ana 25. til 29. apríl sl. Flokkurinn
hefur í dag tvo þingmenn úr kjör-
dæminu. Framsóknarflokkurinn
fengi einn þingmann samkvæmt
könnuninni og missti einn og Sam-
fylkingin fengi einn, en þeir flokkar
sem standa að Samfylkingunni fengu
samanlagt einn kjördæmakjörinn
þingmann á Suðurlandi í síðustu al-
þingiskosningum.
Sjálfstæðisflokkurinn nýtur 44,1%
fylgis samkvæmt umræddri skoð-
anakönnun Gallup en í síðustu kosn-
ingum fékk flokkurinn 33,2% fylgi og
tvo þingmenn. Framsóknarflokkur-
innn nýtur 21,9% fylgis samkvæmt
könnuninni en fékk 29% fylgi og tvo
þingmenn í síðustu kosningum. Þá
nýtur Samfylkingin 25% fylgis sam-
kvæmt könnuninni en Alþýðubanda-
lagið fékk 15,8% og einn þingmann í
síðustu kosningum, Alþýðufiokkur-
inn 6,8% og uppbótarsæti kjördæm-
isins, Þjóðvaki 4% og Samtök um
kvennalista 2,3%. Þess má auk þess
geta að Suðurlandslisti Eggerts
Haukdals fékk 8,5% atkvæða í síð-
ustu kosningum.
Nú nýtur Frjálslyndi flokkurinn
4,6% fylgis á Suðm-landi samkvæmt
könnun Gallup, Vinstrihreyfíngin -
grænt framboð 3,7% fylgis og
Húmanistaflokkurinn 0,7% fylgis.
Óákveðnir 13%
Þeir sem voru óákveðnir eða neituðu
að taka afstöðu í könnun Gallup eru
13% (af þeim voru 4,8% óákveðin),
en til viðbótar kváðust 7,8% ekki
myndu kjósa eða skila auðu. Urtak
könnunarinnar var 800 manns á Suð-
urlandi á aldrinum 18 ára og eldri
sem valið var með tilviljun úr þjóð-
skrá. Svarhlutfall var tæplega 75%.
Húmanistaflokkurinn
Kærir Stöð 2
HÚMANISTAFLOKKURINN hef-
ur ákveðið að kæra Stöð 2 til út-
varpsréttamefndar vegna þess að
hann telur sig ekki hafa fengið að
kynna framboð sitt á sjónvarpsstöð-
inni á sama hátt og aðrir flokkar sem
bjóða fram á landsvísu. í fréttatil-
kynningu frá flokknum segir m.a. að
nú standi yfir kosningaþættir hjá
fréttastofu Stöðvar 2 þar sem ein-
göngu fimm af sex forsvarsmönnum
landsframboða fái að kynna sín mál-
efni. „Fréttastofa Stöðvar 2 hefur
ekki varið svo mikið sem einni mín-
útu í viðtal við nokkum frambjóð-
anda Húmanistaflokksins eða í um-
fjöllun um þau málefni sem hann
hefur fram að færa,“ segir í tilkynn-
ingunni. Flokkurinn vitnar ennfrem-
ur í útvarpslög þar sem segir m.a. að
útvarpsstöðvum beri að virða tján-
ingarfrelsi og stuðla að því að fram
komi í dagskrá rök fyrír mismunandi
skoðunum í umdeildum málum.
Morgunblaðið/Gunnlaugur
KOSNINGASKRIFSTOFA Sjálfstæðisflokksins í Stykkishólmi.
Kosningamál rædd í Stykkishólmi
KOSNINGASTOFA Sjálfstæðis-
flokksins hefur tekið til starfa í
Lionshúsinu í Stykkishólmi. Kosn-
ingastofan var opnuð með „opnu
húsi“ þar sem boðið var upp á kaffi
og meðlæti. Geir Haarde fjárniála-
ráðherra ræddi um helstu málefni
kosninganna og það sama gerði St-
urla Böðvarsson alþingismaður.
Skrifstofan verður opin alla
daga fram að kosningum, frá kl.
17-19 og kl. 20-22.
Anarkistar á fslandi
Vilja lækka
kosningaaldur
EITT af helstu stefnumálum Anai-kista á Islandi er að
lækka kosningaaldur. Þetta kom m.a. fram á fundi þeirra
með nemendum Fjölbrautaskólans í Breiðholti nýlega.
Mai'gir nemendanna voru þó ekki sammála því að
lækka beri kosningaaldurinn og sögðu m.a. að mjög
margir krakkai' hefðu engar skoðanir á stjórnmálum og
hefðu auk þess ekki þroska til að kjósa. „Hvað haldið þið
að margir yfir átján ára hafí þroska til að kjósa?,“ svör-
uðu fulltrúar Anarkista hins vegar að bragði. Á myndinni
eru þeir Sólver. H. Hafsteinsson, sem skipar 13. sæti
Morgunblaðið/Árni Sæberg
framboðslista Anarkista í Reykjavík, Þórarinn Einarsson
sem skipar fyrsta sæti listans og Einar Valur Bjarnason,
stuðningsmaður Anarkista, sem væri að sögn Þórarins í
framboði væri hann orðinn átján ára.
Fylgi Sjálfstæð-
isflokksins dalar
Sjálfstæðisflokkurinn fengi 40,8%
fylgi, yrði gengið til kosninga nú,
samkvæmt nýrri skoðanakönnun
Gallup sem gerð var dagana 30. apríl
til 2. maí og birt var í Ríkisútvarpinu
í gær. Fylgi flokksins hefur dalað ör-
lítið frá síðustu skoðanakönnun
Gallup sem birt var 18. apríl sl. en þá
naut hann 44,9% fylgis.
Framsóknarflokkurinn fengi nú
18,7% fylgi miðað við 17,3% í síðustu
könnun, Samiylkingin fengi 29,1%
miðað við 30,1% síðast og Vinstri-
hreyfíngin - grænt framboð fengi
7,5% miðað við 5,0% síðast. Sveifl-
umar á fylgi Framsóknarflokksins
annars vegar og Samfylkingarinnai'
hins vegar frá síðustu skoðanakönn-
un Gallup eru innan skekkjumarka
en Vinstrihreyfingin bætir hins veg-
ar aðeins við sig fylgi.
Þá fengi Frjálslyndi flokkurinn
2,7% fylgi ef kosið yrði nú, sam-
kvæmt könnun Gallup, Húmanista-
flokkurinn fengi 0,8%, Kristilegi lýð-
ræðisflokkurinn_ 0,2% og Anarkistar
á íslandi 0,2%. Úrtak könnunarinnar
var 1.000 manns af landinu öliu og
svarhlutfall var rösklega 70%. Þeir
sem voru óákveðnir eða neituðu að
svara eru 17,3%.
Niðurstöður í Reykjavík
í skoðanakönnuninni leitaðist
Gallup við að finna út fylgi flokk-
anna í Reykjavíkurkjördæmi og
byggði það á svörum 150 til 200
manna. Samkvæmt því nýtur Fram-
sóknarflokkurinn 10% fylgis '
Rey kj avík, Sj álfstæðisflokkurinn
49% fylgis, Samfylkingin 29% fylgis
og Vinstrihreyfmgin - grænt fram-
boð 9% fylgis. Gallup treysti sér
ekki til að skipta fylginu milli hinna
flokkanna sem minna fengu út úr
þessu úrtaki.
Könnun Stöðvar 2
Sjálfstæðisflokkur með
nær helmings fylgi
Sjálfstæðisflokkurinn nýtur
49,2% fylgis, af þeim sem afstöðu
taka, í skoðanakönnun sem
PrieewaterhouseCoopers gerði fyrir
Stöð 2 og birt var í fréttum sjón-
varpsstöðvarinnar á laugardag.
Samfylkingin nýtur 24,5% fylgis,
Framsóknarflokkurinn 17% fylgis
og Vinstrihreyfingin - grænt
framboð 7,1% fylgis. Þá mælist fylgi
Húmanistaflokksins 1,0%, Frjáls-
lynda flokksins 0,8%, Kristilega lýð-
ræðisflokksins 0,2% og Anarkista á
íslandi 0,2%. Úrtak könnunarinnar
var 1.100 manns og er svarhlutfall
70%. Þriðjungur er óákveðinn eða
neitar að svara.